Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
Khrústsjov gerist
bandarískur
ríkisborgari
Sergei Khrústsjov, sonur sovéska
stjórnmálaleiötogans Nikíta
Khrústsjovs, er orðinn bandariskur
þegn. „Ég er endurfæddur," sagði
Khrústsjov þegar hann hafði farið
með hollustueið við Bandaríkin.
Khrústsjov, sem er eina barn
hins látna leiðtoga, sagðist þess
fullviss að faðir sinn myndi ekki
snúa sér við í gröfmni vegna þess
og hann myndi skilja þess
ákvörðun fullkomlega.
Khrústsjov hefur gegnt prófess-
orsstöðu í Brown háskólanum frá
árinu 1991. Hann segir að honum og
eiginkonu sinni hafl alla tíö liðið vel
í Bandaríkjunum og þess vegna hafi
hann sótt um ríkisborgararétt.
Khameini erkiklerkur fordæmir kröfugöngur stúdenta í íran:
Segir Bandaríkin á
bak við mótmælin
Þúsundir stúdenta höfðu í morg-
un að engu bann yfirvalda við mót-
mælum og söfnuðust saman við há-
skólann í Teheran. í gærkvöld
handtók óeirðalögregla í Teheran
um 50 manns er hún gerði innrás í
stúdentagarða við háskólann.
Yfirvöld í íran fullyrtu seint í
gærkvöld að óeirðum gærdagsins
væri lokið. Þá hafði verið sett bann
við mótmælagöngum sem taka á
gildi í dag. „Enginn hópur eða sam-
tök hafa rétt til að safnast saman,
ganga eða mótmæla. Brot gegn
banninu er ólöglegt og brugðist
verður við í samræmi við það,“
sagði í tilkynningu yfirvalda.
Þetta var í fyrsta sinn sem yfir-
völd bönnuðu beinlínis mótmæla-
göngur stúdenta sem nú hafa staðið
yfir í sex daga. Stúdentar mótmæla
lokun frjálslynds dagblaðs og krefj-
ast prentfrelsis.
Þegar námsmenn héldu til bú-
staða sinna seint í gærkvöld þustu
hundruð róttækra múslíma út á göt-
Stúdentar hlúa að særðum félögum sínum við háskólann í Teheran í íran í
gærkvöld. Símamynd Reuter
ur höfuðborgarinnar. Þeir æddu
öskureiðir i átt að stúdentagörðun-
um, vopnaðir löngum prikum. Sam-
kvæmt frásögn stúdenta stöðvaði
óeirðalögregla múslímana.
Mikil átök urðu í gærdag milli
stúdenta og óeirðalögreglu og bylt-
ingarvarða sem styðja klerka
múslíma. Óeirðalögreglan og bylt-
ingarverðir réðust á stúdenta með
kylfum og táragasi.
Mohammad Khatami, forseti
írans, sem eru umbótasinnaður,
hvatti í gær stúdenta til að svara
ekki ögrunum frá andstæðingum
umbótanna. Khatami sagði að aðil-
ar sem ekki vildu breytingar í land-
inu reyndu að hagnýta sér mótmæli
stúdentarma.
Æðsti trúarleiðtogi írans, aya-
tollah Ali Khameini, kenndi í morgun
utanaðkomandi öflum, einkum
Bandaríkjunum, um óeirðirnar í íran
sem breiðst hafa út víða um landið.
Múslímar saka stúdenta um að ætla
að kollvarpa íslamska kerfinu.
Óraníumenn
friðsamir í gær
Óraníumenn voru friðsamir þeg-
ar þeir gengu fylktu liði um götur
Belfast í gær en þá náði svokölluð
göngutíð hámarki. Göngur Óraníu-
manna í ár hafa því verið án átaka
og þykir það til marks um að friðar-
vilji sé ríkjandi.
Þetta mun í fyrsta sinn á fimm
ára tímabili sem ekki kemur til
átaka í kringum skrúðgöngur Óran-
íumanna. Lögregla var í viðbragðs-
stöðu í Belfast i gær en að sögn lög-
reglustjórans hegðuðu bæði mót-
mælendur og kaþólikkar sér hið
besta í gær.
Á sama tíma í gær tilkynnti
breska stjórnin að hún hygðist
leggja fram frumvarp sem ætlað er
að tryggja að Sinn Féin taki ekki
þátt i nýrri heimastjórn standi IRA
ekki við skuldbindingar um afvopn-
un. Frumvarpið er talið munu auka
stuðning sambandssinna sem marg-
ir hveijir hafa veriö andsnúnir sam-
komulagsdrögum Tonys Blairs og
Berties Aherns, forsætisráðherra ír-
lands.
Samkvæmt tillögum forsætisráð-
herranna rennur frestur til að
hrinda tillögunum í framkvæmd á
fimmtudag. Samkvæmt þeim
myndu stjórnmálaflokkamir til-
nefna fulltrúa sína í stjórn og taka
síðan við takmörkuðum völdum úr
höndum Breta. Afvopnun IRA hæf-
ist síðan að nokkram dögum liðn-
um. Ekki er talið líklegt að Sam-
bandssinnar taki endanlega afstöðu
til samkomulagsins fyrr en á mið-
vikudagskvöld.
Anægja með
fund Baraks og
Arafats
Bandarlsk yfirvöld lýstu í gær yf-
ir ánægju sinni með fyrsta fund
Ehuds Baraks, forsætisráðherra
ísraels, og Yassirs Arafats, leiðtoga
Palestínumanna, á sunnudaginn.
James Foley, talsmaður handaríska
utanríkisráöuneytisins, sagði nið-
urstöðu fundarins enn eina ástæð-
una fyrir því að Sameinuðu þjóð-
irnar ættu að aflýsa ráðstefnu sinni
í Genf í þessari viku um framferði
ísraela á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Nýja stjórnin í ísrael hef-
ur hvatt Palestínumenn til að taka
ekki þátt í ráðstefnunni.
Primakov Rúss-
landsforseti ef
kosið yrði nú
Ef forsetakosningar færu fram í
Rússlandi nú yrði Jevgení Prima-
kov, fyrrverandi forsætisráðherra,
kjörinn, samkvæmt nýrri könnun.
Könnunin sýnir að Primakov
fengi 17 prósent atkvæða í fyrri
umferð kosninganna en kommún-
istaleiðtoginn Gennadí Zjúganov 16
prósent. í annarri umferð myndi
Primakov sigra hver sem andstæð-
ingur hans yrði.
Forsetakosningar verða í Rúss-
landi í júní eða júlí á næsta ári.
í kjölfar mikilla monsúnrigninga hafa flestar ár f Bangladesh flætt yfir bakka sína og gott betur því margir bæir og borgir
eru á floti. íbúar hafnarborgarinnar Chittagong máttu vaða elginn tii að komast leiðar sinnar í gær. Símamynd Reuter
Norska strand-
gæslan handtók
grænfriðunga
Norska strandgæslan gerði í
gær upptækt skip grænfriðunga,
Síríus, undan strönd S-Noregs.
Grænfriðungarnir reyndu að
hindra hrefnuveiðar norska hval-
skipsins Kato. Afhenda átti lög-
regluyfirvöldum í Stavanger
grænfriðungana 17, sem voru um
borð í Síríusi, í morgun. Talsmað-
ur grænfriðunga, Lars Haraldsen,
fullyrti að skotið hefði verið á
gúmmíbát grænfriðunga frá hval-
skipinu. Talsmenn strandgæsl-
unnar sögðu grænfriðungana
hafa verið handtekna þar sem
þeir sigldu of nálægt hvalbátun-
um og neituðu að fara á brott.
Sprengja í rútu
í Istanbúl
Tveir særðust alvarlega er
sprengja sprakk í smárútu í Istan-
bul í Tyrklandi i nótt. Engin sam-
tök höfðu í morgun lýst yfir
ábyrgð á sprengjuárásinni.
Kúrdískir skæruliðar, öfgasinn-
aðir vinstri menn, róttækir
múslímar og öfgasinnaðir hægri
menn hafa að undanfórnu staðið
fyrir sprengjuárásum í Tyrklandi.
Átta manns hafá beðið bana í
árásunum í þessum mánuði.