Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
BÍGGER1
USÉSsSSt.....................................................................................................................................................................................................................................................................................WBÍSl.........................................................................................................................................'lllliSÍÍlk.....................................................................................................................................................I
,W'' : f ' ■
Wmm k
S
4 « ’jp I
HES DOING IT TO SAVE THE WORLD.
« -1* _
Fylgstu mect á X-inu 97.7
■V4M8SWI
Suzuki Baleno GLX 4x4, skr.
6/96, ek. 78 þús. km, bsk., 4 d.
Verð 990 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr.
4/97, ek. 63 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.220 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr.
10/96, ek. 113 þús. km, bsk.,
5 d.Verð 980 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 9/97,
ek. 34 þús. km, bsk., 4 d.
Verð 1.040 þús.
Susuki Vitara 2,0 dísil, skr. 6/97,
ek. 56 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.800 þús.
Susuki Vitara JLX ,skr. 11/98,
ek. 24 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 1.850 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 1/96,
ek. 77 þús. km, bsk., 3 d.
Verð 720 þús.
Suzuki Swift GLS.skr. 4/96, ek.
56 þús. km, bsk., 3 d.
Verð 680 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 5/99, ek.
18 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.690 þús.
Suzuki Sidekick JX, skr. 9/97,
ek. 117 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 760 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 9/95,
ek. 72 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.230 þús.
Suzuki Baleno Gl, skr. 2/97,
ek. 58 þús. km, bsk., 3 d.
Verð 790 þús.
Suzuki Jimmy, skr. 3/99,
ek. 22 þús. km, bsk., 3 d.
Verð 1.250 þús.
Suzuki Swift GLX„ skr. 6/97,
ek. 56 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 760 þús.
Suzuki Swift GLX ,skr. 6/98,
ek. 22 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 870 þús.
Suzuki Swift GX ,skr. 2/97,
ek. 55 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 680 þús.
Suzuki Swift GX, skr. 1/96,
ek. 81 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 570 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 4/99,
ek. 17 þús. km, bsk., 5 d.
Verð 1.690 þús.
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
X-iá 97.7 og Sambíóin kynna:
FORSYNING
Á MORGUN
Viðskipti_______________________________________________________pv
Þetta helst: Úrvalsvísitalan lækkar áfram, um 0,61% í gær... Mest
viðskipti með bréf íslandsbanka ... FBA lækkaði um 1,5% ... Eimskip lækkaði
um 1,6% Viðskipti á VÞÍ alls 344 m.kr., þar af 241 með hlutabréf...
Hlutabréf í óskráðum fé-
lögum vænlegur kostur
DeCode Genetics besti kosturinn á „gráa markaönum" samkvæmt könnun Viðskiptablaðsins
Hlutabréf sem hvergi eru skráð á skipulegum markaði geta verið spennandi
en jafnframt áhættusamur fjárfestingarkostur
Hlutabréf í óskráðum íslenskum
hugbúnaðar- og tæknifyrirtækjum
eru almennt nokkuð vænlegur fjár-
festingarkostur. Hlutabréf í DeCode
Genetics eru þó sýnu besti kostur-
inn, að mati sérfræðinga í „Gráa
markaðnum" svokallaða.
í Viðskiptablaðinu, sem út kom í
morgun, eru birtar niðurstöður
könnunar sem blaðið stóð fyrir með-
al 12 sérfræðinga hjá ólíkum verð-
bréfafyrirtækjum á níu óskráðum
fyrirtækjum sem fjárfestingarkosti.
Þau fyrirtæki sem um ræðir eru eft-
irfarandi: DeCode Genetics Inc., Net-
verk Ltd., Flaga hf., OZ.com, Vind-
orka ehf., Kögun hf., Taugagreining
hf., Landsteinar Intemational hf. og
Hugvit hf.
Allir miðlarar nema einn töldu
hlutabréf í DeCode Genetics vera
góðan fjárfestingarkost auk þess sem
sterklega var mælt með kaupum á
hlutabréfum í bæði Kögun hf. og
Hugviti hf.
fjórði besti kosturinn samkvæmt
samanlagðri niðurstöðu þeirra er
Vindorka, þar á eftir Landsteinar, þá
Taugagreining, Flaga venndi sjö-
unda sætið, Netverk hið áttunda og
OZ.com hið níunda og síðasta.
Slök frammistaða OZ.com í könn-
uninni vekur sérstaka athygli en
þrátt fyrir að bréf OZ.com hafi lækk-
að verulega að undanfomu telja flest-
ir sérfræðinganna óráðlegt að festa
kaup á þeim.
Athygh vekur að i sjö af fyrirtækj-
unum níu vora fleiri sérfræðingar
sem mæltu með kaupum á bréfum
þeirra en þeir sem réðu frá því.
Grefur undan
gengi krónunnar
Gengi krónunnar náði sögulegu
lágmarki á mánudag. Svo virðist
sem markaðurinn taki í auknum
mæli mark á slæmum fréttum frek-
ar en góðum og slæmar fréttir gætu
leitt til áframhaldandi veikingar
krónunnar.
„Verðbólga er farin úr böndum og
mælist nú allt að þrisvar sinnum
meiri en í okkar helstu viðskipta-
löndum - undan þessari staðreynd
verður ekki vikist. Frekari aukning
verðbólgu mun grafa enn frekar
undan trausti innlendra og erlendra
aðila á efnahag landsins og þar með
gengi krónunnar," sagði í markaðs-
yfirliti Viðskiptastofu Landsbank-
ans í gær.
Bent er á að gengi krónunnar hef-
ur styrkst talsvert á árinu en það
hefur ekki dugað til að halda aftur
af verðbólgunni. Landsbankinn seg-
ir að gefi gengi krónunnar eftir
muni það valda aukinni verðbólgu
frá þvi sem nú er.
Gengi íslensku krónunnar náði
sögulegu lágmarki í gær en við-
skiptavegin gengisvog krónunnar
fór í gær undir lllog lægst í 110,88.
„Núverandi gengisfyrirkomulag
gerir ráð fyrir að gengisvísitalan
geti sveiflast innan +/- 6% vik-
marka, sem þýðir að neðri mörk
vísitölunnar eru við 108,11. Þessi
vikmörk eru í sjálfu sér ekki bind-
andi af hálfu Seðlabankans og ekk-
ert því til fyrirstöðu að krónan
styrkist enn frekar og rjúfi þessi
neðri mörk,“ segir Viðskiptastofa
Landsbankans.
Að sögn hennar era það hinir háu
vextir hér á landi sem stutt hafa við
gengi krónunnar en vegna þess
mikla munar sem er á innlendum
og erlendum vöxtum hefur gjaldeyr-
issinnstreymi til landsins verið
mikið.
Þá veltir Landsbankinn upp
þeirri spumingu hvað það sé sem
gæti valdið veikingu. „Það er líklegt
að markaðsaðilar taki í auknum
mæli mark á slæmum fréttum frek-
ar en góðum. Aukinn viðskiptahalli,
aukin verðbólga, minna atvinnu-
leysi og órói á vinnumarkaði telst
til slæmra frétta.“
DeCODE hefur hækkað um
58% á fjórum mánuðum
- eftirspurn hefur aukist, segir FBA
Hlutabréf í DeCODE Genetics,
móðurfélagi íslenskrar erfðagreining-
ar, hafa hækkað um 58% frá
því í júli síðastliðnum, þegar
17% hlutur stofnflárfesta var
keyptur af innlendum aðil-
um. Gengi hlutabréfanna er
nú um 27 dollarar á hlut og
hefur verið að hækka nú síð-
ustu daga.
í Morgunkorni FBA í gær
kom fram að umræða um
seinkun á leyfisveitingu
gagnagranns á heilbrigðis-
Kári Stefánsson
forstjóri.
sviði og seinkun á skráningu fyrir-
tækisins á hlutabréfamarkað er-
lendis hafi orðið til þess að hluta-
bréf fyrirtækisins lækkuðu nokkuð
fyrir um tveimur vikum.
„Hins vegar hafa fréttir
um að von sé á tilkynning-
um frá fyrirtækinu um já-
kvæðan árangur af rann-
sóknarstarfsemi þess aukið
eftirspurn eftir hlutabréf-
unum,“ segir FBA.
Þá er bent á að svo virð-
ist sem einhverjir fjárfestar
túlki hið óheppilega atvik
varðandi vörslu sjúkra-
skráa á Heilsuverndarstöð-
inni í Reykjavík á þann veg að það
eigi eftir að flýta leyfisveitingunni.
Ágæt aflabrögð í september
Fiskaflinn í september var 65.236
tonn. Er það örlítið meiri afli en í
september í fyrra. Fiskaflinn það
sem af er árinu er ívið meiri en á
sama tíma árið 1998, eða 1.234.703
tonn á móti 1.178.779 tonnum.
Fiskaflinn í septembermánuði
1998 var til samanburðar 64.828 tonn
að því er fram kemur i frétt frá Hag-
stofu íslands. Síldarafli dróst veru-
lega saman frá septembermánuði
1998 en þá nam hann 9.238 tonnum,
en var 3.195 tonn siðastliðinn sept-
embermánuð. Eins hefur skel- og
krabbaafli dregist nokkuð saman frá
fyrra ári, var 6.670 tonn í september
1998 en 4.226 tonn síðastliðinn sept-
embermánuð. Hins vegar jókst
kolmunnaveiði talsvert frá septem-
ber 1998, fór úr 14.348 tonnum í
23.583 tonn. Landaður afli í septem-
ber er því svipaður milli áranna 1998
og 1999.
Fiskaflinn fyrstu níu mánuði árs-
ins er ívið meiri en á sama tímabili
í fyrra, eða 1.234.703 tonn nú á móti
1.178.779 tonnum fyrstu níu mánuði
síðasta árs.
KN sér um skuldabréfaútboð
Þórshafnarhrepps
Kaupþing Norðurlands hf. (KN) og
Þórshafnarhreppur hafa gert með
sér samning um að Kaupþing Norð-
urlands annist 100 milljóna króna
skuldabréfaútboð fyrir sveitarfélag-
ið.
Þórshafnarhreppur óskaði eftir til-
boðum frá Qármálastofnunum og
reyndist tilboð Kaupþings Norður-
lands hagstæðast þeirra tilboða sem
bárast. Samkvæmt samningnum sér
Kaupþing Norðurlands um að sölu-
tryggja 20 ára skuldabréf fyrir sveit-
arfélagið með afborgunum tvisvar á
ári. Tilgangur útboðsins er að lækka
skammtímaskuldir sveitarfélagsins.
Skuldabréfm verða skráð á Verð-
bréfaþingi íslands.
Verðbólga í Bandaríkjunum í
samræmi við væntingar
Neysluverðsvísitala í Bandaríkj-
unum hækkaði um 0,4% í september,
en bandaríska hagstofan birti nýj-
ustu verðbólgutölur í gær. I ágúst
hækkaði vísitalan um 0,3%. Hækk-
unin í september er í takt við vænt-
ingar markaðsaðila og enn ríkir
veruleg óvissa um hvort vaxtahækk-
unar sé að vænta í Bandaríkjunum í
næsta mánuði.