Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Blaðsíða 12
Þjóðarbókhlaðan lítur ekki beint út fyrir að vera mest spennandi staðurinn í bænum. Veggirnir eru eitthvað svo þykkir og gluggarnir þröngir, þannig að ekkert sést inn. Svo er hún líka full af háskóla- nemum sem húka þöglir við lítil borð með andlitín á kafi ofan í hnausþykkum skruddum. En ekki er allt sem sýnist. Að fá bóki aftur og; Stemningin er fremur þunglama- leg þegar þrammað er um tvær efstu hæðir hússins. Þrátt fyrir þennan þunga og sýndarlegt líf- leysi er bókhlaðan einn mest sótti samkomustaður borgarinnar í miðri viku. Næstum hvert einasta borð er upptekið og sumir eru svo ákveðnir I einbeitingunni að þeir eru með eymatappa. Þögnin er greinilega of æpandi fyrir suma, nema það sé glamrið í nálægmn tölvuborðum sem ærir hljóðhimn- una. Hvers vegna skyldi þessi ekki hafa fengið sér sæti einhvers stað- ar annars staðar? Eftir því sem innar dregur fjölg- ar sætum og borðum. Nema innst. Allra innst. Fjærst dyrunum. Þar úti í homi, eru nefnilega setustól- ar. Þar lesa þeir sem eru latir og langar í hænublund án þess að mikið beri á. Einn hefur meira að segja gerst svo djarfur að leggjast út af á tveimur stólum. Annar næstum hrýtur með galopinn munn. Bókasöfn era svæfandi stað- ir fyrir næturgöltrara. Og minna áberandi að fá sér miðdegisblund- inn þar en heima. Eða á fyrirlestri. Þögnin breytir minnsta skijáfí í æpandi hávaða. Brakið í buxunum okkar vekur óþægilega mikla at- hygli og fær annan hvem mann til að hrökkva upp frá lestrinum. Nema þá vanti afsökun til að líta upp. Kannski allur þessi hátíðleiki hljóðleysisins sé eintómt plat. í það minnsta fylgja forvitin augu eftir ferðlagi okkar milli bókahillnanna. Hér er greinOega ekki hægt að trufla neinn án þess að koma af stað meiriháttar skandal. Hvur fjárinn. Við sem erum hingað kom- in til að kynnast þeim sem sitja á þessu safni daglangt, allan vetur- inn. Þeir era ekki svo fáir. Eða vissuð þið að hingað leggja hund- rað manna leið sína á hveijum ein- asta degi. Hávaði og freistingar Loksins. Tvær ungar konur sitja við borð nálægt miðjum gangvegin- um. Þær stinga saman neíjum, langt frá öllum öðram lestrarhest- um. Þær líta tortryggnar upp þegar við nálgmnst og önnur þeirra, Ella Þóra Jónsdóttir, flýtir sér að taka aftur til við lesturinn. Við náum henni að vísu seinna, þar sem hún situr niðri í anddyri. Þar er hún að bíða eftir fari upp á Akranes. „Ég neyðist til að keyra á milli af því ég fékk enga íbúð í bænum.“ Hún neyðist líka til að lesa á Þjóðarbók- hlöðunni. „En það venst. Fyrst fannst mér of mikill hávaði héma. Sérstaklega á þriðju hæðinni þar sem blöðin eru,“ segir hún. Það er þá hægt að hafa meiri þögn en þetta. Samnemandi hennar, Heiður Rós Geirsdóttir, fyrsta árs nemi í félagsfræði stígur hins vegar beint í snöruna sem Fókus leggur fyrir hana. Viltu koma meö okkur í pásu? spyijum við tælandi og hún svar- aði: „Já, já,“ og stendur upp. Við göngum alla leið niður. Þar fáum við okkur sæti á bak við stigann við innganginn. Kemurðu oft hing- að'! spyrjum við og Heiður Rós trú- ir okkur fyrir þvi að hún sé eigin- lega nýfarin að stunda Þjóðarbók- hlöðuna. „Ég byijaði að koma hing- að i síðustu viku. Það era ekki eins margar freistingar hér og heima.“ Freistingarnar eru sjónvarpið, rúmið og kjaftagangur við hitt heimilisfólkið. Eina félagslífið Heiður Rós er svo ný að hún er ekki enn komin upp á lag með að grúska í bókahillum safnsins heldur les sínar eigin fjárfestingar. Hún leit- ar ekki í safnið nema hana vanti heimildir í ritgerðir. Það gerir hins vegar íslenskufræðinemi með svart sítt hár í blárri peysu. Við rekumst fyrst á hana í handbókadeildinni á fyrstu hæð, skammt frá tveimur strákum að notfæra sér klukkutíma ókeypis aðgang að Netinu. Hún er að vísu ekki á Netinu þessi stúlka held- ur í orðabókunum. En hún vill ekki koma í viðtal. Hún færist undan og horfir flóttalega önnum kafin á okkur þegar við komum auga á hana aftur uppi á fjórðu hæð. Hún er greinilega fastagestur, þó hún neiti því. „Ég kem Fyrsta árs nemarnlr í læknisfræð! voru á barml taugaáfalls á kaffistofunnl; Magnús og Örvar þurftu að standa upp, en vlð boröið sitja Þórlr, Jóhann og Ein- ar Þór. Heiöur Rós Geirsdóttir ies í fimm tíma á dag og tekur þrjár pásur. Ellu Þóru Jónsdóttur fannst of miklll hávaði. hingað bara tvisvar til þrisvar í viku,“ segir hún og er horfín. Henni er illa við ljósmyndavélar. Við snúum okkur því aftur að Heiði Rós sem hefur uppgötvað aðra hlið á bókasöfnum en kyrrðina. „Hér fæ ég betra tækifæri til að kynnast þeim sem era með mér í tímum. Ég veit ekki af hverju það er auðveldara að kynnast fólki héma en uppi í skóla. Kannski hefur það eitthvað með andrúmsloftið að gera,“ segir Heiður, sem tekur þrjár pásur á dag, þar af eina í kaffi. Bókasafhspásur halda hreinlega lífinu í sumum há- skólanemum. „Þær eru eina félagslífið sem læknanemar geta stundað," segir Magnús F. Ólafsson fyrsta árs nemi. Hann situr á kafílstofunni með örvari Gunnarssyni Þóri Sigmundssyni, Jóhanni Vil- hjálmssyni og Einari Þór Haf- berg. Frá borðinu þeirra berast há- vær hlátrasköll. Okkur granar að þeir séu létt taugveiklaðir þó ekki sé enn komið að prófum. „í dag eru eftir 203 nemar á fyrsta ári af þeim 212 sem létu innrita sig.“ Magnús hefur áfram orðið fyrir hópnum, en Einar Þór staðfestir þessar tölur. „Og það eru ekki nema 40 sem komast áfram eftir jólaprófm," seg- ir hann og skellir upp úr eins og þetta sé besti brandari ársins. Vin- ir hans taka undir hláturinn. Þetta er læknanemahúmor. Keyrt yfir fertugasta sætið Þið eruð sem sagt hér alla daga, spyrjum við og öfundum þá ein- hvem veginn ekki neitt. „Ég fer auö- vitað heim að borða klukkan sjö,“ segir Einar Þór og flnnst spumingin kjánaleg. Auðvitað. Þió hafið sem sagt engan tíma fyrir skemmtanir eóa aðra afþreyingu? segjum við með misheppnuðum lærdómssvip. „Jú, maður les auðvitað Moggann þegar maður kemur heim klukkan tíu,“ svarar Jóhcmn. Við erum greinilega dottinn yfir á aðra plánetu. Hvernig datt ykkur í hug að fara í lœknis- frœöi? er eina spumingin sem kem- ur upp í hugann. Glatað. Þetta er víst arfgengt. Hvað œtlið þió svo aö gera þegar þiö fallið, segjum við þá og sjáum strax á Þóri að hann ætlar að ná í fyrstu tilraun. „Ef ég verð númer 41, þá keyri ég yfir þann sem var í fer- tugasta sæti,“ segir hann og er greinilega fúlasta alvara. Einar Þór og Örvar láta hins vegar lítið fyrir sér fara, enda í annarri atrennu við lækninn. „Er þetta ekki sigur eða dauði?“ spyr Þórir og gefur þeim ekki einu sinni svigrúm til að svara. Er þetta ekki brjálœöislega stressandi? er svo augljós spuming að við erum næstum búin að missa af svarinu. „Atburöurinn er ekki stressvaldandi í sjálfur sér,“ heyrist svo lágt í örvari að við hváum. En hinir era ekki lengi að taka við sér: „Þú hefur þá lesið sálfræðikúrsinn!“ Bannað innan sautján Við erum fegin að hitta Guð- mund sallarólegan í útlánunum. Við náum að spjalla við hann í smá stimd, áður en enn einn háskóla- neminn birtist, að þessu sinni til að skila bók. „Ég ætla að fá hana aft- ur,“ segir hún, en Guðmundur leyf- ir henni það ekki. „Það er bannað að framlengja lán oftar en einu sinni. Það þurfa kannski fleiri á bókinni að halda," segir hann og bifast ekki þrátt fyrir þrýsting. Stelpan er ekki ánægð með þessa niðurstöðu mála, en við stöndum með Guðmundi. „Nei, við eram ekki með allan þann bókakost sem háskólanemar þarfnast,“ segir Þor- steinn Hilmarsson, aðstoðarmaður landsbókavarðar. Skortur á fræöibókum er ekki eina vandamálið sem Þjóðarbók- hlaðan þarf að gllma við. „Notkun á safninu hefur aukist tilfinnanlega í haust,“ segir Þorsteinn. „En það Þorsteinn Hllmarsson, aðstoðarmaöur landsbókavarðar, segir að víst skorti safniö bækur. er þó ekki nema á próftíma sem við lendum i verulegum vandræðum með aðsóknina." Þá ryðjast há- skólanemar til inngöngu og menntaskólanemar fylgja fast á eft- ir. „Við erum auðvitað fyrst og fremst háskólabókasafn þó allir sem orðnir eru 17 ára hafi frjálsan aðgang að safninu." Það er nefni- lega enginn stéttaskipting í Þjóðar- bókhlöðunni, bara aldurstakmark. Þess vegna þýðir ekkert fyrir þá sem era yngri en 17 að mæta þama á sunnudögum til að hlusta á plöt- ur og horfa á vídeó, sem er líka hægt. -MEÓ 12 f Ó k U S 19. nóvember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.