Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
Viðskipti
ÞGttd helst: ...Viðskipti á VÞÍ alls 809 m.kr., mest með ríkisvíxla fyrir 347 m.kr....Hlutabréf námu 187 m.kr. SÍF
fyrir 67 m.kr. en lækkaði um 0,48% Eimskip 21 m.kr ÍS 17 m.kr. 0,8% hækkun ...Skagstrendingur hækkaði um 10,6%, HB
hækkaði um 5,2%. Tryggingamiðstöðin lækkaði um 4%... Úrvalsvísitala lækkaði lítillega, er nú 1.375 stig
Lítil skörun á mark-
aðssvæöum ÍS og SÍF
Samruni SÍF og ÍS verður mjög til
góða að mati Kaupþings. Þetta kom
fram í Morgunfréttum félagsins í
gær. Kaupþing telur hins vegar að
litil skörun á markaðssvæðum fé-
laganna geti dregið úr mögulegri
samlegð af samrunanum. í gær fjall-
aði Kaupþing ítarlega um hugsan-
legan samruna félaganna en nú er
ljóst að af honum verður. Þar er
miðað við að skiptihlutfallið á milli
félaganna verði 1/3 hjá ÍS og 2/3 hjá
SÍF. Kaupþing bendir á að fjárhags-
staða ÍS var oröin mjög veik eftir
gríðarlegan taprekstur síðustu
tveggja ára. „Svo virðist þó, ef
marka má milliuppgjör félagsins,
sem nýjum stjórnendum hafi tekist
að ná nokkrum tökum á rekstrar-
vanda félagsins. Mikið hefur verið
skoriö niður í yfirbyggingu þess og
starfsemin í Bandaríkjunum virðist
nú komin á réttan kjöl eftir að hafa
verið mjög erfið allt síðastliðið ár.
Þá hefur talsvert verið losað af eign-
um félagsins með nokkrum sölu-
hagnaði sem styrkt hefur fjárhags-
stöðu félagsins. Fróðlegt verður að
Grundfiröingar
feti framar öðrum
sveitarfélögum
DV, Vesturlandi:
Ársreikningur sveitarsjóðs
Eyrarsveitar fyrir árið 1998 var
nýlega samþykktur í sveitar-
stjóm Eyrarsveitar. Skatttekjur
sveitarsjóðs hækka þriðja árið í
röð og fara í 158,lmilljón kr. eða
168 þús. á íbúa. Hækka þær á
milli ára um 10,5% í heild en um
8,3% á íbúa. Samanburður við
eldri ár er varasamur vegna
flutnings grunnskóla með tilheyr-
andi flutningi skattekna og út-
gjalda. Afkoma sveitarsjóðs eftir
rekstur málaflokka hefur veriö
góð nú á annan áratug. Árið 1998
er þar enginn undantekning.
Raunar nema útgjöld vegna
málaflokka á árinu tæpum 72% af
skatttekjum. Sambærilegt hlutfall
frá árinu 1997 er 75,5%. Sé þess-
um árangri breytt í krónutölu
nemur hann tæpum sex milljón-
um króna. Rekstrarkostnaður á
íbúa er 120.500 krónur árið 1998
samanborið viö 116,8 þús 1997.
Þessi rekstarafgangur verður að
teljast góður á sama tíma og ýmis
önnur sveitarfélög hafa búið við
versnandi rekstarafkomu án þess
að augljóst sé að ytri aðstæður
séu þar verri en hjá Grundfirð-
ingum. Nettókostnaður við fram-
kvæmdir sveitarsjóðs hækka
þriðja árið í röð, eða úr 39,6 millj-
ónir í 62,6 árið 1998. Peningaleg
staða er jákvæð í árslok 1998 um
19,2 milljónir króna og hefur
batnað á árinu um tæpar fimm
milljónir. Hreint veltufé eykst
einnig og er veltufjárhlutfall
sveitarsjóðs 1,30 í lok árs 1998 en
var 1,07 árið áður. -DVÓ
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sími: 568 3330
hup w w v one\.is/~skip/
- dregur úr mögulegri samlegö
sjá hvar möguleg
samlegðaráhrif félag-
anna liggja. Viðfyrstu
sýn er ekkert geflð í
þeim efnum þó vissu-
lega eigi nokkrn- sam-
legð að geta falist í
þessari sameiningu.
Áherslur fyrirtækj-
anna tveggja eru í dag
ólíkar. SÍF hefur sér-
hæft sig í sölu á kæld-
um flskafurðum og
hefur verið að auka vöruúrval sitt
innan þeirrar flokkunar á undan-
förnum árum. ÍS hefur hins vegar
frá upphafi sérhæft sig í frystum
sjávarafurðum. Helstu markaðs-
svæði félaganna skar-
ast auk þess ekki
mikið, ÍS hefur selt
hvað mest til Banda-
rikjanna og Bretlands
en SÍF hefur selt
einna mest til Frakk-
lands, Spánar og Suð-
ur-Ameríku. Lítil
skörun á helstu
markaðssvæðum
dregur úr mögulegri
samlegð af þessum
samruna en styrkir vissulega mark-
aðsstarf félaganna tveggja. Skörun-
in er ef til vill einna mest í Frakk-
landi þar sem hvað stærstur hluti
starfsemi SÍF fer fram í dag.
Skuggi á sameiningu
Það varpar hins vegar skugga á
þessa sameiningu að á sama tíma
og viðræður um hana hafa átt sér
stað hefur gengi ÍS rokið upp.
Gengi félagsins hefur nú hækkað
um tæp 50% á einum mánuði, þar
af um tæp 30% í sl. viku. Á þeim
tíma hefur þó aðeins verið tilkynnt
um ein innherjaviðskipti en svo
mikil hækkun á svo skömmum
tíma bendir til þess að ekki sé allt
með felldu. Engin slík merki er
hins vegar að sjá í viðskiptum með
hlutabréf SÍF, segir Kaupþing í
gær.
Islenskar
sjávarafurðir
aia
Hagnaöur EJS 76 milljónir króna
Hagnaður Einars J. Skúlasonar
hf. nam 75,8 m.kr. á fyrstu sex mán-
uðum ársins sem er 7,1% af veltu,
samanborið við 36 milljónir króna á
sama timabili í fyrra. Hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrir skatta
nam 98 milljónum og hefúr tvöfald-
ast frá fyrra ári. Þetta kom fram í
Viðskiptablaðinu í morgun.
Velta nam 1,07 milljörðum króna
á fyrri árshelmingi, samanborið við
915 milljónir í fyrra, og hagnaður
fyrir afskriftir var 177,7 milljónir
eða 11% af veltu. Veltan hefur auk-
ist um 16,5% en hagnaður fyrir af-
skriftir á sama tímabili í fyrra var
70,3 milljónir, eða 7,7% af veltu, og
má ráða af því að EJS hefur tekist
að bæta rekstrarárangurinn veru-
lega frá sama tímabili í fyrra.
Efnahagur EJS hf. er einnig mjög
traustur. Eigið fé í lok tímabilsins
var 377,1 milljón og eiginfjárhlutfall-
ið 38,2%. Heildarskuldir félagsins
eru minni en veltufjármunir og
birgðir nema nú 17,6% af eignum
fyrirtækisins en hlutfallið var 14,4%
í fyrra. Skuldasamsetning er jafn-
framt nokkuð breytt frá sama tíma-
bili í fyrra og hlutfall skammtíma-
skulda hefur lækkað umtalsvert
milli ára.
Samkvæmt áætlun
Olgeir Kristjónsson, forstjóri EJS,
Olgelr Kristjónsson, forstjóri EJS.
segir í samtali við Viöskiptablaðið
að rekstur EJS hafl gengið sam-
kvæmt áætlun það sem af er þessu
ári og það sem mikilvægast sé í
þessum tölum sé að reksturinn
gangi stöðugt betur. Hagnaðurinn
hafi tvöfaldast miðað við sama tíma-
bil í fyrra og allar lykiltölur í efna-
hag fari batnandi, eiginfjárhlutfall
hafi vaxið úr 31% í 38% og hið sama
eigi við um veltufjárhlutfallið sem
nálgist nú 2.
Olgeir segir að veltuaukningin sé
um 17% á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Gert heföi verið ráð fyrir að
hún yröi um 20% en það markmið
hefði náðst á fyrstu átta mánuðum
ársins. Olgeir segir að vöxturinn
hafl verið í samræmi við það sem
talið væri að fyrirtækið péði við og
segja megi að um sjálfbæran vöxt sé
að ræða þar sem fyrirtækið hafi
varið sínum fjármunum sjálft til
stækkunar.
Vinnslustöðin með 46% í sameinuðu félagi
Skipting eignarhluta í nýju félagi,
sem til verður við samruna ísfélags
Vestmannaeyja hf., Vinnslustöðvar-
innar hf„ Krossaness hf. og Óslands
ehf., liggur ekki enn fyrir. En miðað
við forsendur viljayflrlýsingar um
samruna félaganna verður skipting-
in þannig að Vinnslustöðin verður
meö um 46%, ísfélag Vestmanna-
eyja um 40%, Krossanes um 8% og
Ósland um 5%. Vinnslustöðin og
Krossanes hafa sent Verðbréfaþingi
íslands tilkynningu um skiptingu
eignarhluta í nýju félagi sem til
verður við samruna Isfélags Vest-
mannaeyja hf„ Vinnslustöðvarinn-
ar hf„ Krossaness hf. og Óslands
ehf.
í tilkynningunni kemur fram að
Skipting eignarhluta liggur ekki
enn fyrir.
Skiptingin verður byggð á endur-
skoðuðum efnahagsreikningum fé-
laganna þann 31. ágúst sl. sem gert
er ráð fyrir að liggi fyrir um miðjan
október nk. Miðað við forsendur
viljayfirlýsingar um samruna félag-
anna fjögurra frá 22. ágúst sl. verð-
ur skipting eignarhlutanna sem hér
segir: Vinnslustöðin um 46%, ísfé-
lag Vestmannaeyja um 40%, Krossa-
nes um 8% og Ósland um það bil 5%
Þegar tekið hefur verið tillit til
hlutafjáreignar ísfélags Vestmanna-
eyja í Krossanesi hf. fá núverandi
hluthafar ísfélagsins í sinn hlut um
það bil 44 % í hinu nýja félagi.
***£**** ?
Vlnnslustöðin í Eyjum mun eiga um 46% í nýju félagi
Innherjaviðskipti
Benedikt Jóhannesson hjá
Talnakönnun hf. sagði í viðtali
við RÚV í gær að augljóst væri að
innherjaviðskipti hefðu átt sér
stað með hlutabréf í ÍS síðustu
daga og vikur. Nú hefur verið
upplýst að viðræður ÍS og SÍF
hafa staðið yfir í mánuð og höfðu
hlutabréfin í ÍS hækkað á þeim
tíma um nærri 38% þegar við-
skipti voru stöðvuð með þau í gær
á Verðbréfaþingi íslands.
Hagnaður Samkaupa 44 m.kr.
Hagnaður Samkaupa hf. fyrir
skatta á fyrri helmingi þessa árs
var 43,7 milljónir króna og jókst
um 30% frá sama tímabili árið
áður. Þá jókst veltan um 22% og
nam 1.340 milljónum króna. Þetta
kom fram í Viðskiptablaðinu í
morgun. Guðjón Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Samkaupa, sagði í
samtali við Viðskiptablaðið að af-
koman nú væri heldur betri en
áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir.
KR skákar stóru risunum
KR-ingar hafi glaðst mikið síð-
ustu daga yfir góðu gengi liðs
síns. Meistaraflokkar kai’la og
kvenna hafa báðir unnið tvöfalt
sem er einsdæmi hérlendis. í 1/2 5
fréttum Búnaðar-
bankans segir að
það sé ekki öll-
um eins ljóst að
þeir aðilar sem
keypt hafa hluta-
bréf í KR-sporti i
upphafi árs hafi
einnig getað glaðst
ávöxtun hlutabréfa
Fram kemur að gengi hlutabréfa
hafi hækkað um 40% frá hluta-
fjárútboði sem sé 55% ávöxtun á
ári. Með þessari góðu ávöxtun
skákar KR ekki ómerkari félögum
en Newcastle, Arsenal, Ajax og
Manchester United.
yfir góðri
í félaginu.
Áætluð velta 1,4 milljarðar
Áætlanir Lyfjabúða gera ráð
fyrir að velta félagsins veröi um
1,4 milljarðar á þessu ári. Þá er
reiknað með að hagnaður Lyfia-
búða á næsta ári verði um 70 mill-
ljónir króna eftir skatta. Eftir ár
hyggst Baugur hf. setja félagið á
hlutabréfamarkað en áður en að
því kemur verður fagfiárfestum
gefinn kostur á að kaupa 25% hlut
í félaginu. Lyfiabúðir hf. reka
keðju 9 lyfiaverslana undir nafn-
inu APÓTEKIÐ. Til stendur að
opna tíundu lyfiaverslunina inn-
an fárra daga í Kringlunni.
GSM í Bandaríkjunum
Frá og með miðvikudeginum
22. september hafa viðskiptavinir
Landssímans getað nýtt sér GSM-
1900-þjónustu farsímafyrirtækis-
ins Voicestream Wireless í Banda-
ríkjunum og þar með aukast
möguleikar til að nota GSM í
Bandaríkjunum.
Vaxtahækkun fram undan
Seðlabanki Evrópu gaf í gær til
kynna að hugsanlega þyrfti að
hækka vexti á evru-svæðinu til
þess að halda aftur af verðbólgu.
Christian Noyer,
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
hjá Seðlabanka
Evrópu, sagði í
gær að hættan á
aukinni verð-
bólgu væri nú meiri en líkurnar á
verðhjöðnun. Noyer viðhafði þessi
ummæli um leið og kynntar voru
hagtölur frá Seðlabanka Evrópu
sem sýna að vöxtur peningamagns
á evru-svæðinu minnkaði lítillega
í ágúst en er engu að síður enn yfir
viðmiðunarmörkum bankans.