Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1999, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1999
15
Bobby Fischer -
einn gegn öllum
íslendingar muna
þaö enn þegar Bobby
Fischer varð heims-
meistari í skák í
Reykjavík árið 1972.
Aðstæður voru óvenju-
legar. Fischer kom frá
landi þar sem fáir
höfðu áhuga á skák.
Faðir hans yfirgaf móð-
ur hans þegar hann var
lítill og sagan segir að
móðir hans hafi gefið
honum skákmenn til
þess að hafa ofan af fyr-
ir honum meðan hún
vann úti.
Sex ára gamail sat
hann á gólfinu og færði
trémenn af hvítum reit-
um á svarta og varð
skákmeistari Banda-
ríkjanna aðeins 13 ára fyrir ofan
Reshevsky og marga aðra fræga
skákmeistara. 16-17 ára var hann
farinn að ógna sovétska skák-
heimsveldinu. Skák var þjóðarí-
þrótt Sovétríkjanna. Heimsmeist-
arinn Boris Spassky fannst í
bamaskóla sem óvenju hæfileika-
ríkur á sviði skáklistarinnar.
Hann fékk bestu þjálfara, bestu
bækur, bestu mót og aðstæður og
varð heimsmeistari.
Spennan jókst við það að heims-
veldin tvö voru að takast á. Banda-
ríkin kepptu við Sovétríkin í
þjóöaríþrótt þeirra síðamefndu
sem höfðu átt aila heimsmeistara
frá 1948. Og Fischer sigraði einn
og nær óstuddur aUa skákmenn-
ingu skákheimsveldisins og færði
heimsmeistaratign-
ina til Bandaríkj-
anna og var hylitur
ásamt sundmannin-
um Mark Spitz sem
þjóðhetja.
Einn og
einangraður
Eftir þetta „ein-
vígi aldarinnar"
tefldi Fischer ekki
eina einustu skák
opinberlega i 20 ár.
Allar tilraunir
skákheimsins til að
fá þennan snilling
að skákborðinu aft-
ur reyndust til-
gangslausar.
Loksins, loksins
féllst þessi undar-
legi sniUingur á að tefla og þá á 20
ára afmæli einvígisins. Þeir
Fischer og Spassky tefldu í Sveti
Stefan í Júgóslaviu 1992 og Fischer
sigraði aftur.
Verðlaunin björguðu Fischer frá
bágum lífskjörum. En Bandarikin
höfðu lýst yfir
viðskipta- og sam-
skiptabanni við
Júgóslavíu óg gef-
in var út hand-
tökuskipun á
þennan einstæða
skáksniUing.
Hann flúði land.
Siðan eru 7 ár.
Hann hefur búið i
einangrun og nú
líklega í Ung-
verjalandi, einn fáskiptinn í eigin
heimi. Móðir hans dó fyrir tveim
árum og systir hans nýlega en hon-
um var meinað að kveðja þær
vegna yfirvofandi handtöku, stórr-
ar sektar og fangelsisvistar. Nýlega
var geymsla hans í Bandaríkjunum
brotin upp og eigur hans þar, sem
margar höfðu minningagUdi, seld-
ar vegna 400$ skuldar.
Einn, og enginn annar
Enginn annar sem tengdist
Kjallarínn
Guðmundur G.
Þórarinsson
verkfræðingur
„Gaman væri ef íslendingar gætu
í íjósi fortíðarínnar, (og hér varð
hann heimsmeistarí) rétt þessum
einstæða snillingi hjálparhönd,
lagt lóð á vogarskálina til þess
að banni væri aflétt, sakarupp■
gjöfveitt
V
. Wjfji §ðl 'Ék
Bobby Fischer fyrrv. heimsmeistari í skák. - Hann er enn eitt fórnarlamb
stríðshörmunganna í fyrrum Júgóslavíu og hefur í 7 ár verið útilokaður
frá heimalandi sínu. - Bobby heldur á brott frá íslandi.
þessu einvígi í Júgóslaviu hefur
hlotið neins konar refsingu fyrir.
Bobby Fischer sem helgað líf sitt
skák, færði skákgyðjunni stærri
fómir en líklega nokkur maður
sem lifað hefur á þessari jörð,
vann það eitt tU saka að setjast aft-
ur að taflborðinu vegna enda-
lausra áskoranna aUs skákheims-
ins. Hann hefur aldrei unnið flugu
mein. Hann er enn eitt fómarlamb
stríðshörmunganna í fyrrum
Júgóslavíu. í 7 ár hefur hann ver-
ið útUokaður frá heimalandi sínu
og staddur i erlendu landi hefur
hann sjálfur aukið á einangrun
sína með því að forðast samskipti
við aðra menn. Hér er mannlegur
harmleikur að gerast. Hér er um
mannréttindamál að ræða.
Gaman væri ef íslendingar gætu
í ljósi fortíðarinnar, (og hér varð
hann heimsmeistari) rétt þessum
einstæða sniUingi hjálparhönd,
lagt lóð á vogarskálina til þess að
banni væri aflétt, sakaruppgjöf
veitt. Framtíðin mun ekki dæma
þá létt sem svona hafa leikið þenn-
an undramann.
Guðmundur G. Þórarinsson
„Verktakaskattar"
í Kópavogi
Við íslendingar erum ýmsu vön
í opinberri stjómsýslu. Hér hefur -
viðgengist um áratuga skeið að
flokksskírteini, ættemi og önnur
slík tengsl hafi ráðið við ákvarð-
anatöku en ekki fagleg sjónarmið.
Sem betur fer hefur stjómsýsla
farið batnandi hjá opinberum aðU-
um og þannig eru nú langflest
verk á vegum ríkisins boðin út
með einhverjum hætti.
Úreltir siðir
En það era ekki aUir sem fylgjast
með tímanum, og vUja frekar halda
sig við kerfið þar sem það skiptir
öUu máli hverra manna þú ert og
hvað þú kaust í síðustu kosning-
um. í Kópavogi er nú við völd
meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks - þar er helstur
áhrifamaður Gunnar I. Birgisson,
oddviti Sjálfstæðisflokks og eigandi
verktakafyrirtæk-
isins Klæðningar.
Gunnar er for-
maður bæjarráðs
og hefur auk þess
tekið að sér í frí-
tíma sínum, frá
rekstri umsvifa-
mikUs fyrirtækis
og skyldum í bæj-
arstjóm, að sitja á
Alþingi og setja
okkur hinum leik-
reglur og lög. En
eftir hvaða regl-
um spUar alþingismaðurinn Gunn-
ar í Kópavogi ?
Tölulegar staðreyndir
Á árunum 1997 og 1998 hefur
verktakafyrirtæki Gunnars unnið
fyrir Kópavogsbæ fyrir tæpar 18
mUjónir án útboðs! Gunnar, for-
maður bæjarráðs, semur um verk
án útboðs fyrir Kópa-
vogsbæ og kemst að
þeirri niðurstöðu að
það sé best að semja
við Gunnar, fram-
kvæmdastjóra Klæðn-
ingar. Hagsmunir
Kópavogsbæjar og
ibúa hans víkja þama
fyrir privathagsmun-
um Gunnars sem era
í fyrirrúmi. Nú er ég
ekki á móti því í
sjálfu sér að Gunnar
og fyrirtæki hans
vinni fyrir bæinn en
það verður að vera á
jafhréttisgrundveUi í
gegnum útboð eins og
aUir aðrir.
Sumir jafnari en aðrir
Kópavogsbær lét vinna hönnun á
kynningarefni ýmiskonar fyrir sig
á áranum 1996, 1997, 1998 og það
sem af er 1999 fyrir 18 mUjónir 499
þúsund. Þar af vann auglýsinga-
stofa í eigu dóttur Gunnars og
tengdasonar „kynningarstörf' fyrir
15 mUjónir 433 þúsund. ÖU þessi
verk fékk þessi stofa eftir „óform-
lega verðkönnun" sem
gerð var 1992! Auðvit-
að á þessi stofa að eiga
möguleika á því að
vinna fyrir Kópavog
eins og aðrir, hverra
manna sem eigend-
urnir eru, en þeir
verða að sæta sömu
reglum og aðrir.
Breyttir tímar
Mér er alveg sama
um prívatrekstur
Gunnars Birgissonar
og hans fjölskyldu og
vonandi gengur það
áUt saman vel - en að
við Kópavogsbúar
skulum þurfa að
borga brúsann. Vonandi verður
seta Gunnars á þingi tU þess að
hann áttar sig betur á eðlUegum
og nútímalegum stjómunarhátt-
um hjá opinberum aðUum og að
teknir verða upp nýir siðir í Kópa-
vogi. Annars veröa skattborgarar
Kópavogs að halda áfram að borga
sérstakan „verktakaskatt“ tU for-
manns bæjarráðs.
Flosi Eiríksson
„Gunnar er formaður bæjarráðs og
hefur auk þess tekið að sér i fri-
tíma sínum, frá rekstri umsvifa-
mikils fyrirtækis ogskyldum í bæj-
arstjórn, að sitja á Alþingi og setja
okkur hinum leikreglur og lög. En
eftir hvaða reglum spilar alþingis-
maðurinn Gunnar í Kópavogi?u
Kjallarinn
Flosi Eiríksson
bæjarfulltrúi í Kópavogi
Með og
á móti
Er jólaeyðslan að fara
úr böndum?
Kaupmannasamtökin hafa slegið á
það að íslendingar eyði 7,3 milljörðum
í jólagjafir og annan varning, tengdan
jólahaldinu, í ár. Það þýðir að hver ein-
staklingur á landinu á eftir að eyða 27
þúsund krónum umfram það sem
hann eyðir undir venjulegum kringum-
stæöum. Kaupmenn fagna en prestar
vilja staldra við.
Jólin einu
sinni á ári
Það er nú þannig með jólin að
menn vilja gera sér dagamun og
jafnframt gleðja aðra. Þá vUl nú
svo fara að upphæðimar hækki
og fljótt safnist
í háar fjárhæð-
ir. Líka skiptir
máli að nú era
árþúsundamót
og því líklegt að
fólk hafi meira
við en ella. Að
sjálfsögðu fagna
kaupmenn
þessu en vona
um leið að jóla-
útgjöldin komi
ekki neinum í
koU en þar verður hver að vera
sinn eigin gæfusmiður um jól,
sem og aðra daga.
Það má benda á að ákveðnir
vöruflokkar eru ekki keyptir
nema um jólin, svo sem skartgrip-
ir, ýmis gjafavara önnur, svo og
matvara. Það þýðir einíaldlega að
sú neysla bætist einfaldlega ofan á
aðra og venjulegri neyslu. Við höf-
um slegið á að viðbótarneysla
hvers einstaklings í landinu nemi
27 þúsund krónum vegna jólanna
og menn geta deilt um hvort það
sé mikið eða litið. Hver verður að
líta í eigin barm en gleymum því
aldrei að jólin eru bara einu sinni
á ári.
Siguröur Jónsson,
framkvæmdastjóri
Kaupmannasam-
takanna.
Kærleikur og
verðmiðar
Viðskipti eru mjög mikUvæg og
sömuleiðis frelsi einstaklingsins
tU orðs og æðis, þar með kaupæð-
is. GrundvaUarafstaða min er sú
að hverjum og
einum sé frjálst
að fagna jólum
með þeim hætti
sem hann eða
hún telur best-
an. Hins vegar
er það líklegt að
fólk sé almennt
að róa á röng
mið þegar það Jóns»on, sóknar-
leitar hamingj- pr«“*r ■'Nes»kn.
unnar. Hún
felst ekki í veraldargæðum heldur
í hlutum sem kosta ekki neitt. Það
er fagur siður að gleðja aðra og
þar skiptir hugurinn mestu og
kærleikurinn en ekki verðmiöar.
Það er skiljanlegt að kaupmenn
vilji sem mesta veltu, þaö er eðli
viðskiptalífsins. En í öUu valfrels-
inu reynir mest á siðvit einstak-
lingsins og styrk tU að meta það
rétt sem máli skiptir. Þær upp-
hæðir sem nefndar eru fyrir þessi
jól og reiknað með að fólk eyði í
jólin eru mjög háar og margir fara
eflaust yfir strikið í eyðslu. Það er
von mín að sem fæstir bíði tjón á
sálu sinni í jólaundirbúningnum
því jólin snúast um önnur gUdi.
-EIR
Kjallarahöfundar
Athygli kjaUarahöfunda er
vakin á þvi að ekki er tekiö viö
greinum í blaðiö nema þær ber-
ist í stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu. DV áskilur
sér rétt tU að birta aðsent efni á
stafrænu formi og í gagnabönk-
um.
Netfang ritstjórnar er:
dvritst@ff.is