Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 Fréttir Rafveitur Hveragerðis seldar Rarik eftir átakafund i bæjarstjóm: Fundurinn kærður Hörð átök urðu á fundi bæjar- stjórnar Hveragerðis í gærkvöld þar sem fjallað var um sölu á dreifikerfi rafveitu Hveragerðis. Lyktir fundarins, sem stóð í tæp- ar fjórar klukkustundir, urðu þær að samþykkt var að ganga að til- boði Rarik upp á 215 milljónir króna. Sala dreifikerfisins til Rarik var samþykkt með atkvæð- um bæjarfulltrúa meirihlutans og Samfylkingar gegn atkvæðum Knúts Bruun og Árna Magnús- sonar. Knútur Bruun bæjarfull- trúi hefur kært fundinn til félags- málaráðuneytis. Forkastanlegt „Þetta eru alveg forkastanleg vinnubrögð," sagði Knútur í við- tali við DV í gærkvöld. „Ég kærði að fundurinn skyldi vera lokaöur, þar sem fjallað er um eitt stærsta hagsmunamál sveitarfélagsins í langan tíma. Síðan er fundargerð- inni dreift m.a. til fjölmiðla. Það liggja fyrir tilboð sem virðast hag- stæðari en það sem tekið var, en það var ekki einu sinni hlustað á þau. Það er með ólíkindum að fólki skuli detta þetta í hug.“ Bæjarstjórnarfundurinn um sölu rafveitunnar stóö í tæpa fjóra klukkutíma. Á myndinni eru m.a. Hálfdán Kristjánsson bæjarstjóri og Gísli Páll Pálsson forseti bæjarstjórnar. DV-mynd Eva Eins og DV hefur greint frá buðu þrír aðilar í dreifikerfi raf- veitunnar, Orkuveita Reykjavík- ur, Seifossveitur og Hitaveita Suð- urnesja. Rarik var síðan heimilað að taka þátt, eftir að tilboð höfðu verið opnuð. Á fundinum lagði Árni Magnússon, fulltrúi Fram- sóknarflokks, fram bréf frá Orku- veitu Reykjavikur og Selfossveit- um þar sem fyrirtækin hækkuðu sin tilboð upp fyrir tilboð Rarik, að sögn Knúts. Hann lagði til að ákvörðun um sölu yrði frestað í ljósi nýrra upplýsinga. Knútur sagði að meirihlutinn hefði neitað að taka þessar upplýsingar til greina. Knútur sagði að ef samið hefði verið við Orkuveitu Reykjavíkur eða Hitaveitu Suðumesja hefði það líklega þýtt lækkun á orku- verði til almennings. Salan til Rarik þýddi hins vegar 6 prósenta hækkun á orkuverði í áfóngum. Meirihlutinn hefði lagt fram flókna útreikninga á tilboðunum með sólarhrings fyrirvara sem segði sitt um vinnubrögðin. -JSS Prestadeilan í Önundarfirði: Séra Gunnar á að jarða mig Áslaugu og Kristjáni þótti mikið til þess koma að hitta Grýlu sjálfa á kynn- ingarfundi Menningarársins 2000 í Laugardalnum í gær (sjá umfjöilun á bis. 25). Grýla hafði Leppalúða með sér en synir þeirra hjóna hafa enn ekki feng- ið útivistarleyfi í byggð. Á blaðamannafundinum kom fram að tugir þúsunda um land allt taka þátt í menningarviðburðum ársins. DV-mynd Teitur Eldur í þurrkara Slökkvilið Reykjavíkur var kallað út til að ráða niðurlögum elds sem kviknað hafði út frá þurrkara í gær- kvöldi við Stífluseli í Reykjavík. Tölu- verður reykur varð af völdum eldsins og tók rúman hálftíma að reykræsta húsnæðið. Þá kviknaði í vinnuskúr við Miðhraun í Hafnarfirði um hálf tvö i nótt. Þegar Slökkviliðið í Hafnar- firði kom á vettvang var lögreglan á staðnum en það tók tæpa klukku- stund að ráða niðurlögum eldsins. Snemma í morgun barst tilkynning til Slökkviliðsins um að reykskynjari hefði farið í gang í Þingholtsstræti. Þegar komið var á staðinn var engin brunalykt í íbúðinni en samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu er talið að þjófavöm hafi farið af stað. -hól DV; Flateyri: „Ég hef bara ekkert undan hon- um að kvarta, nema síður væri,“ sagði Þórður Jónsson, eigandi veitingastaðar- ins Vagnsins á Flateyri, um séra Gunnar Björnsson í Holti og þær deilur sem geisa I sókninni. Hann segir að preststörf séra Gunnars hafi síður en svo plagað sig. Þórð- ur vagnstjóri fer í kirkju hjá Gunnari í hvert skipti sem hann messar og hefur meira að segja pantað hann til að jarða sig þegar þar að kemur. „Þetta er maður sem hugsar vel um söfnuðinn, hann gerir það. Hann er boðinn og búinn og alltaf til staðar ef eitthvað bjátar á. Hann er nú ekki verr liðinn en það að hann er umdæmisstjóri Lions á Vestfjörðum. Þá er ég bú- inn að panta hann til að lesa yfir mér þegar ég dey,“ sagði Þórður. „Ég hef heldur ekkert slæmt af Lára Thorarensen og Þórður Jóns- son á Vagninum þykir vænt um sr. Gunnar Björnsson. DV-mynd Hilmar Þór. honum að segja,“ sagði Lára Thorarensen, eiginkoria Þórðar. Hann hefur hjálpað okkur mikið þegar við höfum þurft að leita til hans. Mér þykir vænt um Gunnar Björnsson, hann er vinur minn.“ -HKr. Ráöuneytisstjóri vísar fullyröingum Guðmundar Bjarnasonar á bug: Við seldum ekki Hól „Ég veit ekki um neina embættis- menn í ráðuneytinu sem komu að þessu máli á þessu tímabili, 1. janú- ar til 11. maí. Og mér þætti gaman að vita hverjir það væru,“ segir Bjöm Sigurbjömsson, ráðuneytis- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, vegna fullyrðinga Guðmundar Bjarnasonar, fyrrverandi landbún- aðarráðherra, í útvarpsviðtölum um að embættismenn í ráðuneyt- inu hefðu undirbúið umdeilda sölu á eyðijörðinni Hóli í Fljótsdals- hreppi. „Enginn sem ég hef spurt segist hafa komið nálægt því, það gæti í mesta lagi verið að ritari hefði véíritað afsalið," segir Björn. Guðmundur fól Jón Höskulds- syni lögmanni, sem er fyrrverandi starfsmaður jarðadeildar landbún- aðarráðuneytsins, að sjá um sölu nokkurra jarða fyrir hönd ráðu- neytisins og var Hóll þar á meðal. Þá höfðu leigjendur Hóls meðal annars beitt fyrir sig Jóni Krist- jánssyni, alþingismanni Framsókn- arflokks af Austurlandi, til að freista þess að knýja kaupin í gegn. Hóll var síðan seldur 11. maí sl. með undirskrift Guðmundar Bjamasonar. Hólshjónum fannst verðið hátt Björn ítrekar það sem hann sagði í samtali við DV 19. október sl. að starfsmönnum ráðuneytisins hafi ekki oröið ljóst fyrr en í ágúst að Hóll hafi verið seldur enda hafi skjöl þess efnis ekki borist ráðu- neytinu frá Jóni Höskuldssyni fyrr en seint í júlí. Fram kom í Degi í gær að 29. júlí sl. hefði blaðamanni þar ver- ið sendur listi sem ná átti yfír allar seldar jarðir á vegum ráðuneytisins, allt aftur til ársins 1993, en Hóll var ekki á þeim lista þótt jörðin hefði veriö seld rúmum tveimur og hálfum mánuði áður. Hjónin á Egilsstöðum, sem höfðu haft Hól á leigu frá árinu 1984 og nýtt sem sumardvalar- stað frá árinu 1986 er þau bragöu búi á Hóli, höfðu um nokkurra ára skeið falast eftir jörðinni til kaups. Fleiri áhugasam- ir kaupendur voru reyndar í sveit- inni í kring en þeim gafst ekki kostur á að bjóða í jörðina. Nokkurt þref mun hafa staðið um kaupverð sem Hólshjónunum mun hafa þótt nokkuð hátt en að endingu var samið um að það skyldi verða tæpar 1.700 þúsund krón- ur. Til frádráttar kæmi leiga aftur til ársins 1993. Leigan nam 48 þús- und krónum á ári og því hafa tæplega 300 þúsund krónur komið til frá- dráttar ákveðnu kaup- verði og hjónin því greitt rúmar 1.400 þúsund krónur fyrir jörðina. -GAR Björn Sigurbjörns- son: „Gæti í mesta lagi verið að ritari hefði vélritað afsal- ið.“ Stuttar fréttir r>v Norsk Hydro hopar „Ég vil ekki, og Norsk Hydro ekki heldur, taka þá áhættu sem af því hlýst að fara að draga málið og þar af leiðandi verði ekkert af verk- efninu," sagði Finnur Ingólfs- son iönaðarráð- herra við Dag um yfirlýsinguna sem Norsk Hydro sendi frá sér í kjölfar um- mæla upplýsingafulltrúa Norsk Hydro eftir fundi með WWF um að fyrirtækið hefði ekkert á móti lögformlegu umhverfismati tæki Alþingi íslendinga ákvörðun um slíkt. Dagur sagði frá. Loksins, loksins íslendingur datt í lukkupottinn í gærkvöld og var með 6 réttar töl- ur í Víkingalottói og fær fyrsta vinning óskiptan, rúmar 39 millj- ónir króna. Vinningstölurnar voru: 7-13 - 20 - 21-30 - 33. Mið- inn var keyptur í Hafnarfírði. Vísir.is sagði frá. 7000 á biðlistum AIls voru 6.988 sjúklingar á biðlistum sjúkrastofhana landsins í október síðastliðnum samanbor- ið við 6.666 á sama tíma í október 1997, að því er segir í greinargerð landlæknisembættisins. Mbl. sagði frá. Varðhaid til 15. mars Tveir karlmenn, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsókn- ar stóra fíkniefnamálsins, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. mars í Hér- aðsdómi Reykjavikur í gær að kröfu lögreglunnar í Reykjavík. Báðir undu úrskurði dómara. Mbl. sagði frá. Gefur miiljón Jón Kristinsson hefur gefið eina milljón króna til væntanlegs menningarhúss á Akureyri. Jón vill að gjöfm verði nýtt til að standa undir kostnaði við lokafrágang leik- hússins (menn- ingarhússins) og kemur til greiöslu þegar innrétt- ing byggingarinnar er hafin. Jón er faðir leikaranna Arnars og Helgu. Dagur sagði frá. Uppsagnir Nóa-Síríusar Öllu starfsfólki framleiðslu- deildar Nóa-Síríusar á Akureyri hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða átta manns. Svavar Hannesson framleiðslustjóri segir aö í kjölfar þessara uppsagna stefni í að framleiðslu á vegum fyrirtækisins verði hætt í bæn- um. Danskur kaupandi lakkrís- framleiðslu Nóa-Síríusar sagði samningum við fyrirtækið upp í vikunni. Mbl. sagði frá. Sýknaður af hestadauða Maður hefur verið sýknaður af ákæru ríkissaksóknara í Héraðs- dómi Austurlands um brot á lög- um um dýravernd og útflutning hrossa með því að hafa vanrækt eftirlit með níu hestum sem hann fylgdi um borð í ferjuna Norrænu við flutning þeirra frá Seyðisfirði til Danmerkur. Mbl. sagði frá. Ókeypis á Netið Tæplega 1.600 manns höfðu skráð sig fyrir ókeypis netaðgangi hjá Íslandssíma og íslandsbanka laust fyrir klukkan níu í gær- kvöld en tilkynnt var um tilboðið rúmum sex tímum fyrr. Mbl. sagöi frá. Landssíminn í slaginn Ólafur Stephensen, talsmaður Landssímans, segir að sam- starfsviðræöur hafi veriö í gangi við ýmis fyrir- tæki um svipaða lausn og þá sem Islandssími og íslandsbanki bjóða nú upp á, og segir að vænta megi fregna af þeim fljót- lega. Mbl. sagði frá. -GAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.