Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1999, Síða 32
* V I K I N G A Ltrn ^vinna Sz .:4 *áS& ■■ V;^ , , ,, > ., ■ .., _ jjrnr.ki i&idsMJ jB FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 Bátsbruni und- an Hafnarbergi Eldur kom upp um þrjúleytið í gær í Hafbjörgu ÁR 15 um 1,5 sjó- mílur undan Hafnarbergi sunnan við Hafnir. Aðeins einn skipverji ^ var á Hafbjörgu og var honum bjargað um borð í nærstaddan bát og dró þriðji báturinn síðan Haf- björgu til hafnar í Sandgerði. Tókst skipverjum þess báts, Baldurs frá Grindavík, að slökka eldinn í bátn- um en mikill hiti var enn í honum við komuna til hafnar og gaus upp eldur í bátnum nokkrum sinum í gærkvöld og í nótt. Þá flæddi sjór inn um opnar botnlokur og aðstoð- aði slökkvilið við lagfæringar vegna þess. Aö sögn Jóhannesar Jenssonar hjá rannsóknardeild lögrelgunnar í Keflavík hefst rannsókn málsins í dag og er enn ekkert hægt að segja um eldsupptök. Hafbjörg, sem mun vera 19 tonna %» bátur, var á leið frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur þegar eldurinn braust Út. -GAR Þungurtónn í Hrísey DV, Akureyri: Á annað hundrað manns sóttu borgarafund í Hrísey í gærkvöld með ^ forsvarsmönnum Kaupfélags Eyfirð- inga vegna ákvörðunar KEA um að loka pökkunarverksmiðju Snæfells í eyjunni. „Það er þungur tónn í fólki en fund- urinn var málefnalegur og málin voru rædd nokkuð ítarlega. Á fundinum kom fram eindreginn vilji KEA- manna að skoða það með okkur hvernig nýta megi það húsnæði sem pökkunarstöðin hefur verið í, og ég er mjög bjartsýnn á að það finnist ein- hver lausn á þessu máli,“ sagði Smári Thorarensen sem á sæti í sveitar- stjórn Hríseyjar. Nokkrir tugir fólks munu missa at- vinnu sína þegar pökkunarstöðinni verður lokað. -gk » Sprengjumálið upplýst DV Höfn „Við vitum hverjir það voru sem sprengdu símaklefann við pósthúsið á föstudagskvöldið og erum að ganga frá málinu," sagði Sígurður Guðna- son, varðstjóri hjá lögreglunni á Höfn, í gær. „Þeir sem stóðu að sprenging- unni eru tveir unglingsstrákar á Höfn, en hugsanlega geta fleiri tengst þessu og það erum við að skoða. Sig- urður segir að haustið hafi verið ró- legt og friðsælt hjá lögreglunni að þessu atviki undanteknu og útivistar- reglur barna séu nokkuð vel haldnar. -Júlía Imsland Mikael Þór Halldórsson lögreglumaður vaktaði Hafbjörgu f Sandgerðishöfn í gærkvöid. Ríkissjónvarpið sýndi golf í 22 tíma um helgina: Ahorfendur gengu alveg af göflunum - yfirmaður íþróttadeildar erlendis að kaupa meira Símalínur Ríkisútvarpsins voru rauðglóandi alla helgina og starfs- menn þar urðu vitni að einhverjum hörðustu viðbrögðum áhorfenda við sjónvarpsefni á síðari tímum þegar ríkisjónvarpið sýndi frá Ryder-golf- mótinu í 22 klukkustundir um helg- ina. Útsendingin hófst fyrir hádegi á. fóstudaginn og stóð fram til klukkan 22 um kvöldið. Á laugardaginn voru kylfingarnir komnir á skjáinn skömmu eftir hádegi og voru þar meira og minna til að ganga ellefu um kvöldið. Á sunnudagskvöldið lauk golfmótinu svo um klukkan 21. „Mótmælin voru griðarleg og sjald- an höfum við þurft að sitja undir við- lika svívirðingum sjónvarpsáhorf- enda,“ sagði Heið- ur Ósk Helgadótt- •ir, ritari Bjarna Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra ríkissjón- varpsins, sem tók ákvörðum um golfsýninguna Ingólfur Hannes- “ , ^manni son íþrottadeildar sjónvarpsins, Ingóifi Hannessyni. „Ég myndi hugsa mig um tvisvar áður en ég endurtæki þetta,“ sagði Bjami Guðmundsson, * framkvæmda- stjóri sjónvarpsins, um ákvörðunina um að sýna golf heila helgi. „Við skul- um þó ekki gleyma því að margir voru ánægðir enda eru um átta þús- und manns í golfklúbbum landsins." Golfsýningar sjónvarpsins voru teknar fyrir á fundi útvarpsráðs í gær og að sögn Gunnlaugs Sævars Gunn- laugssonar, formanns ráðsins, héldu menn þar stillingu sinni og fóru ekki á taugum þrátt fyrir skiptar skoðanir. Taldi formaðurinn fullvist að golfmál- ið ætti ekki eftir að draga dilk á eftir sér. Ekki reyndist unnt að ná sam- bandi við Ingólf Hannesson, yfirmann íþróttadeildar sjónvarpsins, því hann er staddur erlendis við innkaup á enn meira íþróttaefni sem sýnt verður í ríkissjónvarpinu á næstunni. -EIR Ingólfur Hannes- son. Veðrið á morgun: Rigning fyrir norðan og austan Á morgun verður austan- og norðaustanátt á landinu, 13-18 m/s norðvestan til en hægari ann- ars staðar. Rigning norðan- og austanlands en skúrir suðvestan- lands. Hiti 3 til 10 stig. Veðrið í dag er á bls. 29. Von Trier í vanda: Björk hótar að hætta Fréttir af samstarfsörðugleikum Bjarkar Guðmundsdóttur og danska leikstjórans Lars von Trier voru áberandi á nor- rænu fréttamiðl- unum VG og Ex- pressen. Björk leikiu sem kunn- ugt er aðalhlut- verkið í nýjustu mynd von Triers, Dancer in the Dark, og hafa tökur staðið yfir að und- anfórnu og er ekki lokið. Samkomulag Bjarkar og von Triers þykir ekki upp á það besta og segir Expressen frá því að Björk hafi í þrí- gang rokið á dyr á miðjum degi í sið- ustu viku eftir harkalegar deilur við leikstjórann. Að sögn heimildar- manns Expressen eru deilumar ekki persónulegs eðlis heldur er um djúp- an listrænan ágreining að ræða. Lars von Trier hefur áður kvartað yfir Björk við norska blaðið Verdens Gang þar sem hann lét m.a. hafa eftir sér aö hún væri engin leikkona og það væri afar erfitt að vinna með henni. -aþ MERKILEGA MERKIVELIN bfother pt fslenskir stafir 5 leturstærðir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentborðar Prentar (tvær llnur Verð kr. 6.603 Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.