Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 13 Á Fljótsdalsvirkjun- ar-, Erfðagreiningar- og Fjárfestingarbankaár- inu mikla hefur orðið vart við mikinn áhuga á löngu dauðu skáldi að nafni Jónas Hallgríms- son. Nú á haustmánuð- um eru komnar út þrjár bækur þar sem glímt er við Jónas. Fræðimaður og heimspekingur í ævisögu Jónasar eftir Pál Valsson er ýmsum goðsögnum um Jónas hafnað. Jónas var ekki próflaus held- ur fullgildur fræðimað- ur. Jónas drakk sig ekki í hel heldur stafaði dauði hans af volki í íslandsför. Jónas var ekki höfuðandstæðingur Jóns Sig- urðssonar. Jónas dó ekki þrotinn af lifsþrótti, andagift eða verkefn- um. - í stuttu máli var Jónas ekki aumingi og líf hans enginn harmleikur. Svava Jakobsdóttir nálgast Jónas sem fagurfræðing og heim- speking. Meginhugmynd hennar í bókinni Skyggnst á bak við ský er að Jónas hafl ætlað að skapa nýja fagurfræði úr bæði gömlu og nýju og kalla megi hann kenn- ara skálda. Hún tekst á við dýpt- ina og margræðnina i verkum Jónasar og telur að í Ferðalokum þættist saman ævi skáldsins, helstu verk og hugmyndir hans um veruleikann og Guð. Svava horfir i texta skáldsins og hvers kyns hliðstæður við hann, Páll á lífshlaupiö. Niður- staðan er þó gletti- lega hliðstæð. Sá Jónas sem Svava lýsir er fræðimaður og heimspekingur sem vinnur kvæði sín af nákvæmni og vandvirkni. Hvert orð er hlað- ið merkingu. Skáldskapur Hans er erfið vinna. Jónas er ekki ónytjungur eða iðjuleysingi og þaðan af síður þunglyndur eða með æskuástir á heilanum. Draumóramaður Sveinn Yngvi Egilsson skoðar Jónas í bókinni Arfur og umbylt- ing sem hlekk í keðju róman- tískra skálda sem sóttu kraft til nýsköpunar í fortíðina. Hann horfir sérstaklega á hvernig Jónas sækir orku í ýmis gömul form, hvort sem eru bragarhættir eða bókmennta- greinar. Myndin af hinum hugs- andi og vinn- andi Jónasi verður enn skýr- ari. Nýr og flóknari Jónas Hallgrímsson er að verða til. Jónas var þjóðskáld. Hann var maðurinn sem vOdi endurreisa alþingi á Þingvöllum. Fyrir það var hann hylltur en varð um leið óhjákvæmilega að draumóra- manni. Jarðfræðingi án jarðsam- bands, manni sem sveif á skýi yfir samtíma sínum. Nú hafa fræðimennirnir kippt Jónasi nið- ur á jörðina og sett hann í sam- hengi bæði við tíðarandann og hefðina sem mótaði hann. Það Kjallarinn Jakobsson islenskufræðingur „Nú hafa íslendingar veríð sjálf- stæð þjóð í rúma hálfa öld. Því sjálfstæði hefur fylgt vaxandi sjálfstraust og síminnkandi þörf fyrir píslarvotta. í tíðaranda nú- tímans eiga mislukkuð skáld sem dóu ung hvergi heima.“ Auðnuleysingi deyr Jónas Hallgrímsson skáld. - Harmrænn dauði hans var rökrétt afleiðing harmræns lífs, segir greinarhöfundur m.a. merkir ekki að skáldskapur hans missi dýptina, eins og sést í 200 síðna ritgerð Svövu um Ferða- lok. Líka misheppnaður Jónas var líka misheppnaður. Þó að hann væri hylltur var ævi hans skilin sem harmleikur. Harmrænn dauði hans var rökrétt afleiðing harmræns lifs. Hann var ógiftur og drykkfelldur, alþingi var ekki endurreist á Þingvöllum og Islandslýsing hans kom aldrei út. Jónas varð því píslarvottur þjóðernisbaráttunnar, að vísu ekki skotinn af Dönum heldur drepinn af dönskum stiga en þó sýndu örlög hans að sjálfstæði ís- lands kostaði fómir. Nú hafa íslendingar verið sjálf- stæð þjóð i rúma hálfa öld. Því sjálfstæði hefur fylgt vaxandi sjálfstraust og síminnkandi þörf fyrir píslarvotta. í tíðaranda nú- tímans eiga mislukkuð skáld sem dóu ung hvergi heima. Og niður- stöður fræðimannanna gefa einmitt allt aðra mynd: Jónas var hugsandi skáld sem vann i stað þess að bíða eftir innblæstri. Hann var vísindamaður i fremstu röð og mikils metinn af þjóðmálastarfi sínu þó að hann væri líka um- deHdur. - Auðnuleysinginn Jónas Hallgrímsson er dáinn. Við höfum eignast nýjan Jónas; vonandi tek- ur þjóðin ástfóstri við hann líka. Ármann Jakobsson Þjóðgarður norðan Vatnajökuls Ef virkjað verður norðan Vatnajökuls verða það ragnarrök stærsta ósnortna íslenska víðern- isins og reyndar allrar Evrópu og að eHífu óafturkræfar há- lendisperlur. En það er ekki það eina illa sem af gerð þeirri hlýst. Þaö er verið að taka áhættu með afkomu allrar þjóðarinnar til langs tíma litið fyrir stundar- hagsmuni fárra. Á mörkum hins efnahagslega sjálfstæöis Að sjálfsögðu vU ég að Aust- firðingum sé hjálpað og að þeim verði ekki meinað að bjarga sér eins og Vesfirðingum, en fyrr má nú vera. Það er stundum eins og íslendingar hafi ekki hundsvit á peningamálum og lifi bara fyrir líðandi stund. Vita menn ekki að ísland er á mörkum þess að halda efnahagslegu sjálfstæði og samt á að taka hundrað, já jafn- vel tvö hundruð milljarða lán hjá erlendum bönkum og innlendu lífeyrissjóðunum tU að virkja og byggja stóriðju sem fá skynsam- leg rök eru fyrir. Þetta hafa ráð- herrar ríkis- stjórnarinnar forðast að skýra fyrir þjóðinni og notað þess í stað ómældan tima og peninga tU að ófrægja það fólk sem vinnur fórnfúst starf tU vamar landi og þjóð. Auk þessa eru stjórnvöld að draga athygli frá þeim þætti fiskveiðistefnunn- ar sem aðaUega hrekur fólk úr hinum dreifðu byggðum. í pókerspil með lífeyrissjóöina Virkjunin er sú ógnarstærð að jafnvel tugmiUjóna þjóðir þyrftu að hugsa sig rækilega um. Norð- menn settu stóriðju á Austur- landi í arðsemismat og hættu við en tóku svo upp þráðinn þegar ís- lensk stjórnvöld buðust til að ljármagna dæmið. ÞvUík rausn, þvilík heimska. Þau háttvirtu sem þessum klafa koma á þjóð- ina mimu ekki lækka í launum né lífeyri. En það verð- ur ekki svo um venjulegan líeyris- þega þegar sjóðimir eru horfnir. Sér fólk virkilega ekki hættuna? Sér það ekki hvað erind- rekar ríkistjórnar- innar eru blindir eða visvitandi sjón- skertir í allri sjálf- umgleðinni og ör- uggir um að komast upp með nánast hvaða vitleysu sem er. Sér fólk ekki að valdhafarnir eru að fara í pókerspil með lífeyrissjóðina og gera þá að líkindum gjaldþrota? Að í bjartsýnisfyUiríinu sýna valdhafarnir enga viðleitni tU að stemma stigu við ofurþenslu þeirri sem nú stefnir þjóðarbú- inu í þrot. Veit fólk að þjóðfélags- hópar, t.d. iðnaðarmenn, voru þjakaðir af atvinnuleysi en eru það nú í vinnuálagi og að Uytja þurfti inn erlenda menn tU að viðhalda þenslunni? Eftir höfði, sem ekkert virðist skUja, dansa limirnir. Hugsa ekki, bara böðlast Fólk hlýtur að sjá hvað lítið er byggt í kringum fiskiðnað eða aðra þá starfsemi sem raunverulega heldur þjóðinni uppi og að öðru máli gegnir um verslim- arhahimar. Veit al- menningur hvaðan sá undarlega mikli auður kemur? Hefur fólki komið til hugar að þar sé mikið af þeim mUljörðum sem horfnir eru úr sjávarútvegi? Þeirra valdhafa sem komast upp með slíkt kæru- leysi 1 öryggismál- um sem íhaldsstjórn Davíðs Oddssonar virðist ætla að gera með því að neita lög- formlegu umhverfis- mati norðan Vatnajökuls verður minnst sem meistara sjónhverf- inga, enda ofríki þeirra og blekk- ingar á heimsmælikvarða. í því máli vUja valdsmenn um- fram aUt ekki hugsa, bara böðl- ast. Þeir sem treysta á lífeyris- sjóðina þegar aldurinn segir til sín ættu að athuga sinn gang því valdhafamir eru og verða að grípa til örþrifaráða ætli þeir að ganga í ábyrgð fyrir Norðmenn og fjármagna í leiðinni svo ógn- vænlega að skuldafangelsi bíði þjóðarinnar. íslendingar skulda erlendum þjóðum nú þegar meira en þeir ráða við. Albert Jensen „Sér fólk ekki að valdhafarnir eru að fara i pókerspil með lífeyris- sjóðina og gera þá að líkindum gjaldþrota? Að í bjartsýnisfyllirí- inu sýna valdhafarnir enga við- leitni til að stemma stigu við ofur- þenslu þeirri sem nú stefnir þjóð- arbúinu íþrot.“ Kjallarinn Albert Jensen trésmiður Með og á móti Sala ríkisbanka og þensluáhrif Ríkisstjórnin mun leggja frumvarp um sölu 15% af hlut ríkisins í Landsbanka og Búnaöarbanka fyrir Alþingi. Með sölunni, sem fram á að fara fyrir ára- mót, er áætlað að ríkissjóður fái sex milljarða króna í sinn hlut. Með söl- unni vill ríkisstjórnin m.a. hvetja til aukins sparnaðar heimilanna og þar með slá á þenslu í þjóðarbúskapnum. Dregur úr þenslu „Ég er fylgjandi því að ríkið selji hluta af hlut sínum i Lands- banka og Búnaðarbanka. Það er í samræmi við stjómarsátt- málann og ástæða til að stíga skref á þeirri braut sem mun stuðla að hagræðingu í bankakerfinu. Það er full þörf á því enda er bankakerfið dýrt og við- skiptavinir bankanna gjalda þess með hærra vaxtastigi en annars væri. í öðru lagi dregur salan úr þenslunni þar sem 5-6 mUljarðar króna, sem annars færu i útgjöld af öðru tagi, að öUum líkindum neyslu, renna í ríkissjóð. í þriðja lagi er, samkvæmt ákvæðum stjómarsáttmálans um að verja hluta af hagnaði af sölu bank- anna tU byggðamála eins og sam- gönguverkefna og verkefna á sviði fjarskiptatækni, verið að afla tekna til að standa undir stefnu ríkisstjórnarinnar á þeim sviðum.“ Dregur ekki úr þenslu „Það er skynsamlegt út af fyrir sig að flytja rekstur frá ríkinu til einkaaðUa en það hefur ekki áhrif á þenslu. Dregið er úr þenslu með vaxtahækkun- um og aðgerð- um á sviði rík- isfjármála. Ef ríkiseignir eru seldar á sann- virði skiptir eign einfaldlega um eigendur og ef verðið er of hátt er það eins og aukin skatt- lagning og dregur úr þenslu. En ef ríkiseignir eru seldar undir sannvirði þannig að kaupendur hagnast verður meira fjármagn í umferð. Þegar hlutir í bönkunum voru seldir síðast skráðu fjöl- margir einstaklingar sig fyrir kaupunum. Eftir fáar vikur hafði stór hluti þeirra selt sinn hlut. Það var ekki til að draga úr þenslu. Fyrirhuguð sala nú hvet- ur ekki tU aukins sparnaðar heimilanna. Ég spái að bankarnir muni bjóða fólki lán til kaupanna. Það verður ekki búinn til nýr sparnaður frekar en síðast og samdráttaráhrif á þenslu verða engin. En ríkisstjórnin er að búa sér tU afsökun, þykist geta sagt að nú hafi hún gert sitt til að draga úr þenslu.“ -hlh Kjallarahöfundar Athygli kjaUarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist í stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskilur sér rétt tU að birta aðsent efni á stafrænu formi og í gagnabönk- um. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is Sighvatur Björg- vinsson alþingis- maður. Kristinn H. Gunn- arsson alþingis- maður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.