Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 11
hakkavél I> r- Gunna plötudómur Geirfuglarnir Byrjaðu í dag að elska ★★★★ Skemmfilegt í skammdeginu Geirfuglamir er hljómsveit sex stráka með mikinn og breiðan tón- listarsmekk. Henni eru fá takmörk sett tónlistinni sem þeir fíla og hér á annarri plötunni þeirra fá hlust- endur heldur betur fjölbreytt bland í poka. Þetta eru hæfileikaríkir spilarar, syngja eins og öruggustu látúnsbarkar og reka hvert stuðlag- ið á fætur öðru í réttir með galsa og krafti. Segja má að fjölbreytnin sé kennimerki Geirfuglanna og platan þeirra er mjög skemmtileg. Lögin eru einföld og grípandi og ásækja hlustandann, sem á eflaust eftir að söngla mörg þeirra í skammdeginu. Fólk sem leitar að frumlegheitum eða sýnishomum af því sem þykir „mest kúl í mússikk- inni í dag“ hefur ekkert með þenn- an disk að gera. Hins vegar á hann fullt erindi í hillur þeirra sem gera þá kröfu að tónlist- in sé skemmtileg, að hún komi þeim í gott skap og sé þægileg við heimilisverkin. Geirfuglamir létta undir með uppvaskinu og kveikja gott stuð í hjörtum þeirra sem bisa súrir við ryksugubarka. Amma gamla mun jafnvel sleppa göngu- grindinni og taka sporið. Nú fer fram greining á blandinu. Mandólíngalgopinn Freyr semur mest nýmóðins lög fuglanna. Hann virðist vera vel að sér í indírokk- inu og semur poppsmellina „Fílarðu mig?“ og „Tilfinninga- skyldan" sem báðir eru efnilegir til almennra vinsælda svo þykkt er melódíska galdragripið í þeim. Kátínusöngrödd Heiðu fellur eins og flís við rass þess fyrmefnda, og í því seinna minnir kassagítargrúf- ið örlítið á Beck. Laglínan í lögun- um er dálítið svipuð, en Freyr sýn- ir á sér nýja hlið í Stónslegu kraft- ballöðunni „Ég er kominn heim“. Tvö lög eru skráð á Halldór. „Guli hanskinn" hvinandi fm Spilverks- leg ballaða sem fær hárin til að rísa í angurværð - ef maður veit um hvað textinn er þá rísa rasshár- in líka - og „Baráttusöngur stjórn- leysingja" þrumuþrykkjandi aust- antjaldsrokk. Það minnir á rokk Serbanna í No Smoking Band og það gerir líka „Skammarkrókur" Þorkels harmóníkuleikara. Lúnkið lag. Dóri og Keli semja svo saman „Tutta Laguna“ og herma svo sann- færandi eftir ítölsku svitapoppi að Fellini smellir fingrum í gröfinni. Fleiri lög eru gerð í samkrulli og kemur gítarleikarinn Stefán Már sterkur inn með Frey í „Neyðar- rúmbu“, þar sem eplið fellur ekki langt frá Mannakornseikinni. „Giraffatangó“ er hálslangt og „Á veiðum“ grenjandi fin írsk kráar- stemning á la Pogues. Titillagið er einhvers konar undarleg samsuða af Oasis og Brimkló og Geirfuglar loka svo margslungnum hringnum á „Los Paranoiás", sem kom út á safnplötu i sumar og er mexís- lenskt eins og tacos með súrum hrútspungum. Textamir eru langt yfir meðallagi hjá Geirfuglunum og Eurythmics með nýja plötu: Sjénsinn að við hipp-hopp Porn To Rock ★★ Siðspillt ógæfufólk eða andríkar frelsishetjur? Þín eigin siðferðis- kennd verður að skera úr um það, en allavega: Porn To Rock er þrett- án laga safndiskur með lögum leik- ara úr fullorðinsmyndabransanum. Diskurinn hefur vakið mikla athygli og aðalpúðrið hefur vitanlega farið í að viðra þá stað- reynd að flytj- endunum sé fleira til lista lagt en að sjúga og sleikja fyrir framan mynda- vélar. Tónlist- in er af ýmsum toga; m.a. getnaðardiskó, grínklám- popp, ruddapönk og undanrennu- raggtæm. Svolítið skrýtin blanda en oft skemmtileg, en einnig hundhel- víti leiðinleg og jafn þunn og sögu- þráður í lélegri klámmynd. Klám- fólkið virðist eftir á í tónlist- arsmekk og öll lögin á þessum diski hefðu getað komið út á síðasta ára- tug. Líklega heföi platan ekki fengið neina athygli ef þetta væru fóstrur eða verðbréfasalar, en klámbrans- inn er spennandi fyrirbæri og plat- an því fréttnæm. Flytjendur eru af kven-, karl- og hvorugkyni og klám- hundar ættu óhikað að skella sér á eintak. Eggjandi myndir i umslagi ættu ekki að letja þá heldur. Kannski er þetta dálítið eins og Paul Simon. Hann gerir bara og annaðhvort nær fólk því eða ekki. Sénsinn að við kæmum með hipp-hopp plötu.“ „Heyrðu góði, hipp-hopp hefur haft mikil áhrif á tónlistarsöguna," segir Annie ströng. Þau eru bara strax byrjuð að rífast. Spenna er alltaf góð i samstarfi. Kannski kemur eitthvað gott út úr þessu! The High Llamas - Snowbug ★★★ Rétt þykir mér að vekja athygli á hljómsveitinni High Llamas. Þetta er kjörið band fyrir þá sem hallast að „listrænu" eðalpoppi. Bandið er í reynd eins manns og heitir dúddinn Sean O’Hagan. Hann hefur oft kom- ið við sögu hjá hljómsveitinni Ster- eolab. Þetta er fimmta plata hans, en alla tíð hefur Sean verið undir áhrif- um frá frægustu óútgefnu plötu í heimi, meistara- verki Brian Wil- son „Srnile" sem M átti að koma út 1967 en gerði ekki, heldur fór Brian yfir um. Sean er enn við sama heygarðshorn- ið og reiðir fram sérlega vandað stofupopp og sem fyrr fer meira fyr- ir finni áferð og skemmtilegri hljóð- færanotkun en krafti og sterkum tU- finningum. Þetta er blóðlítið popp, en ekki verra fyrir það, og Sean minnir mann á fóndrara og poppið hans er því nokkurs konar módel- smíði. Kjörin plata fyrir starfsfólk á auglýsingastofum, ákaflega smekk- leg og svöl á þægUegan og hættu- lausan hátt. Carlos Santana virtist ekki upp á marga fiska þegar hann gerði samning við Arista-útgáfuna í fyrra. Vitanlega var maðurinn gömul gítarhetja og átti sína tryggu aðdáendur en þeir voru flestir í eldri kantinum enda Carlos sjálfur orðinn 52 ára. Hann er mexíkóskur og stofnaði Santana árið 1966. Santana og hans menn slógu í gegn á Woodstock ‘69 en Santana var orðinn álíka smá- vægUegur i augum krakkanna i dag og Benny Goodman hafði verið fyr- ir Woodstock-kynslóðina. Það sem þurfti að gerast ef Santana ætti að vera eitthvað annað en rykfaUinn kafli í rokksögunni var almennUegt „kombakk". Fáir bjuggust þó við öðru eins kombakki og raun varð á. Platan Supematural er sú fyrsta sem Arista gefur út með karlinum og tónlistarlega hefur ekki verið hreyft við miklu. Hrörnandi fmgur meistarans þjóta um gítarhálsinn og tónlistin er sem fyrr sambland blúss, leiftrandi Hendrix-stæla og afró-latínó-takta. Aðalmálið í mark- aðsátakinu var að fá nýja kynslóð hlustenda tU að leggja hlustir við listamann sem foreldramir áttu í bunkum uppi á háalofti. Því var hóað í gestastjömur tU að ljá músík- inni ferskan og unglegan blæ. Dave Matthews, Lauryn HiH, Wyclef Jean, Eagie-Eye Cherry, rokksveitin Everlast og Rob Thomas úr Matchbox 20 leggja þeim gamla lið og tU að tryggja at- kvæði eldri kynslóðarinnar djammar Eric Clapton með Sant- ana i einu lagi. Dæmið gekk svona líka upp. Platan hékk vikum sam- an á toppnum I Bandaríkjunum og varð ekki bolað í burtu fyrr en Rage Against the Machine komu með sina plötu. Hún hefur nú selt vel á fimmtu miUjón eintaka og lagið Smooth, sem Rob Thomas syngur, er enn í fyrsta sæti. Auð- vitað em útgáfan og Santana hopp- andi kát með árangurinn. Töfrandi tónlistin og markaðsátakið gekk upp og ekki er verra tU þess að vita að stór hluti af gróða Carlosar rennur í MUagro-félagið sem hann rekur með konunni sinni tU að hjálpa fátækum bömum um aUan heim. Eru þá ekki aUir sáttir? Jú, svo sannarlega! AUir sem vora með meðvitund á síðasta áratug muna eftir hljóm- sveitinni Eurythmics. Með Annie Lennox og Dave Stewart, og lög eins og Sweet Dreams (Are Made of This)“ og „Here Comes the Rain again“. Þau höfðu verið gift á næst- síðasta áratug þegar þau voru í ný- bylgjusveitinni The Tourists, en skUdu fljótlega eftir að Eurythmics byrjaði í upphafl 8. áratugarins. Undir lokin var þetta orðið þreytt hjá þeim og þau kvöddu með „best- of ‘ plötu 1991 og sögðu i viðtölum að þau þyldu ekki hvort annað. Ef þau hefðu ekki verið plötuð tU að spUa í starfslokaveislu hjá plötu- mógúl væri hin 44 ára Annie lík- lega bara heima hjá sér með tveim dætrum og eiginmanni, og kannski að spá í að fara að fylgja sínum geysivinsælu sólóplötum eftir (“Diva“ ‘92 og „Medusa" ‘96). Það er aldrei að vita hvað hinn 47 ára gamli Dave væri að gera. Síðan Eurythmics hætti er hann búinn að gera sólóplötu, hljóðvinna plöt- ur fyrir ýmsa poppara, halda ljós- myndasýningu í Saatchi-gaUeríinu og stofna nýaldarkapalstöð. En í staðinn er Eurythmics komin á fuUt aftur og þau storma um heim- inn og spila fyrir Amnesty International og Greenpeace á Friðar-túmum sínum. „Auðvitað vissi ég að það myndi vekja ýmis óþægindi að koma aftur i sviðsljós- ið,“ segir Annie, en hún þolir greinUega hvorki athygli né það að vera án hennar. Erfitt líf. Á plöt- unni er sungið bjartsýnislag í garð friðar. Eitt lagið er um „fólk sem getur hvorki verið saman né sund- ur“ og er auðvitað um þetta fyrr- verandi par. í einu lagi ræðst Annie æpandi á fjölmiöla og i öðru gerir hún gys að gömlum smeUi og syngur bitur: „Sweet dreams are made of anything that gets you in the scene.“ Eins og vanalega segja poppararnir að þetta sé besta plat- an þeirra. Samstarfið hafi verið gott og það er fátt á henni sem minnir á 8. ára- tugar poppdýrðartíma bandsins, engir fretandi gerflar eða pípandi trommuheUar. Dave viðurkennir að vera í engu sambandi við tón- listina í dag. „Ég er alveg lost,“ seg- ir hann bara. „Svo við gerðiun bara tónlist sem hreyfði við okkur. Geirfuglarnir létta undir með uppvaskinu og kveikja gott stuð í hjörtum þeirra sem bisa súrir við ryksugubarka. auka enn á skemmtanagUdið, Upp- tökum var stýrt öragglega af Jóni Ólafs og Ken Thomas og umslagið er flott. Geirfuglar segjast hafa átt ein 50 lög þegar byrjað var á plöt- unni. Þar sem fjölbreytnin er mik- U, og stuðið fjærri því tæmt þegar platan kemur í mark á 37 mínút- um, er helsta umkvörtunarefnið það að platan skuli ekki vera lengri. Maður hefði alveg þolað tvö- faldan skammt af þessum skemmti- legheitum. En þá er bara að stiUa á „repeat" og bíða eftir næsta skammti. Dr. Gunni Bellatrix - Jediwannabe ★ Fyrsti ávöxtur Kolrössu á nýju merki, Fierce Panda, er buUandi loft- bólupopp með andlegt næringargUdi á við sápu. Stelpurnar (og KaUi) virðast vera að stUa inn á unglinga- markaðinn og eiga kannski eftir að ná jafn langt og Alda á vinsældarlist- anum. Það er búið að „taka þær í gegn“ útlitslega og „Jediwanna- be“ er allavega sérhannað fyrir krakka sem eru næstum vaxnir upp úr Kryddpi- u n u m . Aukalögin tvö eru skárri, og ekki nærri eins gott efni og það besta sem bandinu tókst að sjóða saman fyrr á árum. Ef Kolrössur ætia að halda áfram að sykra rokkið sitt svona ofboðslega verða þær aUar orðnar tannlausar eftir ár. Vonum því að stóra platan verði bæði sölt og sæt. 19. nóvember 1999 f Ókus 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.