Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 18
haf
Lífid eftir vmnu
>
Naglbítum
frestað
Akureyrarsveitin 200.000
naglbítar var ein þeirra sem
ætlaöi að kýla út plötu fyrir
jólin. Platan var því sem næst
tilbúin en á síðustu stundu var
ákveðið að bíða með hana fram
á vor. Ástæðan er sögð sú að
menn töldu norðanpilta geta
gert enn betur. Þar að auki má
gera því skóna að samkeppnin
hafi ekki þótt mjög árennileg,
nú þegar Maus, Quarashi og
Ensími eru ailar með nýjar
plötur.
mira.is
SJÁÐU Á NETINU
BÆJARLIND 6
200 KÓPAVOGI
Síml: 554 6300 • Fax: 554 6303
Diddú, Sjón, Vllborgu Halldórsdóttur og Blrgi
Sigurósson. Söfnun undirskrifta heldur áfram
meö vaxandi þunga og er stefnt að því að
leggja fram undirskriftalista með fleiri nöfnum
en nokkru sinni hefur veriö safnað f Islands-
sögunni. Listinn mun Ijóma ogtindra þegar hið
umdeilda mál Fljótsdalsvirkjunar verður tekið
til afgreiöslu á Alþingl.
Það veröur Bee Gees-sýning á Broadway.
Svaka gaman og fimm valinkunnir menn flytja
þekktustu lög Gibbbræðra. Ólýsanleg
skemmtun.
Kaffileikhúsið kætir lúnar sálir og skorar á
þær að koma og hlusta á Guörúnu Gunnars-
dóttur og Berglind BJörk Jónsdóttur syngja
lög úr teiknimyndum. Kvöldverður á boðstólum
og vissara að mæta í hann kl.20.00. Söng-
dagsskráin hefst kl.21.30.
Kántríáhugafólk ætti að kíkja í Dansskóla Sig-
urðar Hákonarsonar, Auöbrekku 17. Kántríd-
ansæfing hefst kl. 21.00. Allir velkomnir.
Fyrir börnin
Þann 19. til 21. nóvember 1999 verður stór-
sýningin Jólahöllln 99 haldin í Laugardalshöll.
Tilgangur Jólahallarinnar er að kynna fjöl-
skyldufólki vörur og þjónustu fyrirtækja og
verslana. Markmiðiö er að fyrirtæki og versl-
anir komist í beint samband við neytendur á
jákvæðan og skemmtilegan hátt í upphafi jóla-
vertíðar og nái þannig að kynna fjölbreytta
möguleika til jólagjafa. Öll umgjörð sýningar-
innar verður jólaleg og hin vandaðasta, meö
frumlegu og líflegu yfirbragði. Sýningin er ætl-
uö öllum þeim sem vilja kynna vörur sínar og
þjónustu fyrir jólin. Aögangseyrir að sýningunni
verður kr. 100 fýrir eldri en 12 ára en ókeypis
verður fyrir þá sem yngri eru. Allur aögangs-
eyrir rennur óskiptur til Barnaspítala Hrings-
ins en á síðasta ári var safnað til styrktar
hjartveikum börnum.
Það er greinilegt að krökkunum finnst rosa-
lega gaman aö honum Langafa prakkara og
þeir stútfylla sallnn í dag. Það er nefnilega
svo skemmtilegt að hafa vitorösmann. Langafi
prakkari er skrifaður eftir sögum Sigrúnar Eld-
járn og er settur upp af Möguleikhúsinu við
Hlemm, sími 562 5060. ( dag eru sýningarn-
ar kl. 10 og 14 en athugið að þetta er með
síðustu sýningum fyrir jól.
tOpnanir
Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýningu á mál-
verkum og skissum af konunni í Galleríi Nema
hvaö, Skólavöröustíg 22 c. Sýningin er opin
frá fimmtudegi til sunnudags, kl. 14-18.
•Síöustu forvöö
Tveimur sýningum lýkur á Kjarvalsstööum í
dag. Ragna Róbertsdóttir pakkar saman verk-
um sínur úrvikri, sandi oggleri og einnig verða
fornar og nýjar grafíkmyndir teknar niður af
veggjunum en verkin eru bæði eftir innlenda
og erlenda listamenn.
•Fundir
Ungir sósíalistar standa fyrir fræöslufundi um
byltinguna á Kúbu klukkan 17.30. Fjallað verö-
ur um sigurinn á einræðisstjórn Batista 1959,
fjörutíu ára saga byltingarinnar rakin og rætt
um hvernig hún stendur um þessar mundir.
Fundurinn verður haldinn í bðksölunni Pathf-
inder á Klapparstíg 26, 2. hæð t.v. Hann hefst
á erindi og síöan verða almennar umræöur.
Fnkirkjusöfnuðurinn er 100 ára, vei vei, og
það verður hátíðarfundur og glimrandi málþing
í Fríkirkjunnl, rokna-tilvistarspurningar og al-
menn gleði. Fundurinn hefst kl. 20.00. Léttar
veitingar í Safnaðarsalnum eftir þingið.
Junlor Chamber Nes fyrir ungiingaráðstefnu i
samvinnu viö fjölmarga aðila. Unglingasmiðj-
an veröur í KR-helmillnu og hefst kl. 9.00 og
lýkur kl. 17.00. Verkefnið er alþjóðlegt sam-
starfsverkefni JCI og UNESCO og heitir á
ensku „Rounding the Cape“. Tilgangurinn er
meðal annars að safna gögnum í gagnabanka
UNESCO um unglinga í dag alls staöar í heim-
inum.
Á hnjánum með brúðuna
Brynhildur Guðjónsdóttir
leikkona fer með óvenjulegt hlut-
verk í „Krítarhringnum í
Kákasus" eftir Bertolt Brecht,
sem frumsýnt var í Þjóðleikhús-
inu í gærkvöldi. Hún stjómar
brúðunni Mikjáli í annars hefð-
bundinni sýningu og er með hon-
um á sviðinu allan tímann. „Ég
var sérstaklega spurð að því
hvort ég vildi taka þetta að mér,“
segir Brynhddur sem er nýkomin
á fastan samning hjá Þjóðleikhús-
inu. „Þetta hlutverk er eiginlega á
gráu svæði, af því ég er með brúð-
unni á sviðinu og verð þvi að
gæta þess að athyglin sé ekki á
mér heldur henni,“ segir Bryndis
sem skríður meira og minna um
á hnjánum enda brúðan lítið
jarlsbarn sem ræður örlögum
eldabuskunnar Grúsjú (Margrét
Vilhjálmsdóttir).
„Það furðulega er að ég finn
ekkert til í hnjánum. Um leið og
ég set hendina inn i brúðuna fer
ég að anda með henni og allar til-
fmningar Mikjáls fara í gegnum
mig,“ segir Brynhildur, sem var
eina helgi á stífu námskeiði með
brúðugerðarkonunni, Suze
Wachter, tii að læra að stjórna
Mikjáli. „Brúðan hefur sjáifstætt
líf og mér var kennt að hún segir
alltaf satt.“ Hún lærði að hreyfa
sig með brúðunni þegar hún
stjómar henni. „Þegar hann er að
horfa á eitthvað langt í burtu
horfi ég með honum, en þegar
hann horfir á einhvem nálægt
sér horfi ég á hann.“ Þessi tækni
er þáttur í því að gæða brúðu-
bamið lífi.
Mikið með prik
Það er ekki iltaf sem brúða er
látin leika Mikjál í Krítarhringn-
um. „Þetta er eitt af því fáa sem
leikstjórinn var búinn að ákveða
áður en hann kom hingað," segir
Brynhildur. Leikstjórinn heitir
Stefan Metz og starfar með einu
þekktasta leikhúsi í heimi,
Théátre de Complicité í London.
„Margir skólafélagar mínir i Bret-
Brynhildur Guöjónsdóttir stjórnar Mikjáli sem er teygður og togaður í Krítar-
hringnum.
landi voru miklir aðdáendur
Complicité og dreymdi um að
vinna með því,“ segir hún.
„Þeirra leikhús gengur út á að
finna þjálar lausnir á vandmálum
tengdar leikmyndinni." Og víst
hefði Krítarhringurinn kahað á
flókna leikmynd ef Stefan hefði
ekki fundið sniðugar lausnir á
því með leikurunum.“ Æfmga-
tíminn var frekar langur og við
eyddum löngum tima I að æfa
okkur með prikin, sem eru mikið
notuð í sýningunni," segir Bryn-
dís. Notkun prikanna, sem meðal
annars þurfa að brúa heilt gil,
auka á ævintýrablæ þessa verks,
sem stundum minnir á bamaleik-
rit. „Brecht getur stundum verið
ótrúlega þungur og leiðinlegur.
Það er mikill orðaflaumur í verk-
um hans og textinn oft óþjáll. En
í Krltarhringnum eru margir
skemmtilegir og fyndnir kaflar,
sem vega upp á móti þessum
þimga,“ segir Brynhildur og tek-
ur undir með Fókusi að Krítar-
hringurinn sé einna líkastur æv-
intýri með alvöruþrungnum boð-
skap. -MEÓ.
1 g i k h ú s
•Sport
Tveir leikir veröa í 1. deild kvenna í körfubolta.
Grindavík mætir Tindastóli í Grindavík klukkan
20. Klukkan 20.15 hefst svo keppni ÍS viö KFl
í Kennaraháskólanum.
Laugardagúr
20. nóvember
Popp
Það eru gullslegnu kempurnar KK og Magnús
Eiríksson sem halda uppi alvöru-afdalastemn-
ingu kl. 22.30 i Kaffileikhúsinu í kvöld er þeir
draga fram plástraða gítarana og syngja
Óbyggöablús með gaul hreindýranna í bak-
grunni. Kvöldverður kl. 21.
\/ Karlremburnar Ólafur popp, Lýður læknir
og Rósmann óperusöngvari rembast i Leik-
húskjallaranum og kynna nýja rembudiskinn
sinn. Þetta veröa ekta rembuútgáfutónleikar.
•K1úbbar
Níu ára afmæli PZ á Kaffi Thomsen. Svaka
rokna feikigleði og alles. Dj Jean Paul og Joe
Claussel.
Nökkvi og Ákl gera allt vitlaust á Skuggabarn-
um og þessir gerðarlegu plötusnúðar sigra
heiminn. Það kostar fimmhundruðkall inn eftir
miðnætti og stranglega bannaö að mæta í
gallabuxum. 22 ára aldurstakmark.
•Krár
Café Romance kynnir breska píanóleikarann
Joseph 0¥Brian. Hann fer liprum fingrum um
píanóið og staðargestir verða ölvaðir af
hreinni lífsgleöi.
Dj Kári reiöir fram „experimental-soul-djass-
fönk-diskó-döbb-breik" á Sirkúsinum, nýjasta
rauðvínsbar bæjarins.
Enn og aftur er það meistaramallarinn Dj Le
Chef sem matreiðir Ijúfa tóna i eyru gesta
Wunderbar. Mallarinn tekur að vísu ekki við
fyrr en kl.23.30 en þangað til eru skuggalegir
aðilar að halda einkasamkvæmi.
Fjórugarðurinn kynnir Vikingasveitina og þaö
veröur ofsagaman. Matargestir belgja sig út
og stiga því næst trylltan dans.
Jagúar mætir í afmælisveislu Gauks á Stöng.
Það verður svakalega óneitanlega fullkomn-
lega ótrúlega algjörlega gaman.
Njáll í Vikingband mætir í Njálsstofu. Þaö
veröur bijálað stuö á Smiðjuvegi 6 og feiki-
lega íslenskt andrúmsloft.
Álafossföt bezt kynna hljómsveitina Þúsöld og
það verður geigvænlegt stuð i Mosfellsbæn-
um.
Þó svo að stór hópur Gullaldargesta sé ásamt
vertum staðarins staddur i gleöiborginni
Dublin um þessa helgi veröur ósvikiö stuð þar
fyrir þá sem heima sitja þvi hljómsveitin Heið-
ursmenn skemmtir til kl. 3. Hljómsveitina
skipa þau: Kolbrún, Ágúst Atla og Gunnar.
Svo er boltinn á sinum stað og boltaverð á öl-
inu.
Hljómsveitin Léttir Sprettir tekur á rás og
mætir beint eftir æfingu á gigg. Það á víst að
halda uppi hörkustemningu fram eftir nóttu á
Kringlukránni. Athugið að það er stranglega
bannað að vera að ráfa út af kránni til þess að
fara nakin í bað í gosbrunninum.
iBöl 1
Hljómsveitin Vírus leikur fyrir dansi í Naust-
kjallaranum í kvöld. Það er heppni að strákarn-
ir geta spilað í kvöld; stund milli stríða í mikl-
um ofsóknum Friðriks Skúlasonar hafiö
þannig ekki hátt um þetta.
Klassaball á Hótel Sögu. Hljómsveitin Saga
Class hleypir stuðinu í botn og flýgur meö
staðargesti til tunglsins.
Næturgalinn tekur undir meö tónlistarfólkinu
Margréti og Baldri. Feikilegt tónaflóö og allir
verða galnir.
Það veröa Bara 2 sem leika fyrir dansi í Cata-
línu. Gestir staðarins munu gera sér fábreytn-
ina að góðu enda ærir tónlistin óstöðugan svo
sætir undrum og stórmerkjum.
•Sveitin
Það verða öskur og læti og brjóst og sviti og
ieðurbuxur og Helgl Bjöss á Sjallanum í
kvöld. Gömlu strákarnir í SSSól eru enn þá
frískir og sanna það fyrir Akureyringum þessa
helgina.
Skugga-Baldur gerír víðreist og Húsvíkingar
ærast þegar hann birtist fagnandi í Hlööufelli.
Börn og unglingar undir 16 verða þó aö bíða
betri tíma. Aðrir mæta galvaskir og borga
1000 kr. fýrir allsherjargleðina.
Hljómsveitin Giidrumezz tekur skemmtistað-
inn Við Pollinn með trompi. Tilefnið er útgáfa
geisladisksins CCR.
Lundinn í Vestmannaeyjum flaggar hljómsveit-
inni Blistró. Allir flauta sig hása og elska sig
og aðra.
Jósí bróðir og Syndir Dóra gera allt snarvit-
laust á Oddvitanum. Akureyringar ganga end-
anlega af vitinu þegar fiðluleikarinn Valmari
Valjatos stekkur fram.
Vestmannaeyingarláta ekki kuldann á sig fá
og verða í góöum sköpum í kvöld. Vænlegasti
staðurinn til þess er Fjaran en þar munu Pap-
arnir troða upp.
Hljómsveitin Sóldögg rennir á Suðurnesin og
parkerar í Skothúsinu í kvöld. Þar verður glatt
á hjalla fram eftir nóttu og hver veit nema
nokkrar Marine Court kempur sýni sig.
Þotuliðið þeytir staðargestum á Ránni út í hel-
bera alsælu og Keflvíkingar engjast af gleði.
Hljómsveitin Sólon hendir græjunum inn í bíl,
brunar til Dalvíkur, hendir græjunum inn á
Café Menningu og massar lýðinn eins og hún
hefur aldrei áöur massað.
•Leikhús
Baneitrað samband á Njálsgötunni er nýtt
leikrit eftir Auði Haralds. Það er sýnt við mjög
góðar undirtektir í íslensku Óperunni og hefst
kl.20. Góðir leikarar eru i sýningunni, m.a.
Gunnar Hansson, sem þykir standa sigfeikna-
vel sem óþolandi gelgja. Siminn í miðasölunni
er 5511475.
Það er alveg endalaust sem hann Jón Gnarr er
f Ó k U S 19. nóvember 1999