Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Page 11
I
t
Fær þessi
a bakinu a vna^ til 9.ð
Þegar eðal-grugghljómsveitin
Soundgarden hætti störfum árið 1997
eftir 12 ára samveru var engin full-
nægjandi skýring gefin á skilnaðin-
um. Hljómsveitin hafði ekki gengið í
gegnum krísu af nokkurri sort,
nýjasta platan (Down On The
Upside) var að seljast vel og allt virt-
ist eins og blómstrið eina. Það eina
sem heyrðist og gat skýrt dauða
sveitarinnar var hið sígilda hjal um
„tónlistarlegan ágreining".
Nú er Chris Cornell, söngvari og
aðalkarl Soundgarden, mættur með
sína fyrstu sólóplötu, „Euphoria
Morning", og erfitt er beinlinis að
koma auga á í hverju „tónlistarlegi
ágreiningurinn" lá, svo lík er platan
því poppaða gruggrokki sem gamla
sveitin hans lagði stund á. Chris er
reyndar léttari á bárunni og rokkið
er ekki framreitt á jafn spark-í-
hreðjarnar-legan hátt og áður. Yfir
öllu liggur svo auðþekkjanleg söng-
rödd Chris sem getur klifrað upp á
háa-C-ið eins og glaðasti geldingur
jafnt sem jarmað á bassanótunum
eins og búktalari Satans.
Einrænn kokkur gerist
rokkari
Chris fæddist í Seattle 20. júlí 1964,
yngsta bamið í stórri kaþólikka-fjöl-
skyldu. Tíu ára gafst Chris litli upp
á gítar- og píanótímunum sem hann
hafði verið settur í og fór að sukka
stíft með dópæsku Seattle. Hann
fékk þó snemma nóg af helvitis dóp-
vitleysunni og hefur verið skrauf-
þurr síðan um fermingu. Á tánings-
aldrinum miðjum fór Chris að vera
Ghris Cornell var
söngvarinn og aðal-
gaurinn í hinni
þrýstnu gruggrokk-
hljómsveit Soundgar-
den. Nú, tveimur
árum eftir að Sound-
garden hætti störfum,
er söngvarinn snúinn
aftur í kastljósin með
sólóplötu sem er
undir áhrifum frá Bítl-
unum og full af per-
sónulegum textum.
sjúklega einrænn, og er einveran
þema sem hann notar í mörgum text-
um. Foreldrar hans skyldu þegar
hann var 15 ára og Chris notaði
tækifærið til að hætta í kaþólska
skólanum og gerast kokkur. Hann
fékk vinnu á frægum sjávarréttar-
stað.í Seattle en var svo þurr á
manninn við samstarfsfólkið að
hann var næstum rekinn. Það er
ljóst að þar hefur verið farið fram á
að starfsfólk væri „hresst". Aum-
ingja Chris væri eflaust enn að
svitna feiminn yfír risarækju-risotto
ef rokkið hefði ekki komið eins og sá
frelsandi gustur sem það er inn í líf
hans. Þegar hann var sautján fann
hann sig í að lemja á trommur. Sú
iðja hélt athygli hans miklu betur en
taumlaus tuggan sem dæld hafði ver-
ið yfir hann í skólakerfmu. Chris fór
trommandi á milli nokkurra kóver-
hljómsveita uns hann hitta gaurana
sem stofnuðu með honum Soundgar-
den 198, sem varð ásamt Nirvana og
Green River (síðar Mudhoney) frum-
kvöðull i gruggrokkinu og kom
Seattle-borg eftirminnilega á rokk-
kortið. Chris trommaði fyrst en þótti
mun efnilegri sem söngvari því hann
gat sungið hærra en aðrir meðlimir.
Til að vera gjaldgengur lagahöfund-
ur tók Chris upp þráöinn frá gítar-
tímum barnæskunnar og spilaði á
ryþmagítar á seinni stigum Sound-
garden. Hann varð afkastamikill
laga- og textahöfundur með tímanum
og samdi öll helstu lög Soundgarden,
t.d. „Outshined" af Badmotorfmger
(1991), sem fyrst vakti verulega at-
hygli á bandinu, og svo snilidarlögin
„Black Hole Sun“ og „Spoonman" af
meistaraverkinu Superunknown
(1994) sem hann fékk Grammy-verð-
laun fyrir.
Persónulegi
trúbadorinn
„Allt í einu gat ég gert það sem ég
vildi og ég varð eiginlega bara hrædd-
ur,“ segir hann um það að vinna einn
á báti. „Ég varð fyrir miklum áhrif-
um frá Bítlunum. Ekki beint Bítla-
sándinu eða lögunum þeirra, heldur
það hversu fjölbreytta tónlist þeir
leyfðu sér að spila. Þeir tóku mis-
„Allt í einu gat ég gert það sem ég vildi og ég varð eiginlega bara hræddur,"
segir Chris Cornell um það þegar hann yfirgaf Soundgarden.
munandi stíla og „fíling" og tileink-
uðu sér og gerðu sína eigin.“
Víst er sólóskífa Chris fjölbreytt,
þó alltaf sé auðheyrt hver sé á ferð.
Chris er þó að prófa að syngja á fjöl-
breyttari hátt en áður, í einu lagi er
hann t.d. ótrúlega líkur Thom Yorke
og í öðru rymur hann eins og argasti
blökkublúsari.
„I Soundgarden var söngurinn
hugsaður sem fimmta hljóðfærið,“
segir hann, „og textarnir voru undir
áhrifum af því hvemig lögin voru. Á
þessari plötu er þessu öfugt farið; tón-
listin er sniðin að því hvemig text-
amir era. Auðvitað er músikin mikil-
væg en ég vildi að textamir og rödd-
in væru í fyrsta sæti. Þegar textarnir
era mikilvægasti hlutinn þá verður
maður nú varla mikið persónulegri.“
Chris semur t.d. lag til heiðurs vini
sínum, trúbadornum Jeff Buckley
sem var mörgum harmdauði er hann
drukknaði. Auðvitað var Chris í vafa
um það hvort hann ætti að ganga alla
leið, enda kemur hann af kynslóð sem
á erfitt með að opna sig og fellur bet-
ur að fela tilfinningar sínar með kald-
hæðni.
„Þegar ég var að semja textana var
ég með ákveðið kerfi í gangi. Ef ég
samdi eitthvað sem var á grensunni
spurði ég sjálfan mig: „Vil ég virki-
lega að fólk heyri mig segja þetta? Er
þetta of persónulegt? Ég fattaði að
þessar efasemdir, þessi hræðsla, var
af hinu góða og þýddi bara að það
sem ég var að semja væri kraftmik-
ið.“
Það sem skiptir Chris þó alltaf
mestu máli er það hvort tónlist hafi
einhver tilfinningaleg áhrif á hann.
„Þegar ég sem tónlist eða hlusta á
tónlist er aðalspurningin alltaf: - Fær
þessi tónlist hárin á bakinu á mér til
að rísa? - Allt annað skiptir miklu
minna máh.“ Dr. Gunni
BMW
Compact Sport Edition
Engum líkur
Glæsilegur BMW sportbfll!
Glæsilegur BMW, hlaðinn aukahlutum
og búnaði, með aksturseiginleika sem
aðeins BMW státar af.
Sérstakur búnaður:
• M-leður/tau áklæði á sætum
• M-leðurklætt stýri
• M-fjöðrun
• M-spoilerar allan hringinn
• 10 hátalara hljómkerfi
• Þokuljós
• Fjarstýrðar samlæsingar og ræsivörn
BMW ánægja og öryggi:
• BMW útvarp með geislaspilara
• ABS og ASC+T spólvörn
• 4 loftpúðar, 5 höfuðpúðar
• Vökva- og veltistýri
• Frjókornasía í loftræstingu
1 .948.000 kr.
• Aukabúnaður á mynd: álfelgur.
24. september 1999 f Ókus
11