Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
Fréttir___________________________________dv
Lögreglan í Reykjavtk lýsir eftir 4 bilum sem stolið hefur verið undanfarið:
Bílar hverfa frá
Brimborg og Heklu
- uppítökubílar - einum stolið við Sundhöllina og öðrum við Hamrahlíð
Þórður Jónsson sölustjóri hjá Brimborg við bíl eins og þeim sem var nýlega
stolið frá bílaumboðinu. DV-myndir Hilmar Þór
Komið hefur í ljós að tveir bílar frá
Heklu og Brimborg hurfu af sölu-
svæði umboðanna á seinni hluta síð-
asta árs og er lýst eftir þeim af hálfu
lögreglunnar. Hér er um að ræða svo-
kallaða uppítökubila og er annar Niss-
an-jeppi en hinn Toyota Corolla.
“Við höfum kært þetta mál sem
þjófnaðarmál," sagði Jón Dahlmann,
talsmaður Brimborgar, þaðan sem
Nissan Terrano-jeppi (nr. TE 034),
ljósbrúnn, árgerð 1990, hvarf. „Það
var annað svona svipað mál á ferðinni
hjá okkur í haust. Þá fundum við
horfinn bíl, Lancer árgerð 1998, fyrir
tilviljun hjá Umferðarmiðstöðinni.
Þar hafði hann verið skilinn eftir.
Ekki er vitað hvort þeim bíl var stolið
eða hann lánaður," sagði Jón.
Hjá Heklu var verið að fara yfir lag-
erinn þegar uppgötvaðist að bíll sem
skráður var sem uppítökubíil á sölu-
lista var horfinn. „Hann var tekinn
upp í annan bíl í sumar og hefur ekki
sést síðan. Það kannast enginn við
þennan bíi,“ sagði Rögnvaldur Guðni
Jóhannsson hjá Heklu. Þama er um
að ræða hvíta Toyota Corolla, árgerð
1988, femra dyra, með skrásetningar-
númerið R 77786. „Þessi bíll var keypt-
ur inn hjá okkur. Það er öruggt,"
sagði Rögnvaldur Guðni.
17. desember hvarf bíll frá bUa-
stæðinu við Sundhöll Reykjavíkur
við Barónsstíg. Eigandi bilsins,
sundlaugargestur, telur að um
klukkan 19 að kvöldi hafi einhver
farið í fataskáp sinn í sundlauginni,
náð bíllyklunum og síðan farið á
bílnum. Hér var um að ræöa hvítan
Mitsubishi Galant, árgerð 1993, með
númerið LN-192.
Auk þessara þriggja framan-
greindra bíla lýsir lögreglan eftir
ljósbláum BMW 316 sem tekinn var
frá Hamrahlíð á nýársdag. Skrá-
setningarnúmer hans er R 28734.
-Ótt
sandkorn
Kynlíf og söngur
Svo sem Sandkorn hefur ítrek-
að greint frá hefur Geir Haarde
fjármálaráðherra gjaman farið á
kostum á ýmsum mannamótum
og sungið sem lævirki væri. Á
skemmtun stuðn-
\in8sfélaSs Vöku,
félags lýðræðis-
1 sinnaðra stúd-
m — ..r®| enta nýlega steig
I- f S raðherrann a
1L 1 stokk og lýsti því
jjl að frásagnir af
Hk y 'íjH sönghæfileikum
sínum væru
orðum auknar.
„En það er með sönginn eins
og kynlífið. Maður þarf ekki að
vera neitt sérstaklega góður til að
hafa gaman af,“ sagöi Geir við
ómældan fögnuð áheyrenda...
Forseti
Laganeminn Guðnin Berg-
steinsdóttir gegndi embætti for-
seta ELSA, samtaka evrópskra
laganema, á liðnu ári. Guörúnu
skorti ekki starfsheitin þegar
hún kynnti sig á
málþingi sem
haldið var í síð-
ustu viku á veg-
um Mannrétt-
indafélags ís-
lands og ELSA
um kynskipt-
inga. Hún hóf
kynninguna á
eftirfarandi hátt:
„Gegndi ég embætti forseta ís-
lands á liðnu ári ..." Þama voru
greinilega mikil tíðindi á ferð því
ekki var vitað til þess að Ólafur
Ragnar Grímsson hefði komið
sér upp afleysingaþjónustu.
Kollegi Guðrúnar hnippti í hana
og benti á hugsanlegt mismæli.
Hún leiðrétti þau með bros á vör
en sagðist greinilega setja stefn-
una hátt í framtíðinni...
Rögnvaldur Guðni Jóhannsson hjá Heklu viö bíl sams konar þeim sem
stolið var frá því umboöi.
Leikritið
Fjárþröng í Borgarleikhúsinu:
Ásta málari sett í salt
Borgarleikhúsið hefur frestað
frumsýningu á nýju íslensku leik-
riti vegna fjárskorts. Leikritið er
eftir Ingibjörgu Hjartardóttur og
fjallar um Ástu málara sem uppi
var á fyrri hluta síðustu aldar og
lést í Bandaríkjunum 1954.
„Við erum að reka fyrirtæki hér
og vantar einfaldlega fleiri sali ef
við eigum að koma öllu fyrir,“
sagði Ámi Möller, framkvæmda-
stjóri Borgarleikhússins. „Það
væri óðs manns æði að fara að slá
af sýningar sem enn ganga fyrir
fullu húsi tfi að koma nýjum verk-
um að. Sex í sveit gengur enn
ljómandi vel eftir 120 sýningar og
það sama má segja um Litlu hryU-
ingsbúðina sem er komin í 60 sýn-
ingar,“ sagði Árni MöUer.
„Það átti að frumsýna leikritið í
mars en skýringin sem ég hef feng-
ið er sú að
því verði
frestað vegna
fjárskorts.
Leikritið var
fullfrágengið
af minni
hendi þannig
að ekki stóð
á mér,“ sagði
Ingibjörg
Ingibjörg Hjartar-
dóttir.
Hjartardóttir, höfundur verksins
um Ástu málara. „Ég hugga mig
við það að haustið er miklu betri
frumsýningartími en vorið,“ sagði
Ingibjörg sem lýsir leikriti sínu
sem dramatísku verki um konu
sem lifði spennandi og óvenjulegu
lífi. -EIR
Kampavínsbörnin í Mosó
.........
J J
Uuu/u/j
Bömin í MosfeUsbæ eru komin upp úr sand-
kössunum og rólurnar dingla tómar. Nú hafa
alvöruleikir tekið við og krakkarnir smalast
upp í limmósínur og skreppa í borgina ef svo
ber undir. Það er auðvitað eðlUegt að bömin
geri eins og fuUorðna fóUúð sem eru fyrir-
myndin. Ástæðulaust uppnám hefur orðið
vegna þess aö fyrirtæki, sem kennt er við eðla-
vagna, hefur tekið við hlutverki strætó og ferj-
ar börn tU og frá Reykjavík. „Hann átti að
taka rútuna heim ef hann yrði búinn
snemma," sagði móðir ungs drengs við DV
vegna þess að hann sýndi þann þroska að ferö-
ast um í limmósínu á Þorláksmessu. Drengur-
inn ungi bauð svo sem einum bófaflokki með
í bUtúr og eðli málsins samkvæmt pantaði
hann kampavín aftur í eðlavagninn. Strákur-
inn vissi sem svo að ferðalögum í limmó fylgja
aUs kyns skemmtUegheit, svo sem vindlar,
fagrar meyjar og kampavín. Þar sem hvorki
var til að dreifá vindlum eöa fógrum meyjum
var auðvitað lágmarkiö að fá kampavín. Það
er dagljóst að fólk drekkur ekki eplasvala í eð-
alvagni. MosfeUingurinn ungi veit að slíkt fel-
ur í sér stílbrot og hann hefði aUt eins getað
tekið með sér Andrés blað. AUir sjá hversu
fiflalegt það væri að sitja með Andrésblað í
annarri hendi og Svala í hinni í limmósínu af
bestu gerð. Það fór því svo aö þar sem limm-
inn rann eftir Vesturlandsveginum pantaði
sveinninn ungi kampavín.
„En þessir sömu krakkar hafa reyndar tek-
í I k nVmá’ *
4 % f K ^ 1 .
»f#»
; « £■
* / / ,< • ■ - V
V i /
ið bUinn hjá mér áður og þá haft áfengi um
hönd sem þau fengu frá foreldrum sinum,"
sagði eigandi limmans við DV. EinkabUstjóri
eðalvagns hefur aðeins þá skyldu að uppfyUa
óskir farþeganna og því afgreiddi hann um-
svifalaust umbeðna flösku. Blessuð börnin
reyndust því miður vera fleiri en tUtæk glös
og því var sett aldurstakmark á kampavínið.
Yngri en 11 ára fengu ekki glös og þar með var
sjálfur gestgjafinn einn utanveltu og þurr-
brjósta. Nú er komið á daginn að hann missti
ekki af miklu þar sem svindlað var á honum.
Kampavínið reyndist freyðivín þó börnin
gerðu sér ekki grein fyrir þvi í gleöUátunum á
leið tU borgarinnar. „Það verður enginn
drukkinn af einni freyðivínsflösku," sagði eig-
andi Glæsivagna við DV og bætti við að for-
eldrar bamanna kampakátu væru að gera úlf-
alda úr mýflugu.
Þetta heitir að kasta steini úr glerhúsi því
sjálfur hafði hann viðurkennt að hafa gert
freyðivín úr kampavíni. Nú er staðan sú að
ráðuneyti samgöngumála heldur ekki vatni
vegna freyðivínsbarnanna í Mosó. BUstjórinn
sem stjómaði þessu stærsta þroskaleikfangi
aUra tíma hefur verið rekinn „að eigin ósk“.
Bömin í MosfeUsbæ sitja uppi með það að
ferðast í strætó eða til þrautavara i aftursæti
hjá foreldrum sínum þar sem veitingar eru
takmarkaðar og mælast ekki í prómiUum.
„Þetta fuUorðna fólk er svo skrýtið", eins og
segir í bamagælunni. Dagfari
Haukur í horn
Haukur Ingibergsson eða
Haukur 2000, eins og hann er
kaUaður, eftir að hann barðist
við Vandann stóra, er nú um
það bU að setjast í nýjan for-
stjórastól. Sam-
kvæmt öruggustu
heimildum tekur
hann við for-
stjórastarfi í Fast-
eignamati ríkis-
ins á næstunni.
Þar sat áður
Magnús Ólafs-
son en hann
mun ætla að minnka við
sig. Aðdragandinn að þessari veg-
tyllu Hauks er sá að nú er í und-
irbúningi löggjöf um samræmda
skráningu fasteigna í landinu.
Haukur hefur unnið að þeim mál-
um og m.a. leitt starfshóp sem
unnið hefur við undirbúninginn.
Svo er Haukur sjálfsagt að upp-
skera laun erfiðis síns við að
koma í veg fyrir 2000-vandann...
Clinton endurkjörinn!
Um áramót er reynt að auka
sölu ýmissa blaða og tímarita
með því að birta í þeim spádóm
fyrir komandi ár. Kennir margra
grasa í spádómunum og meðfylgj-
andi er listi yfir
það hvað rættist
af spádómum
fyrra árs. Þær
spákerlingar sem
hafa látið uppi
vísbendingar
um næsta ár
hafa verið mis-
vísar á ókomna
tíð. Og spádómai
dýrir. Það verður þó athyglisvert
að vita hvort spádómur Viku-
völvu um aö Bill Clinton eigi
eftir að ná endurkjöri rætist. Sér-
staklega í því ljósi að forsetar
Bandaríkjanna mega aðeins sitja
í tvö kjörtímabil...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is