Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Síða 15
EmOnunc|ui^ ð
' i :i 1 I '
ior
Teiknimyndin Tarzan er byggð á
hinni klassísku sögu Edgar Rice
Burroughs, Tarzan, konungur
apanna, sem margoft hefur verið
kvikmynduð, en er nú komin í
teiknimyndaform. í myndinni fylgj-
umst við með hinum miklu ævin-
týrum Tarzans sem frá tmga aldri
er alinn upp af górillum og er í
hópnum talinn jafningi hinna. Þeg-
ar Tarzan fullorðnast breytist líf
hans skyndilega þegar hann í
fyrsta sinn sér aðra mannveru.
Hann finnur strax þau bönd sem
tengja hann við manninn.
Þeir sem stóðu að gerð Tarzan
höfðu að leiðarljósi það umrót til-
finninga sem það leiðir af sér þeg-
ar Tarzan reynir að finna sér pláss
í tveimur þjóðfélögtun, hjá öpunum
sem ólu hann upp og mönnunum,
fjölskyldunni sem fæddi hann.
Þetta sjónarmið gefur sögunni nýtt
gildi og möguleika á að vera ekki
bara öðruvísi af því myndin er
teiknimynd heldur einnig öðruvísi
í frásagnarmátanum.
47 kvikmyndaútgáfur
Tarzan er sagður vera næstmest
kvikmyndaða sögupersónan í
Hollywood, með 47 kvikmyndir á
bakinu, aðeins Dracula hefur verið
kvikmyndaður oftar. Með teikni-
myndinni er Disney-fyrirtækið að
láta drauma höfundarins,
Burroughs, rætast, þvi árið 1936
gerði hann tilraun til að fá Walt
Disney til að gera teiknimynd um
Tarzan og skrifaði honum mörg
bréf þar að lútandi, en Disney var
ekki trúaður á hugmyndina. Það
var ekki fyrr en sextíu árum síðar
að farið var að velta upp þeirri
hugmynd af fullri alvöru að gera
teiknimynd um Tarzan og voru það
tveir reyndir teiknimyndafrömuðir
hjá Disney, Kevin Lima og Chris
Buck, sem fengu það verkefni að
sjá um gerð hennar. Lima, sem
leikstýrði A Goofy Movie, hefur
verið að störfum við teiknimyndir
hjá Disney allt frá því Litla haf-
meyjan var gerð, en það var sú
mynd sem setti skriðuna af stað.
Nýjasta teikm
Rynd Disney-
'fyrirtækisins,
tárzan, véjfe
frumsýnd í
Hann vann meðal annars við
Beauty and the Beast, Aladdin og
The Lion King. Buck hefur starfað
enn lengur hjá Disney, eða frá ár-
inu 1978, og vann meðal annars við
Litlu hafmeyjuna, The Rescuers
Down Under og Pocahontas.
Phil Coliins semur lög
Eins og í öllum meiriháttar
teiknimyndum frá Disney skiptir
tónlistin miklu máli. Elton John
var fenginn til að gera lög við vin-
sælustu teiknimynd Disneys, The
Lion King, og það þótti því sjálfsagt
að fá aðra poppstjörnu til að semja
lög og reyna sig við nýtt form og
varö Phil Collins fyrir valinu og
hefur hann samið fimm lög og
texta. Eftir að leikstjórar myndar-
innar höfðu heyrt hann prufu-
syngja lögin var ákveðið að láta
hann syngja fjögur þeirra og má
heyra hvernig til tekst í ensku út-
gáfu myndarinnar, en að sjálfsögðu
hefur verið talað inn á myndina og
ekkert sparað í þeim efnum. Við ís-
lensku talsetninguna hafa verið
ráðnir þekktir leikarar og ekki var
heldur ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur i ensku útgáfunni,
en meðal radda þar má nefna
Minnie Driver sem talar fyrir Jane,
Glenn Close, Rosie O’Donn-
ell.Lance Henriksen, Nigel Hawt-
home, Brian Blessed og Tony God-
wyn, sem talar fyrir Tarzan. -HK
Sjáðu lífið í Fókus á Vísi.is
Á Vísi.is er Fókus djarfara, ferskara og umfram allt aðgengilegra. Með Fókus við
höndina getur þú fylgst með tísku, menningu, tónlist, næturtifinu, kvikmyndum
og öllu þvi sem gerir lífið skemmtilegra. Þeir sem njóta lífsins til botns njóta þess
að lesa Fókus á Netinu.
Fylgstu með Fókus
...daglega á Netinu!
visir.is
Notaðu vísifingurinn!
Sidney Pollack, sem leikstýrir
Random Hearts, er einn reynd-
asti og virtasti leikstjórinn í
Hollywood og hafa kvikmyndir
þær sem hann hefur annaðhvort
leikstýrt eða framleitt fengið
fjörutíu og sex óskarstilnefning-
ar, sjálfur hefur hann þrisvar
fengið tilnefningu sem besti leik-
stjóri. Sú kvikmynda hans sem
fengið hefur flest óskarsverölaun
er Out of Africa, alls sjö. Þá hef-
ur Pollack einnig skapað sér nafn
sem leikari og er skemmst að
minnast leiks hans í síðustu
kvikmynd Stanleys Kubricks,
Eyes Wide Shut, þar sem hann
hljóp í skarðið fyrir Harvey
Keitel þegar hann þoldi ekki
lengur hin hægu vinnubrögð
Kubricks og stakk af. Af öðrum
kvikmynd-
um sem
Sidney Pollack hefur leikið í má
nefna Husband and Wives, The
Player, Death Becomes Her og A
Civil Action.
Árið 1985 stofnaði Pollack fyr-
irtækið Mirage Picture og meðal
kvikmynda sem fyrirtækið hefur
framleitt án þess að Pollack sé
við stjómvölinn eru The Fabu-
lous Baker Boys, White Palace,
Dead Again, Sense and Sensi-
bility og Searching For Bobby
Fischer. Þess má geta að Pollack
er einn stofnenda Sundance kvik-
myndahátíðarinnar. -HK
Hér á eftir fer listi
yfir þær kvikmyndir
sem Sidney Pollack
hefur leikstýrt.
The Slender Tread, 1965
This Property Is Condemned,
1966
The Scalphunters, 1968
They Shoot Horses, Don’t They?
1969
Castle Keep, 1969
Jeremiah Johnson, 1972
The Way We Were, 1973
The Yakuza, 1975
Three Days of the Condor, 1975
Bobby Deerfield, 1977
The Electric Horseman, 1979
Absence of Malice, 1981
Tootsie, 1982
Out of Africa, 1985
Havana, 1990
The Firm, 1993
Sabrina, 1995
Ftandom Hearts, 1999
Lífið eftir vinnu
Tónlist
Dr. Love
Tíska
Veitingahús
Leikhús
Myndlist
Dr. Gunni
Sáli
Karpið
Leikir
19. nóvember 1999 f Ókus
15