Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
5
DV
Fréttir
Sjúkraskrár sem enginn á:
Voru opinberaðar í
trássi við reglur
- segir Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags íslands
BIFREIÐASTILLINGAR
GÓLFBÚNAÐUR
SÍÐUMÚLI 14 • 108 REYKJAVÍK • SlMAR 510 5500 • 510 5510
OPIÐ: VIRKA DAGA KL. 8-18, LAUGARDAGA KL. 10-13
ítrekuð atvik þar sem upp-
lýsingar úr sjúkraskrám hafa
komist í hendur annarra en
lækna og viðkomandi sjúk-
linga, hafa vakið mikla athygli,
nú síðast er fréttamaður Stöðv-
ar tvö fletti sjúkraskrám
óhindrað fyrir áhorfendur
stöðvarinnar.
Formaður Læknafélags Is-
lands, Sigurbjörn Sveinsson,
segir að ef einhver óviðkom-
andi komist í sjúkraskýrslur,
Sigurbjörn Svelns-
son, formaður
Læknafélags ís-
lands.
þá sé það í trássi við þær reglur sem í
gildi eru. „Um það er enginn ágrein-
ingur. Hins vegar ber að líta til þess
við hvaða aðstæður þetta gerist. Það
mætti segja um aðfór Stöðvar tvö, að
þar hafi brotavilji verið íyrir hendi.
Fréttin var ekki bara heimild um að
sjúkraskrámar væru þarna til staðar,
heldur voru þær teknar upp og flett af
fréttamanni. Lögfræðingar gætu því
kallað þetta ásetning og það voru ekki
almannahagsmunir að sjúkraskránum
væri flett fyrir framan myndavélina."
Sigurbjörn segir að þar sem þetta sé
í ólagi, þá skoðist það bæði á ábyrgð
heilbrigðisyfirvalda og lækna. Hann
segir skýringar geta verið þær að
ónógar fjárveitingar hafi fengist til að
hafa þetta í góðu lagi.
„Það er aftur á ábyrgð yfirvalda sem
harðast gagnrýna lækna vegna örygg-
isþáttarins."
í raun hefur aldrei verið kveðið upp
Bréf Gunnvarar:
Erlendir starfs-
menn fá ekki
að kaupa
- en aðrir hafa forkaupsrétt
Lokuðu útboði á hlutabréfum í
Gunnvöru hf., sem eru í eigu íslands-
banka, lýkur í dag, þar sem 368 ís-
lenskir starfsmenn fyrirtækjasam-
steypu Hraðfrystihússins hf. höfðu rétt
til að kaupa fyrir að hámarki 50 þús-
und krónur að nafnvirði. Erlendir
starfsmenn fyrirtækisins fá hins vegar
ekki að kaupa.
íslandsbanki keypti í sumar hluta-
bréf í Gunnvöru til að liðka fyrir sam-
runa fyrirtækisins við Hraðfrystihúsið
hf. í Hnifsdal, sem gengið var frá í sept-
ember. Bankinn seldi síðan aftur um
10% hlut í fyrirtækinu til Þormóðs
ramma. Nú er 368 starfsmönnum
Gunnvarar, íshúsfélags Isfirðinga og
Hraðfrystihússins hf. boðið að kaupa í
lokuðu útboði að hámarki fyrir 50 þús-
und krónur að nafnvirði hver, á geng-
inu 5,75. Ef allir nýttu sér það er verið
að tala um 18,4 milljónir að nafnvirði.
Síðasta skráða sölugengi hlutabréfa í
Gunnvöru hf. var 6,60, en gengið hefur
hækkað talsvert eftir sölu hlutabréfa
til Þormóðs ramma.
Hluti starfsmanna fyrirtækjanna
hafa verið útlendingar með atvinnu-
leyfi hér á landi. Þegar gengið var frá
útboðsgögnum var hins vegar búið að
hreinsa þá alla út af listanum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá viðskiptastofú
íslandsbanka, þá er með því verið að
framfylgja lögum sem segja að útlend-
ingar megi ekki eiga hlut í íslenskum
sjávarútvegsfyrirtækjum. Verulegur
hluti starfsfólks í vestfirskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum hefur hins vegar
undanfarin ár verið útlendingar. Því
má með sanni segja að umtalsverður
fjöldi íbúa Vestflarða sé samkvæmt
lögum útilokaður frá eignaþátttöku í
atvinnustarfsemi á svæðinu. -HKr.
úr með það hver eigi sjúkra-
skrámar. Flestir telja sjúk-
linginn hafa þar stærstan
rétt, þó hann megi samt
ekki Játa eyðileggja sjúkra-
skrá sína. Löggjafmn segir
einungis að það eigi að varð-
veita sjúkraskrár á heil-
brigðisstofnun, án þess þó
að tekið sé nánar á eignar-
haldinu. Formlega er því
enginn eigandi að þessum
skrám. Sjúkraskrár verða
samt áfram til þó löggjafinn hafl
ákveðið að færa heilbrigðisupplýsing-
ar inn í einn stað í gagnagrunn.
„Það á alls ekki að reyna að draga
Qöður yflr þessa hluti og heilbrigðisyf-
irvöld eiga að vera þakklát fyrir allar
ábendingar sem leiða til aukins örygg-
is í meðferð sjúkraskráa. Það er frá-
leitt að uppákomur sem þessar séu
regla, en ég læt mig þó ekki dreyma
um að eitthvað geti ekki misfarist,"
segir Sigurbjöm Sveinsson. -HKr.
Hrannar B. Arnarsson, borgarfulltrúi R-listans, skundaði glaðbeittur inn um
aðaldyr Ráðhúss Reykjavíkur í fyrradag enda útlit fyrir að hann taki sæti í
borgarstjórn á ný á næstunni. Hrannar vék sæti strax eftir kosningarnar í
fyrra vegna rannsóknar sem fram fór á fjárreiðum hans og meintum
skattsvikum. Nú þykir Ijóst að hann verði ekki lögsóttur og þess beðið að yf-
irskattanefnd sendi erindi um að málinu sé lokið. DV-mynd Hilmar Þór
K Vi' * ' ' - '
HEIMILIS-
GÓLFDÚKAR
Gott verð, frá kr. 920- m2
Dúkar sem auðvelt er að leggja, má leggja
án límingar. Mikið úrval mynstra og lita í
breiddunum 2-3-4m.
rEPPAMO I
Glæsilegt úrval
ITIADAKI