Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999 Spurningin Á að banna spilakassa? Þóra Kristjánsdóttir: Já, það á að loka þeim öllum með tölu. Leyfa fólki að fá frið. Það er að missa eigur sín- ar út í loftið af þessum völdum. Árni Þór Jónsson: Já, það á að loka þeim öllum. Það á ekki að fjár- magna hjálparstofnanir með flkni- efnum. Guðrún Elsa Grímsdóttir: Já, þetta er orðið allt of mikið vanda- mál sem sumt fólk ræður ekki við. Guðmundur Oddur Magnússon, grafískur hönnuður: Alveg skil- yrðislaust. Þetta ýtir undir spilaflkn. Arndis Pálsdóttir nemi: Já, þetta er hættulegt fyrir þá sem kunna sér ekki hóf. Björg Friðriksdóttir: Já, alveg hik- laust. Lesendur Hvalfjörður og Polaris-kafbátar Frá Clyde í Skotlandi. Þar eru enn mikil umsvif á sviði skipasmfða og við- gerða. Skarphéðinn Einarsson skrifar: Flestir sem komnir eru um og yflr sextugt muna eflaust eftir sög- unni um áform vamarliðsins bandaríska hér á landi um að leggja uppbyggðan og snjóléttan malbik- aðan veg frá Fitj- um í Njarðvík upp í Hvalfjörð miklu ofar en nú- verandi vegur til Suðurnesja liggur ofan Rauðavatns. Sagt er að þessi vegur hafi átt aö hafa fáar beygjur, enda Bandaríkjamenn þekktir fyrir góöa vegi. En spumingin er: Til hvers? Flotann vantaði aðstöðu fyrir Pol- aris-kafháta sína. Þeir sóttu þetta mál því fast, en var endanlega synj- að árið 1959. íslendingar vildu ekki kjamorkuvopn hér né geymslur fyr- ir þau. Þó fengu Bandaríkjamenn að reisa Lóranstöð á Gufuskálum fyrir þessa kafbáta til að miða út skot- mörk. Bandaríski flotinn tók við stöðinni í Keflavík í maí 1961, og ég man vel eftir því enn þann dag í dag er ég var drengur á Vatnsleysu- strönd. Ég hef ekki séð jafnmargar bílarútur í lest (43 minnir mig) er þær héldu til Reykjavíkur um nónbil en þar beið þeirra skip. Flotinn var að koma fyrir risaflotkví af sömu gerð og sjá má í Hafnarflrði nú. Á Hooly Loch-firðinum við Clyde í Skotlandi má sjá svipaða aðstöðu flotans. Gamall maður sem ég hitti er ég ferðaðist á hjóli um Skotland sagði mér að Skotar hefðu mátt taka við þessari þjónustuaðstöðu fyrir Polaris-kafbáta því íslendingar hefðu ekki viljað þessa stöð. Þegar ég kynnti mér þessi mál árið 1992 er verið var að loka þessari stöð sá ég að Hvalfjörður hefði hentað betur en Hooly Loch. Þama fóru fram áhafnaskipti á 3 mánaða fresti og var áhöfnum ekið til Prestwickflug- vallar þar sem flugvélar tóku við. Einnig tóku skipin þarna vistir og fleira. Árið 1990 höfðu um 2000 Skotar beint lifibrauð af veru flotans þama, þar af um 400 leigubílstjórar. Þar er komin skýringin á áður nefndum vegaframkvæmdum upp í Hvalflörð. Hefði þessi starfsemi verið í Hval- firði stæðu þar nú mannvirki, ásamt 3000 manna bæ með öllu til- heyrandi, og þessi margumræddi vegur kæmi að góðum notum þegar færa þarf Reykjanesbraut ofar frá Reykjavík að Straumsvík. Eftir stendur spurningin: Var verra að geyma kjamorkuvopn í Hvalfírði en að hafa þau allt í kringum landið í kafbátum frá Rússum og NATO- þjóðunum, er kalda stríðið var í al- gleymingi? Ég læt öðrum eftir að svara því. Vesældómur forseta borgarstjórnar Aðstandandi öryrkja sendi þenn- an pistil: Það er athyglivert hvernig forseti borgarstjórnar, Helgi Hjörvar, kemur sér oft undan því að verja ákvarðan- ir sínar þegar þær koma illa niður á þeim sem minnst mega sín. Nógu er hann samt duglegur við að koma fram í flölmiðlum, t.d. þegar hann þarf að ráðast á Árna Þór Sigurðsson sem er einn af fáum heiðarlegum mönnum í borgarstjóminni. Nú er ákveðið að bera 50 skjól- stæðinga Félagsþjónustunnar í Reykjavík út úr leiguíbúðum borgar- innar. Ákvörðunin er tekin á þeim tíma þegar mikill íbúðaskortur er í Reykjavík og húsaleiguokur aldrei verið meira. Fólkinu er þannig vísað á Guð og gaddinn, strax eftir hátíðar, og fólkið á ekki í nein önnur hús að vemda. Aðstandendur þessa fólks hafa fengið þau svör hjá Félagsbústöðun- um að útburðurinn sé pólitísk að- gerð. Útburðurinn var endanlega ákveðinn af Félagsmálaráði sem stjórnað er af R-listanum. Þegar flölmiðlar sögöu frá málinu lét Helgi Hjörvar, formaður Félags- málaráðs, og sá pólitíkus sem ber mesta ábyrgð á útburðinum, ekki ná í sig. í staðinn var embættismaður látinn svara fyrir þessa aðgerð, nán- ar tiltekið flármálastjóri Félagsbú- staða. Það er mikill vesældómur að þora ekki að svara fyrir eigin ákvörðun. Sérstaklega þegar aðgerð- in kemur þetta illa niður á þeim sem minnst mega sín. Það mega Páll Pétursson félags- málaráðherra og Ingibjörg Pálma- dóttir heilbrigðisráðherra eiga, að þó að þau hafi oft tekið óvinsælar ákvarðanir gagnvart þeim sem verst eru settir, hafa þau alltaf haft mann- dóm að svara sjálf fyrir þær, en ekki sent embættismenn fyrir sig. Vinnuskúr verður að skála - minning á fölskum forsendum Böðvar Böðvarsson skrifar: Þeir sem hafa lagt leið sína aust- ur fyrir flall og fara ekki Grímsnes- ið, fara tilneyddir yfir Ölfusárbrú. Það sem fyrir augu ber þar er Hótel Selfoss til hægri, en á vinstri hönd er vinnuskúr brúarsmiðsins Tryggva Gunnarssonar; magur og þreyttur skúr af stærri gerðinni, enda viðbættur á marga vegu frá upprunalegri gerð. Én með árunum skapast gersem- ar. Það eitt að vera látið í friði, gef- ur ákveðnar fomminjar og Selfoss- búar eiga þann rétt að ráðskast með hvað skal standa og hvað skal riflð. - Og skúrinn skal standa brúna. n-íl^n[flníD)/^ þjónusta allan sólarhringinn j H H H r\x) H ---- jSjP55 Lesondur geta sent mynd af sér nteð bréfum sínum sem blrt verða á lesendasíðu Á Selfossi. - Séð að Tryggvaskála ásamt skúrn- um. Seinna komu athafnamenn að þessum skúr og gerðu hann að skála og kölluðu hann Tryggvaskála. Þaðan eiga margir minningar sem einnig er framlag til sögunnar. En skálinn varð aftur að skúr, þreyttur eins og hann væri mennskur maður sem engin stofn- un vildi vita af. Ekki fer það fram- hjá vegfarendum, að hér er einbúi allslaus, og lengur en nokkur hefði þolað á stofnun. Ekki er þó samstaða um meðferð öldungsins. Frá fyrstu gerð ungur og reisulegur, en nú orðinn skakkur og snúinn, en Tryggvi er gleymdur. Brúin geymir minningu smiðsins, en skúrinn er síðari tíma mönnum og þeim sem á eftir komu til skammar. Verktakinn Tryggvi hefði betur flar- lægt skúrinn því þessi nýja kápa vinnuskúrsins er ekki til að halda uppi minningu þessa ágæta brúarsmiðs. Miklu frekar er að minnast Tryggva fyrir aðra gerð hans sem er garðurinn við Álþingishúsið í Reykjavík. Þar gleymdi hann ekki að flarlægja vinnuskúrinn, og er því að allra áliti góður smiður. - Sú framkvæmd sem nú á sér stað á ekkert skylt við endurgerð húss. DV Margrét líti sér nær Guðjón skrifar: „Álþýðubandalagið er mjög sterkt um þessar mundir,“ sagði Margrét Frímannsdóttir eftir lands- fund flokksins um daginn. Meiri öf- ugmæli hef ég sjaldan heyrt. Undir hennar stjóm hefur flokkurinn splundrast og að engu orðið. Hún er á sömu leið með Samfylkinguna (sbr. síðustu skoðanakönnun). Hall- ærislegast var svo að heyra Mar- gréti halda því fram í sjónvarpinu sl. fimmtudagskvöld, að niðurstað- an hefði orðið mun betri fyrir fylk- inguna, hefði könnunin verið tekin eftir landsfund Alþýðubandalags- ins! Hvaða máli heldur eiginlega Margrét Frímannsdóttir að Alþýðu- bandalagið skipti í dag? Það eru svona ummæli sem skapa ótrúverð- ugt andrúmsloft í kringum Sam- fylkinguna. „Stutt í spunann“ hörmulegur þáttur Sigurrós skrifar: Maður er nú smám saman að gef- ast upp á dagskrá Sjónvarpsins. Og þegar búið er að færa þátt eins og „Stutt í spunann" yfir á laugar- dagskvöldin, þá er ekki margs að bíða í helgardagskránni. Þessi þátt- ur, Stutt í spunann, er að minu mati hörmulegur, mest fiflalæti, með lítt áhugaverðar persónur í bak og fyrir. í síðasta þætti tók þó steininn úr. Það kemur að því mjög fljótlega að fólk krefst þess að losna undan nauðungaráskrift Sjónvarps, og ekki bætir þessi endurskapaði „stuttspuni" neinu við til að halda fólki við Ríkissjónvarpið. „Barnaþrælkun“ og móðursýki Adolf hringdi: Það hefur komið fram að Stein- grímur J. Sigfússon, alþm. með meiru, hóf störf í sláturhúsi í ná- grenni sínu er hann var 9 ára gam- all. Hví rekur fólk nú ekki upp ramakvein um „barnaþrælkun" og úthrópar foreldra hans fyrir kúgun og illa meðferð? í þætti Bylgjunnar sl. sunnudag var rætt við fram- kvæmdakonuna Hjördísi Geirsdótt- ur sem upplýsti að hún hefði farið að vinna í frystihúsi 9 ára gömul og verið þar tvö næstu sumur. Á að fara að kalla þetta „barnaþrælkun"? Hér vöndust krakkar við það á árum áður að byrja snemma að vinna. Einkum úti á landsbyggð- inni, en þó líka hér í þéttbýlinu. Er okkur íslendingum stætt á því að hrópa „barnaþrælkun" og „sví- virða“ vegna barna t.d. í Pakistan og víðar, þótt þau sjáist vinna við að hnýta mottur? Er ekki bara mál til komið að íslenskir krakkar verði skikkuð til að starfa í frítímum að hluta til, a.m.k. í stað þeirrar ómennsku sem gildir hér í dag, að slæpast við spilakassa, og síðar ung- lingadrykkju eða annað enn verra? Fundir um Reykja- víkurflugvöll Óskar Sigurðsson skrifar: Það er fordæmanlegt hvemig staðiö hefur verið að fundahöldum um Reykjavíkurflugvöll á vegum samgöngunefndar Alþingis á Akur- eyri og hann tengdur landsbyggð- inni fyrst og fremst. Hinir 17 sem fluttu þama ávörp tengdust fyrst og fremst dreifbýlinu, ásamt fyrrv. samgönguráðherra, og flugmála- fulltúum. Sagt var að fundirnir væm öllum opnir, en það var nú öðra nær. Við, sem erum búsett hér í Reykjavík, höfðum einfald- lega ekkert val um aö geta lagt inn athugasemdir sem eru, eins og allir vita, mjög margar og þýðingarmikl- ar. Nú er tími til kominn að við, höfuðborgarbúar, fáum sérstakan fund um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina, sem er að flestra mati næsta byggingarland hér á svæðinu. Ef völlurinn fær aö vera til ársins 2016, þá er meira en lík- legt að hann verði áfram næstu áratugina og þar með orðinn augnstunga í miðri Reykjavík um aldur og ævi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.