Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
11
r>v_________________________________Fréttir
Hrottarnir sem limlestu bróður flkniefnaskuldara:
Varðhald ástæðulaust
- segir yfirlögregluþjónn
„Meginreglan er alltaf sú að
menn ganga lausir þar til dæmt hef-
ur verið í máli þeirra en gæsluvarð-
hald i langan tíma er undantekn-
ing,“ segir Hörður Jóhannesson, yf-
irlögregluþjónn í Lögreglunni í
Reykjavík, en athygli hefur vakið
að tveimur mönnum sem játuðu í
síðustu viku að hafa gengið í skrokk
á ungum manni og beinbrotið hann
bæði á hendi og fæti var sleppt laus-
um eftir skýrslutöku.
„Málið er upplýst og það er óum-
deilt hvað gerðist og það liggur fyr-
ir að sá sem varð fyrir árásinni er á
vísum stað,“ segir Hörður og vísar
þar með til þess að fórnarlambið
mun vera þar sem utanaðkomandi
geta ekki náð til þess. Hið sama
mun gilda um bróður mannsins en
árásin var í reynd ætluð bróðurn-
um. Hörður segir aðalástæðu þess
að grunaðir menn eru settir í gæslu-
varðhald vera vemdun rannsóknar-
hagsmuna. Þetta geti átt við þegar
menn geti haft áhrif á samseka eða
vitni, skotið undan gögnum eða haft
einhver önnur áhrif á rannsókn
málsins.
„í þessu tilfelli var það
mat manna að þessi skil-
yrði væru ekki fyrir hendi.
Hitt er svo annað mál að
það er heimilt í alvarleg-
ustu málum að halda
manni inni þar til dómur
gengur, til dæmis í morð-
málum og í öðrum málum
þar sem það er fyrirfram
ljóst að menn fá langa
dóma. Eins, þegar' menn
eru orðnir uppvísir að al-
varlegu broti, er talið að
það séu almannahagsmun-
ir að þessum mönnum sé
haldið þar til málinu er lokið," segir
Hörður. Hann segir aðspurður að
ekki hafi verið talin ástæða til að ótt-
ast að árásarmennirnir myndu láta
til skarar skríða með svipuðum
hætti gegn öðrum hugsanlegum fórn-
arlömbum og því hafi málið verið
metið með áðurgreindum hætti.
Fóturinn var ekki að detta af
„Það er einfaldlega venja hjá okk-
ur að veita ekki upplýsingar um
menn; hvorki nöfn né ann-
að, á meðan málið er á
rannsóknarstigi," segir
Hörður, aðspurður hvort til
greina komi að birta opin-
berlega nöfn og myndir
manna sem játað hafa gróf
ofbeldisverk. „En það er
hins vegar annað ef menn
hafa verið dæmdir eða þá
málið er orðið opinbert á
annan hátt, svo sem ef gefín
er út ákæra eða mál þing-
fest,“ bætir hann við.
„Ég er ekki að gera lítið
úr þessu en það er verið að
dramatísera þetta svona mikið hara
vegna þess að þetta er tengt fikni-
efnum,“ segir Hörður um likams-
árásina sjálfa. „Það eru menn lamd-
ir um hverja einustu helgi miklu
verr heldur en þetta og menn eru
meiða sig svona bara í fótbolta. En
þetta hljómar rosalega á forsíðu DV:
Maður fótbrotinn og handleggsbrot-
inn. Þó hann sé með brotna pípu
einhvers staðar má ekki lýsa þessu
eins og fóturinn sé kominnn i sund-
ur og að detta af.“ -GAR
Hörður Jóhannes-
son, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
Sléttanes ÍS veröur grænt:
Atvinnulaus í fyrsta sinn
- segir Sölvi Pálsson, fráfarandi skipstjóri
„Ég veit ekkert hvað tekur við
hjá mér. Ég verð að óbreyttu at-
vinnulaus eftir mánaðamótin í
fyrsta sinn á ævinni," segir Sölvi
Pálsson,. fyrrverandi skipstjóri á
frystitogaranum Sléttanesi ÍS, sem
er að fara úr þjónustu Básafells hf.
í ísafjarðarbæ. Tvö þúsund tonna
kvóti var seldur með Sléttanesi
sem gert verður út frá Reykjavik
undir merkjum Látra ehf. sem er
dótturfyrirtæki Ingimundar hf. í
Reykjavík. Sléttanes kom í land úr
síðasta túr í þjónustu Básafells á
ísafirði þann 1. september en síðan
hefur verið unnið að því að skvera
skipið fyrir nýju eigendurna.
Sléttanesið kom nýtt til Þingeyrar
_ árið 1983 og
hefur fram til
þessa átt
heimahöfn
þar. Það hefur
frá upphafi
verið rautt að
lit en nýir eig-
endur eru að
láta mála það
grænt. Sölvi
segir ekkert
fram undan
hjá sér í atvinnumálum þegar upp-
sagnarfrestur hans rennur út í
næsta mánuði.
Sölvi Pálsson, frá-
farandi skipstjóri.
Sléttanes í slippnum í Reykjavík. Það verður nú grænt í stað þess að vera
rautt svo sem það hefur verið frá því það kom nýtt til Þingeyrar árið 1983.
„Eg er búinn að vera til sjós í 40
ár og er algjörlega réttlaus hvað þá
að ég eigi einhvern hlut í sameign
þjóðarinnar. Ég má engan fisk
veiða þó ég vildi bjarga mér sjálf-
ur. Það fer enginn venjulegur mað-
ur í útgerð í dag. Það sama á við
um fiskvinnslu. Þó ég vildi stofna
til verkunar á saltfiski þá þarf
kvóta til þess og hann kostar morð
fjár. Alþingi sett þessi lög og það er
við alþingismenn eina að sakast.
Útgerðarmenn fara bara eftir leik-
DV-mynd ÞOK
reglum þessa fiskveiðistjórnunar-
kerfis sem heimilar frjálst framsal
kvóta,“ segir Sölvi.
Hann segir óvíst hvort hann
muni búa áfram á Þingeyri þar
sem hann festi kaup á dýru einbýl-
ishúsi fyrir skömmu eftir að hafa
verið fullvissaður um að engin
breyting yrði á útgerð Sléttaness
frá Þingeyri.
„Ég hefði helst ekki viljað flytja
frá Þingeyri en um það er þó full-
komin óvissa," segir Sölvi. -rt
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli:
Æðsta viðurkenning
Haraldur Stefánsson, slökkviliðs-
stjóri á Keflavikurflugvelli.
Slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli verður veitt æðsta viðurkenn-
ing sem liðinu hefur hlotnast á
morgun. Verðlaunin eru veitt sam-
eiginlega af bandariska sjóhernum
og innrásarher sjóhersins fyrir störf
að brunavörnum og slökkviliðs-
störfum á árinu 1998.
Haraldur Stefánsson slökkviliðs-
stjóri mun taka á móti verðlaunun-
um úr hendi flotaforingja sjóhersins
á Miðnesheiði. Haraldur segist
þakka árangurinn áhuga, þjálfun og
atorku liðsins sjálfs sem og þeim
velvilja og skilningi sem það nýtur
á starfssvæði sínu.
Haraldur hefur verið slökkivliðs-
stjóri á Keflavíkurflugvelli frá árinu
1986 en átti 44 ára starfsafmæli hjá
slökkivliðinu sl. vor. Hann hefúr
verið yfirmaður frá árinu 1969.
Haraldur segir það hafa verið ár-
vissan atburð um langa hríð að
slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli
hlotnaðist ýmist fyrsta, annað eða
þriðja sætið meðal allra slökkvi-
liða á vegum bandariska sjóhers-
ins en það væri fyrst nú að liðið
fengi æðstu verðlaunin fyrir að
hafa skarað mest allra fram
úr. Hann segir sérlega
ánægjulegt að slökkviliðið
sem eingöngu sé mannað ís-
lendingum skuli hljóta
þessa viðurkenningu. Hún
hljóti að gera þeim, sem greiða
fyrir þjónustu þess, auðveldara fyrir
með að meta það að verðleikum. „Þá
ætti þetta ekki að spilla fyrir íslend-
ingum þegar samið verður um endur-
nýjun á varnarliðssamningunum,"
segir Haraldur.
Bílaraf
er flutt úr Borgartúni 19 aö Auöbrekku 20
í Kópavogi.
Nýtt símanúmer er 56 40 400.
Alternatorar og startarar í fólksbíla,
vörubíla, vinnuvélar og bátavélar.
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
og Búnaðarsamband Suðurlands
auglýsa stöðu tilraunastjóra.
Staða tilraunastjóra á tilraunastöðinni á Stóra-Armóti í
Hraungerðishreppi er laus til umsóknar.
Tilraunastöðin á Stóra-Armóti er rekin sameiginlega af
Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Búnaðarsambandi
Suðurlands í samræmi viðlög nr. 29 1981 og samstarfssamning
þessara aðila frá 1983. í samræmi við þetta er óskað eftir
umsóknum ítá aðilum sem hafa sérmenntun sem tengist
nautgriparækt, einkum fóðurfræði eða sambærilegum sviðum,
sem nýtast myndi starfseminni.
Skipulag á rekstri stöðvarinnar og áherslur í
rannsóknastarfseminni eru í endurskoðun og er þess vænst
að nýr tilraunastjóri taki virkan þátt í þeirri skipulagningu.Á
Stóra-Armóti er ný tilraunaaðstaða sem byggð hefur verið
upp á síðustu fimmtán árum en starfsemi á staðnum hófst
árið 1987 og er framhald af starfsemi sem unnin var í
Laugardælum. Möguleiki er á búsetu á staðnum.
Umsóknum ber að skila fyrir 20. október nk. til Þorsteins
Tómassonar, forstjóra Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, Keldnaholti.
Upplýsingar veitir einnig Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands.
Blaðaprentari óskast
-kvöldvinna
Óskum eftir að ráða offsettprentara
til prentunar dagblaða á Goss Community
blaðavél. Kvöldvinna
Bílstjóri óskast
Óskum eftir að ráða bílstjóra til útkeyrslu,
móttöku á vörum og umsjón með lager.
Vinnutími 9-17
Upplýsingar gefur Kjartan Kjartansson í sfma 550 5986
Askrifendur fa
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
r/////////////////