Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 Sviðsljós DV I ijUL // ^ KRAKKAR! TÍL HAMINGJU M . VINNINGANA! r #- 0 Kjöris p DV OQ akka ykkur fyrir patttokuna i Krakkaklúpbsleiknum! DV sendlr ut vinningana nasetu daga. Vínnmgshafar: 13 pennaveski: övala 5igrid Halja K. Haraldsdóttír Áaúöta L. Jóelðdóttir Þorhallur örn AlmaBjörk Inga 6. Jónðdóttir Sígurróe Bára Birna K.. HilmarðJóttir Guðrún D. SigurðarJóttir Perla D. Björnðdóttir Davíð 5turluðon Erla 5. Kriötinðdóttir Aödíö ÞórJíð nr. 11614 nr. 7970 Vlnnlngehafar: nr. 14764 2 ökólabakpokar og vaeatölvur: Iðunn K. TalJimarðdóttir nr. 6Ö46 bröðtur Áegeireðon nr. 62215 nr. 14566 nr. 6625 nr. 12557 nr. 1291D eundtoekur, Kjoriebolir og hufun nr. 14514 Björgvin KrietJánððon Halldór Baldvin Blrgir M. Sigurdarson Bergný Ármannedóttir Hörður Helaaeon nr. 15511 nr. 15126 nr. 15630 nr. 10592 nr. 15019 nr. 14496 nr. 3561 9195 130669 nr. 6106 www.kjons.is Michael Douglas sleppur við vandræði: Alexandra nýtur þess að spásséra með litla prinsinn Alexandra prinsessa í Danmörku, eiginkona Jóakims drottningarson- ar, hefur svo sannarlega nýtt fallegu síösumardagana að undanförnu til að fara út að spásséra með litla prinsinn, son sinn. Og ekki er Jóakim eftirbátur eiginkonunnar í þessum efnum. Þegar fjöl- skyldan fór frá höllu drottning- ar í Kaup- mannaöfn til Schackenborg- arkastala á Jót- landi sagðist Jóakim þurfa að sinna bústörf- um. Hann hefur hins vegar varla getað slitið sig frá litla prinsinum og eiginkonunni. Prinsinn á fallegan bláan barna- vagn, eins og hæfir bami með blátt blóð í æðum, og þegar vel viðrar fær hann að sofa úti í hreinu suður- jósku loftinu. Drengurinn kann því líka vel, eins og nærri má geta. ítalski tískukóngurinn Georgio Armani reiddi fram allt það nýjasta úr fabrikku sinni á viðamikilli sýningu í Mílanó í gær. Meðal þess sem Armani sýndi var þessi hálfgagnsæja blússa með öllu tilheyrandi sem ætlast er til að ungar konur klæðist á vori komanda eða um sumarið, allt eftir hvernig viðrar. Skilur ekki stakt orð hjá tengdó Kvikmyndaleikarinn Michael Douglas lendir örugglega ekki í neinum leiðinlegum tengda- mömmuvandamálum kvænist hann þokkadísinni Catherine Zeta Jones. Ástæðan er nefnilega sú að hann skilur ekki stakt orð af því sem móðir Catherine segir. Að sögn Michaels Douglas er fjöl- skylda Catherine með svo mikinn velskan hreim að hann gerir ekki ráð fyrir að skilja nokkurn skapað- an hlut af því sem hún segir. Catherine og Michael héldu upp á sameiginlegan afmælisdag sinn í New York um helgina með foreldr- um hennar. Miðað við frásögn Michaels hefur ekki verið mikið um samræður. Catherine leyfði Michael eitt sinn að hlusta er hún talaði við for- eldrana í síma. „Þau hljóta að hafa hljómað í eyrum hans eins og Mars- búar,“ sagði Catherine sem nýlega náði titlinum af Jennifer Lopez sem kynþokkafyllsta leikkona heimsins. Ítímaritinu Men’s Fitness segir að Catherine hafi slegið út allar aðrar kynþokkafullar leikkonur á Netinu. Þar er Catherine jafnframt lýst sem einni dularfyllstu og mest framandi konu sem sést hafi. Gert er ráð fyrir að Catherine komi með Michael sér við hlið á góðgerðartónleika í Wembley í London í næsta mánuði. Catherine hefur tjáð skipuleggjendum tónleik- anna að hún vilji leggja sitt af mörkum. Að sögn breskra blaða mun Catherine nota tækifærið þeg- ar hún er komin til Bretlands til að heimsækja veika ömmu sína. Catherine var eyðilögð yfir að amma hennar skyldi ekki geta tekið þátt í afmælisveislunni frægu í New York. Reyndar héldu allir að um yrði að ræða brúðkaupsveislu með stæl en svo var ekki. Fjölskylda Catherine talar með miklum velskum hreim. Mick hjá Jerry við þúsaldamót Jerry Hall gat ekki hugsað sér að eyða gamlárskvöldi án eigin- mannsins fyrrverandi, Micks Jaggers, svo hún bara bauð hon- um í fjölskylduparti. Veisluna heldur Jerry í nýrri tugmilljóna- villu sinni í St Tropez í Suður- Frans. Aðrir í veislunni verða börnin þeirra fjögur. Og kannski fleiri. „Þetta er ekki bara barn- anna vegna. Þau Mick eru enn mjög náin þrátt fyrir allt vesen- ið,“ segir maður sem veit um hvað hann talar. Kryddpíunar þénuðu dável Kryddpíurnar eru ekki á flæðiskeri staddar, hvorki þær núverandi né hin fyrrverandi. Samtals þénuðu stúlkurnar rúma fjóra milljarða íslenskra króna í fyrra, og þætti sumum þokkalegt fyrir smágól á plötu. Mestur hluti tekna stúlknanna kemur af plötusölu en þær græddu einnig umtalsvert á kvikmyndinni sem gagnrýnend- ur hökkuðu í sig og auglýsinga- gerð gaf líka góðar tekjur. Britney Spears verður leikfang Þeir sem ekki þekkja til hinn- ar geðþekku Britney Spears hafa lengið haldið því fram að hún væri nú hálfgert leikfang. Er þar verið að vísa til slétts og fellds útlits hennar. Brátt geta hinir sömu farið út í næstu leikfanga- búð og keypt þar forkunnarfagr- ar eftirlíkingar af hinni sautján ára poppstjörnu. Eftirmynd hinnar barmfögru stjörnu er tuttugu sentímetra há og henni fylgja ýmsar góðar græjur, svo sem fót, töskur og hljóðnemi. Fyrstu eintökin koma í verslanir 15. október. Kryddpíurnar selja líka dúkkur í sinni mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.