Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Síða 24
44
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 I>V
onn
Ummæli
Þór Og
trúnaðarstörfin
„Eins og réttilega kemur
fram í fyrmefndri DV „frétt“
gegnir Árni mörg-
um trúnaðarstörf-
um fyrir Reykja-
víkurlistann og
gerir það með
mikilli prýði.“
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borg-
arstjóri, um Árna Þór
Sigurðsson borgarfulltrúa, í
DV.
... og samviskan
„Hann hefur tekið að sér
ýmis trúnaðarstörf sem Al-
þýðubandalaginu voru ætluð.
Hann verður að gera það upp
við samvisku sina hvort það
sé rétt að yfirgefa Alþýðu-
bandalagið og halda trúnaðar-
störfunum."
Helgi Hjörvar, forseti borg-
arstjórnar, um sama mann,
ÍDV.
Minkurinn í
hænsnakofanum
„Forsætisráðherrann
komst svo fallega að orði að ef
Samfylkingin
kæmist að stjórn
landsins yrði hún
eins og minkur-
inn í hænsnakof-
anum og allt
færi á heljar-
þröm. Alvarleg-
ar blikur voru þá á
lofti og verðbólgan nú er vitn-
isburður um óheiðarleg
vinnubrögð forsætisráðherr-
ans sem nú reynist minkur-
inn í hænsnakofanum."
Rannveig Guðmundsdóttir
alþingismaður, i Morgun-
blaðinu.
Hvorki virðulegur
né virtur
„Það spurðist að norrænir
blaðamenn hefðu undrast
hvers vegna ís-
lenskir kollegar
þeirra brugðust
ekki við þessari <
mögnuðu ræðu
svo virðulegs
prófessors með
miklum áhuga.
Vonandi hafa þeir fengið
rétta skýringu. Hannes Hólm-
steinn Gissurarson er hvorki
virðulegur né virtur."
Karl Th. Birgisson, um um-
mæli Hannesar á ráðstefnu
norrænna blaðamanna, I
Austra.
Pétur Ingvarsson, körfuknattleiksmaður og þjálfari:
Það er að koma lítil saga á óskrifaða blaðið
Maður dagsins
„Gengi okkar í Hamri í efstu
deild er frábært. Við erum nýliðar í
deildinni og félagið hefur aldrei
áður átt lið í ____________________
fremstu röð og
fjórir sigrar í
röð í byrjun
íslandsmótsins er örugglega eitt-
hvað sem enginn bjóst við. Við vor-
um óskrifað blað en nú má segja að
það sé að komast lítil saga á þetta
blað,“ segir Pétur Ingvarsson, leik-
maður og þjálfari Hamars í Hvera-
gerði, en þetta unga lið sem aðeins
lék tvo vetur í 1. deildinni áður en
það vann sér rétt til að leika í Úr-
valsdeildinni er sannkallað
spútniklið vetrarins enn sem komið
er og hefur komið öllum spekingum
í opna skjöldu með frammistöðu
sinni og eru enn ósigraðir.
i fyrra vann Hamar nokkuð
óvænt 1. deildina: „Við vorum að-
eins í fjórða sæti þegar deildar-
keppninni lauk. Við byrjuðum á því
að slá út efsta liðið í deildinni og má
kannski segja að með þeim sigri
hafi ævintýrið byrjað. Síðan hefur
þetta verið nánast ein sigurganga og
mikið um óvæntar uppákomur."
Pétur sem hafði spilað alla sina
tíð með Haukum tók við Hamri
í byrjun síðasta leiktímabils:
„Þetta hefur verið frábær
tími og ég hef aldrei kynnst
svona góðri stemningu
áður og nú ríkir í Hvera-
gerði í kringum liðið. Má
segja að það sama sé að
gerast í Hveragerði og
hefur verið að gerast á
Suðumesjum, Sauðár-
króki og ísafirði þar
sem bæjarfélögin
nánast sameinast
um liðin sin. I Hveragerði hefur
ekki verið mikil íþróttahefð en með
þessum uppgangi í körfuboltanum
------------- er það fleira en
Eden sem Hvera-
gerði býður upp á.“
Pétur byrjaði í
Haukum ellefu ára gamall og hefur
leikið körfubolta síðan: „Þetta er oft
búið að vera erfitt en um leið
skemmtilegt.
Ég stund-
aði nám
i Iþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni og keyrði í Hafnar-
fjörðinn á leiki og æfingar, tvö
hundrað kílómetra í hvert skipti, og
ég bý enn í Hafnarfirðinum en hef
stytt keyrsluna um helming."
Liðið sem Pétur er með er skipað
ungum leikmönnum: „Þetta eru
strákar sem rétt eru komnir á fæt-
uma. Við erum með einn útlending,
Rodney Dean, sem er örugglega
ekki með dýrustu erlendu leik-
mönnum deildarinnar en hefur
staðið undir því sem við bjuggumst
við og gerir það vel sem farið er
fram á við hann og fellur vel inn í
liðið. Annars eru þetta strákar af
Suðurlandi m.a. strákar úr íþrótta-
kennaraskólanum."
Pétur er íþróttakennari við Set-
bergsskóla í Hafnarfirði. „íþrótta-
kennslan er mitt aðalstarf og þeg-
ar körfuboltinn tekur öll kvöld
frá mér þá er ekki mikill
tími til annars." Pétur
er í sambýli með
Berglindi Pálsdótt-
ur.
-HK
:t
vMeð söng
í hjarta
Annað kvöld heldur
Söngfélag félags eldri borg-
ara í Reykjavík tónleika í
Salnum í Kópavogi. Tón-
leikamir hafa hlotið heitið
Með söng í hjarta og hefjast
þeir kl. 20. Á efnisskrá tón-
leikanna eru mörg þekkt
^ Samkomur
innlend sem erlend lög.
Söngfélag FEB í Reykja-
vík var stofnað 1986 og hef-
ur staðið fyrir ýmsum upp-
ákomum og nýjungum hér
á landi. Má þar nefna kóra-
mót eldra fólks og Góðan
dag Reykjavík, viku eldri
borgara. Einnig hefur Söng-
félagið farið í söngferðir er-
lendis, bæði á íslendinga-
slóðir í Kanada og til Fær-
eyja.
íslendingafé-
lög erlendis
Jón Ásgeirsson, fyrrum
fréttamaður, ritstjóri Lög-
bergs-Heimskringlu og for-
maður Þjóðræknisfélags ís-
lendinga, mun á vegum
Vináttufélags íslands og
Kanada greina frá starfsemi
íslendingafélaga í Ameríku
sem og í Evrópu á fundi kl.
20 í kvöld í Lögbergi, Há-
skóla Islands. Allir vel-
komnir.
Myndgátan
Pípuhattur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
FH og Valur verða í eldlínunni í
kvöld.
HK og Fylkir í
handboltanum
Það verða nokkrir leikir í hand-
boltanum í kvöld. Einn leikur er í
1. deild karla. HK, sem vann sinn
fyrsta leik um síðustu helgi tekur
á móti Fylki á heimavelli sínum I
Kópavoginum og verður það sjálf-
sagt spennandi leikur. Leikurinn
hefst kl. 20.
Kvenfólkið í handboltanum
verður einnig í sviðsljósinu í
kvöld en á dagskrá eru fimm leik-
ir. Keppnin i deildinni er spenn-
íþróttir
andi og eru þrjú lið jöfn og efst,
Grótta KR, Haukar og Víkingur.
Þar sem ellefu lið eru í deildinni
mun eitt lið sitja yfir i kvöld og
það verður hlutverk Víkings.
Annars eru eftirfarandi leikir. I
Austurbergi leika ÍR-Fram, í KA-
heimilinu á Akureyri leika
KA-Stjarnan, í Valsheimilinu Val-
ur-Grótta KR, að Varmá í Mos-
fellsbæ leika Afturelding-Haukar
og i Vestmannaeyjum ÍBV-FH. Sá
leikur sem fyrirfram má búast við
að verði mest spennandi er Val-
ur-Grótta KR, en aðeins eitt stig
skilur að liðin.
Bridge
íslandsmót í einmenningi fór
fram um síðustu helgi og þátttaka
var með ágætum. 80 spilarar mættu
þar til leiks sem er fjölgun um 15
manns frá síðasta ári. Öruggúr sig-
urvegari í ár var Sigurbjörn Har-
aldsson og voru yfirburðir hans
með eindæmum. Meiri barátta var
um annað sætið, en þar varð Stefán
Garðarsson hlutskarpastur. Hér er
eitt spil úr mótinu. Heiðar Sigur-
jónsson af Suðurnesjum sat í sæti
norðurs og var doblaður í fjögurra
hjarta samningi. Sagnir gengu
þannig, suður gjafari og allir á
hættu:
4 Á83
«4 ÁK94
♦ K4
♦ DG82
4 KG9
«» DG62
4 1085
4 K75
4 D542
V 8753
♦ G6
4 Á104
4 1076
«4 10
♦ ÁD9732
4 963
Suður Vestur Norður Austur
pass 2 ♦ 2 grönd pass
3 4 pass 3*4 pass
4 44 p/h pass pass dobl
Tvö grönd sýndu 16-19 punkta
hendi, þrjú lauf var hálitaspurning
og suður lyfti i game þegar ljóst var
að samlega var í hjartalitnum. Aust-
ur gat ekki stillt sig um að græðgis-
dobla en óvíst er að sagnhafi hefði
unnið ódoblað spil. Vestur hóf vörn-
ina á því að spUa út tígulásnum og
meiri tígli. Sagnhafi spilaði strax
laufadrottningunni og drap kóng
austurs á ás. Síðan kom hjarta á ás-
inn, laufi spilað á tíuna og síðan
laufi á gosann. Austur gerði þau
mistök að henda tígli í fjórða laufið
og spaða var hent í blindum. Nú
kom lítið hjarta að heiman og aust-
ur átti slaginn á drottninguna.
Hann ákvað að spila sig út á spaða-
gosa, drottningin í blindum átti
slaginn og siðan kom spaði á ásinn.
Austur missti af tækifærinu þegar
hann setti níuna. Heiðar spilaði nú
spaða og austur varð að spila upp í
hjartagaffalinn.
ísak Öm Sigurðsson