Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 9
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
9
i>v Stuttar fréttir
Utlönd
Snjóflóð í Norður-Noregi:
Fimm fórust þeg-
ar rúta fór í sjóinn
Arkans minnst
Serbneska stríðsherrans og
stríðsglæpamannsins Arkans var
minnst í gær sem hugrakks
vemdara serbnesku þjóðarinnar.
Arkan var myrtur í Belgrad á
laugardag og eru margar sögu-
sagnir á kreiki um hver stóð fyr-
ir verknaðinum, stjómvöld, eða
glæpahópar.
Tarja eykur forskotiö
Tarja Halonen, utanríkisráð-
hema Finnlands, sem fékk flest
atkvæði í fyrri
umferð forseta-
kosninganna um
daginn, hefur nú
aukið forskot sitt
á Esko Aho, leið-
toga stjórnarand-
stöðunnar. Sam-
kvæmt nýrri
skoðanakönnun
nýtur Halonen stuðnings 55 pró-
senta kjósenda en Aho 45 pró-
senta. Kosið verður 6. febrúar.
Cllnton vongóöur
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist í gær vera nokkuð von-
góður um friðarviðræður ísraela
og Sýrlendinga þótt þeim hefði
verið frestað í vikunni. Hann
sagði að bilið milli deilenda væri
ekki mjög breitt.
Meira ofbeldi
Tugir heimila kristinna íbúa
indónesísku eyjarinnar Lombok
voru brenndir og rændir síðast-
liðna nótt þrátt fýrir hótanir lög-
reglu um að skjóta óeirðaseggi.
Erlendir ferðamenn hafa forðað
sér frá eyjunni.
Craxi látinn
Bettino Craxi, fyrrum forsætis-
ráðherra Ítalíu, lést í sjálfskip-
aðri útlegð í Túnis í gær, 65 ára
að aldri. Craxi flúði land 1994 þeg-
ar hann var ásakaður um spill-
ingu.
Fara að ráöum Cherie
Bresk verkalýðsfélög tilkynntu
í gær að þau ætluðu að fara að
ráðum Cherie
Blair, eigin-
konu Tonys
Blairs forsætis-
ráðherra, og
myndu fara í
mál við stjóm-
völd. Cherie tel-
ur stjómina
brjóta lög um fæðingarorlof.
Vilja fá Karadzic
Carla del Ponte, saksóknari við
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna, hvatti sveitir NATO til
að leggja harðar að sér í leitinni
að Radovan Karadzic, leiðtoga
Bosníu-Serba, sem ákærður hefur
verið fyrir stríðsglæpi.
Að minnsta kosti flmm manns
týndu lífi þegar snjóflóð hreif lang-
ferðabíl með sér og bar út í sjó í
Norður-Noregi í gær, að sögn lög-
reglunnar.
Rútan féll niður brekku og ofan í
ískaldan sjóinn þar sem hún sökk á
um tuttugu metra dýpi. Talið var að
átta til tíu manns hefðu verið í rút-
unni.
„Fimm eru látnir og tveir hafa
fundist á lífi en við erum ekki viss-
ir um hversu margir voru í rút-
unni,“ sagði Truls Fyhn lögreglu-
stjóri í viðtali við norska ríkissjón-
varpið.
Snjóflóðið féll í bænum Lyngen,
ekki langt frá Tromsö.
Mikill snjór, hvassviðri og
kolniðamyrkur gerðu köfurum
erfitt fyrir í leit að einhverjum sem
kynnu að hafa komist lifandi úr
slysinu.
„Við eigum í miklum erflðleikum
með að komast inn á flóðasvæðið,"
sagði Fyhn lögreglustjóri.
Lögeglan sagði að langferðabíll-
inn hefði numið staðar þegar fyrsta
snjóðflóðið féll. Ruðningstæki kom
til að hreinsa veginn og varð það
fyrir öðru flóði sem hreif bæði far-
artækin með sér í sjóinn.
Ökumaður ruðningstækisins var
meðal þeirra sem sluppu lifandi.
Lögreglan sagði að ekki væri ljóst
hversu margir til viðbótar kynnu að
hafa slasast eða farist.
„Einhverjir kynnu að hafa komist
út úr rútunni og sloppið við annað
snjóflóðið," sagði Fyhn.
Tveir bílar til viðbótar fóru á
hvolf á veginum en ekki urðu nein
meiðsl á fólki. Lögreglan hefur ekki
útilokað að frekari snjóflóð geti fall-
ið. Flóðin i gær voru 300 til 400
metra breið. Ekki var ljóst undir
kvöld i gær hversu margir bílar
voru grafnir undir þeim.
Frændi Ethel
Kennedy ákærð-
ur fyrir morð
Bróðursonur Ethel Kennedy,
ekkju Roberts Kennedy, gaf sig
fram við lögreglu í gær vegna
morðs á nágrannastúlku sinni
fyrir 25 árum. Var bróðursonur-
inn, Michael Skakel, sem nú er 39
ára, handtekinn og ákærður fyrir
morð. Hann var síðar látinn laus
gegn tryggingu.
Skakel var ákærður fyrir að
hafa myrti Mörthu Moxley, æsku-
vinkonu sína. Hún fannst látin
undir tré í garði fjölskyldu sinnar
31. október 1975. Bæði Skakel og
Martha voru þá 15 ára.
Áður en Martha fannst látin
hafði hún verið heima hjá Skakel-
fjölskyldunni ásamt fleiri táning-
um. Morguninn eftir fannst hún
látin. Hún hafði veriö barin til
bana með golfkylfu.
Clinton andvígur
því að Elian
verði bandarísk-
ur ríkisborgari
Bill Clinton Bandarikjaforseti
sagði í viðtali í gær að það væri
skoðun sín að Bandarikjaþing
ætti ekki að veita kúbska drengn-
um Elian Gonzalez bandarískan
ríkisborgararétt. Sagði Banda-
ríkjaforseti að ekki ætti að gera
deiluna um drenginn að pólítísku
máli. Nú virðist sem Kúba ætli að
þrýsta á Danmörku um að veita
stuðning í máli Elians. Utanríkis-
ráðherra Kúbu, Felipe Perez
Roque, ætlar í heimsókn sinni til
Danmerkur í byrjun næstu viku
að reyna að fá dönsk yflrvöld til
að styðja kröfuna um að Elian
verði sendur heim til Kúbu. Ráð-
herrann mun heimsækja fleiri
Evrópulönd og ætlar einnig að
reyna að ná fundi páfa.
Borgarstjórinn í Rio de Janeiro í Brasilíu lýsti því yfir f gær aö konum væri heimilt aö láta sólina skína á ber brjóst-
in á baöströndum borgarinnar. Hingað tii haföi konum veriö bannaö aö sýna á sér brjóstin á almannafæri og lögregl-
an hélt uppi ströngu eftirliti. Konur létu þaö þó ekki á sig fá og borgarstjórinn gafst loks upp.
Herflugyél bíður
eftir Pinochet
Flugmenn herflugvélarinnar
sem yfirvöld í Chile sendu eftir
Augusto Pinochet biðu í gær á
Bermuda eftir tilkynningu um að
bresk yflrvöld hefðu ákveðið að
láta hann lausan. Yflrvöld i Chile
búast við slíkri tilkynningu á
hverri stundu en breska innan-
ríkisráðuneytið segir að ekki sé
ljóst hvenær búast megi við að
ákvörðun verði tekin í máli Pin-
ochets.
Spænski dómarinn Baltasar
Garzon, sá sem í upphafi stóð að
baki handtöku Pinochet, bað í
gær spænsk yfirvöld um að koma
á framfæri beiðni til breskra
áfrýjunaryfirvalda um að allra
leiða yrði leitað til að koma I veg
fyrir að Pinochet yrði sleppt.
Yfirvöld á Spáni eru efins um
að þau verði við beiðni Baltasars.
Belgískur dómari ráðgerir að
senda hóp sérfræðinga, þar á
meðal lækna, til Bretlands til að
reyna að koma í veg fyrir að Pin- Spænski dómarinn Baltasar Garzon.
ochet verði sendur heim til Chile. Símamynd Reuter
4x4, ssk.,
5-6 manna,
8 feta pallur
Verð kr. 2.300.000
Dodge Ram 2500 SLT Laramle, árg. 1998,
4 dyra,ssk., ek. 78 þús. km, rafdr. rúður.
Verð kr. 3.150.000
Dodge Ram 2500 SLT Laramie Plus.árg. 2000,
4x4, dísil, rafdr. sæti,
4 dyra, cd, ssk.,
leðurklæddur.
Einn með öllu.
Verð kr. 4.150.000
4x4, vél 3,8,
ek. 77 þús km,
ssk., grænn.
Verð kr. 1.650.000
Dodge Caravan, árg. 1994,
Dodge Ram 2500 dísil, árg. 1996
Egill Vilhjálmsson ehf.
Smiðjuvegi 1
sími 564-5000