Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 14
Terminator án
Camerons og
Schwarzeneggers?
Getur einhver hugsað sér að
gerð verði þriðja Terminator
kvikmyndin án þess að Amold
Schwarzenegger leiki gjöreyð-
andann eða James Cameron sé
leikstjóri? Sjálfsagt ekki margir
en framleiðendurnir Mario
Kassar og Andy Vajna, sem
eiga réttinn, eru nú búnir að
missa þolinmæðina og hafa
sagt að Terminator 3 og 4 verði
gerðar og það fyrr en síðar.
Auðvitað vilja þeir hafa
Schwarzenegger og Cameron
innanborðs en allt frá árinu
1991 hefur verið reynt að finna
stað og stund fyrir þá báða og
nú er svo komið að þeir eru
bókaðir fram á næstu öld. Það
sem hefur haldið aftur af þeim
Kassar og Vajna er að Cameron
og Schwarzenegger hafa báðir
verið að lýsa þvi yfir af og til að
þeir hefðu áhuga á að endutaka
leikinn en nú er sem sagt þolin-
mæðin á þrotum og John Conn-
er mun birtast aftur, hver svo
sem verður í hlutverki hans.
Öskur3
Hrollvekjumeistarinn Wes
Craven er á ljúfum nótum í
Music of the Heart þar sem
Meryl Streep leikur fiðlukenn-
ara og er þegar farið að tala um
óskarsverðlaun
til hennar fyrir
leik sinn. Aðdá-
endur Cravens
þurfa samt
ekki að ör-
vænta. Þetta
er aðeins hlið-
arspor hjá
kappanum
því nú er
lann að klára að
gera Scream 3, lokakaflann i
þríleiknum. Upphafsmaðurinn
Kevin Wihiamsson skrifar ekki
handritið að þessu sinni en per-
sónumar em hans. Nú er Neve
Campbell hætt í skóla og komin
til Hollywood þar sem verið er
að gera kvikmynd um atburð-
ina í Hillsboro.
Pókémon -
hver er það?
Langvinsælasta kvikmyndin
í Bandaríkjunum um síðustu
helgi var Pokémon - The
First Movie en hún halaði inn
52 milljónir dollara á fimm
dögum. Um er að ræða jap-
anska teiknimynd sem Wam-
er-bræður
höfðu sett
mikinn pen-
ing í að mark-
aðssetja og
setja enskt
tal við. Þessi
fjárfesting
virðist nú
hafa borgað
sig. En hvað
er það sem ger-
ir myndina svona vinsæla? Jú,
hún er gerð eftir einhverjum
vinsælasta tölvuleik sem kom-
ið hefur frá Nintendo og þykir
vel heppnuð. Þar sem Pókémon
virðist höfða eingöngu til fólks
undir tvítugu mun aðsóknin að
líkindum dala fljótt. Bíóhúsa-
eigendur sögðu að margir
hefðu keypt fleiri en einn miða
þar sem eftirsótt verðlaun voru
í happdrætti sem tengist mynd-
inni.
Searls, sem frumsýnd er í dag, er
ískt drama um tvær persóiiur sem
þegar makar þeirra farastj^
siysi og í Uósjkemur að náin kynni
Harrison Ford og Kristin Scott Thomas leika persónur sem undir venjulegum kringumstæðum hefðu aldrei kynnst.
Stjömubíó og Laugarásbíó taka til
sýningar í dag Random Hearts sem
er nýjasta kvikmynd Harrisons
Fords. Aðdáendur Indiana Jones
verða að bíða lengur eftir hasar-
mynd frá kappanum því um er að
ræða rómantiska spennumynd úr
smiðju Sidneys Pollacks (Out of Af-
rica, The Firm). Random Hearts er
lauslega byggð á skáldsögu eftir
Warren Adler sem kom út 1984. Það
var Ford sem las söguna 1995 og fór
á fjörumar við Sidney Pollack, með-
an þeir unnu saman að gerð Sabrina,
um að leikstýra myndinni.
í myndinni, sem á íslensku hefur
fengið nafnið Örlagavefur, segir frá
Dutch Van Den Broeck (Harrison
Ford), aðstoðarlögregluvarðstjóra í
Washington, og þingkonunni Kay
Chandler (Kristin Scott Thomas).
Þau trúa bæði á heiður og hollustu
enda byggist ferill þeirra beggja á að
virða góð og hrein manngildi og þar
með talið hjónabönd þeirra beggja.
Þegar farþegaþota hrapar skömmu
eftir flugtak í Cheasepeake-flóanum
hefur það afdrifarikar afleiðingar á
líf þeirra beggja því meðal farþega
sem látast em eiginkona Dutch og
eiginmaður Kay. Upp á eigin spýtur
fer Dutch að rannsaka slysið og
kemst að því að eiginkona hans átti
í ástarsambandi við eiginmann Kay
sem var í miðri kosningabaráttu
þegar slysið varð og féll saman við
atburðinn, sem og dóttir hennar á
táningsaldri. Þegar sannleikurinn
kemur í ljós um tvöfalt líf eigin-
mannsins ákveður hún að afneita
honum, neitar að horfast i augu við
staðreyndir málsins ...
Auk Harrisons Fords og Kristin
Scott Thomas leika í Random Hearts
Charles S. Dutton, Bonnie Hunt, Ric-
hard Jeankins og Bill Cobb.
Það er í raun furðulegt að kvik-
mynd skyldi ekki hafa verið gerð
fyrr eftir skáldsögu þessari því
prentsvertan hcifði varla þomað á
pappímum þegar búið var að selja
kvikmyndaréttinn. Þetta var árið
1984. í kjölfarið vom skrifuð mörg
handrit, meðal annars skrifaði
Dustin Hoffman eitt og ætlaði sjálfur
að leika aðalhlutverkið. Það handrit
lenti i glatkistunni eins og öll önnur
og smátt og smátt gleymdu allir sög-
unni þar til áhugi Harrisons Fords
var vakinn á henni. Random Hearts
er dýr kvikmynd, kostaði 75 milljón-
ir dollara, og er talið að flmmtán
prósent af þeirri upphæð hafl farið
til Harrisons Fords. -HK
bíódómur
Sam-bíóin - Blair Witch Project ★★★i,
Lítil þúfa verður að fjalli
Það vill oft verða svo að þegar
búist er við miklu þá er stutt í von-
brigðin og á nærri troðfullri sýn-
ingu á The Blair Witch Project þar
sem bíógestir voru í yngri kantin-
um var í lokin ekki laust við að
sumir bíógesta létu í ljós vonbrigði
og kannski ekki nema von því með
einhverri snjöllustu markaðssetn-
ingu sem gerð hefur verið á einni
kvikmynd er búið að koma inn
miklum væntingmn. Segja má að
tölvukynslóðin hafi getað verið
nánast í beinu sambandi við at-
burðina í myndinni og væntingar
voru því orðnar miklar, væntingar
sem kannski voru byggðar á röng-
um forsendum. The Blair Witch
Project er snilld og víst er að hún
fer í flokk allra bestu hryllings-
mynda, en hryllingurinn er ekki
sjáanlegur, hann liggur allan tím-
ann utan við myndavélina sem eru
augu þeirra þriggja persóna sem
við fylgjumst með og aldrei fáum
við að vita hvað það er sem hræðir
þau. Það er þama sem hinir ungu
bíógestir vilja fá meira enda vön
verksmiðjuframleiðslu á alls konar
skrímslum og óhljóðum sem ætlað
er að hræða líftómna úr þeim.
Kynningartexti myndarinnar er:
„í október 1994 fóra þrír nemar í
kvikmyndagerð, Heather Donahue,
Joshua Leonard og Michael Willi-
ams, út í skóg nálægt Burkittsville
í Marylandríki í Bandaríkjunum.
Þeir ætluðu að gera heimildar-
mynd um þjóðsöguna Blair Witch
en hurfu allir sporlaust. Ári síðar
fmnst búnaður þeirra og þar á
meðal það sem kvikmyndað var
fram að þeim degi sem þau hurfu“.
Þessi texti segir í raim allt sem
segja þarf því framhaldið er mynd
þremenninganna. Þau eru með
tvær myndavélar, eru full gleði í
byrjun. Eftir fyrstu nóttin kemur
upp hræðsla sem magnast með
hverjum sólarhring. Skáldskapur-
inn hefur sjaldan verið raunsærri í
kvikmynd og þetta raimsæi kemur
með þeirri aðferð að láta sem leik-
aranir sjálfir kvikmyndi atburða-
rásina. Áðferð sem tekst fullkom-
lega og fyrir bragðið hefur það ver-
ið auðvelt í upphafl að koma þvi á
kreik að myndin sé „ekta“. Og enn
þann dag í dag era það margir sem
trúa því að myndin sé heilagur
sannleikur og segja má að aðstand-
endur myndarinnar hafi lítið gert í
að draga úr þeirri trú.
The Blair Witch Project er sögð i
1. persónu, enn ein snOldin og þar
verður að gefa leikuranum margar
stjömur fyrir frammistöðu sína.
Það er með ólíkindum hvað þau ná
að sýna okkur inn í hugarheim
hræðslunnar. Sérstaklega er það
Heather, sem stjómar í upphafi,
sem fær áhorfendur til að taka þátt
í óhugnaðinum og er áhrifamikið
hvemig hún brotnar andlega smátt
og smátt eftir því sem sjálfsöryggið
hverfur. Landslagið hjálpar einnig
til, skógurinn er að komast í vetr-
arhaminn, bleytan er mikil og
skógurinn er óaðlaðandi svo ekki
sé meira- sagt og ýms tákn sem
leiða hugann að þjóðsögunni eru
óhugnanleg í þessu landslagi.
The Blair Witch Project er sönn-
un þess að það þarf ekki að treysta
á leikhljóð eða tölvugerð skrimsli
til að skapa hræðslu. Það er áhrifa-
meira að koma hræðslunni að í
undirmeðvitund áhorfandans með
trúverðugleikann að vopni og það
tekst í The Blair Witch Project.
Leikstjórar, handritshöfundar og
klipparar: Daniel Myrick og Edu-
ardo Sanchez. Kvikmyndataka:
Neal Fredericks. Leikarar: He-
ather Donahue, Michael Williams
og Joshua Leonard.
Hilmar Karlsson
f Ó k U S 19. nóvember 1999