Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Side 19
!
myndlist
Lífid eftir vinnu
Fyrir börnin
Ævitýrið um ástina er sýnt sem fýrr I Kaffileik-
húsinu í dag kl.13. Ævintýrið er eftir Þorvald
Þorsteinsson. Hinir fullorðnu skemmta sér
jafnvel og börnin, enda er allur texti í bundnu
máli. Aðgöngugjald er 1200 kr. og sýningin
hefst kl. 13, eins og áður sagði.
•Opnanir
Helga Magnúsdóttir opnar sýningu á vatns-
litaverkum í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg
5 í dag kl.14. Helga brautskráðist frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands. Helga hefur
haldið fleiri einkasýningar og jafnframt tekið
þátt í samsýningum hérna heima og erlendis.
Helga á verk á ýmsum opinberum stöðum, þar
á meðal Listásafni Islands. Sýningunni í List-
húsi Ófeigs lýkur 13. október og verður opin á
almennum verslunartíma.
l/ Magnús Kjartansson opnar málverkasýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls klukkan tvö.
Þetta er önnur sýning Magnúsar þar á þessu
ári. Magnús sýnir núna „uppstillingar", kyrra-
lífsmyndir sem hann málaði fyrir nokkru.
Magnús er einn af færustu málurum okkar Is-
lendinga, sýningar hans hafa alltaf vakið mikla
athygli og góða aðsókn. Sævar Karl og félagar
bjóða alla velkomna og að þiggja veitingar.
Klukkan 15 verður opnuð sýning I anddyri Nor-
ræna hússins á grafíkverkum eftir norska list-
málarann John Thdrrisen. Sýningin ber yfir-
skriftina Öðruvísllandiö og er þar vísað til
samnefnds Ijóðs eftir norska skáldið Rolf Jac-
obsen en John Thprrisen hefur gert myndröð
helguð Ijóðum skáldsins. Listamaðurinn verð-
ur viðstaddur opnun sýningarinnar. Á sýning-
unni eru níu grafíkverk unnin með steinprent-
stækni og jafnmörg Ijóð sérþrykkt. John
Thprrisen var náinn vinur Rolfs Jacobsens.
Hann hefur haldið margar einkasýningar frá
1974 og tekið þátt í samsýningum í Noregi og
víðar. Myndefni Thprrisens er einkum ex-
pressjónistísk og draumórakennd skynjun á
landslagi, ýmist með eða án manna og dýra. I
málverkum sínum, vatnslitamyndum og stein-
prenti vinnur hann aðallega með andstæðu-
liti, yfirleitt gult, blátt og rautt. Sýningin í and-
dyri Norræna hússins verður opin daglega kl.
9-18, nema sunnudaga kl. 12-18. Henni lýkur
24. október. Aögangur er ókeypis.
Pétur Örn sýnir í garðinum að Ártúni 3 á Sel-
fossi og sama sýning er einnig í Danmörku og
í Þýskalandi. Þetta er víst eitthvað ógurlega sp-
eisað dæmi og virkilega flippað. Pétur Örn er
að vinna með þrjá hluti í þessum garði fyrir
austan fjall. Þeir eru vél, fáni og silhouettur. Ef
þið viljið sjá sýninguna þarf að hringja í síma
482 3925.
Þá er það sýningin
Sænskt bein í ís-
lenskum sokki í
Nýlistasafninu,
Vatnsstlg 3b i
Reykjavík. Sýningin
er annar hluti sam-
vinnuverkefnis milli
Nýlistasafnsins og
Galleri 54 I Gauta-
borg. Fyrri hluti sýn-
ingarinnar fór fram
s.l. vor, en þá sýndu 9 íslenskir listamenn i
Gautaborg. En á sýningunni í Nýlistasafninu
sýna 6 sænskir listamenn á tveimur hæðum
hússins. Sýningarnar eru opnar daglega frá
14.00 -18.00 nema mánudaga og þeim lýkur
17. október. Aðgangur er ókeypls og allir vel-
komnir.
Inga Rósa Loftsdóttir sýnir Ævisögu i Geröar-
safnl í Kópavogi. Sýningin er opin daglega frá
kl. 12-18 nema mánudaga en þá er lokað.
Helga Þórðardóttir er með skemmtilega og fjöl-
skylduvæna sýningu í Gerðubergi kl. 16. Sýning-
in samanstendur af myndum sem Helga málaði
á siðasta ári með vatnslitum, pasteli og olíu.
Friö-
riksson s> mr ■
Gallerý Nema I
hvaö, Skola- I
22c. s JMj
Strakurinn i HH
. 1 u,rift.iii ■ [2
Mynd- og hand.
og sýnir skúlptúr-verk sem er frekar ópólitiskt.
Myndlistamaðurinn Ólafur Lárusson opnar sýn-
ingu á verkum sínum i Listasafni Kópavogs
Gerðasafni. Ólafur sýnir þar málverk, teikning-
ar og þrívið verk. Hann hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum og haldið margar einka-
sýningar hér heima og erlendis. Sýningin stend-
ur til 10. október.
Benedikt Gunnarsson sýnir sýninguna Sköpun,
lif & Ijós, þessa dagana I Listasafni Kópavogs,
Gerðasafni - austursal. Sýningin samanstendur
af olíumálverkum og akrýl- og pastelmyndum.
Opiö alla daga nema mánudaga frá kl. 12-18.
Helga Magnúsdóttir opnar sýningu á vatnslita-
verkum I Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5.
Helga brautskráðist frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Helga hefur haldið fleiri einka-
sýningar og jafnframt tekið þátt í samsýningum
hérna heima og erlendis. Helga á verk á ýms-
um opinberum stöðum þar á meðal Listasafni
Islands. Sýningunni I Listhúsi Ófeigs lýkur þann
13. október og verður opin á almennum versl-
unartíma.
Nú standa yfir þrjár sýningar í Listasafni ís-
lands. Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir nokkurs-
konar yfirlitssýningu sem spannar 20 ára feril
og sýningin er liður í þeirri viðleitni safnsins að
sinna með sérstökum hætti því markverðasta
sem er að gerast í islenskri myndlist. Svo er
það sýníngin Nýja málverkið á 9. áratugnum og
Öræfalandslag. Á þessum sýningum eru meðal
annars verk eftir Jón Óskar, Daða Guðbjörns-
son, Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur, Tuma
Magnússon og Kristján Steingrím.
One o One Shopping, Laugavegi 48b er listræn
fatabúð. Nú stendur yfir sýningin Listir. Það eru
þau Gabríella Friðriksdóttlr og Magnús Sig-
urðsson sem hafa skapað sýninguna en þau
kalla sig Maggoggabb ehf. Sýningin sam-
anstendur meðal annars af málverkum og Ijóð-
um. Opnunartímar eru eftirfarandi: mán.-fös.
frá 12-19, lau. frá 11-16 og á sun. frá 14-17.
Frakkinn Jean Posocco sýnir vatnslitamyndir af
hrauni og vatni i Listakoti, Laugavegi 70,
þessa dagana. Sýningin er opin frá 12-18 alla
virka daga og 10-16 laugardaga.
í nýjum sal félagsins (slensk grafík að Tryggva-
gótu 17 (hafnarmegin) stendur sýning á verk-
um unnum á pappír; gráfik, teikningar og Ijós-
myndir. Meðal þeirra sem sýna að þessu sinni
eru Einar Falur Ingólfsson, Guðmundur Ingólfs-
son, ívar Brynjólfsson, Spessi og Þorbjörg Þor-
valdsdóttir. Öll sýna þau Ijósmyndir sem ekki
hafa sést áður í Reykjavík. Sýningin er opin frá
fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-16. Aðgangur
er að öllu leyti ókeypis.
Nú stendur yfir sýningin „Málverk og teikning-
ar“ eftir Kristján Guðmundsson i galleríinu að
Ingólfsstræti 8. Aðdáendur eru hvattir til að
mæta og stiðja kauða.
Bikarar nefnist sýning Kolbrúnar S. Kjarval á
leirmunum í Stöðlakotl við Bókhlöðustíg. Sýn-
ingin er opin alla daga frá kl. 14-18.
I Listasafni ASÍ stendur yfir sýning á verkum
Daða Guðbjörnssonar. Á sýningunni eru 20 olíu-
málverk þar sem reynt er að lýsa ynim flókna nú-
tíma á Ijóðrænan og persónulegan hátt, án þess
að reyna að einfalda myndmálið og kveðja
þannig öldina á tímum þar sem myndlist á ekki
neina sérstaka merkingu. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga frá kl.14-18.
Alan James sýnir málverk sín i sameiginlegu
sýningarrými Gallerís Foldar og Kringlunnar á
annarri hæð Kringlunnar gegnt Hagkaupum.
Alan sýnir 8 olíumálverk og stendur sýningin til
15. október. Sýningin er opin á venjulegum opn-
unartíma Kringlunnar.
Myndlistarsýning Sólveigar Blrnu Stefánsdóttur,
i Gallerí Sölva Helgasonar aö Lónkoti i Skaga-
firði, sem Ijúka átti 15. september, hefur verið
framlengd til 30. september. Á sýningunni eru
myndir af hestum.
Friðrik Jónsson heldur málverkasýningu i Lista-
horninu, Kirkjubraut 3, Akranesi og lýkur henni 4.
október. Sýndar verða vatnslitamyndir og olíu-
málverk, sem flest eru ný. Friðrik hefur verið við
nám í Myndlistaskóla Kópavogs frá 1992 í teikn-
ingu, módelteikningu og síðar! vatnslitum og ol-
íumálningu. Friðrik hefur einnig sótt námskeið í
West Dean College i Sussex í Englandi og einnig
sótt tvö sumarnámskeiö njá Bridget Woods hér á
landi. Þetta er þriðja elnkasýning Friðriks.
Sýningin UNG.DOK.97 er í Gallerí Geysi Hinu
Húsinu v/lngólfstorg þessa dagana. Sýningin
stendur til 3.10. Hún er í tengslum við stórborg-
araráðstefnuna „Storbyens hjerte og smerte"
sem er haldin í borginni um þessar mundir.
UNG.D0K.97 var Ijósmyndasamkeppni undir
stjórn Völundarhússins, ungmennaverkefni
tengt bæjarfélaginu í Bergen. Þau gáfu 130
ungmennum í Bergen á aldrinum 14-21 árs,
einnotamyndavélar árið 1997. Ungmennin áttu
að skrásetja hversdagsleikann með orðin föt,
líkaml, felulitlr og kærleika i huga. Alls voru um
2000 myndir framkallaðar og eru allir sigurveg-
arar með á sýningunni, tiu talsins.
Magnús Kjartansson opnar málverkasýningu I
Gallerí Sævars Karls.
Þetta er önnur sýning
Magnúsar hjá okkur á
þessu ári. Magnús sýnir
núna „uppstillingar".
kyrralifsmyndir sem hann
málaði fýrir nokkru. Magn-
ús er einn af færustu mál-
urum okkar íslendinga,
sýningar hans hafa alltaf
vakiö mikla athygli og
góða aðsókn. Sævar og félagar bjóða alla vel-
komna.
Tölvumyndlist, eða stafræn myndlist (Digital
art) er listform sem er mjög að ryðja sér til rúms
á tímum aukinnar tölvutækni. Er hér ótvírætt
kominn til sögunnar nýr valmöguleiki fyrir fólk
sem vill finna farveg fyrir sköpunargleði sina og
nýta til þess spennandi nútímatækni. Tölvu-
myndlistamaðurinn Ellert Grétarsson opnaði um
síðustu helgi sýningu á Cafe Nlelsen á Egils-
stöðum. Þar má sjá 21 tölvumyndverk eftir
hann. Einnig hefur Ellert uppfært vefgalleriið
Gallerí Elg, sem er á slóðinni www.eld-
horn.is/~elg. I galleríinu og á sýningunni er að
finna myndir sem eiga það sameiginlegt að vera
unnar með tölvutækni eingöngu. Við gerð þeirra
er þrívíddartækni og stafræn myndvinnslutækni
notuð í bland. Sýningin á Café Nielsen verður
opin út þennan mánuð en í október veröur hún
sett upp í Keflavík.
Snjólaug Guðmundsdóttlr frá Brúarlandi sýnir
vefnað og flóka í Listhornlnu, Akranesi.
I Lónskot, norðan Hofsóss, sýnir Ragnar Lár
teikningar sínar. Efni þeirri tengist þjóðsöguleg-
um atburðum sem gerðust I Skagafirði.
Óteljanlegur fjöldi snjallra myndlistakvenna sýnir
á samsýningunni Land sem nú stendur yfir í
Listasafnl Árnesinga á Selfossi. Þetta er að
sjálfssögðu allt saman algjör snilld og fólk sem
mætir ekki hlýtur að vera eitthvað bilað, enda
frítt inn. Sýningin er opin fimmtudaga til og með
sunnudaga.
í Safnasafninu á Svalbarðsströnd standa nú yfir
níu sýningar. Sú nýjasta er sýning Hannesar Lár-
ussonar á 33 ausum og fleira spennandi.
I Hólum í Hjaltadal stendur yfir kirkjusýningin
Heyr himnasmlður.
24. september 1999 f Ókus
19