Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Page 17
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 íennmg Eitthvað fyrir alla á viðamikilli dagskrá Reykjavíkur menningarborgar: í gœr var kynnt á blaðamanna- fundi dagskrá menningarársins 2000 og er þá lokið fimm ára und- irbúningsferli sem hófst þegar rík- isstjórn íslands og Reykjavíkur- borg tóku höndum saman árið 1994 um að sœkjast eftir hinum eft- irsótta titli „menningarborg Evr- ópu“ höfuðborg íslands til handa. Undir yfirskriftina „menning og náttúra" hafa nú raðað sér um 250 fjölbreyttir viðburóir sem þúsundir manna hafa mótað og munu taka þátt í á nœsta ári. Myndarleg bók meó dagskránni verður borin í öll hús á landinu milli jóla og nýárs, enda leggur menningarnefndin áherslu á að menningarárið sé allra landsmanna, ekki aðeins í Reykjavík. Hluti af myndverki Sigurðar Árna Sigurðssonar. Það sýnir í heild grænt tré með níu skálum sem tákna menningarborgirnar níu árið 2000: Reykjavík, Avignon, Bergen, Bologna, Brussel, Helsinki, Kraká, Prag og Santiago de Compostela. 2000 Á bak við verkefni menningar- ársins, sem hefst formlega 29. janú- ar 2000, stendur breið fylking allra helstu menningarstofnana lands- ins, skóla og menntastofnana, sjálf- stæðra hópa og samtaka, félaga og einstaklinga. Sveitarfélög víðs veg- ar um land hafa einnig gengið til samstarfs við borgina. í gær var opnuð upplýsingaveita Menningar- borgarinnar í Kringlunni og einnig er hægt að kynna sér dagskrána á vefnum www.reykjavik2000.is. í Kringlunni verður viðburðamið- stöð menningarársins þar sem dag- skráin verður kynnt vikulega frá 22. janúar 2000. Raddir Evrópu Árið hefst með hátíðarveislu á gamlárskvöld i Perlunni sem sjón- varpað verður um heims- *W byggðina og tekur Reykjavik þá við titlin- jT um „Menningarborg Evr- ' ópu“. Meðal þeirra sem koma fram um kvöldið eru Kristján Jóhannsson og Björk sem syngur með Röddum Evrópu, kór 90 ungmenna frá öllum menningarborgunum níu undir stjórn Þorgerðar Ing- ólfsdóttur. Raddir Evrópu eru eitt viðamesta samstarfsverkefni menningarborganna og er því stýrt héðan frá íslandi. Raddir Evrópu verða með aðaltónleika sína 26. og 27. ágúst í Hallgríms- kirkju. Formlega verður menningarárið opn- að 29. janúar með veislu um alla borg. Meðal þess fjölmarga sem verður i boði eru tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu, upphaf viðamikillar þrískiptrar tónskáldahátíðar og opnun ís- lenskrar kvikmyndahátíðar í Há- skólabíói. Víða verður opið hús þennan mikla dag, meðal annars í Þjóðleikhúsinu, þar sem haldið verður uppboð á leikbúningum. Eitthvað fyrir alla Hér verður að nægja að stikla á stóru í viðburðum ársins rétt til CV. að kæta geðið í skamm- ^^^deginu. Fyrstu tónleikar árs- % ins undir heitinu íslenska ein- söngslagið verða 6. febrúar i Gerðubergi. Kristján Jóhannsson syngur í Aidu eftir Verdi með Sin- fóníuhljómsveit Islands 10. febrúar 'í Laugardalshöll. 11. febr. frumsýn- ir íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Jochen Ulrich, Diag- hilev, í Borgarleikhúsinu. Bók- menntadagskráin 2000 orð yfir Reykjavík verður á degi bókarinn- ar 23. apríl í Borgarleikhúsinu, undir stjóm Péturs Gunnarssonar. Sinfóníuhljómsveit Islands flytur Requiem eftir Verdi 14. april í Há- skólabíói. Meðal einsöngvara verð- ur Kristján Jóhannsson. Caput frumflytur ný verk eftir islensk tónskáld í maí og október. Annar hluti tónlistarhátiðarinnar íslensk tónlist á 20. öld verður 20. maí og sá þriðji í október. Norræna bama- kóramótið Þúsund böm verður í Laugardalshöll, Hallgrimskirkju og víðar 31. maí til 4. júní. Brúðu- leikritið Prinsessan í hörpunni verður framsýnt 6. júní af Ferða- leikhúsinu. Leiklistarhátíðir verða á Akureyri á vegum Bandalags ís- lenskra leikfélaga 21.-25. júní og í Reykjavík á vegum Bandalags at- vinnuleikhópa í september og október. Þar verða sýnd sex ný ís- lensk verk sem öll fjalla um sögu íslands frá öndverðu til okkar tíma. Kristnihátíð verður á Þingvöll- um 1.-2. júlí og í október verður frumflutt ópera eftir Atla Heimi Sveinsson sem sam- in er í tilefni af 1000 ára kristni í land- mu. 4.-9. júlí verð- ur Landsmót 2000 haldið á Víöi- völlum í Víðidal. Þetta er í fyrsta skipti sem alþjóðlegt hesta- mannamót er haldið í Reykjavík en einnig verður þetta skemmtun fyrir alla fjölskylduna. 11. -13. ágúst verður Fut- urice haldið i Laugardalslaug og á fleiri óvæntmn stöðum! Þetta er fjöllistaviðburður sem á að koma Reykjavík inn á hið alþjóðlega tískukort. Meðal annars munu Björk, Gus Gus og Móa koma fram og alþjóðlegir hönnuðir sýna sköp- unarverk sín. Vindhátíðin 2000 verður 3.-9. september á hafnarsvæðinu og víð- ar með dansi, tónlist og myndlist- argjömingum. Alþjóðleg bók- menntahátíð verður í Norræna húsinu 10.-16. sept. Aldarspegill íslenskrar hönnun- ar verður opnaður á Kjarvalsstöð- um 14. október. Sinfóníuhljómsveit íslands frumflytur nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson 7. desem- ber. Þá eru ótalin atriði sem verða á Listahátíð í maí og júni en í sam- vinnu við menningarborgina, til dæmis Svanavatnið í flutningi San Francisco-ballettflokksins undir stjóm Helga Tómassonar 26.-28. maí, frumsýning Völuspár í Mögu- leikhúsinu 27. maí, leikbrúðusýn- ingin Don Giovanni 3.^4. júní og hátíðartónleikar í Laugardalshöll 8. júní með Sinfóníuhljómsveit ís- lands, Kristjáni Jóhannssyni, Kristni Sigmundssyni, Rannveigu Friðu Bragadóttur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Myndlist Meðal myndlistarsýninga má nefna Jaðar Önnu Lindal í Gall- eríi Sævars Karls (29. jan.), ^^^sýningu Birgis Andréssonar » í Galleríi 8 (29. jan.), Nýtt { upphaf Guðnýjar Magnúsdótt- ur i Listasafni ASÍ (29. jan.), yf- irlitssýningu á verkum Kjarvals á Kjarvalsstöðum (30. jan.), Roni Hom í Listasafni íslands (5. febr.) og Svövu Bjömsdóttur á sama stað í mars. Sýningamar Hvít, Blá og Rauð verða í Nýlistasafninu í mars, maí og október en á þeirri síðastnefndu verða verk Rósku. Þessum sýningum verður fylgt eft- ir með viðburðum af ýmsu tagi. Sýningin Af listmálarafjölskyldu verður í Hafnarborg frá 3. júní en þar verða sýnd verk eftir Louisu Matthíasdóttur, mann hennar, Leland Bell, og dótt- ur þeirra, Temmu Bell, í tilefhi af ný- útkominni veglegri bók um Louisu og feril hennar. Yfirlitssýning Þórarins B. Þorlákssonar verður opnuð í Lista- safni íslands í október og sýning Sigurðar Guðmundssonar á sama stað í nóvember. Nýtt safn á vegum Listasafns Reykjavíkur verður opnað í Hafnar- húsinu við Tryggvagötu 19. apríl með sýningunni ísiensk myndlist á 20. öíd og svokallað Safnahús, Tryggvagötu 15, verður tekið í notk- un 18. ágúst, á afmælisdegi Reykja- vikur. Þar verða til húsa Borgar- bókasafn, Borgarskjalasafn og Ljós- myndasafn Reykjavíkur. Einnig verður Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu opnað 20. april með sýningunni íslands þúsund ljóð á Listahátíð, en þetta hús verður vett- vangur kynningar á íslenskri sögu og menningararfi. Fyrir þá sem meira eru fyrir úti- vist en innisetur verður opnuð ný langþráð baðaðstaða og ylströnd í Nauthólsvík 17. júní. Borgarstjóri mun vígja hana með þvi að stinga sér tO sunds. 25 Duo Clinique eini sinnar tegundar hér á landi. Jafnt lyrir konur og karla. Ótrúlegur árangur eftir einn tíma. Nýtt tækl sem ásamt jurtaefnum gefur náttúrulega cindlitssnyrtingu, fjarlægir hrukkur, fæðingarbletti, ör, ftlapensla og valbrá. Gerður Benediktsd. nuddari kynnir nýja aðferð sem byggist á kínverskri jurtaftæði og norrænni tækni. Meðferðin er sársaukaiaus. Hringið og pantið reynslutíma. Nudd fyrfr heilsuna, Skúlagötu 40, sfml 561 2260. Veitinga- og skemmtistaðurinn Klaustrið Kuipparstíg 26 • Sitni 552 6022 Hljómsveitin Furstamir ásamt Geir Ólafs á Klaustrinu í kvöld. Tónleikar hefjast kl. 22.30. KLAUSTKÍÐ A N N O M C M X C I X V Reykvíkingar Munið borgarstjórnarfundinn ídag kl. 17.00. Fundurinn er öllum opinn. Á dagskrá er m.a. fyrri umræða um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2000. Útvarpað verður á l\lær msammMí Reylqavíkurborg Skrifstofa borgarstjórnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.