Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
7
Fréttir
Minnstu munaöi að Dorrit Moussaieff félli af baki þegar hún skellti sér berbakt og taumlaust á bak í hestagerðinu á Leirubakka. Hesturinn fór á stökk og þarna sannaði Dorrit að hún var ekki að
fara í fyrsta sinn á hestbak og hékk á. Á myndinni sést í hnakka Haraldar Haraldssonar í Andra sem gerir örvæntingarfulla tilraun til að stöðva taumlausa reið Dorrit. DV-myndir GVA
Orlagadísir gripu í taumana
Forseti íslands og ástkona hans,
Dorrit Moussaieff, ætluðu að gera
sér glaðan dag á Leirubakka í Land-
sveit á mánudaginn þegar þau
ákváðu að bregða sér þangað á hest-
bak og njóta haustblíðunnar. Dorrit
og Ólafur nutu ferðarinnar úr höf-
uðborginni á nýrri, silfurlitaðri
BMW-bifreið forsetans sem hann ók
sjálfur. Á Leirubakka biðu nýbakað-
ar pönnukökur sem Dorrit sagði að
væru „delicious" sem var orð að
sönnu. Þá var haldið í reiðtúr sem
aðeins hafði staðið í um það bil 20
mínútur þegar örlagadísirnar gripu
í taumana og forsetinn féll af baki.
Framhaldið þekkja lesendur DV
manna best.
Gunnar V. Andrésson ljósmynd-
ari var meðreiðarsveinn forsetans
og ástkonu hans og myndirnar sem
hér fýlgja tók hann þennan langa
dag á Leirubakka.
-EIR
Við upphaf reiðtúrs. Ólafur Ragnar og Dorrit. Fjallahringurinn var fagur og tær og Hekla skartaði
sínu fegursta.
Pönnukökurnar gerðu stormandi
lukku fyrir útreiðartúrinn og Dorrit
hafði á orði að þær væru „delicious".
Þórir B. Kolbeinsson, heilsugæslulæknir á Hellu, athug-
ar meiðsl forsetans með Dorrit Moussaieff í Ijósum bif-
reiða. í jeppanum að baki lækninum situr Haraldur Har-
aldsson í Andra og stjórnar aðgerðum úr farsíma.