Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Side 25
m>’'V" MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 45 Nan Goldin. Sjálfsmynd, tekin í Þýskalandi 1992. Sjálfsævisögu- leg dagbók í ljósmyndum Á sunnudaginn lýkur sýningu á ljósmyndum bandarísku lista- konunnunnar Nan Goldin. Þetta eru ljósmyndir sem hafa farið sig- urfór um heiminn á undanfórnum árum, og sýning þeirra hér á landi er stórviðburður í íslensku menn- ingarlífi. Ljósmyndir Nan Goldin eiga það allar sammerkt að vera sprottnar af hennar persónulegu reynslu. Þær mynda eins konar sjálfsævisögu- lega dagbók, sem spannar nær tvo áratugi. Flestar sýna myndirnar nána vini hennar og samstarfsfólk, auk þess sem hún hefur gert mik- inn fjölda sjálfsmynda. Myndirnar bera þess vitni að Nan Goldin hef- Sýningar ur gist undirheima stórborganna og margir úr vinahópi hennar hafa gengið í berhögg við viðteknar hug- myndir um kynhegðun og sjálfsí- mynd' kynjanna, auk þess sem margir hafa augljóslega glímt við sjúkdóma eins og eiturlyfjafíkn og eyðni. Auk ljósmyndanna er mynd- bandsútgáfa af kvikmyndinni I’ll Be Your Mirror sýnd daglega í fyr- irlestrasal Listasafnsins. Kvik- myndin, sem er samvinnuverkefni Nan Goldin og breska leikstjórans Edmund Coulthards, hefur hlotið tvenn alþjóðleg kvikmyndaverð- laun og verið sýnd á kvikmyndahá- tíðum og í listasöfnum víðsvegar um heiminn. Völin & kvölin & mölin er rómantískt baðstofudrama. Völin & kvölin & mölin Leikfélagið Hugleikur í Reykja- vík frumsýndi um síðustu helgi í Möguleikhúsinu við Hlemm nýtt leikverk sem nefnist Völin & kvölin & mölin og er næsta sýning annað kvöld. Síðustu tvö ár hefur Hugleik verið boðið að sýna á leiklistarhá- tíðum erlendis. í fyrra var farin leikfor til Noregs, í sumar fór hóp- urinn til Litháen og nú er hann ný- Leikhús kominn frá Þórshöfn í Færeyjum. Leikritið Völin & kvölin & mölin, haustverkefni félagsins, er baðstofu- drama í rómantískum raunsæisstíl. Það gerist á seinni hluta 19. aldar og fjallar um ungan mann sem yflrgef- ur foreldra og heitmey til að afla sér menntunar í Reykjavík. í höfuð- staðnum kynnist hann broddborg- urum samfélagsins, Danadindlum og hugumstórum sjálfstæðishetjum. En þar er einnig brennivín að bergja á og bragðvísar konur sem bergja á honum. Hið innra togast á þráin eftir unnustunni heima i sveitinni góðu og hinum tálfógru meyjum á mölinni. Höfundar leikritsins eru Hildur Þórðardóttir, Sigríður Lára Sigur- jónsdóttir og V. Kári Heiðdal. Leikstjóri er Þorgeir Tryggvason. Wunderbar: Spilagleðin í fyrirrúmi í kvöld munu þeir félagar Gunnar Ólason og Ingvar Valgeirsson stíga á stokk á Wunderbar við Lækjar- götu og þenja bæði raddbönd og gít- ára. Gunnar er að góðu kunnur sem söngvari og gítarleikari hinnar góð- kunnu gleðisveitar Skítamórals, meðan Ingvar hefúr starfað sem trú- bador, vel falinn á knæpum um land allt síðustu ár. Skemmtanir Þeir fóstbræður munu reyna eftir fremsta megni að iáta spilagleði og tilfmningu ráða ríkjum og skeyta engu þó það verði á kostnað smáat- riða eins og fagmennsku og samhæf- ingar. Hefjast leikar er klukkan nálgast ellefu. Gaukur á Stöng Gleðisveitin Poppers skemmtir á Gauknum í kvöld. í fyrirrúmi er létt og skemmtileg popptónlist sem eng- um ætti að leiðast yfir. Annað kvöld er svo nitjánda kvöldið sem Undir- tónar sjá um. Gunnar og Ingvar skemmta á Wunderbar f kvöld. Stelpur eru ofarlega í huga strák- anna í American Pie. American Pie American Pie sem sýnd er i Sam-bíóunum hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu. Um er að ræða gamanmynd og þykir húmorinn minna mjög á There’s V Is Something about Mary sem seg- ir okkur að hann er frekar grófur og villtur. American Pie fjallar um sem ungir svemar þurfa að fara í gegnum, að losna við sveindóm- inn. Okkar strákar í myndinni eru nánast miður sín. Hormón- arnir flæða um líkamann en ekk- ert gengm hjá þeim enda eru þeir með eindæmum klaufalegir í öll- um sínum tiiburðum og ekki bætir upp nánast engin reynsla af '///////// Kvikmyndir ''/0ÁÍÍ. léttskýjað norðan- og vestanlands. Hiti 7 til 12 stig yfir daginn, en 0-5 stig norðanlands að næturlagi. Höf- uðborgarsvæðið: Suðaustan 8-10, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 8 til 11 stig. Sólarlag í Reykjavlk: 17.53 Sólarupprás á morgun: 08.34 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.19 Árdegisflóð á morgun: 03.47 Veðrið í dag Lítilsháttar súld Suðaustan 10-15 með suðvestur- ströndinni en annars yfirleitt 5-8. Lítilsháttar súld með köflum með suðaustur- og suðurströndinni, en Veörið kl. 6 í morgun: Akureyri heiöskírt Bergstaöir léttskýjaö Bolungarvík heiöskírt Egilsstaóir Kirkjubœjarkl. alskýjaö Keflavíkurflv. skýjaö Raufarhöfn heiðskírt Reykjavík hálfskýjaö Stórhöfói skýjaö Bergen skýjaö Helsinki alskýjaó Kaupmhöfn léttskýjað Ósló alskýjaö Stokkhólmur súld Þórshöfn hálfskýjaó Þrándheimur léttskýjaö Algarve rigning Amsterdam léttskýjaö Barcelona skýjaö Berlín þokumóöa Chicago léttskýjaö Dublin skýjaö Halifax heiöskírt Frankfurt skýjaó Hamborg heiöskírt Jan Mayen súld London skýjaö Lúxemborg rigning Mallorca skýjaö Montreal skýjað Narssarssuaq léttskýjaö New York alskýjaó Orlando heiöskírt París þokumóöa Róm skýjaö Vín léttskýjað Washington alskýjaó Winnipeg léttskýjaó 0 3 6 8 7 9 2 9 8 5 1 5 3 3 8 -3 20 3 12 0 4 8 0 3 2 4 8 2 20 3 0 12 23 7 ■ 11 2 10 -2 hinu kyninu. Það sem þeir ná ekki að skilja er að stelp- unum er alveg jafnannt um að missa meydóminn. 1 stað þess að gripa gæsina eru þeir í töffaraleik sem ekki gengur upp. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: The Haunting Saga-bíó: Konungurinn og ég Bíóborgin: Eyes Wide Shut Háskólabíó: Baráttan um börnin Háskólabíó: Ungfrúin góða og Húsið Kringlubíó: American Pie Laugarásbíó: The Sixth Sense Regnboginn: Út úr kortinu Stjörnubíó: The Astronauts Wife Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 16 17 20 >1 Færð víðast hvar góð Þjóðvegir eru yfirleitt í góðu ásigkomulagi, þó má búast við hálku í morgunsárið. Víða eru vega- vinnuflokkar að störfum. Þar sem lokið hefur verið við að setja á nýtt slitlag myndast yfirleitt steinkast og eru þær leiðir sérstaklega merktar. Færð á há- lendisvegum hefur spillst að einhverju leyti og eru flestar leiðir aðeins færar fjallabilum og einstaka leiðir orðnar ófærar, þó eru leiðir opnar öllum bíl- Færð á vegum um, má þar nefna leiðina í Landmannalaugar, Djúpavatnsleið og Uxahryggi. Arnarvatnsheiði er ófær og einnig Loðmundarfjörður. Þungfært er á Axarfjarðarheiði og Hellisheiði-eystri. Ástand vega 4^ Skafrenningur m Steinkast 0 HSIka 0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir C^) öfært Œl Þungfært © Fært fjallabílum EyrúnElín Þessi hárprúða stúlka heitir Eyrún Elín og fæddist hún 15. ágúst síð- astliðinn kl. 16.55. Hún vó Barn dagsins 3585 grömm og var 51sentímetri við fæðingu. Foreldrar hennar eru Guðborg Eyjólfsdóttir og Guðmundur Kristmunds- son og er hún þeirra fyrsta bam. Lárétt: 1 flíkur, 8 tilkallið, 9 jarðar- ávöxtum, 10 ónefndur, 11 áköfu, 12 bleytu, 14 hraði, 16 eðja, 17 hræðsla, 20 röskur, 21 frostskemmd, Lóðrétt: 1 hugleysingi, 2 könnun, 3 konungur, 4 framleiðsluvörur, 5 beljaka, 6 utan, 7 trjónm, 13 hnífa, 15 aftur, 16 tré, 18 gelt, 19 hryðja. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 áþján, 6 ör, 7 laus, 8 als, 10 dul, 11 tusk, 12 ætlaði, 14 laun, 16 sló, 17 að, 18 ódæll, 19 tap, 20 stig. Lóðrétt: 1 ál, 2 þaut, 3 jullu, 4 ástand, 5 nauð, 6 öls, 9 skjól, 10 dæla, 13 illi, 15 aða, 16 sæt, 18 óp. Gengið Almennt gengi LÍ kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenqi Dollar 70,210 70,570 73,680 Pund 117,020 117,620 117,050 Kan. dollar 47,150 47,440 49,480 Dönsk kr. 10,1840 10,2400 10,3640 Norsk kr 9,0960 9,1460 9,2800 Sænsk kr. 8,6170 8,6640 8,8410 Fi. mark 12,7281 12,8046 12,9603 Fra. franki 11,5370 11,6064 11,7475 Belg. franki 1,8760 1,8873 1,9102 Sviss. franki 47,6000 47,8600 48,0900 Holl. gyllini 34,3412 34,5475 34,9676 ' Þýskt mark 38,6936 38,9261 39,3993 ít. líra 0,039080 0,039320 0,039790 Aust. sch. 5,4997 5,5328 5,6000 Port. escudo 0,3775 0,3797 0,3844 Spá. peseti 0,4548 0,4576 0,4631 Jap. yen 0,660700 0,664700 0,663600 irskt pund 96,091 96,668 97,844 SDR 97,740000 98,320000 100,360000 ECU 75,6800 76,1300 77,0600 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 -tt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.