Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
Fréttir
DV
Könnun Félagsvísindastofnunar á notkun dagskrárblaöa:
DV-Sjónvarpshandbók-
in er langmest notuð
- höfðar til allra aldurshópa
DV-Sjónvarpshandbókin er lang-
mest notuð þeirra dagskrárblaða sem
könnun Félagsvísindastofnunar frá
því um síðustu mánaðamót tekur tiL
Könnuð var notkun DV-Sjónvarps-
handbókarinnar, Dagskrár vikunnar
og Dagskrárblaðs Morgunblaðsins.
Þátttakendur í könnuninni voru
spurðir hvort þeir notuðu dagskrár-
blöðm mikið, nokkuð, lítið eða ekk-
ert. 22% sögðust nota DV-Sjónvarps-
handbókina mikið en 17,1% Dag-
skrárblað Morgunblaðsins og 14,7%
Dagskrá vikunnar.
27% sögðust nota DV-Sjónvarps-
handbókina nokkuð en 25% Dagskrá
vikunnar og 22,1% Dagskrárblað
Morgunblaðsins. Og enn er niður-
staðan DV-Sjónvarpshandbókinni
hagstæð. 22% segjast nota hana lítið
en 22,4% Dagskrá vikunnar og 25%
Dagskrárblað Morgunblaösins.
Þegar hlutfall þeirra sem skoðuðu
dagskrárblöðin ekkert er skoðað
kemur DV-Sjónvarpshandbókin best
út með 29% þátttakenda, þá Dag-
skrárblað Morgunblaðsins með 35,8%
og loks Dagskrá vikunnar með 38%.
onva
03-
30 Lestur dagskrárblaða
" >o
5 ®
■o
DV-Sjónvarps-
handbók
® « ®
_ = ®
S 3 £
Dagskrá
vikunnar
Dagskrárblaó
MorgunblaAsins
60
30
10
Aldursskipting
«
12-19 20-24 25-34 3549 50-67 68-80
ára ára ára ára ára ára
Aflaskipið Arnar HU:
Milljarður með Guðs hjálp
- segir skipstjórinn
„Ef Guð lofar náum við milljarði.
Það er þó ekkert í hendi um það mál
og skýrist fyrir jól,“ segir Guðjón
Guðjónsson, skipstjóri á frystitogar-
anum Amari HU.
Aflaverðmæti Amars er nú orðið
920 til 930 milljónir króna það sem
af er árinu en skipið hélt fyrir
nokkmm dögum i síðustu veiðiferð
ársins. Þessi veiðiferð sker jafn-
framt úr um það hvort skipið nær
milljarði í aflaverðmæti og slær þar
með íslandsmet. Guöjón skipstjóri
slóaði í brælu á Vestfjarðamiðum
þegar DV ræddi við hann. Hann
sagði aflabrögð þokkaleg en veður
DV sagði á dögunum frá toppslag
frystitogara þar sem fram kom að
áhöfn Arnars stefnir á milljarð. Nú
dregur að úrslitum.
hamlaði þó nokkuð. Hann
þvertók fyrir að spá
nokkm um það hvort millj-
arðurinn næðist.
„Við erum auðvitað
ánægðir með þann góða
afla sem náðst hefur en þar
er að þakka háu markaðs-
verði og góðu skipi og
áhöfh,“ sagði hann.
Amar HU á eftir að vera
um mánuð á veiðum. Það'
em miklar likur á að milljarðsmúr-
inn yrði rofrnn á þeim tlma ef miö-
að er við aflabrögðin það sem af er
árinu. -rt
Fullt af lesefni
Af þessu sést að DV-Sjónvarpshand-
bókin hefur slegið í gegn enda miklu
meira en bara dagskráryflrlit. DV-Sjón-
varpshandbókin er fúll af lesefni. Þar
era viðtöl, greinar og fróðleikur um
kvikmyndir, framhaldsþætti, skemmti-
þætti, íþróttir og annað sjónvarpsefni
auk efiiis um fræga og flna fólkið, leik-
ara, leikstjóra, iþróttafólk o.fl.
Höfðar til allra aldurshópa
Þegar litið er til mikillar og nokkurr-
ar notkunar dagskrárblaða er DV-Sjón-
varpshandbókin langmest notuð í öllum
aldurshópunum frá 12 til 49 ára. Dag-
skrárblað Morgunblaðsins hefúr vinn-
inginn í aldurshópnum 50 til 67 ára en í
aldurshópnum 68-80 ára er DV-Sjón-
varpshandbókin enn og aftur langmest
notuð eða af 76% þátttakenda.
50% karla nota DV-Sjónvarpshand-
bókina mikið eða nokkuð en 48%
kvenna. -hlh
Forseti í dulargervi
'Mstmi
Það er glatt á hjalla á Bessastöðum
þessa dagana. Forsetinn er óðum að ná
sér eftir axlarbrotið og Dorrit hjalar við
hásæti hans. En það getur verið þreyt-
andi að dveija langdvölum í forseta-
bústaðnum fjarri þegnunum. Þjóðhöfð-
ingjar, jafnt konungar sem forsetar, em
nefnilega lika fólk og hafa þörf fyrir að
hlýða á raddir þegna sinna. Þar er þó
ekki auðvelt um vik þar sem fólk af
konungakyni er gjaman brothætt og þá
vill brenna viö að þegnamir setji sig í há-
tíðlegar stellingar þar sem þeir birtast og
þar með verður tónn þjóðarsálarinnar
falskur. Friðrik mikli Prússakeisari var á
sinni tíð haldinn mikilli þörf til að lesa í
huga þegna sinna.
Hann fann upp og þróaði aðferð forð-
um til að ná því sambandi. Með því að
dulbúa sig og rangla á meðal hermanna
sinna fékk hann viðhorf þeirra beint í
æð. Þrátt fyrir að forseti íslands sé ekki samtíð-
armaður Friðriks mikla þá er líklegt að hann hafi
lesið sér til um trikk Frikka og áttað sig á því að
þama var leiðin að viðhorfum þegnanna fundin.
Hann brá því undir sig betri fætinum og brá sér
í sund. Að hætti Friðriks mikla ákvað hann að
dulbúa sig og þá lá beinast við að fara i sund.
Þjóðin er öldungis óvön að sjá forseta sinn nema
í jakkafotum og með bindi og jafnvel frakka-
klæddan. Það hefði því átt að vera boröleggjandi
að bregða sér í sundskýlu og hlýða á raddir þegn-
anna á milli sundspretta. Þá myndi ekki skemma
gervið góða að víst er að hár hans, sem venjulega
er í föstum skorðum, myndi aflagast og þannig
villa almenningi enn frekar sýn. Það varð þvi úr
að forseti íslands fetaði slóð Friðriks mikla og
brá sér í sund.
Rétta sundskýlan var valin og með sund-
gleraugu var forsetinn nánast óþekkjanlegur að
eigin mati. Dorrit var í grænum sundbol og hin
tígulegasta sem var óheppilegt þar sem parið átti
að hverfa í hópi þegnanna. Það vöknuðu því
grunsemdir strax og þá sérstaklega vegna
þess að Dorrit synti í S sem var að vísu
túlkað af kunnum samsæriskenninga-
mönnum sem dulbúinn stuðningur við
Samfylkinguna. Forsetinn aftur á móti
hélt kúrsinum og synti þráðbeint eftir
endilangri lauginni en aðrir sundlaugar-
gestir flúðu upp úr lauginni og gáfu þeim
svigrúm til að synda. Þegar parið brá sér
í heita pottinn, þar sem oftar en ekki má
heyra hinn eina sanna hjartslátt þjóðar-
innar, brá svo við að það hafði spurst út
að þjóðhöfðinginn væri mættur dulbúinn
sem sundlaugargestur og pottgestir frusu
í sjóðheitu vatninu. Þannig varð forsetan-
um ljóst að dulargervið haföi brugðist og
umtal þegnanna næði ekki eyrum hans.
Hann ákvað því að gera aðra tilraun og
þar sem ekki er neinn her að finna á ís-
landi hélt hann á þann stað sem hann
vissi fjölfarnastan. Hönd í hönd við
Dorrit fór hann á videoleigu, dulbúinn sem við-
skiptavinur. Parið gekk að afgreiösluborðinu og
spurði hvort til væri myndin The King and I eða
tU vara, mynd um Friðrik mikla. Hvorugt var til
og það fór á sama veg og í sundinu. Viðskipta-
vinirnir uppgötvuðu að þjóðhöfðinginn var kom-
inn ásamt ástkonu sinni og þögn sló á sjoppulið-
ið. Forsetaparið hélt því tómhent heim að Bessa-
stöðum þar sem ákaft em hugsaðar upp leiðir til
að taka púlsinn á þjóðinni.
Dagfari
sandkorn
Frænkan fékk ekki
Athygli vakti að Guðrún Péturs-
dóttir, fyrrverandi forsetaframbjóð-
andi og núverandi varaborgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, fékk ekki stöðu
framkvæmdastjóra
Rannís eins og flestir
í fræðasamfélaginu
bjuggust við. Björn
Bjarnason mennta-
málaráöherra vék
sæti við ráðninguna
þar sem Guðrún er
náfrænka hans og
Geir H. Haarde
fékk kvölina af völ-
inni. Hann skipaði Vilhjálm Lúð-
víksson áfram en hann hefur veitt
ráðinu og forvera þess forstöðu eins
lengi og elstu menn muna og lengur
en mörgum þykir gegna góðu hófi.
Guðrún mun hins vegar hafa fengið
sig fullsadda af núverandi starfi sem
forstöðumaður Sjávarútvegsstofnun-
ar, enda lltið að gerast á þeim bæ, og
er að sögn heimildarmanna Sand-
koms í Háskólanum að leita að út-
leið...
Villi Valli á disk
Sá kunni ísfirski tónlistarmaður,
Vilberg Vilbergsson, betrn- þekktur
sem Villi VaUi, kemur á geisladisk í
vor. Villi Valli, sem verður sjötugur
í maí, hefur klippt ís-
firðinga og nærsveita-
menn um áratuga-
skeið auk þess að
lyfta þeim upp úr
amstri hversdagsins
með hljóðfæraslætti
í rúmlega hálfa öld.
Hann hefur haldið
úti fjölmörgum
danshljómsveitum í
gegnum tíðina og þótti mörgum tíma-
bært að lög hans kæmust á disk. Það
eru böm hans sem standa að útgáf-
unni, í tilefni afmælisins, ásamt jaxl-
inum síunga. Eyþór Gunnarsson
hefur verið ráðinn upptökustjóri...
Traustur vinur
Átök hafa verið að tjaldabaki um
nýjan framkvæmdastjóra Sjúkra-
húss Suðurlands. Stjóm sjúkrahúss-
ins tók á fostudag af skarið og mælti
með varaþingmann-
inum Magnúsi Stef-
ánssyni í stöðuna.
Fagnefnd á vegum
heilbrigðisráðherra
var aftur á móti
ekki einhuga um
Magnús sem
keppti við Einar
Mathiesen, fyrr-
um bæjarstjóra í
Hveragerði, um stöðuna. Einar er
sjálfstæðismaður og náfrændi
Áma Mathiesens sjávarútvegs-
ráðherra. Magnús gat sér gott orð á
árum áður sem söngvari með hljóm-
sveitinni Upplyftingu þar sem hann
söng m.a. hina sígilda dægurflugu,
Traustur vinur. Talið er fullvíst að
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra skipi varaþingmann sinn í
stöðuna...
Suðvestan Hjörvar
Helgi Hjörvar hefur komið fram
með eins konar málamiðlun um flug-
vallarmálið. í stað þess að leggja nið-
ur flugvöllinn og i stað þess að
byggja nýjan hefur
hann lagt til að völl-
urinn verði ein eða
ein og hálf flugbraut.
í Morgunsjónvarpi
Stöðvar 2 talaði
hann um að austur-
vestur brautin
væri líklegust til
að halda sér. Þá
hætti flug yfir miðbæinn og þar
með losnaði Helgi viö flugvélarnar
yfir þakinu hjá sér. Reyndar gætu
flugvélar ekki lent í austan- og vest-
anátt en það er á sig leggjandi. Næst
búast menn við því að Helgi leysi
umferöarvandann við Miklubraut -
ekki með því aö fjölga akreinum
heldur með því að gera Miklubraut-
ina að einstefnugötu...
Umsjón: Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is