Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 7
Hún minnir eiginlega meira á Snæfríðí íslandssól en Sölku Völku í útliti, svona Ijóshærð og bláeygð með sannkallaðan álfakropp. Magnea Björk Valdimarsdóttir, manneskjan á bak við hina ungu Sölku Hafnarfjarðarleikhússins, er ekki heldur úr neinu saltfiskskrummaskuði heldur veraldarvanur Garðbæingur. Þrátt fyrir allt þetta stendur hún sig furðu vel á leikhúsfjölunum í hlutverki Sölku. Salka Valka hefur verið í uppá- haldi hjá Magneu síðan hún var krakki. Það er því ekkert slor að fá slíkt draumahlutverk í fyrsta alvöru leikritinu hjá atvinnuleikhúsi. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Magnea Björk Valdimarsdóttir er viðriðin leiklistina, hún var í stjóm leikfélags MH i fyrra og hefur leikið í þremur verkum sem leikfélagið hefur sett upp, í Poppleiknum Óla II, Mak- beð og Náttúruóperunni. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég leik í atvinnuleikhúsi. Ég hef farið á fullt af leiklistamámskeiðum, bæði í MH og annars staðar, ég var meðal ann- ars í mörg ár á leiklistamámskeiðum i Kramhúsinu þegar ég var litil,“ seg- ir Magnea. Leikskóli og leiklistarskóli Þau kvöld sem Magnea er ekki að leika er hún að klára stúdentinn af nýmálabraut í MH. Eins og þetta tvennt sé ekki nóg þá hefur Magnea verið að spá i að takast á við það hug- sjónastarf að fá sér vinnu á leikskóla á daginn, núna á þessum síðustu og verstu timum. „Það er ágætis tækifæri til að gera eitthvað sem er gefandi, á annan hátt en peningalega séð, annars er ég svo- lítið óákveðin með það,“ segir Magnea en bætir við að hún sé mikil bamakona í sér. Hún hefur m.a. unn- ið á leikskóla og einnig kennt krökk- um leiklist, bæði í félagsmiðstöð í Garðabæ og í Kramhúsinu. Er Leiklistarskólinn ekki næsti rök- rétti áfangi? „Jú, ég er að spá í að fara í leiklist- arnám, ég bara veit ekki hvar. Það er allt opið enn þá, ég er ekki búin að ákveða neitt. Mig langar að læra eitt- hvað af öðram þjóðum, Evrópubúum, Suður-Amerikubúum eða hvað sem er, eitthvað í sambandi við leiklist og tungumál. Kannski tengja þetta tvennt saman, eða ekki,“ segir Magnea og er greinilega ekki alveg búin að ákveða sig. „Ég myndi vilja gera eitthvað sjálf með skemmtilegu fólki. Ég fékk mjög skrýtið og súrrealískt uppeldi í Kramhúsinu, þannig að mig langar ekkert sérstaklega að fara þessar hefðbundnu leiðir." Leigði með fertugum an- arkista Það er ekki bara leiklistin og nám- ið sem Magnea tekur alvarlega, hún er með króníska ferðadellu og talar um hana af brennandi áhuga. Hún er búin að vera á flækingi flest summ' síðan hún byrjaði í menntaskóla, enda með tungumálin á hreinu. „Ég hef verið að gera alls konar hluti, farið í málaskóla, unnið og hangið bara. Ég hef mest verið á Spáni, enda tala ég spænsku. Ég var einu sinni au-pair þar og svo leigði ég ibúð með fertugum karli sem var an- arkisti og hafði setið í fangelsi í sjö ár. Ég hef hitt alls konar típur og eignast fullt af skrýtnum vinum,“ segir Magnea. Nú ertu komin í alvöru leikrit og hefur fengið fina dóma, ertu orðin frœg? Er fólk farið að taka eftir þér úti á götu og heilsa þér? „Nei, ég hef ekki tekið eftir því. En mér flnnst gaman þegar það sem maður er að gera hefur áhrif á fólk, þegar koma til mín ókunnugar konur og fara að knúsa mann og hvisla í eyrað á manni eftir sýningar. Þá græt ég bara. Mér finnst gaman að hafa þessi áhrif. Annars langar mig síst af öllu að verða fræg þó ég vilji starfa við leikhús, ef maður má segja svo- leiðis," segir þessi álfakroppur að lokum. -ubk S. 553-3344, Kringlunni www.only.com 19. nóvember 1999 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.