Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Side 14
Martin Lawrence sló
Kevin Costner við
Vinsælasta kvikmyndin í
Bandaríkjunum þessa dagana er
Blue Streak, gamanmynd með
Martin Lawrence í
aðalhlutverki, og um
síðustu helgi hafði
hún vinninginn yfir
For Love of the
Game, nýjustu
kvikmynd Kevins
Costners sem þó
fékk ágæta aðsókn.
Kannski hafa þar •
haft eitthvað að segja al-
varleg veikindi Lawrence en
hann fékk hjartaáfall þegar hann
var að skokka í nágrenni heimilis
síns og steig ekki fram úr rúmi
fyrr en á frumsýningardag. Gagn-
rýnendur hafa ekki tekið neinum
silkihönskum á myndinni en eru
þó sammála um að Lawrence sýni
góðan leik og bjargi því sem
bjargað verður.
John Waters ræður
Melananie Griffith
John Waters er að hefja tökur á
Cecil B. Demented en hugmynd-
ina að þeirri kvikmynd segist
hann hafa fengið í gegnum at-
burði sem hentu milljónaradótt-
urina Patty Hearst á sínum tima.
Fjallar myndin um kvikmynda-
stjömu sem er rænt
af nokkrum ósvífn-
um kvikmynda-
gerðarmönnum
sem starfa að
mestu í klámbrans-
anum. Er hún
neydd til þess að
leika í 8 mm kvik-
mynd sem þeir
eru að gera. Nafn
myndarinnar er nafn leikstjórans
sem stjómar myndinni. Melanie
Griffith leikur stjörnuna, Stephen
Dorf leikstjórann og Alicia Witt
leikur klámmyndastjörnu sem
heitir Cherish Oh Lordy.
Professor Klump
kemur aftur
Vinsælasta kvikmynd Eddie
Murphys á síðustu misseram er
The Nutty Professor. Eftir frekar
daprar viðtökur sem Holy Man,
Life og Bowfmger, siðustu kvik-
myndir hans, hafa fengið þótti
honum öruggast að
róa á örugg mið og
nú er verið að und-
irbúa The Nutty
Professor 2:
Klumps. Þar birt-
ast aftur á hvíta
tjaldinu prófessor
Sherman Klump
og hin hliðin á
honum, Buddy Love. Eins og
flestum er kunnugt er hugmyndin
að prófessornum vitlausa fengin
frá Jerry Lewis sem lék hann í
samnefndri kvikmynd snemma á
sjöunda áratugnum. Mótleikarar
Murphys í framhaldinu era Jada
Pinkettt Smith (var einnig í fyrri
myndinni) og Janet Jackson.
Bruce Willis víll meíri
leik og minni hasar
Bruce Willis getur tekið það ró-
lega þessa dagana þar sem
nýjasta kvikmynd hans, The
Sixth Sense, stefnir á það að
verða næstvinsælasta kvikmynd-
in í Bandaríkjunum á þessu ári. í
kjölfarið segir Willis að nú sé
komið að því að
sýna hvað í honum
býr í dramatiskum
hlutverkum og
fljótlega verður
frumsýnd Break-
fast of Champ-
ions sem Alan
Rudolph leikstýr-
ir. Willis segir:
vinna með Alan
Rudolph leysti mig frá því að vera
kvikmyndstjarna og verða leikari
að nýju.“ Myndin er gerð eftir
skáldsögu Kurt Vonnegut. Mót-
leikarar Willis eru Nick Nolte og
Barbara Hersey.
Kresten (Anders W. Berthelsen) stendur yfir líki föður síns.
Dogma mynd númer 3, Síðasti
söngur Mifume verður frumsýnd í
Háskólabíói í dag. Það er erfitt að
koma með dogma mynd í kjölfarið
á Festen en Mifume hefur staðið
undir öllum væntingum og fengið
frábærar viðtökur. Hún var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín í febrúar og fékk þar Silfu-
björninn og Iben Hjejle fékk sér-
stök verðlaun sem besta leikkon-
an. Síðan þá hefur myndin verið
sýnd víða og fengið fjöldann allan
af verðlaunum, m.a. var hún valin
besta norræna kvikmyndin á
kvikmyndahátíðinni í Haugasundi
í ágúst.
í myndinni segir frá Kresten
sem á brúðkaupsnótt sína er VcLk-
inn og honum sagt að faðir hans
sé látinn. Hann yfirgefur brúður
sína og heldur til búgarðs foðurs
síns sem er í einangruðu sveitarfé-
lagi. Þar þarf hann ekki
aðeins að sjá um útför
föður síns heldur
einnig að ákveða
framtíð þroska-
hefts bróður síns.
í stað þess að taka
ákvörðum fær hann
eiginkonu sína til að
koma á bóndabýlið og
ræður jafnframt ráðs-
konu sem reynist vera
vændiskona með fulla
ferðatösku af leyndar-
málum.
Soren Kragh-Jacobsen er
einn þekktasti leikstjóri Dana
og tvær fyrstu kvikmyndir hans
Sjáðu sætan nafla minn og Gúmmi
Tarzan eru meðal vinsælustu
kvikmynda sem Danir hafa
gert. Áður en hann
hóf gerð Síðasta
söngs Mifume
leikstýrði hann
The Island on
Bird Street sem
einnig var frum-
sýnd á kvik-
myndahátíð-
inni í Berlín.
Þess má geta
að nafn mynd-
arinnar seg-
ir Kragh-
Jacobsen
hafa fengið
þegar hann
frétti lát
japanska
leikarans
Tos-
hiro Mifume; fannst
honum Kresten eiga
margt sameiginlegt með
samúræjanum sem
Mifume lék í
meistaraverki
Kurosawa,
Sjö sam-
úræjar.
-HK
Little City í
Stjörnubíói:
Getur Jon
Bon Jovi
leikið?
Þessari spurningu geta allir
sem leggja leið sína í Stjörnubió á
næstunni fengið svar við, en í dag
er frumsýnd þar ný kvikmynd,
Little City þar sem þessi frægi
poppsöngvari leikur eitt aðalhlut-
verkið. Myndin fjallar um sex
manneskjur á þrítugs- og fertugs-
aldri sem tengjast á ýmsan hátt í
þessari rómantísku gamanmynd.
Öðrum megin höfum við Ádam
(Josh Charles) sem er málari og
leigubílstjóri. Hann er einn af
þeim sem aldrei tolla með sömu
konunni þrátt fyrir að ekki vanti
viljann til að láta samböndin
ganga upp. Besti vinur Adams er
Kevin (Jon Bon Jovi), barþjónn
sem leitar að hinni einu
sönnu ást. Vinkona þeirra
er Nina (Ana-
bella Sci-
orra), kokk-
Joanna Going, Jon Bon Jovi, Pen-
elope Ann Miller og Josh Charles eru
í leit að hamingju.
ur sem telur að aðeins aular vilji
vera með henni og þar eru með-
taldir Adam og Kevin, en hún er
búin að vera með þeim báðum.
Hinum megin höfum við
Rebeccu (Penelope Ann Miller)
sem hefur nýverið flutt til San
Francisco og er ekki alveg með
það á hreinu hvort það eru karl-
menn eða kvenmenn sem hún vill
hafa sem bólfélaga. Hún fær
vinnu á barnum þar sem Adam
vinnur og lendir fljótt í ástarsam-
bandi við Anne (JoBeth Willi-
ams) listakennara. í rúminu hjá
Anne kemst Rebecca að þvi að
það eru ekki konur sem veita
henni ánægju. Hjá Anne hittir
hún Kate (Joanna Going), fýrr-
um kærustu Adams, sem öfugt
við Rebeccu er búin að uppgötva
að konur höföa meira til hennar.
Sexmenningarnir eiga síðan eftir
að rugla saman reytum á ýmsan
hátt.
-HK
bíódómur
Laugarásbíó - The Out-of-Towners ★ ★
Stt©v© ©g tSoldi©
Steve Martin og Goldie Hawn
eru gamanleikarar af guðs náð og
búa yfir svo miklu aðdráttarafli að
ef þeim tekst vel upp þá vill gleym-
ast að oftar en ekki er innihaldið
rýrt. Svo er með The Out-Of-
Towners þar sem í raun skiptir
ekki máli um hvað myndin snýst -
þar er horft á tvo góða gamardeik-
ara gera það sem þeir kunna best.
Sem betur fer ná þau ekki alveg að
dóminera í myndinni því þau fá
gott aðhald frá John Cleese sem
mættur er nánast í klæðskera-
saumuðu hlutverki, hótelstjóra á
finu hóteli í New York sem reynist
vera klæðskiptingur. Cleese alveg
eins verið að endurtaka hlutverk
sitt í sjónvarpsþáttunum Fawlty
Towers.
Steve og Goldie leika hjónin
Henry og Nancy Clark. Þau eru
orðin ein í kotinu og sjá fram á
langt ævikvöld þar sem gleymst
hefur að leggja rækt við eldinn sem
leiddi þau saman í upphafi. Henry
er á leið til New York til að athuga
atvinnutilboð sem hann segist hafa
fengið. í fyrstu vill Nancy ekki fara
með honum en glóðin er enn log-
andi og hún fer í humátt á eftir
honum. Nú taka við tuttugu og fjór-
ar klukkustundir í stórborginni
þar sem þau eru án farangurs, pen-
inga og kreditkorta og hafa því i fá
hús að venda. Henry er dálítið pirr-
aður á þessu öllu saman, sem ekki
er furða þar sem hann er atvinnu-
laus, en það veit frúin ekki. Mitt í
öllum látunum tekst þeim að blása
í glóðina sem var að slokkna.
Steve Martin og Goldie Hawn
hafa áður leikið saman með góðum
árangri í Houseguest. Þar sópaði
meira að þeim, enda höfðu þau á
milli handanna bitastæðara hand-
rit. The Out-of-Towners er byggð á
gamanmynd frá 1970 sem bar sama
nafn. Handritið að þeirri kvik-
mynd skrifaði Neil Simon og þó að
þessi útgáfa sé byggð á handriti
hans þá sést lítið af snilligáfu
Simons, sem einkennt hefur leikrit
hans og kvikmyndahandrit, heldur
er handritið frekar hugmyndas-
nautt og þríeykið ágæta, Mart-
in/Hawn/Cleese, sem öll hafa gert
betur, eru á hálum ís en skauta af
list fram hjá þynnsta laginu.
Leikstjóri: Sam Weisman. Handrit:
Marc Lawrence. Kvikmyndataka:
John Bailey. Tónlist: Marc Shaim-
an. Aðalleikarar: Steve Martin,
Goldie Hawn og John Cleese.
Hilmar Karlsson
14
f ÓkllS 24. september 1999