Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir dv
Moskvuvaldið
tilbúið að ræða
við Tsjetsjena
ígor Ivanov, utanrikisráðherra
Rússlands, lýsti því yflr í gær að
stjómvöld i Moskvu væru í
grundvallaratriðum reiöubúin til
viðræöna við leiðtoga Tsjetsjeníu
ef þeir fordæmdu ofbeldisaðgerðir
og létu af hendi foringja „hryðju-
verkamanna".
ívanov, sem er í Havana á
Kúbu, sagði að yfirvöld í Moskvu
hefðu tvö markmið með hernaðin-
um í Tsjetsjeníu. Annars vegar að
loka landamæmnum og hins veg-
ar að ráðast á sama tíma á bæki-
stöðvar uppreisnarmanna.
Rússneskar orrustuvélar héldu
áfram sprengjuárásum sínum á
Tsjetsjeníu í gær. Þúsundir
manna flýðu til nærliggjandi
ríkja, til viðbótar þeim sem þegar
voru flúnir.
Listasafn beygir
sig ekki fyrir
borgarstjóra
Listasafnið í Brooklyn í New
York ætlar að halda ótreutt áfram
með umdeilda listsýningu þótt
Rudolph Giuliani borgarstjóri
hafi brugðist ókvæða við og hótað
bæði að reka safnið af landi í eigu
borgarinnar og afnema opinber
fjárframlög.
Sýningin umdeilda er á verk-
um eftir ungan breskan lista-
mann. Og þaö sem fór svona fyrir
brjóstið á borgarstjóranum var
portrett af Maríu mey sem meðal
annars var búið til úr filskúk.
Borgarstjóranum finnst það mikil
móðgun.
Málaferli eru yfirvofandi vegna
sýningarinnar.
Clinton nýtur
enn ráðgjafar
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fær enn andlega ráðgjöf presta,
ári eftir að
hann viður-
kenndi að hafa
syndgað með
Monicu Lewin-
sky, fyrrum
lærlingi í Hvíta
húsinu. Forset-
inn sagði við
árlegan bænamorgunverð í Hvíta
húsinu í gærmorgun að hann
væri ákaflega snortinn yfir því
hve honum hefði verið sýnd mik-
il fyrirgefning.
Hillary forsetafrú var við morg-
unverðarborðið í gær. Margir við-
staddra klöppuðu eða kinkuðu
kolli til að lýsa velþóknun sinni á
orðum forsetans.
Tónleikahaldari
í morðvarðhald
Sænska lögreglan handtók í
morgun 23 ára gamlan tónleika-
haldara sem grunaður er um að
hafa myrt þrjár manneskjur, þar
af fóður og son, í smábænum
Klippan á Skáni í gærmorgun.
Feðgarnir eru frá Helsingborg-
arsvæðinu, 65 og 32 ára, en þriðja
líkið var af um það bil sextugum
karlmanni sem ekki er vitað hver
var. Lík þeirra fundust við bíl
með spænskum númersplötum.
SÞ búa sig undir aö taka viö stjórn Austur-Tímor:
Brunnin lík fund-
ust í úthverfi Dili
Fréttamenn fundu í morgun tíu
brunnin lík í pallbíl sem eldur
hafði verið lagður að skammt vest-
ur af flugvellinum í Dili, héraðshöf-
uðborg Austur-Tímor.
Sjónarvottur sagði fréttamanni
Reuters að indónesíska lögreglan
og vígasveitir á bandi Indónesíu-
stjómar hefðu staðið fyrir morðun-
um fyrir um það bil tveimur vik-
um.
„Fómarlömbin voru bundin á
höndum og fótum aftan á bílnum og
vígasveitamennimir hökkuðu þá í
spað með sveðjum. Ég heyrði öskr-
in í þeim upp á hæðina þar sem ég
var. Þegar fólkið var látið helltu
vígasveitamennimir bensíni á líkin
og bílinn og kveiktu i,“ sagði Al-
berto A.C. Pereira, 38 ára gamall
íbúi þorpsins Tibar.
Ekki fékkst nein staðfesting á frá-
sögn Pereira en lýsing hans kemur
heim og saman við þau verksum-
merki sem fréttamenn sáu.
Hundruð flóttamanna fóru frá hafn-
arsvæðinu í Dili, höfuðborg Austur-
Tímor, til íþróttaleikvangs borgar-
innar f morgun þar sem þeir njóta
verndar alþjóðlega gæsluliðsins.
Sameinuðu þjóðirnar bjuggu sig
undir það í morgun að taka við
borgaralegum skyldum á Austur-
Tímor áður en þær taka formlega
við stjórn landsins af alþjóðlegu
friðargæslusveitunum. Indónesísk
stjómvöld höfðu gefið samþykki
sitt.
Wiranto hershöfðingi, yfirmaður
indónesíska hersins, lýsti í morg-
un óbeint yfir stuðningi sínum við
rannsókn á mannréttindabrotum á
Austur-Tímor. Vígasveitimar era
sakaðar um að hafa myrt þúsundir
manna frá þvi íbúar landsins höfn-
uðu áframhaldandi sambandi við
Indónesíu í þjóðaratkvæðagreiðslu
í ágústlok.
William Cohen, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í sjón-
varpsviötali að Indónesar ættu yfir
höfði sér refsiaðgerðir ef þeir
hefðu ekki hemil á her sínum og
kæmu ekki á lýðræðislegum um-
bótum.
Tvær evrópskar drottningar, þær Soffía frá Spáni og Pála frá Belgíu, sóttu ráöstefnu í Varsjá, höfuðborg Póllands, í
gær í tilefni tíu ára afmælis barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Jolanta Kwasniewski, forsetafrú í Póllandi, stóð fyr-
ir ráðstefnunni. Drottningarnar létu taka af sér þessa mynd með fötluðum börnum eftir að þau efndu til söngskemmt-
unar fyrir framan Wilanow-höll í pólsku höfuðborginni.
Boða mótmælagöngu
til heimilis Milosevics
Stjórnarandstæðingar í Belgrad
ætla í kvöld að efna til mótmæla-
göngu í hverfinu þar sem Slobodan
Milosevic Júgóslavíu býr. Tilgang-
urinn er að leggja áherslu á kröf-
una um afsögn Milosevics.
Hann býr í hverfinu Dedinje sem
er á hæð í um fimm kílómetra fjar-
lægð frá miðborg Belgrad. Stjórn-
málaskýrendur telja að lögreglan
kunni að grípa inn í gangi mótmæl-
endur til Dedinje. Mótmælendur
voru stöðvaðir þar í mótmælaað-
gerðunum 1996-1997 og 1991.
Lögreglan hefur ekki látið til
skarar skríða gegn mótmælendum
nú en hún hefur aukið viðbúnað
sinn í hverfinu þar sem forsetinn
býr.
í gærkvöld söfnuðust að minnsta
kosti 10 þúsund manns í miðborg
Um 10 þúsund mótmælendur gengu
um miðborg Belgrad í gærkvöld.
Belgrad, 15 þúsund í Nis og um 5
þúsund í Novi Sad. Hefur nú verið
efnt til mótmæla gegn Júgóslavíu-
forseta átta daga í röð. Mótmæl-
endur gera ráð fyrir að fleiri þyrp-
ist út á götumar þegar rafmagnið
hverfur og kólna tekur. Stjómar-
andstaðan vonast til að vetrarkuldi
og rafmagnsskortur muni fella
Milosevic.
Stjórnarandstæðingar hafa heit-
ið því að efna til daglegra mótmæla
þar til Milosevic lætur undan
þrýstingnum. Stjómarandstæðing-
ar saka forsetann um að hafa rúið
Serbíu inn að skinni vegna áratug-
ar langra stríða á Balkanskaga.
Goran Djindjic, einn leiðtoga
stjómarandstöðunnar, sagði í gær
að stjórnin féllist ekki á afsögn í
viðræðum. Aðeins aðgerðir dygðu.
Handtökur í Kosovo
Franskir friðargæsluliðar hafa
handtekiö íjóra menn í Kosovo í
kjölfar fundar fjöldagrafar við
Mitrovica í Kosovo í síðustu viku.
Afhendir Gólanhæðir
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, er reiðu-
búinn að af-
henda Sýrlend-
ingum Gólan-
hæðir, að því er
ísraelska sjón-
varpið greindi
frá í gærkvöld.
Barak á að hafa
lýst þessu yfir í viðtali við Israela
í tilefni hátíðarhalda. Enn hefði
þó ekki fundist leið til að taka
upp friðarviðræður að nýju við
Sýrlendinga.
Ofbeldi gegn börnum
Tugum þúsunda s-afrískra
barna er nauðgað, rænt, sýnd
morðtilraun eða þeim misþyrmt á
annan hátt á hverju ári sam-
kvæmt skýrslum lögreglunnar.
Lesendabréf fyrir rétt
Saksóknari á Ítalíu hefur
ákveðið að láta rannsaka lesenda-
bréf til kaþólsks blaðs sem valdið
hefur miklum vangaveltum. Bréf-
ritari skriftaði og kvaðst iðrast að
hafa átt þátt í að ákveða fyrir
fram úrslit i knattspyrnukeppni.
Áhyggjur af sterku jeni
Hækkun japanska jensins gagn-
vart dollar veldur Japansstjóm
áhyggjum. Óttast stjómin að
hækkunin standi efhahagsbatan-
um fyrir þrifum.
Dóttir Alis í hringinn
Dóttir hnefaleikarans
Muhammads Alis, Laila Ali, sem
er 21 árs, tilkynnti í gær aö hún
ætlaði að keppa sem þungavigtar-
boxari. Ali sjálfur hefur áhyggjur
af boxi dótturinnar.
Hagsmunir Austurríkis
Hægrimaðurinn Jörg Haider
hvatti í gær Austurríkismenn til
að kjósa flokk
hans, Frelsis-
flokkinn, á
sunnudaginn til
að tryggja hags-
muni Austur-
ríkismanna áð-
ur en tekið yrði
tillit til hags-
muna innflytjenda. Búist er við
að flokkur Haiders verði annar
stærsti flokkurinn að þingkosn-
ingunum loknum.
Banahopp
Óttaslegin kona hoppaði ofan af
svölum í morgun og beið bana er
jarðskjálfti reið yfir bæinn Ya-
lova. Skjálftinn mældist 4,8 á
Richter.
Forsetaframboð
Borgarstjórinn í Mexíkóborg,
Cuauhtemoc Cardenas, sagði af
sér í gær til þess að undirbúa
þriðju tilraun sína til að verða
forseti lands síns. Forsetakosn-
ingamar verða í júlí á næsta ári.
Forðist Hague
Þeir sem vilja umgangast ein-
hvern skemmtilegan ættu um-
fram allt að
forðast William
Hague, leiðtoga
íhaldsflokksins
í Bretlandi.
Þetta er niður-
staða nýrrar
skoðanakönn-
unar. Alls töldu
98 prósent aðspurðra að þeir gætu
ekki ímyndað sér að gaman væri
að vera með Hague.
Clinton borgar Paulu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
greiddi í gær lögmönnum Paulu
Jones, sem sakaöi hann um
kynferðislega áreitni, 90 þúsund
dollara. Er talið að um
lokagreiðslu sé að ræða. Paula,
sem var opinber starfsmaður í
Arkansas, höfðaði mál gegn
Clinton 1994.