Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 Fréttir i>v Forsetinn útskrifaður af sjúkrahúsi í gær: Meö vinstri hönd í fatla og þá hægri í löfa Dorrit Dorrit Moussaieff leiddi og studdi Ólaf Ragnar Grímsson, forseta ís- lands, út úr Sjúkrahúsi Reykjavíkur á slaginu klukkan 15 i gær þegar forsetinn útskrifaðist þaðan með brotna öxl eftir fall af hesti. Forset- inn hafði dvalið næturlangt á sjúkrahúsinu og samkvæmt heim- ildum DV vék Dorrit ekki frá sjúkrabeði hans allan tímann. Er þau gengu út af sjúkrahúsinu inn í leifturljós myndavéla og hóp fjöl- miðlamanna, sem beið fyrir utan, duldist engum að þar fór ástfangið par. Lófar þeirra voru sem eitt og takinu aldrei sleppt. Úr augum skein væntumþykja, traust, ást. Láta sár gróa „Þetta var einn fegursti dagur sem ég hef lifað,“ sagði forsetinn að- spurður um atburðina í Landsveit þar sem hann féll af hestbaki og braut sig illa á öxl og átti þar við haustveðrið, stilluna og Heklu sem skartaði sína fegursta eins og svo oft áður í áliðnum septembermán- uði. Atburðurinn sjálfur var eins og hvert annað slys sem ekki varð séð fyrir og nú skipti máli að ná heilsu á ný og láta sár gróa. Dorrit Moussai- eff gerði tilraun til að svara spurningum Brynjólfur Mogen- öfttamanna á sen yfirlæknir: - lslenskn. en ff Engin aðgerð að aðist eftir nokk- sjn“ j a ur orð og lofaði að svara spum- ingunum betur þegar hún hefði lært meira í íslensku. Hún bætti því reyndar við á ensku að sjálf þekkti hún þjáningar forsetans því hún hefði fallið af hestbaki erlendis og meira að segja brotið á sér öxlina. Aðgerð síðar? Forsetinn kvaðst mundu halda áfram að sinna skylduverkum sín- um eftir bestu getu þrátt fyrir axlar- brotið og við svo búið hurfu þau Dorrit upp í forsetabifreiðina sem ók á braut. Dorrit veifaði til við- Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff í hópi fréttamanna fyrir utan Sjúkrahús Reykjavíkur síðdegis í gær. DV-mynd GVA staddra þegar bifreiðin rann hjá og var úr fjarlægð séð ekki óáþekk þjóðhöfðingafrú i aftursæti viðhafn- curbils. Að sögn Brynjólfs Mogensens, yf- irlæknis bæklunardeildar Sjúkra- húss Reykjavíkur, er vinstri öxl for- setans illa brotin: „Við teljum ekki ráðlegt né skynsamlegt að fara í að- gerð að svo stöddu heldur láta brot- ið gróa af sjálfu sér. Forsetinn verð- ur í fatla og ætti auðveldlega að geta sinnt skyldustörfum sínum. Hins vegar er ekki ólíklegt að aðgerð verði gerð síðar á öxl forsetans," sagði Brynjólfur Mogensen yfir- læknir. Ekki fengust upplýsingar um hversu lengi Dorrit Moussaieff ætl- ar að dvelja hér á landi en ráðgert hafði verið að hún flygi utan í dag. Þær fyrirætlanir hafa að öllum lík- indum breyst ef marka skal þann þétta stuðning er hún veitti forset- anum þegar hann útskrifaðist af Sjúkrahúsi Reykjavíkur síðdegis í gær. -EIR Tilvistarkreppa Ámi Þór Sigurðsson er ráðvilltur um þessar mundir, eins og reyndar fleiri gamlir allaballar og ófáir kjós- endur sem héldu að þeir stæðu frammi fyrir raunverulegum valkost- um í kjörklefanum í vor. Hann er enn í Alþýðubandalaginu, bauð sig fram til Alþingis í vor í nafni Sam- fylkingar en langar mest til að ganga í vinstrigrænan flokk Steingríms Joð, eins og sumir kjósendur Sam- fylkingarinnar frá í vor. Þeim sem merktu við essið á kjör- seðlinum fannst flestum þeir vera að kjósa stjómmálaflokk með foringja og öOu sem við á að éta. En þeir voru bara tilraunadýr sem áttu kannski að fá annan séns eftir fjögur ár. Vandræðagangur Árna Þórs stafar nefnilega af því áð Samfylkingin er ekki stjórnmálaflokkur heldur til- raun til kosningabandalags sem á að endurskoða eftir fjögur ár. Árni Þór segir að samkvæmt aukalandsfundi allaballa sumarið 1998 hafi forystu flokksins verið veitt umboð til að ganga frá sam- eiginlegu framboði Alþýðubandalags, Alþýðu- flokks og Kvennalista fyrir þingkosningamar. Um tilraun væri að ræöa sem endurskoðuð yrði eftir íjögur ár, árangur metinn og ákvörðun tek- in um framhaldið. Forystumenn A-flokkanna hafa unnið drög að skipulagi nýs stjórnmálaflokks en landsfundur allaballa hefur hvorki tekið ákvörðun um aðild að nýjum stjómmálaflokki né ákvörðun um að leggja flokkinn niður. Flokkurinn er ekki flokkur heldur bara tilraun til fjögurra ára. Þar við situr og þess vegna er Ámi Þór á krossgötum. Og margir kjósendur. Nú, þegar tæpir fimm mánuðir eru liðnir frá kosningum, blunda A- flokkarnir í skúffunum og Árna Þór er ljóst að Samfylkingin verður varla annað en tilraun. Engri stjórn- arandstöðu er til að dreifa og því síður óumdeildum forystusauð til að koma henni á framfæri. Og ekki út- lit fyrir að úr rætist. Til að svo megi verða þurfa flokksapparötin sem blunda í skúffunni að kalla til flokksfélagafunda, kjördæmisráðs- funda, landsfunda og jafnvel auka- landsfunda. Þar þarf að ræða og ná saman um tillögu þess efnis að leggja flokkana niður eða breyta þeim í málfundafélög í takt við þá Samfylkingu sem nú ræður yfír 17 sætum á þingi. Og loks þegar af nefndri tilraun hefur fæðst stjóm- málaflokkur þarf að velja honum formann sem sátt er um og getur óumbeðinn rifið kjaft við íhaldið. Mánuður er langur tími í pólitík, hvað þá tveir eða þrír. Loks þegar flokksstofnun stendur fyrir dyrum er hætt við að fleiri en Ámi hafi staðið á krossgötum og horft hým auga til.Steingrims Joð og félaga. Þar er í forsvari óumdeildur forystusauður og menn rífa kjaft við íhaldið af innlifun. Þar eru menn ekki þjakaðir af pólitískri tilvistarkreppu. Þangað stefhir Alþýðubandalagið. Dagfari Davíð hylltur Eftir bikarúrslitaleikinn um síð- ustu helgi, þar sem KR-ingar sýndu og sönnuðu að þeir em bestir allra, varð nokkur uppákoma þar sem verið var að afhenda vesturbæingum bik- arinn. Davlð Odds- son forsætisráð- herra ávarpaði ná- býlinga sína og óskaði þeim og sjálfum sér til hamingju með vegsemdina. Þar sem hann hélt ræðuna í beinni sjónvarpsútsend- ingu birtist lukkudýr KR-inga, KR- ljónið, og tók utan um axlir lands- föðurins. Heimildir herma að for- ráðamenn KR og KSÍ hafi nánast frosið vegna atlota ljónsins sem bjargaði málinu fyrir horn með þvi að krjúpa fyrir framan landsföður- inn og spenna greipar í þögulli að- dáun. Þess má geta að sá sem legg- ur ljóninu til lífsmarkið er hinn 15 ára Hilmar Guðjónsson... Ástir kvikna Svo sem fram hefur komið í sandkomi er heitt á milli Ágústu Johnsoh líkamsræktarfrömuðar og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar borgarfulltrúa. Nú heyrist að fyrrver- andi eiginmaður Ágústu, Hrafn Friðbjömsson, sé í góðu vinfengi við landsþekkta konu. Hann mim hafa sést víða með hinni geðþekku útvarpskonu Val- dísi Gunnarsdóttur af Matthildi, sem um árabil gladdi hlustendur Bylgjunnar með þýðri og seiðandi röddu sinni... Hulduherinn fúll Sú yfirlýsing hins skelegga sendiherra íslands í Washinhgton, Jóns Baldvins Hannibalssonar, að hann hyggist ekki snúa heim á næstunni til að leiða Samfylkingu hefur valdið hrolli meðal stuðnings- manna hans og er Hulduher Jóns Baldvins með fúlasta móti þessa dagana. Samfylkingin er höfuðlaus og trausti rúin og þykir nú sýnt að flótti bresti á bæði til hægri og vinstri. Hægrikratarnir eru sagðir horfa til Sjálfstæðisflokksins á meðan vað- málsdedd Alþýðubandalagsins íhugar að hverfa til Vinstri- grænna. Ámi Þór Sigurðsson, að- stoðarmaður borgarstjóra, er sagð- ur vera fremstur í fylkingu þeirra pólítísku flóttamanna sem lengst eru til vinstri... Hrakningarforseta Herra Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands, hefur komist í hann krappan undanfama daga. Minnstu munaði að illa færi í Aust- íjarðaþokunni á dög- unum þar sem vöm- bíll bremsaði harka- lega til að forðast að aka á forsetabdinn, þá slasaðist forset- inn þar sem hann féll af hestbaki i Landsveit í fyrra- dag og vinkona hans, Doritt Moussaieff, að honum á slysstað. í þokunni á Fagradal var það bílstjórinn Eirik- ur Sigfússon sem af snarræði bremsaði og af því tdefni orti dr. Stefán Aðalsteinsson, bróðir Há- konar skógarbónda: Eiriki þyrmdi þokan grá, þungum fæti á hemla brá. Ef bægt ei heföi hættu frá, hvar væri Ólafur staddur þá? Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.