Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 28
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 I>'V’ Ummæli Subbuskapur „Þetta er stjómsyslulegur subbuskapur og ég kalla þaö subbuskap þegar menn vinna ekki faglega heldur ráða þröng hag- sjónarmiö ai- mannahagsmun- um.“ Hjálmar Árnason alþingismaður, í gagn- rýni sinni á Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, í Degi. Gaddfreðin einkavæðing „í rauninni em menn hér á tiltölulega gaddfreðinni einka- væöingarbraut og það er óneitanlega athyglisvert að Framsóknarflokknum, hvort sem honum þykir það ljúft eða leitt, er beitt fyrir vagninn I þessum efnum." Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður um væntan- lega sölu á ríkisbönkum, í DV. Fundvísi á ógöngur „Það sem heldur fyrir manni vöku eru íslensk stjóm- mál, þessi ótrú- lega fundvísi á ógöngur.“ Pétur Gunnarsson rithöfundur, í DV. I Innanlandsflug lagt niður? „Ljóst er að forseti borgar- stjómar, Helgi Hjörvar, ætlar að verða maðurinn og póli- tíkusinn sem lagði niður Reykjavíkurflugvöll og þar með innanlandsflug á ís- landi." Pétur Steinþórsson flug- stjóri, í Morgunblaðinu. Deilurnar við prestinn „Það er í lagi frá mínum bæjardyrum séð að séra Gunnari (Björns- syni) hafl þótt ástæða til að geta þess alveg sér- staklega í bréfi sinu til prófasts- ins að ég sé ófermdur. Það er eitt af því mjög fáa í bréfi Gunnars sem er sann- leikanum samkvæmt." Gunnlaugur Finnsson, sókn- arnefndarformaður í Flateyr- arsókn, í DV. Aldrei neinar deilur „Hér hafa aldrei verið deil- ur. Hér er logn og gott veður og við hlökkum til jólanna." Ágústa Ágústsdóttir, eigin- kona séra Gunnars Björns- sonar, í DV. Friðrik Karlsson gítarleikari: Tónlist sem skapar vellíðan innan frá Hinn kunni gítarleikari Friðrik Karlsson, sem býr og starfar í London, hefur meðfram því sem hann starfar með þekktum tónlistar- mönnum í upptökuverum gefið út plötur undir eigin nafni sem inni- halda tónlist sem fellur undir merki nýaldartónlistar. Um þessar mund- ir er þriðja platan í þessum flokki tónlistar hans að koma út og nefnist hún Hugar-Ró. Upphafið að þessari tegund tónlistar frá Friðriki má rekja til þess að hann fór að stunda jóga og hugleiðslu og er það í dag stór þáttur í lífi hans. Friðrik segir tónlist sína á þessum plötum vera andstöðu við tónlist sem hafi örvandi áhrif á okkur: „Sú tónlist sem finna má á Hugar-Ró er tU þess fallin að hjálpa okkur að slaka á eft- ir erUsaman dag eða einfaldlega þeg- ar við þurfum á því að halda. Tón- listin er samin með það fyrir augum að róa hugann því þegar við náum þvi slaknar á líkamanum og veUíð- anin kemur innan frá.“ Friörik segist aUtaf hafa samið melódísk lög og það sé engin undan- tekning á því nú: í þessum geira tón- listar er mikið um að hafa hljómana sem lengsta, aUt upp í hálftíma. Þannig er því ekki farið með mig. Ég nota melódíur tU að ná fram þeim áhrifum sem ég vU að komi fram. Það virðist hafa fallið í kramið því plöturnar hafa selst ágætlega og hef ég verið að selja jafnmikið hér á landi og poppararnir. Ég hef einnig verið að koma plötunum á framfæri erlendis. Ég hef stofnað eigið plötu- fyrirtæki, River of Light Records, og er að markaðssetja plötumar á ýms- um sýningum og nú eru plöturnar komar i eitthvað á mUli sjötíu og áttatiu verslanir í Englandi og ég býst við að eftir svona tvö ár geti ég farið að lifa á þessari tónlist minni." Friðrik kemur annars víða við í tónlistinni þessa dagana: „Ég hef til að mynda verið að gera plötu með píanóleik- ara sem heitir BUl Sharp, plata sem er í svoköUuðum „smooth" djass anda en slík músík gengur mjög vel í Englandi og Bandaríkjunum um þessar mundir. Sú plata var að koma út í Englandi og Bandaríkjunum í síðustu viku og kemur út hér á landi á næsta ári. Svo vinn ég mik- ið í upptökuver- um, leik með ýmsum tónlist- armönnum og inn á bíó- myndir. Stutt er síðan ég lék með Cliff Richard inn lagið MUlenium Prayer, sem er í öðru sæti breska vinsældalistans, og í desember er ég að fara að leika tónlist í bíómynd sem heitir Sleeping Beauty þar sem þær leika að- alhlutverkin Maður dagsins Cher og Emma Thompson." Hugar-Ró er ekki eina platan á jóla- markaðnum sem Frið- rik kemur nálægt. Út er komin plata sem á er aUt það besta frá Mezzof- orte: „Þetta er aldamótaplat- an okkar. Við gerum vonandi eitthvað nýtt á næsta ári. Við erum búnir að vera fullrólegir í tíðinni enda erum við aUir í einhverju öðru.“ Friðrik flutti til London fyrir nokkrum árum og er ánægður þar: „Ég er kominn tU að vera þar, er búinn að kaupa hús og hef það ágætt og á ekki von á því að ég flytji heim.“ -HK Six pack Latino leikur lög af nýrri plötu á Súfistanum. Erótík, matur og tónlist í kvöld verður gælt við skilningarvitin á Súfistan- um, bókakafli í verslun Máls og menning- ar á Laugavegi 18. Þar les Tómas R. Einarsson úr þýð- ingu sinni á Af- ródítu-sögu, upp- skriftir og önnur kynörvandi fyrir- bæri eftir Isabel AUende, og Hafl- gerður Gísladóttir kynnir bók sína, íslensk matarhefö. Að þvi loknu leik- ur hljómsveitin Six pack Latino seiðandi salsa af nýútkomnum geisladiski Skemmtanir sínum, Björt mey og Mambó. Dagskráin hefst kl. 20 og er aðgangur að vanda ókeypis og öllum heimUl meðan húsrúm leyfir. Myndgátan Hælkrókur Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Eitt gluggatjalda Aðalbjargar Er- lendsdóttur í íslenska handverks- húsinu. Máluð silki- gluggatjöld Aðalbjörg Erlendsdóttir (Budda) fatahönnuður heldur sýn- ingu á handmáluðum sUkiglugga- tjöldum í íslenska handverkshús- inu, Lækjargötu 4. Budda sýnir þar gluggatjöld úr ýmsum gerðum af sUki. Gluggatjöldin einkennast af sterkum litum og stórum form- um. Sýningin stendur tU loka des- ember. Sýningar Sjö myndlistarkonur í Sparisióðmim Þessa dagana stendur yfir sýn- ing í Sparisjóðnum, Garðatorgi 1, Garðabæ, á verkum sjö lista- kvenna. Þær heita: Áslaug Davíðs- dóttir, Hrönn VUhelmsdóttir, textUlistamenn, Dröfn Guðmunds- dóttir, Guðný Jónsdóttir, glerlista- menn, Árdís Olgeirsdóttir, Charlotta R. Magnúsdóttir, Sigríð- ur Helga Olgeirsdóttir, leirlista- menn. Þær hafa aUar viðurkennt myndlistamám að baki og hafa tekið þátt í fjölda sýninga. Þær reka ásamt fleii GaUerí Listakot að Laugavegi 70. Sýningin er opin á afgreiðslu- tíma Sparisjóðsins frá-kl. 8.30-16 aUa virka daga og stendur tU 31. desember. Bridge Sveit Samvinnuferða-Landsýnar hefur yfirburði yfir aðrar sveitir í hraðsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur sem nú stendur yfir. Þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið í keppninni er sveit Sam- vinnuferða með 1198 stig (meðal- skor 1008). Langt er i næstu sveitir: Jón Þorvarðarson er með 1135 og Rúnar Einarsson 1101. Sveit Sam- vinnuferða hefur skorað grimmt bæði kvöldin, að meðaltali rúmlega 3 impa í hverju spUi sem er með ólíkindum. SpU dagsins er frá síð- asta spilakvöldi. Hönd vesturs er af því taginu sem sjaldan koma upp, heilir 24 punktar. Þeir sem fengu frið í sögnum fundu samleguna í hjarta og létu flestir staðar numið i fjórum. Sá samningur reyndist hins vegar mörgum ofviða,- enda legan slæm: 4 ÁG105 44 ÁKG5 4 Á6 * ÁDG 4 KD «4 7 4 G98543 * K654 4 843 * D1082 4 K2 * 10873 4 9762 «4 9643 4 D107 * 92 Fjölmargir sagnhafanna í AV fóru niður á hjartasamningi. Þrátt fyrir að AV eigi aðeins fjóra tígla saman þá vill svo undarlega tU að þriggja granda samningur hefur yf- irburði fram yfir 4 hjörtu í þessu spili. Ef útspilið er tíguU fer sagn- hafi einfaldlega í laufið og tryggir sér þannig 10 slagi hið fæsta. Þannig er oft betra að spUa þijú grönd heldur en hálitasamning ef gnægö punkta er tU staðar. Slæm lega litanna getur sett strik í reikn- inginn í litasamningi en þegar punktarnir eru margir skiptir lega litanna yfirleitt engu máli. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.