Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 4
„Eg hef aðeins einu sinni týnt veskinu mínu. Það var þegar ég var 16 ára gamall. Þetta sumar hafði ég verið að vinna eins og brjálæðingur við að steypa rör og átti því orðið eitthvað af pen- ingum. Ég ákvað að taka mér frí úr vinnunni í einn dag enda verslunarmannhelgi og ég ætlaði að að skella mér á ball í Miðgarði. Það var lítið fjör á þessu balli þar sem ég týndi ,? veskinu áður en ballið byrjaði og voru það mikil vonbrigði því í veskinu voru hvorki meira né minna en 180 þús- und krónur og í þá daga var það and- virði góðs bíls. Veskið fannst aldrei og ég hef ekki séð þessa peninga síðan, segir Magnús, þar sem hann tekur sér stutta pásu frá æfing- um á nýju leikriti um Latabæ sem sýna á innan skamms í Þjóð- leikhúsinu. Magnús hefur svo sannarlega lært af reynslunni því í dag geng- ur hann varla um með lausafé á sér. Veskið hans Magga er þó síð- ur en svo tómlegt, heldur feitt eins og vel alið svín. „Ég viðurkenni að það er orðið nokkuð svert, ég þarf greinilega að fara að taka til í því,“ segir Maggi og handleikur veskið. Þetta er lítið og sætt, brúnt leð- urveski sem hann keypti úti á Ítalíu fyrir fjórum árum síðan. Kannski dálítið stelpulegt en mjög praktískt að hans sögn. „Það er svo lítið að það kemst í brjóstvasann sem er stór kost- ur. Svo er það lika með svona lít- illi simanúmerabók, „ segir Magnús og flettir í gegnum þétt skrifaðar blaðsíðurnar. Það sem tekur þó mesta pláss- ið í veskinu hans Magnúsar eru nafnspjöld frá hinum og þessum, sem og kvittanir. „Ég hirði allar kvittanir og set þær í heimilisbókhaldið," segir Maggi, sem þrátt fyrir að hafa ýmislegt drasl I veskinu sínu, eins og lesendur geta séð hér til hliðar, þá er hann greinilega með fjármálin á hreinu. -snæ GRIM Síðan Magnús Scheving týndi 180 þúsund krónum þegar hann var 16 ára gamall hefur hann varla gengið um með lausafé á sér. Veskið hans Magnúsar er þó síður en svo tómt, heldur uppfullt af ýmsum sneplum sem segja sína sögu um íþróttaálfinn. Haugur af pósakvittunum, meðal ann- ars frá Súfistanum, Hlíðarblómunum, Húsamiðjunni og Hringbrautar-apóteki. Kvittun frá saumastofunni Saumsprettan: „Eglæt oft minnka föt á mig því ég er svo Ift- III. Ég verð greinilega að fara að ná í þennan jakka því hann var tilbúinn fyrir meira en mánuði síðan.“ „Þetta kort nota ég bara erlendis. Atlaskort með mynd af Magnúsi sjálfum á framhliðinni: „Ég er ekki með þetta kort út af myndinni, þó hún sé náttúrulega mjög töff. Ég nota þetta kort aðallega erlendis eða ef ég þarf að kaupa eitthvað sem konan mín má ekki vita um.“ „Þetta kort nota ég mest af kortunum en þó verð ég að segja að ég nota kort afskaplega lítið.“ Tímakort hjá Kírópraktor: „Ég fæ stund- um þursabit í bakið og er því nýbyrjaður hjá kírópraktornum Bergi Konráðssyni. Hann er mjög góður." Stundaskrá Aerobicks sports: „Ég er með hana í veskinu svo ég gleymi ekki hvenær ég eigi að kenna.“ Herbergislykill frá Radison Edwardsen-hót- elinu í London: „Nei, nei, hef ég stungið af meö lykilinn þegar ég gisti þarna fyrir fjórum mánuðum síðan. Ja, ýmislegt kemur nú í Ijós gar maöur lagar til í veskinu sínu.“ í flugrútuna: „Ég tók flugrútuna þegar ég skrapp til Ítalíu um dag- inn.“ IRadison Edward- sen-hótelið í London: „Ég hef oft gist þarna." Kvittun fyrir golf- hring á A la Cante Portúgal: „Þetta var í fyrsta sinn sem ég spilaði á alvöru golf- velli. Ég splla ekki oft golf enda er ég alveg rosalega léleg- ur.“ jLestarmiði frá London: „Þegar ég er í London ferð- ast ég svo að segja allt með underground-inum því það er einfaldlega svo þægilegt." Samtals peningar í veskinu 2385 og 2000 pesetar frá einhverri utan- landsferðinni. f Ó k U S 24. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.