Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
9
Utlönd
Hillary staðfestir loks
kosningaframboð sitt
Hillary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, staðfesti í gær að hún
hygðist bjóða sig fram til öldunga-
deildarinnar í bandaríska þinginu.
„Já, ég ætla að bjóða mig fram,“
sagði Hillary er hún var beðin að
segia já eða nei á fundi bandariskra
kennarasamtaka í New York. For-
setafrúin bætti því við að hún
myndi ekki tilkynna opinberlega
um framboðið fyrr en í byrjun
næsta árs.
Áður hefur forsetafrúin bara sagt
að hún væri að kanna möguleikana
á framboði. Hillary ætlar að reyna
að komast í sæti öldungadeildar-
þingmannsins og demókratans
Daniels Patrick Moynihan fyrir
New York. Hann fer á eftirlaun á
næsta ári.
Hillary verður fyrsta forsetafrú
Bandaríkjanna sem verður í fram-
boði á meðan eiginmaður hennar er
enn við völd. Helsti keppinautur
hennar verður væntanlega borgar-
stjóri New York, Rudolph Giuliani.
Hillary staðfesti framboð sitt á fundi kennarasamtaka í New York í gær.
Símamynd Reuter
Hann hefur ekki enn lýst því opin-
berlega yfir að hann ætli að bjóða
sig fram.
Á fréttamannafundi í gær sagði
Hillary að hún myndi flytja til New
York eins fljótt og bandaríska leyni-
þjónustan teldi húsið, sem hún og
Bill Clinton hafa keypt, öruggt. Hill-
ary ætlar jafnframt að fækka
skyldustörfum sínum í Washington
á næsta ári á meðan kosningabar-
áttan fer fram í New York.
Hillary ákvað að staöfesta framboð
sitt í kjölfar fylgiskannana sem
sýndu að vinsældir hennar færu
dvínandi. Fyrr í þessari viku hvatti
borgarfulltrúi í New York, Ronnie
Eldridge, Hillary til þess að hætta
við framboð og láta sterkari fram-
bjóðanda mæta Giuliani. Sam-
kvæmt könnun New York Post um
síðustu helgi er meirihluti íbúa
New York ríkis andvígur framboði
forsetafrúarinnar. Hillary hefur
sætt gagnrýni fyrir ýmislegt sem
menn líta á sem mistök.
Suha Arafat gerir allt vitlaust:
Segir ísraela losa
eiturúrgang á Gaza
Suha Arafat, eiginkona Yassers
Arafats, forseta Palestínumanna,
sakaði ísraelsmenn um að losa eit-
urefnaúrgang á Gazasvæðinu. Suha
lét orð í þá veru falla í viðtali við ar-
Suha Arafat hefur enn einu sinni
komið ísraelum og Bandaríkja-
mönnum í uppnám með fullyrðing-
um sínum og ásökunum.
abísku sjónvarpsstöðina Orbit um
helgina.
Israelsmenn hafa brugðist ókvæða
við orðum Suhu og Bandaríkjamenn
tóku undir gagnrýni á hana í gær.
Ekki er nema tæpur hálfur mán-
uður síðan að Suha olli uppnámi í
ísrael og vestanhafs þegar hún sagði
í heimsókn Hillary Clinton, forseta-
frúar í Bandaríkjunum, til Vestur-
bakkans að ísraelar helðu kerfis-
bundið notað gas til að eitra fyrir
palestinskar konur og böm. Hún
neitaði að biðjast afsökunar á þeim
ummælum í sjónvarpsviðtalinu um
helgina.
I nýjustu ásökunum sínum segir
Suha Arafat að ísraelskar skordýra-
eitursverksmiðjur í landnemabyggð-
um gyðinga á Gaza losuðu eiturefni í
sjóinn og í borginni.
James Rubin, talsmaður banda-
ríska utanrikisráðuneytisins, sagði
að ásakanir af þessu tagi ættu ekki
heima í samskiptum ísraela og
Palestínumanna.
Heimastjórn Palestínumanna
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem segir að ásakanir Suhu Arafat
séu hennar eigin skoðanir og að hún
eigi ekki sæti í palestínsku heima-
stjóminni.
Franskir borgarstjórar hafa kosið ofurfyrirsætuna Laetitia Casta sem fjall-
konu 21. aldarinnar. Casta stendur hér við hlið brjóstmyndar sem komið
verður fyrir í 36.778 ráðhúsum Frakklands. Sfmamynd Reuter
Jospin vill að
hátæknin útrými
atvinnuleysinu
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, sagöi í gær að Frakk-
ar og aðrar Evrópuþjóðir ættu að
nýta sér hátæknina og bjart efna-
hagsútlit næstu árin til að útrýma
fjöldaatvinnuleysi.
Forsætisráðherrann sagði að
Frakkar heföu hagnast á þeim
stöðugleika sem hefur ríkt í þeim
löndum sem tóku upp evruna,
sameiginlega mynt Evrópusam-
bandsins. Nú væri lika svo komið
að óvíða væri bjartara útlit í efna-
hagsmálum en í Frakklandi á
næsta ári.
„Áratugurinn sem nú er fram
undan er áratugur fullrar atvinnu
í Evrópu," sagði Jospin á ráð-
stefnu kaupsýslumanna i París.
Atvinnuleysi í Frakklandi hef-
ur minnkað úr 12,7 prósentum í
11,1 prósent frá júní 1997 og útlit
er fyrir að það minnki frekar.
Vilt þú fara vel með
PENINGANA
þína ? ? ? Sf:
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
Hafharfirði & Glæsibæ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
SUISURK
SllGMtPP'
- á góðu verði -
Komum og gerum verðtilboð
ÓDÝRI..MARKAÐURINN
KNARRARVOGI 4 • S: 568 1190
ÁLFABORGARHÚSINU
Óljóst um olíu-
útflutning íraka
Irösk stjórnvöld, sem hafa
stöðvað allan olíuútflutning sinn,
gáfu til kynna í gær að þau
myndu fallast á að endumýja
samning um olíusölu til kaupa á
matvælum með sömu skilmálum
og nú eru 1 gildi, að því er heim-
ildir innán Sameinuðu þjóðanna
herma.
Saeed Hasan, sendiherra íraks
hjá SÞ, bar þó á móti að hann
hefði gefíð endanlegt svar.
Um er að ræða samning sem
gerir Irökum kleift að selja olíu
fyrir andvirði tæplega 400 mUlj-
arða króna á sex mánaða tímabili
til að kaupa matvæli, lyf og aðrar
nauðsynjavörur fyrir almenning.
Að öðru leyti er viðskiptabann SÞ
á írak í fullu gildi.
Irakar höfnuðu um helgina
tveggja vikna framlengingu áætl-
unarinnar og sögðust hættir að
flytja út olíu. Við þau tiöindi
hækkaði olíuverð á markaði.
Gnarinn ehf. , Laugavegi 45, sími 552-2125 og 895-9376.
Magnarar frá 7.900
Rafmagnsgítarar frá
16.900
Kassagítarar frá 5.900
★ ★ ★★ ★ ★
Pakkatilboð
Rafmagnsgítar,
magnari, snúra og ól,
aðeins kr. 22.900.
★ ★ ★★ ★ ★
Standar 1.390
Hljóðkerfí 29.900
Pokar 2.500
Taktmælar 2.700
Full búð af hljóðfærum