Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Side 17
16
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
17
Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður Aftureldingar, er bjartsýnn á góðan
árangur Aftureldingar í vetur. „Við erum tilbúnir að mæta öllum liðum og ég
lít þannig á hlutina að við séum ekki að fara verja neitt heldur að sækja
þessa titla sem eru í boöi. Við ætlum að veröa fyrsta liðið til að vinna
þrefalt tvö ár í röð,“ segir Bergsveinn.
Eiður Smári
á leiðiniH til
Sunderland?
Eiöur Smári Guðjohnsen, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, gæti verið á leið til enska A-deildarliðs-
ins Sunderland, samkvæmt frétt á Teamtalk
fréttavefnum í gær.
Þar var sagt að Peter Reid, stjóri Sunder-
land, væri tilbúinn að greiða 200 milljón-
ir króna fyrir íslenska sóknarmann-
inn, en allt benti til þess að hann
yrði næsti leikmaðurinn til að
yfirgefa Bolton sem á í miklum
fjárhagserfiðleikum. /
Sport
i r~
Bland í poka
H-riðill:
AC Milan - Hertha Berlín ... 1-1
Chelsea - Galatasaray ..1-0
Hertha 3 1 2 0 5-4 5
AC Milan 3 1 2 0 3-2 5
Chelsea 3 111 2-2 4
Galatasaray 3 0 1 2 3-5 1
Charltoní
þriðja sætið
Charlton sigraði Stockport,
4-0, í ensku B-deildinni í gær-
kvöld og komst þar með í 3. sæti
deildarinnar. Cr. Palace og
Wolves skildu jöfn, 1-1, Norwich
vann Man. City, 1-0 og Swindon
vann Blackburn, 2-1. í C-deild
sigruðu Hermann Hreiðarsson
og félagar í Brentford lið Ccirdiff,
2-1. Hermann skoraði ekki.
t
Sjotug for holu i hoggi
- í þriðja skipti á fimm árum
Það teljast alltaf tíðindi þegar kylfmgar fara holu í höggi, hvað
þá þegar sjötug kona vinnur það afrek í þriðja skipti á fimm árum.
Það gerði einmitt Gréta Finnbogadóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur
á mánudaginn - á 16. holunni á golfvellinum við Korpúlfsstaði.
Gréta lék þennan leik fyrst á þessum sama velli, reyndar áöur
en honum var breytt í núverandi horf, og fyrir tveimur árum fór
hún holu í höggi á Grafarholtsvelli. -VS
Eiður Smári
Guðjohnsen. Verður
hann næsti
leikmaðurinn til að
yfirgefa Bolton?
Vignir Stefúnsson,
júdómaður úr Ármanni,
hefur náð frábærmn ár-
angri á tveimur fyrstu
mótum sínum í Banda-
ríkjunum en þar keppir
hann fyrir Texas A&M
háskólann í vetur. Vign-
ir sigraði fyrst á móti í
Lousiana og síðan á
mjög sterku móti 1
Boston, en allar viður-
eignir sinar á báðum
mótum vann hann á
„ippon“, eða með fulln-
aðarsigri.
Juventus vill endilega
krækja i Sol Campbell,
varnarmanninn öfluga
frá Tottenham, áður en
markaðnum á Ítalíu er
lokað á morgun. Juvent-
us er sagt vera reiðubú-
ið til að greiða 1.500
milljónir króna fyrir
Campbell og láta vamar-
manninn Zoran Mir-
kovic fara til Tottenham
í kaupbæti.
Sigurður
ekki með?
Greint var frá því í
breskum fjölmiðlum i
gær aö Sigurður Jóns-
son yrði frá í 4 vikur
vegna meiðsla. Ef satt
reynist mun hann ekki
leika með gegn Frökk-
um í lokaleik fslands í
undankeppni EM í
knattspyrnu. _<;g
m:‘. —L
k ■
m, *•. : . * 4
Alveg niðurbrotin
- Herdís Sigurbergsdóttir leikur ekki handknattleik framar
Herdís Sigurbergs-
dóttir, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í
handknattleik og leik-
maður Stjömunnar,
fékk að vita það end-
anlega í gærkvöld að
hún getur ekki leikið
handknattleik framar
vegna meiðsla sem
hún varð fyrir í lands-
leik þann 24. janúar í
byrjun þess árs.
„Þetta er meira
áfall fyrir mig og
mína fjölskyldu en orð
fá lýst. Ég hef ekkert
getað æft síðan i janú-
ar. í maí var ljóst að
ekki var allt með
felldu og þá fór ég í
aðra aðgerð. Þá kom í
Ijós að það var komið
drep í hásinina og það
var farið að skemma
út frá sér,“ sagði Her-
dis í samtali viö DV í
gærkvöld.
Sl. laugardag slitn-
aði hásinin öðru sinni
við ekkert átak.
„Þú hittir í raun og
vera mjög illa á mig.
Ég var rétt í þessu að
fá að vita að ferillinn í
íþróttunum er á enda.
Þetta er gríðarlegt
áfall og ég er í raun al-
veg niðurbrotin. Ég
hef ekkert getað unnið
í marga mánuði og
mun örugglega missa
vinnuna. Það er því
ekki bara ferillinn í
íþróttunum sem er í
rúst. Það hefur vitan-
lega komið sér afar
illa að vera frá vinnu
allan þennan tíma og
það sér ekki fyrir end-
ann á því. Það var ætl-
unin að reyna þriðju
aðgerðina en læknar
hér heima og erlendis
standa ráðþrota gagn-
vart þessu.“
- Læknamistök?
„Ég vil ekkert segja
um það á þessu stigi.“
Það er í raun mikið
áfell fyrir handknatt-
leiksunnendur og ís-
lenskan kvennahand-
knattleik að sjá á eftir
Herdísi af handknatt-
leiksvellinum. Hún
var ein albesta hand-
knattleikskona lands-
ins og lék alls 66
landsleiki.
-SK
Herdís Sigurbergsdóttir, ein besta handknattleikskona
landsins, leikur ekki handknattleik framar.
Arni Gautur til Stabæk?
Ámi Gautur Arason, markvörður norsku meistaranna í
Rosenborg og varamarkvörður íslenska landsliðsins, gæti
verið á förum frá Rosenborg þó svo að hann eigi eitt ár eftir
af samningi sfnum við félagið.
Norskir fjöimiðlar segja að mörg norsk lið vilji fá Árna
Gaut í sinar raðir og rætt hefur verið um að Stabæk og Ros-
enborg hafi markvaröaskipti. Frode Olsen, markvörður
Stabæk, hefur ekki verið sáttur í herbúðum félagsins og
umræða hefur komist í gang í Noregi um
leikmannaskiptin. -GH
Tímabiliö búið hjá Sigga
Sigurður Sveinsson, hornamaðurinn knái í liði Aftureld-
ingar, verður aö öllum líkindum ekkert með á þessu keppn-
istímabili. Sigurður gekkst undir aðgerð i öxl í síðustu viku
og reyndust meiðslin meiri en haldið var í fyrstu. Hann þarf
sennilega að hvíla öxiina í 6-8 mánuði en ef allt gengur að
óskum gæti hann náð lokasprettinum á íslandsmótinu. Þor-
kell Guðbrandsson mun leysa Sigurð af hólmi en hann er
kominn aftur i raðir Mosfellsbæjarliðsins eftir eins árs dvöl
í Þýskalandi. -GH
Keppnin um Islandsmeistaratitilinn í handknattleik karla hefst í kvöld:
þá alla aftur
segir Bergsveinn Bergsveinsson, hinn gamalreyndi markvörður íslands- og bikarmeistara Aftureldingar
Keppni í 1. deild
karla í hand-
knattleik hefst í
kvöld með heilli
umferð eða sex
leikjum. Flestir
handboltaspekingar
eru sammáia um að
íslands- og bikar-
meistarar síðasta
keppnistimabils, Aft-
urelding, séu með
sterkasta liðið og
erfitt geti reynst fyrir
önnur lið að standast
Mosfellingum snún-
inginn. Menn eru sam-
mála um að deildin geti orðið
mjög jöfn í vetur en veturinn
verði þungur fyrir nýliða
Fylkis.
DV fékk Bergsvein Berg-
sveinsson markvörðinn
snjalla úr Aftureldingu, til að
spá fyrir um veturinn og í
fyrstu umferðina.
„Við stefnum að þvi að
vinna þá bikara sem verða í
boði í vetur. Við verðum
svipað sterkir og á síðasta
tímabili. Að vísu höfum við
misst Sigurð Sveinsson í
meiðsli en höfum fengið Þor-
kel Guðbrandsson til baka,“
sagði Bergsveinn.
- En hverjir verða helstu
keppinautar ykkar í vetur?
„Ég held að Valsmenn
verði mjög sterkir í vetur og
verði það lið sem komi til
með að veita okkur harðasta
keppni. Þá hef ég trú á að KA-
menn verði öflugir i vetur og
þá einkum fyrir norðan.
Haukarnir hafa styrkt sig
mikið og eru með mun
sterkara lið heldur en í fyrra.
Ég held að deildin verði ann-
ars mjög jöfn. Mér sýnist í
fljótu bragði að Afturelding,
Valur, KA og Haukar verði í
toppbaráttunni og liðin þar
fyrir aftan verði í hnapp. Lið
eins og HK, ÍR, FH, Stjaman
og Fram era lið sem geta
unnið hvaða lið sem er og
þau gætu hæglega blandað
sér í hóp efstu liða. Ég held
að deildin verði miklu jafnari
en í fyrra. Fylkismenn eru þó
sennilega með lakasta liðið
en hinir nýliðamir, Víking-
amir, gætu strítt liðum og
ekki má gleyma því að þeir
hafa oft gert okkur skrá-
veifu."
- Er ekki erfitt aö mæta
til leiks sem þrefaldir
meistarar?
„Mér líður rosalega vel og
er afslappaður yfir þessu. Við
erum tilbúnir að mæta öllum
liðum og ég lít þannig á hlut-
ina að við séum ekki að fara
verja neitt heldur að sækja
þessa titla sem eru í boði. Við
ætlum að verða fyrsta liðið
til að vinna þrefalt tvö ár í
röð.
Ég er fullur tilhlökkimar
og ég vona að deildin verði
skemmtileg og að fólk mæti
vel á leikina. Liðin gera sér
grein fyrir því að deildar-
keppnin er mjög mikilvæg
upp á framhaldið og þau
koma til að keppa um að ná
sem hagstæðustu sæti áður
en úrslitakeppnin hefst,"
sagði Bergsveinn.
Spá Bergsveins um leikina
í kvöld:
ÍR-Stjaman x
Haukar-Fram 1
Valur-HK 1
ÍBV-Fylkir 1
Vlkingur-KA 2
Afturelding-FH 1
Geir stefnir á titilinn
Margir bíða spenntir eftir
þvi að sjá til Valsmanna en í
árlegri spá forráðamanna lið-
anna er þeim spáð 2. sætinu í
deildinni á eftir Aftureld-
ingu. En hvað segir Geir
Sveinsson, þjálfari Vals-
manna, um veturinn sem
fram undan er?
„Það fer ekkert á milli
mála að Afturelding teflir
fram sterkasta liðinu. Það er
hins vegar alveg ljóst að Mos-
fellingarnir eru ekki ósigr-
andi. Ég legg upp í þetta mót
með það fyrir augum að
vinna titilinn og svo verður
bara að koma í ljós hvort það
gengur eftir,“ sagði Geir
Sveinsson, þjálfari Vals-
manna, í samtali við DV í
gær. Flestir eru þeirrar skoð-
unar að Geir eigi eftir að spila
með lærisveinum sínum í vet-
ur en sjálfur segist hann ekki
vera í þeim hugleiðingum.
„Ég æfi meö strákunum og
held mér í formi en þar með
er ekki sagt að ég ætli að spila
með,“ sagði Geir.
Það kemur í hlut gömlu
kempunnar Júlíusar Jónas-
sonar að leiða Valsmenn til
leiks en hann er fyrirliði liðs-
ins. Júlíus leikur sinn fyrsta
leik fyrir Val á Islandsmóti í
10 ár í kvöld en hann sneri
sem kunnugt er heim í sumar
eftir 10 ár í atvinnumennsk-
unni. Saman urðu þeir Júlíus
og Geir íslandsmeistarar með
Val árið 1989 og spurning
hvort þeir leika sama leikinn
á þessu tímabili.
„Ég er mjög spenntur og
hlakka mikið til vetrarins.
Eins og flestir aðrir reikna ég
með að Afturelding mæti til
leiks með besta liðið en við
Valsmenn ætlum að reyna að
veita þeim harða keppni,"
sagði Júlíus við DV. -GH
19 stiga sigur
Njarðvíkinga
Keflavík og Njarðvík áttust við í gærkvöld og
var spilað um tignina meistarar meistaranna.
Njarðvíkingar, sem urðu bikarmeistarar síða-
stíiöið tímabil, sigruðu Islandsmeistarana frá
Keflavík, 111-92, í leik mikilla mistaka. Stað-
an í hálfleik var 50-40, Njarðvík í vil.
Stig Keflavíkur: Hjörtur Harðarson 18, Chi-
anti Roberts 18, Fannar Ólafsson 12, Kristinn
Guðlaugsson 12, Magnús Gunnarsson 11, Dav-
iö Jónsson 7, Haildór Karlsson 7, Elentínus
Magnússon 5, Gunnar Einarsson 2.
Stig Njarðvíkur: Purnell Perry 24, Örlygur
Sturluson 20, Teitur Örlygsson 18, Hermann
Hauksson 17, Páil Kristinsson 12, Friðrik Stef-
ánsson 8, Gunnar Örlygsson 7, Sigurður Ein-
arsson 2, Ragnar Ragnarsson 2.
-BG
I kvöld
1. deild karla í handknattleik:
ÍR - Stjarnan................20.00
Haukar - Fram................20.00
Valur - HK ..................20.00
Afturelding - FH.............20.00
ÍBV - Fylkir ................20.00
Víkingur - KA................20.30
Teitur Orlygsson með sigurlaunin eftir sigurinn gegn Keflavík.
DV-mynd E.OI.
Bland í poka
Karl-Heinz Riedle, þýski knatt-
spyrnumaðurinn, var í gær seldur frá
Liverpool til B-deildarliðs Fulham
fyrir 30 milijónir króna. Búist er við
að Phil Babb, Danny Murphy, Stig
Inge Björnebye og Brad Friedel fari
sömu leið á næstunni.
Heimir Hallgrimsson hefur verið
endurráðinn þjáifari kvennaliðs ÍBV í
knattspyrnu.
KR-ingamir Jónatan Bow og Ólafur
J. Ormsson verða ekki með
vesturbæjarliðinu í upphafi leiktíðar
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
vegna mistaka í félagaskiptum. Bow
missir af einum leik en Ólafur af
fyrstu sex leikjunum. -VS/JKS/GH
Brýtur United
blað í kvöld?
- gegn Marseille
Manchester United og Arsenal
verða í sviðsljósinu í kvöld er lið-
in mæta erfiðum andstæðingum í
meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu.
United leikur á heimavelli sín-
um gegn franska liðinu Marseille.
Liðin hafa aldrei mæst áður i Evr-
ópukeppni og reyndar hefur
United aldrei tekist að sigra
franskt lið
Evrópukeppn-
inni á Old Traf-
ford.
Arsenal á erf-
iðan leik fyrir
höndum á
heimavelli
spænsku meistaranna í Barcelona.
-SK
Roy Keane og
Ryan Giggs leika
ekki meö Man.
Utd í kvöld.
Sigurbjörn æfir meö Trelleborg
Sigurbjörn Hreiðarsson knattspymumaður hjá Val, fer um næstu helgi til
sænska A-deildarliðsins Trelleborg en félagið hefur boðið honum að koma út til
æfinga í vikutíma. Forráðamenn Trelleborg komu tvívegis til landsins í sumar og
sáu Sigurbjörn í leik með Valsmönnum og í kjölfarið óskuöu þeir eftir því að hann
kæmi til Svíþjóðar eftir íslandsmótið.
Sigurbjörn hefur verið einn albesti leikmaðúr Hlíðarendaliðsins undanfarin ár.
Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Valsmenn sem féllu sem kunnugt er í
1. deildina. Þá hefur DV sptumir af því að nokkur íslensk úrvalsdeildarlið hafa sett
sig í samband við Sigurbjöm. -GH
^Í UEFA-BIKARINN
1. umferð, seinni leikir:
Montpellier - Rauða stjarnan 2-2
Montpellier áfram, 3-2 samanlagt.
LASK Linz - Steaua Búkarest 2-3
Steaua áfram, 5-2 samanlagt.
Debreceni - Wolfsburg.......2-1
Wolfsburg áfram, 3-2 samanlagt.
Gísli á 410 þúsund
Félagaskiptanefnd HSÍ hefur gefið 'út „verðmiða" á fjóra
handknattleiksmenn sem hyggjast skipta um félag.
HK þarf að greiða KA 470 þúsund krónur fýrir Sverri Bjömsson,
Stjarnan þarf að greiða Selfossi 350 þúsund fyrir Björgvin Þ.
Rúnarsson, ÍBV þarf að greiða Selfossi 410 þúsund fyrir Gisla
Guðmundsson markvörð og Víkingur þarf að greiða KA 400 þúsund
fyrir Leo Örn Þorleifsson. _SK
Körfuknattleikur:
Njarðvíkingum
spáð titlinum
Njarðvíkingar verja titilinn í
körfuboltanum ef marka má spá
forsvarsmanna liðanna í deild-
inni. 348 stig voru í atkvæða-
greiðslunni og fengu Njarðvík-
ingar 340 þeirra en hin Suður-
nesjaliðin, Keflavík og Grinda-
vík, koma í næstu sætum.
Spáin lítur annars þannig út:
1. Njarðvík.............340
2. Keflavík.............313
3. Grindavík............278
4. Haukar...............244
5. Tindastóll...........214
6. KR ..................208
7. KFl .................194
8. Þór..................131
9. Skailagrimur ........109
10. Hamar ..............105
11. Snæfell..............76
12. ÍA .................44.
Sú breyting verður í vetur að
2 lið falla beint í 1. deild og tvö
efstu þaðan flytjast upp í EP-
SON-deildina. -JKS