Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
wnmng
Glæstar vonir
Bókmenntir
Ármann Jakobsson
Þessi ævisaga er
vitaskuld fyrst og
fremst saga tón-
skálds. Maðurinn er
merkur vegna tón-
verka sinna; saga hans
er því tónlistarsaga. í
þessari ævisögu er lýst
á greinargóðan hátt
dýptinni í tónlist Jóns
Leifs og hugmyndafræð-
inni að baki. Hugmyndir
hans eru þó harn síns tíma
og það þarf vart að koma á óvart að
Jón hafi ekki notið mikillar hylli á
Jón Leifs - aðlaðandi maður í eig-
in ævisögu. Mynd úr safni DV
Þo að Ahlen nálgist Jón
Leifs á gagnrýninn hátt og al-
gjörlega laust við helgislepju
rökstyður hann vel hrifningu
sína á tónlist hans. Þá lýsir
hann viðtökum tónlistar hans
(iðulega Qandsamlegum) á
írónískan hátt en þó af skiln-
ingi bæði á viðhorfum gagn-
rýnendanna og Jóns Leifs
sjálfs. Áhlen heldur á penna
með miklu fjöri. Hann nálgast
viðfangsefni sitt af næmi og
oft af glettni sem hefur
kannski skort í umfjöllun um
Jón Leifs. Hann veitir
skemmtilega innsýn i tónlist-
arlíf Evrópu á tíma Jóns og
stundum er gestsaugað býsna
glöggt þegar lýst er fátæklegu
tónlistarlífi íslands á þessum
árum.
í ævisögu Jóns Leifs fléttast
saman stormasamt einkalíf,
taumlaus metnaður og alls
kyns starf í þágu tónlistarinn-
ar, til dæmis við söfnun þjóð-
laga og réttindabaráttu tón-
skálda. Frá þessu öllu segir
Áhlen á skemmtilegan og
gagnorðan hátt. Og þó að frá-
sögnin sé ekki löng dregur
hann upp eftirminnilega
mynd af Annie, konu Jóns,
tengdaforeldrum hans og
dætrum þeirra. Hann er að
lýsa fólki af holdi og blóði og
lesandi stendur eftir sann-
færður um að einmitt svona
hafi Jón Leifs verið.
Það er gleðiefni að aldaraf-
mælis Jóns Leifs sé minnst
með þessu riti. Carl-Gunnar
Áhlen hefur með því átt sinn
þátt í að færa íslendingum
þann Jón Leifs sem þeir eru
fyrst nú teknir að skilja.
Ævisaga Jóns Leifs eftir
Carl-Gunnar Áhlen er vægð-
arlaus. Áhlen lýsir hrein-
skilnislega sjálfhverfu Jóns,
framadraumum og hégóma-
skap. Þá greinir hann vand-
lega hugmyndir hans um nor-
rænt og suðrænt eðli og sam-
band loftslags, eðlis og tónlist-
ar. Hann dregur að auki enga
fjöður yfir tilraunir Jóns til
að komast í náðina i ríki
Hitlers.
En þrátt fyrir þetta - og
kannski einmitt þess vegna -
er Jón Leifs aðlaðandi maður
í þessari ævisögu. Ekki er
annað hægt en hafa samúð
með manni sem þrátt fyrir
ýmsa galla var bæði hugsandi
og skapandi og þurfti mestalla
ævina að glíma við skilnings-
lausan umheim. Það er
ástæða til að þakka Áhlen fyr-
ir að hafa ekki reynt að semja
hefðbundið varnarrit eða
helgisögu. Hann gengur nærri
Jóni Leifs en tónskáldið
stendur eftir sterkara en
áður.
eftirstríðsárunum. En úr þess-
um hugmyndum varð til óviðjafnan-
leg tónlist sem hefur náð betur til
nútímans en samtíðar sinnar.
Carl-Gunnar Áhlen:
Jón Leífs - tónskáld í mótbyr
Helga Guömundsdóttir þýddi
Mál og menning 1999
Lofgjörð til ástarinnar
Erlingur E. Halldórsson heldur
áfram að auðga íslenskar bók-
menntir með þýðingum sínum .
Fyrir nokkrum árum kom út þýðing
hans á Rabelais, því næst Satýrikon
og nú bætist við eitt nafntogaðasta
verk endurreisnartímans: Tídægra
Giovannis Boccaccios. Stytt útgáfa
þess verks mun reyndar hafa birst á
íslensku fyrir alllöngu (ef mig hefur
ekki dreymt það á bókasöfnum
bernskunnar) en hér
birtist verkið í
heild
sinni.
Tídægra
dregur nafn
sitt af þeim
ramma sem
höfundur setti
sögum sínum.
Tíu ungmenni,
sjö konur og
þrír karlar,
stytta sér stundir
við að segja sögur
þar sem þau hafa
leitað sér athvarfs
undan ógnum drep-
sóttar sem geisar í
heimaborg þeirra.
Þessi sagnaskemmtan
varir í tíu daga og þar
sem hver þátttakandi
segir tíu sögur verða þær
eitt hundrað talsins. í inn-
gangsorðum víkur höfund-
ur nokkuð að þeim hörmungum
sem herjuðu á Flórensborg á þvi
herrans ári 1348 og hvernig menn
brugðust við ógnarfári pestarinnar
því ekki skemmtu sér allir með sög-
um, sumir iðruðust sárlega og áköll-
uðu guð en aðrir svölluðu sem mest
þeir máttu. Sannast þar að mörg
eru úrræðin þegar á bjátar.
Tómstundaiðja áðurnefndra ung-
menna kann að virðast sárasaklaus
en söguefnin sem þau gamna sér við
eru órafjarri dauða og drepsóttum.
Sögurnar eru fyrst og fremst lof-
gjörð til ástarinnar, unaðar ástalifs-
ins og holdlegs munaðar. Þóttu þvi
margar hverjar fyrr á
tímum og jafnvel fyrir
ekki svo löngu vafa-
samar og ekki óhætt
að hafa þær á glám-
bekk ef ístöðulitlir
og óþroskaðir
skyldu komast
yfir. Halldór Lax-
ness nefnir I
túninu heima
að þeir Sigurð-
ur Einarsson
skáld hafi
komist í
þessa bók á
dönsku þá
er
spænska
veikin
herjaði
1918,
„og
fylgdi
bókinni sú
saga að væri ágæt í
drepsóttum enda hafði
Boccaccio upphaflega sett hana
saman til að skemmta mönnum í
svartadauða. Þetta er ágætisrit
handa þeim sem eru tæpir í gallan-
mn. í þann tíð var fólk svo saklaust
að það kallaði þetta klám“.
í gegnum aldirnar mátti verkið
oft sæta strangri ritskoðun og rekur
þýðandi þá sögu ritsins ágætlega í
fróðlegum viðbæti. En hvað sem líð-
ur mismunandi orðspori Tídægru
er þetta hin mesta yndislesning með
mörgum gáskafullum sögum þó aðr-
ar séu að visu beiskari. Tídægra er
sem sé tilkomin á einum mestu um-
brotatímum í menningarsögu álfu
vorrar og Boccaccio lengi talinn
meðal risanna í ítölskum bókmennt-
um ásamt Dante og Petrarca. Allir
voru þeir tengdir Flórensborg þó
ekki dveldu þeir þar alla tíð og Tí-
dægra er samin á máli þess héraðs,
Toscana. Þá voru blómatímar nýrr-
ar þjóðmenningar og athyglisvert er
að nefnd hafa verið rittengsl milli
Bókmenntir
Geirlaugur Magnússon
Grettissögu og fyrstu sögu þriðja
dags í Tídægru.
Þýðing Erlings E. Halldórssonar
virðist mér með miklum ágætum þó
hafl ekki sökum kunnáttu- og að-
stöðuleysis átt tök á að bera saman
við frumtexta. Málfarið er nokkuð
upphafið sem hæfir tímaskeiðinu
án þess að vera fyrnt og textinn létt-
ur og lipur, geislar oft af fjöri, háði
og ísmeygilegri tvíræðni sem og
hæfir söguefnum.
Ekki verður of oft kveðið að slík
stoðrit sem Tídægra er sé hinn
mesti happafengur á okkar tungu.
Hafi þýðandi og útgáfa hina mestu
þökk fyrir.
Giovanni Boccaccio
Tídægra
Erlingur E. Halldórsson þýddi
Mál og menning 1999
11
$ SUZUKI
-////------
Suzuki Baleno Wagon, skr. 6/97,
ek. 52 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1090. þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 2/97, ek.
58 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 790 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4, skr.
10/96, ek. 113 þús. km, bsk.,
5 dyra.
Verð 980 þús.
Opel Corsa, skr. 6/97, ek. 74 þús.
km, bsk., 5 dyra.
Verð 750 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 11/98,
ek. 24 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1850 þús.
MMC Lancer st., 4WD, skr. 6/96,
ek. 59 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1180 þús.
Suzuki Swift GLS, skr. 4/96, ek.
56 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 650 þús.
Renault 19 RN, skr. 118/95, ek.
49 þús. km, bsk., 4 dyra.
Verð 695 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 9/95, ek.
72 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1230 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 2/97, ek.
58 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 790 þús.
Suzuki Sidekick JX, árg. '93, ek.
98 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 790 þús.
VW Golf S, skr. 5/96, ek. 74 þús.
km, bsk., 5 dyra.
Verð 930 þús.
Suzuki Swift GLX, skr. 6/98, ek.
22 þús. km, bsk. 5 dyra.
Verð 870 þús.
Suzuki Swift GX, skr. 2/97, ek.
55 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 680 þús.
Suzuki Swift GX, skr. 1/96, ek.
81 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 570 þús.
Renault Laguna, skr. 8/96, ek.
19 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1590 þús.
Renault Clio RT, skr. 9/91, ek.
108 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 480 þús.
SUZUKIBÍLAR HR
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is