Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Page 21
Lifid eftir vinnu
t ó n 1 i s t
Sannar karirembur eru
fullar fyriKidn
r >
Það verða sannar karlrembur
sem rembast í Þjóðleikhúskjallar-
anum á laugardagskvöldið. Ólafur
Ragnarsson popp, Lýður Árnason
og Jón Rósmann Mýrdal kynna
Karlrembuplötuna af hreinni karl-
mennsku. Lög á borð við „Ég ætla
að drekka úr þér í nótt“ og „í tjaldi
með kjúkling" munu kitla hlustir
kjallaragesta.
„Okkur finnst bara kerlingamar
vera að vaða yfir okkur,“ kvartar
Ólafur popp og skorar á kynbræður
sína að segja eitthvað við þessari
uppivöðslusemi. „Það snýst orðið
allt um kerlingar í þjóðfélaginu.
Við erum ekki sáttir og mér finnst
þetta vera orðið soldið yfirgengi-
legt. Það er ekki rætt um neitt ann-
að en einhverja kúgun á konum."
Lýður læknir hummar hugsandi
og segir að tilgangur plötunnar sé
fyrst og fremst sá að karlarnir fái
útrás. „Það er miklu betra að karl-
arnir rasi aðeins út. Þá berja þeir
ekki konuna heldur bjóða henni
frekar að borða á Argentínu. Konur
geta þá hugsanlega skilið þennan
litla heim karlmanna."
Við berjum ekki kerling-
ar
Þið urðuó þjóóþekktir fyrir messu-
höld og prestskap á Flateyri. Er trú-
arlegur blœr á Karlrembuplötunni?
Olafur popp, Lýöur læknir og Jón Rósmann halda útgáfutónleika í Þjóðleik-
húskjallaranum á laugardagskvöldið.
„Já, það er trú og náttúrlega um-
burðarlyndi fyrir bæði kynin. Við
eigum að unna gagnstæða kyninu
að rembast svolítið. Unna körlum
að horfa á fótbolta og drekka bjór
og unna konum að fara á eldhús-
vörukynningu," svarar Lýður.
En Herbálife-kynningu?
„Nei, ég segi það nú ekki. Þar
liggja mörkin.“
Hvernig fjármögnuóuð þiö Karl-
rembuplötuna og stússiö í kringum
hana?
„Með eigin vinnuframlagi. Sann-
ar karlrembur eru fullar fyrirvinn-
ur,“ fullyrðir læknirinn, kvikmynd-
argerðarmaðurinn og tónlistarmað-
urinn Lýður.
Verður ekki rokna gleði í Þjóðleik-
húskjallaranum?
„Jú, það er engin spuming. Það
verður mikið gaman,“ segir Ólafúr
popp harðákveðinn og tekur fram
að konur jafnt sem karlar séu vel-
komnar á útgáfutónleikana. „Við
erum engir karlar sem berja kerl-
ingar. Karlremba er bara maður
sem reynir að standa á rétti sín-
um.“ Lýður undirstrikar það og
segir að karlmenn sýni konum
mesta virðingu með því að vera
eins og þeir eru.“
Karlrembutónleikamir hefjast
kl.23.00 á laugardagskvöldið og
bæði kynin geta rasað út í hið óend-
anlega og rembst ennþá lengra.
gesti. ÆskulýBurinn er hvattur til að koma og
gleðin hefst kl.17.
•Sport
Það verða tveir leikir í 1. deild kvenna í körfu.
Sá fyrri hefst klukkan 14 í Grindavík þar sem
Tindastóll mætir heimamönnum. Klukkan
15.15 hefst svo leikur ÍS og KFÍ í Kennarahá-
skóianum.
Grand Prix Coca Cola-mótiö í borötennis
verður í Tþróttahúsi TBR í umsjá Borðtennis-
deildar Víkings. Byrjendur mæti kl. 11, pilta-
flokkur kl. 13, drengjaflokkur kl. 13 og
stúlknaflokkur kl. 13. Það verður ómótstæði-
lega gaman.
Aðeins einn leikur verður I Nissandeildinni i
handknattleik. Það er HK sem mætir ÍBV í
Digranesi klukkan 16.30.
•Feröir
Jæja, er ekki málið að taka sér smábreik og
skella sér með Ferðafélaginu í Kirkjugöng-
una? Þetta er 4. ferð og nú verður farinn hinn
frábæri rúntur Hallgrimskirkja - Rladelfía - Há-
teigskirkja. Þetta tekur um 3 klst. og er brott-
for kl. 10 frá BSÍ. Verð kr. 500.
Sunnudagur
21. nóvember
•Klúbbar
Sunnudagsbíó á Kaffi Thomsen. Ekta bíó-
kvöld.
•Krár
Café Romance kynnir breska píanóleikarann
Joseph OVBrian. Hann fer liprum fingrum um
píanóið og staðargestir verða ölvaðir af
hreinni Iffsgleði.
Það ,eru dúndurfréttir aö Dúndurfréttlr
dúndrist á Gauk á Stöng. Afmælisveislan blíf-
ur og allir syngia Gaukurinn á afmæli þessa
dagana, la la la.Hann er sextán þessa dag-
ana, la la la, Húrral
Gæðablóðiö Guðmundur Rúnar Lúövíksson
lætur nýbygginguna uppi í Kringlu ekki á sig fá.
Hann mætir galvaskur á Kringlukrána í kvöld
og heldur uppi stemningu meö einmanalegt
spotlight sér til hjálpar.
( Böl 1
Næturgalinn heldur alvörukántríball óg það
verður ekkert smá vanalega gaman. Vlðar
Jónsson stjórnar stuöinu og kántriið nær bull-
andi hápunkti.
D jass
Á vegum Jazzklúbbsins Múlans á Söloni ís-
landus leikur tríö Ólafs Stephensens píanó-
leikara. Með Ólafi leika þeir Guömundur R.
Einarsson á trommur og Tómas R. Einarsson
á bassa. Trióið mun aö sjálfsögðu beita sinni
alkunnu sveiflu og vagga gestum með með
nýjum lögum af geisladiski sfnum, þjóðlögum,
sálmum eða íslenskum sönglögum. Tónleik-
arnir hefjast kl. 21. Miöaverð er 1000 kr. en
fýrir nema og eldri borgara kostar 500 kall.
©K1 a s s í k
Það verða hátföartónleikar f tilefni af 100 ára
afmæli Frikirkjunnar. Tónleikarnir verða vitan-
lega f kirkjunni og hefjast kl. 20. Tónlistarfólk-
ið flytur Cacillien-messuna eftir Josef Haydn.
Kór kirkjunnar syngur og 17 manna hljómsveit
spilar. Diddú mætir ásamt Soffíu Stefánsdótt-
ur, Þorbirni Rúnarssyni og Eiríki Helgasyni.
Stjórnandi er Kári Þormar.
I kvöld, kl. 20.30, verða tónleikar á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar í Safnaöarheimlli
Akureyrarkirkju, þeir fimmtu f röðinni á þessu
starfsári. Einar Jóhannesson klarínettuleikari
og Örn Magnússon píanóleikari munu flytja
fjölbreytta efnisskrá þar sem gætir áhrifa allt
frá Dimmalimm til djassins, auk þess sem
heyra má rammfslenskan Jóns Leifs, sem og
tóna Francis Poulenc.
@Leikhús
Baneitrað samband á Njálsgötunni er nýtt
leikrit eftir Auði Haralds. Það er sýnt við mjög
góðar undirtektir f fslensku Óperunni og hefst
kl.20. Góðir leikarar eru f sýningunni, m.a.
Gunnar Hansson, sem þykir standa sigfeikna-
vel sem óþolandi gelgja. Síminn I miðasölunni
er 5511475.
Þaö er alveg endalaust sem hann Jón Gnarr er
fyndinn og það sýnir hann og sannar f frábæru
uppistandi, Ég var elnu sinni nörd. Honum til
hjálpar er fýndnasti maður íslands, Pétur Jó-
hann Sigfússon, og þykir hann vera langtum
fyndnari en Sveinn Waage. Sýningin hefst
kl.21 í Loftkastalanum en satt aö segja eru
ekki miklar líkur á að fá miða. Tékkaðu í síma
552 3000.
Mannsröddin, La voix humaine, gengur vel í
(slensku Óperunni. Þetta er hádegissýning,
eöa næstum þvf því að f dag hefst sýningin
kl.15. Listamennirnir ræða um verkið við
áhorfendur að lokinni sýningu. Pantanir í síma
551 1475.
Djúpt inni í maga Þjóðleikhússins, nánartiltek-
iö f Smíöaverkstæðinu, ergrfski harmleikurinn
Fedra sýndur kl.20.30. Fedra er reyndar
franskt verk en Hilmi Snæ, Arnari Jónssyni og
Tinnu Gunnlaugsdóttur er nokk sama og leika
þau með miklum tilþrifum.
Sex í sveit er ærslafullur farsi eftir Marc
Camoletti sem sýndur er í hundraðogeitthvað-
asta skipti á stóra sviöinu f Borgarielkhúsinu
f kvöld kl.19. Þaö er auöséð aö landinn er
mikiö fyrir svona farsa þvf ekkert lát virðist á
vinsældunum. Þó er sýningum farið að fækka
og aðeins örfáar eftir. Síminn I miðasölu er
568 8000.
•Kabarett
Fjölmargir listamenn koma fram til stuðnings
lögformlegu umhverfismati á Rjótsdalsvirkj-
un. Listamennirnir koma fram kl. 15 f sal Um-
hverfisvina f Síðumúla 34. Þar á meðal eru
Guðbergur Bergsson, Jón Gnarr, Bubbi
Morthens og Andri Snær Magnason. Það er
óvitlaust og stórsniðugt að mæta og hlusta á
þessa stólpamenn.
Fyrir börnin
Enn flýgur hann Friðrik Friðriksson f hlutverki
Péturs Pan um stóra sviöið f Borgarleikhús-
inu. Sýningarnar á Pétri eru búnar að ganga
lengi en Borgarleikhúsmenn eru farnir að sjá
fyrir endann á þeim. Rugiö hefst kl. 14,
spenniö beltin.
í Tjarnarbíói er búið aö vera Töfratívolí f þó
nokkurn tfma. Þetta er barna- og fjölskylduleik-
rit af bestu gerð en þv! miður er þetta með síð-
ustu sýningum fyrir jól en sýningin hefst kl.
14. Miðapantanir eru í síma 552 8515.
Það er greinilegt að krökkunum finnst rosa-
lega gaman að honum Langafa prakkaraog
þeir stútfylla salinn í dag. Það er nefnilega
svo skemmtilegt að hafa vitorösmann. Langafi
prakkari er skrifaður eftir sögum Sigrúnar Eld-
járn og er settur upp af Möguleikhúsinu við
víniö mitt
Hlemm, sími 562 5060. i dag er sýning kl. 14
en athugiö að þetta er með sfðustu sýningum
fyrir jól.
íþróttaáifurinn Magnús Scheving kallar ekki
allt ömmu sfna og er ekki vitund hræddur við
Glanna glæp. En það er nafnið á vonda karlin-
um f samnefndu leikriti sem Þjóðleikhúsið
sýnir þessa dagana. Sigurður Sigurjónsson
leikstýrir og Máni Svavars samdi tónlist við
söngtexta Karis Ágústs Úlfssonar. Leikarar
eru meöal annarra Stefán Karl Stefánsson,
Magnús Ólafsson, Örn Árnason, Steinn Ár-
mann Magnússon, Kjartan Guðjónsson, Linda
Ásgeirsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Rúnar
Freyr Gfslason og auðvitað Magnús Scheving
sjálfur. Tvær sýningar eru í dag, sú fýrri hefst
kl. 14 en sú seinni kl. 17 en þvf miður er upp-
selt.
•Opnanir
Ólöf Sig. Davíösdóttir og Snjólaug Guð-
mundsdóttir opna sýningu á verkum á gleri og
ull i Safnhúsi Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6,
Borgarnesi. Sýningin er opin alla virka daga,
kl. 13-18. Kl. 16.15 á opnunardaginn verður
framinn gjörningur.
©Síöustu forvöö
Sýningu ALBA ALBA dúettsins á ALBA ALBA
verkinu lýkur f dag. Sýningin er f Galleríi
Hlemmi og listamennirnir eru þeir Baldur J.
Baldursson og Kristinn Pálmason.
Sfðasti sýningardagur er á Hverfingum f Gerð-
arsafni. Hér sýna fjórir listamenn verk sín.
Þessi sýning kemur beint frá Köben þar sem
hún hlaut frábæra dóma. Skellið ykkur og sjá-
iö hvað það var sem féll svona vel I geð hjá
frændum okkar, Dönum. Opið til kl. 18.
•Fundir
Rnnlandssvfinn Lars Hulden flytur erindi á
sænsku á bókmenntasíðdegi í Norræna hús-
inu f dag, klukkan 17. Hulden hefur þýtt
Kalevalakvæðin yfir á sænsku og mun segja
frá þeirri vinnu sinni og sýn sinni á kvæðin. Þá
les Svanhildur Óskarsdóttir kafla úr Kalevala-
kvæðunum á íslensku. Aðgangur er ókeypis
og öllum opinn.
Forseti íslands mætir i Fríkirkjuna og ávarpar
hátíðarmessugesti. Skemmtilegheitunum
verður útvarpað til allra landsmanna. Söfnuð-
urinn býður málsverð fýrir fimmhundruðkall á
Hótel Borg eftir guðsþjónustuna. Messan
hefst kl.ll.
í kvöld verða lesnar upp smásögur á Súfistan-
um, bókabúö Máls og menningar. Ágúst Borg-
þór Sverrisson og Elín Ebba Gunnarsdóttir
lesa úr eigin verkum. Óskar Ámi Óskarsson
les úr þýðingum sfnum á smásögum Williams
Saroyans og Sigfús Bjartmarsson les úr þýö-
ingu sinni á smásögum frumbyggja nyrst í Am-
eríku. Dagskráin hefst kl. 20 og aðgangur er
ókeypis.
•Sport
Leiknir verða þrír leikir I Nissandeildinni og
hefjast þeir allir klukkan 20. Fram og UMFA
keppa f Safamýrinni, Fylkir og FH mætast
uppi f Árbæ en Haukar og KA útkljá sinn leik
við Strandgötuna.
•Feröir
í dag ætlar Ferðafélagið að halda út f óviss-
una. Því er samt Ijóstrað upp að farið veröur f
skemmtilega göngu f nágrenni Reykjavfkur.
Brottför er frá BSÍ, austanmegin, og Mörkinni
6 kl. 13. Verð f óvissuferðina er kr. 1000 en
frftt er fýrir börn, 15 ára og yngri, I fýlgd með
foreldrum. Athugið allt um feröir á síðu 619 á
textavarplnu.
Mánudagur
22. nóvember
brasseriborg. com
Dj lvor Amor. plötu-
snúöur a SpotligM-
drekkur Cuba libra
aö staöaldri.
WUGCJMHN
„Ég drekk Cuba libra að stað-
aldri. Það er romm í kók. Mamma
og pabbi drukku alltaf Cuba libra
og ég stalst stundum í glasið þegar ég
var lítill. Svo fékk maður að smakka í
Þórsmerkurferðum og fannst þetta auð-
vitað ógeðslega vont. Þegar ég var
1&-16 ára drakk ég landa og vodka. Eft-
ir það fór maður að meta eitthvað ann-
að en það. Ég er hrikalega vanafastur í
þessum málum og drekk bara bjór
Bacardi-romm. Síöan ég byrjaði að vinna á !
Spotlight hef ég drukkið Bacardi og kók í
kassavís. Ég drekk það í stóru bjórglasi því ég
kemst ekki á barinn og glasabömin nenna ekki að þjóna mér. Gummi
Gonzales baðstrandapoppari og dj í Klúbbnum kom mér upp á lagið
með þetta. Hann drekkur að vísu vodka í Sprite í stóru bjórglasi. Við
köllum drykkinn tvöfaldan dj. Svo skora ég bara á fólk að mæta á bar-
inn á Spotlight og garga einn tvöfaldan dj.“
og
•Krár
Café Romance kynnir breska pfanóleikarann
Joseph OVBrian. Hann fer liprum fingrum um
pfanóið og staðargestir verða ölvaöir af
hreinni lífsgleði.
Hljómsveitin Dúndurfréttir spilar á Gauknum.
Þeir sem ekki búa f bænum eða komast af
öðrum ástæðum ekki á þessa tónleika geta
hlustað á þá á www.xnet.is.
Það er bara aldrei þessu vant ekkert að ger-
ast á Wunderbar. Tilboðið 5 í fötu á 1000 gild-
ir þó enn þá. Svo þaö er bara að hlaupa og
kaupa.
•Leikhús
Leikhússport f Iðnóer gríðarlega skemmtileg
leið til að eyða annars súru mánudagskvöldi.
Hérna mætast ferskustu leikarar landsins i
spunakeppni sem er vægast sagt ærslafull.
Áhorfendur í salnum hjálpa við keppnina og e^
takmarkið að láta alla leikarana gera sig að
fífli. Byrjar kl.20.30.
Þriðjudaguh
23. nóvember
•Krár
Café Romance kynnir breska pfanóleikarann
Joseph O'Brian. Hann fer liprum fingrum um
pfanóið og staðargestir verða ölvaðir af
hreinni lífsgleði.
Eitt allsherjar fönkkvöld á Vegamótum. Oran
fönkar út í eitt og fönkið hefst kl.21.30. Glimr-
andi gott kvöld. Saxófónn, gitar, bassi d|s
trommur. Eilif hamingja og hana núl
Það er til mikils að vinna þvf dúettinn Gullið í
ruslinu ætlar að spila á Wunderbar i kvöld.
Þaö glampar á þá félaga á sviðinu en til að
sporna við því má alltaf fá sér flmm í fótu á
þúsund kall eða fara á heimasíðu Wunderbar
á allineed.is.
Það verður leyndardómsfull og mjög svo
óvænt gleði á Gauki á Stöng. Dýröleg og dá-
samleg. Unaðsleg og svakaleg. Mætið, mæt-
ið, mætið í afmælisfagnaðargleöina!
•Leikhús
Á Litla sviði Þjóðleikhússins er veriö aö leikalf
dramað Abel Snorko býr einn eftir Eric
Emmanuel Schmitt kl. 20. Þetta er vinsæl
sýning og því er nauðsynlegt að hringja f síma
5511200 og athuga með miöa.
•Fundir
Eftirtaldir höfundar lesa úr nýútkomnum bók-
um sfnum klukkan 20 á Súfistanum: Hrafn
Jökulsson kynnir Miklu meira en mest, Elfsa-
bet systir hans les úr Laufeyju, fsak Harðar-
son mætir með Mannveiðihandbókina og
Þórður Helgason með Einn fýrir alla.
Félag um átjándu aldar fræðl stendur fyrir
kvöldvöku í Skólabæ klukkan 20.30. Örn
Hrafnkelsson sagnfræðingur flytur erindi um
Magnús Stephensen og Ræður Hjálmars í
Bjargi og Guðrún Ingólfsdóttir bókmennta-
fræðingur segir frá bókinni „Vitjun sfna vakta
ber“. Þá ætia nokkrir þátttakendur á 10. al-
þjóðaráðstefnu um Upplýsinguna, sem haldirt
var i Dyflinni f sumar, að segja frá þinginu. Öll-
um er heimill aðgangur sem er ókeypis. Veit-
ingasalan er opin.
Bíó
Á Wunderbar verður dúettinn Gullið f ruslinu
með gasalega fína tónllst. Gleymið ekki bjórn-
um. Hann kostar 1000 krónur ef þið kaupiö
fimm í fötu.
Ö
Sefecf
Ný
Selectstöð
í Smáranum
*
ö
Alltaf ferskt... Select
19. nóvember 1999 f Ókus
21