Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 9 Utlönd Allt að tólf fórust í lestarslysi í Ástralíu í morgun: Fremsti vagninn eins og upprifin sardínudós upprifin sardínudós eða Coca Cola dós,“ sagði Jackie Kelly, ráðherra íþrótta- og ferðamála, Farþegar úr Sydney-lestinni sögðu að lestarstjórinn hefði hlaupið úr stjórnklefanum ör- skömmu fyrir slysið og fyrirskip- að farþegunum að leggjast niður. Að sögn lögreglunnar voru allir hinna látnu í síðari lestinni. Farþegar lestarinnar sem var á leið miiii stranda sögðu að starfs- menn hennar hefðu greint frá bil- unum í merkjakerfi á brautartein- unum örfáum sekúndum áður en slysið varð. Meðal þeirra sem lifðu af slysið í morgun var maður að nafni Christian Dupressoir. Hann lifði einnig af mannskæðasta lestarslys í sögu Ástralíu, þegar áttatíu og þrír fórust þegar lest ók á brú í vesturhluta Sydney árið 1977. Óttast er að allt að tólf manns hafi farist þegar tvær farþega- lestir rákust saman í úthverfi Sydney í Ástralíu í morgun. Slys- ið gerðist við rætur Bláfjalla, á mesta annatíma í morgun. Sextíu og fimm farþegar að minnsta kosti slösuðust. „Það verður mikil sorg hjá tiu til tólf fjölskyldum i Nýja Suður- Wales,“ sagði Bob Carr, forsætis- ráðherra fylkisins, við frétta- menn þegar hann hafði skoðað sig um á slysstaðnum. Slysið varð með þeim hætti að lest á leið inn til Sydney, full af skólabörnum og skrifstofufólki, ók aftan á lest sem var á leið þvert yfir Ástralíu á sama spori en fór mun hægar. Fremstu vagn- ar lestarinnar þeyttust út af spor- inu. Björgunarmenn virða fyrir sér flök tveggja lesta eftir árekstur þeirra í útjaðri „Fremsti vagninn er eins og Sydney í Ástralíu í morgun. Allt að tólf farþegar fórust í slysinu. Horta heim úr útlegðinni Þúsundir fögnuðu er Nóbels- verðlaunahafinn Jose Ramos- Horta kom til A-Tímor í gær úr 24 ára útlegð. Horta flúði frá eyjunni nokkrum dögum áður en Indónes- ar hertóku hana 1974. 1 ávarpi til landa sinna í gær sagði Horta að raunverulegu hetjurnar væru þeir sem hefðu verið um kyrrt og orðið að þola þjáningar. Búist er við að frelsisleiðtoginn Xanana Gusmao verði forseti Austur-Tímor og Horta utanríkis- ráðherra. Báðir hittu þeir Abd- urrah Wahid, forseta Indónesíu, í fyrradag. Líkin við Juarez af fórnarlömbum innbyrðis átaka Bandariskir og mexikóskir lag- anna verðir hafa nú fundið sex lík í einni gröf nærri borginni Juarez í Mexíkó, hinum megin Rio Grande árinnar frá E1 Paso í Texas. Líkin fundust á búgarði nokkrum þar sem grunur leikur á að fíkniefnabarónar hafi grafið tugi fórnarlamba sinna. Leitað er að líkum á fjórum stöð- um við Juarez, þriggja milljóna manna borg þar sem glæpir og of- beldi tröllríða öllu. Að sögn blaða í borginni voru fórnarlömbin í fjölda- gröfunum drepin fyrir tveimur ár- um, í innbyrðis átökum fikniefna- smyglara, eftir dauða foringja klíkunnar sem kennd er við Juarez. Sá lést eftir misheppnaða skurðað- gerð hjá lýtalækni. Bandarískir embættismenn segja að grafafundurinn sýni að þörf sé á samstarfi ríkjanna i baráttunni gegn fíkniefnasmyglurum. Schröder ekki ánægður með svör Kohls Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er meðal þeirra sem sætta sig ekki við útskýringar Helmuts Kohls, fyrrverandi Þýska- landskanslara, á leynireikningum flokks síns, kristilegra demókrata. Segir Schröder nauðsynlegt að leggja staðreyndimar á borðið. Þingnefnd, sem mynda á í dag, verði að komast að því um hversu mikil framlög á leynireikningana hafi verið að ræða og hvaðan þau hafi komið. Kohl tók á sig í fyrradag ábyrgð á leynireikningum flokks síns. Hann lagði hins vegar áherslu á að kristi- legir demókratar hefðu aldrei verið til sölu. erum Selmúlomegin] imperial ctvgzjo Nicam stereo, ísl. textavarp, Black Matrix myndlampi, 2 Euro Scarttengi, S-VHS inngangur, Fullkomin fjarstýring, Sjálfvirk stöövaleitun, Stórir hljómmiklir hátalarar að framan, Allar aðgerðir á skjá, Heyrnatólatengi. Armúla 38 • Síml 5531133 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT: Reykjavflc: Heimskringlan - Hafnarflörður Rafbúð Skúla - Gnndavflc: Rafborg - KeflavflcSónar - Akranes: Hljómsýn - Borgames:Kaupfélag Borgfirðinga Hellissandun Blómsturvellir - Stykkishólmun Skipavík - Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar - Sauöárkrókun Skagfirðingabúð Búflardalur Verslun Einars Stefánssonar - (safjörBun Frummynd - SigluQörðun Rafbær - Akureyri: Ljósgjafinn - Húsavik: Ómur Vopnafjörður Verslunin Kauptún - Egilsstaðin Rafeind Neskaupsstaðun Tónspil Eskifjörður. Rafvirkinn - Seyðisfjörður: Turnbræður - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þorlákshöfn: Rás - Vestmannaeyjan Eyjaradló

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.