Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 11
30* V FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
Það er enginn leikur aö meta leiklistina í landinu eins og sjá má á svip leiklistarnefndar. ÞÖK tók myndina af Gerði
Kristnýju, Andrési Sigurvinssyni og Auði Eydal í Eldhúsinu í Kringlunni.
Rosalegir tindar
Menningarverðlaun DV verða af-
hent 24. febrúar næstkomandi og
flestar dómnefndir tóku til starfa
um áramót. Dómnefnd um listhönn-
un starfaði þó allt árið að venju, og
dómnefnd í byggingarlist fékk sína
hefðbundnu tvo mánuði til starfans
því hús vilja dreifast svo víða um
landið. Formaður dómnefndar um
byggingarlist, dr. Maggi Jónsson,
hafði raunar orð á því strax þá að
árið 1999 væri umtalsvert drýgra en
hið næsta á undan. Mörg glæsileg
hús hefðu verið tekin í notkun sem
erfitt yrði að gera upp á milli.
Gróskan er víðar. Til dæmis voru
óvenjumargar stórmyndir á íslensk-
an mælikvarða frumsýndar á árinu,
meira að segja nær hin geysivin-
sæla Englar alheimsins inn á árið
1999. Þótt hún væri frumsýnd form-
lega á nýársdag 2000 var selt inn á
forsýningar mOIi jóla og nýárs. I
tónlistinni var líka mikið um að
vera, að sögn Jónasar Sen, „en
minnisstæðust verður eflaust Jóns
Leifs-orgían sem átti sína einka-
tinda“.
Við spurðum Auði Eydal, for-
mann leiklistarnefndar, hvort þetta
væri kannski auðvelt ár. Úr nógu að
velja?
„Ja, satt að segja finnst mér árið
svolítið flatt í leiklistmni," segir
hún, „en upp úr flatneskjunni risa
rosalegir tindar. í fyrra vorum við
mest að tala um staka leikara og
leikstjóra en núna er meira um að
heilu sýningarnar séu athyglisverð-
ar. í Krítarhringnum í Kákasus er
til dæmis allur leikhópurinn svo
samstilltur að það sem hann gerir
jafnast á við það sem maður upplif-
ir á bestu sinfóníutónleikum þegar
aUt hljómar óaðfmnanlega saman. í
fleiri sýningum á árinu var líka úr
miklu að moða, ég nefni bara Sjálf-
stætt fólk, Fegurðardrottninguna
frá Línakri sem er einstaklega
magnað verk, Stjömur á morgun-
himni og sýningu íslenska dans-
flokksins f haust. Einnig voru fínar
sýningar í minni húsum; það
skemmtilegasta er hve margir eru
orðnir hæfir og frjóir í íslensku
leikhúsi."
Bókmenntanefndin byrjaði á að
skipta á milli sín nokkrum tugum
bóka til að lesa og hefur nú komið
sér saman um 25 bækur sem allir í
nefndinni eiga að lesa. Úr þeim hópi
verða tilnefningamar fimm væntan-
lega valdar.
Við spurðum formann dómnefnd-
ar, Ármann Jakobsson, hvemig
honum litist á árið.
„Þetta er ekki slæmt ár þó að fáir
úr hópi þekktustu höfundanna hafi
sent frá sér skáldsögu,“ segir Ár-
mann. „Til dæmis var ég að lesa
bók i gær sem kom mér þægilega á
óvart þó ég vilji ekki nefna hana að
sinni. En þetta er ekki ár mikilla til-
rauna.“
Myndlistarnefnd þótti þetta líka
„nokkuð gott ár“, eins og Áslaug
Thorlacius orðaði það. „En þetta
var líka ár hinna miklu stefnumóta-
sýninga þar sem innlendir og er-
lendir listamenn hittust og settu svo
saman sýningu sem stundum hafði
fátt að segja öðru fólki. Við vonum
eiginlega að þetta fyrirbæri hafi lið-
ið undir lok með tölunni 19 í ártal-
inu!“
Hér á síðunni má sjá þau sem nú
sitja sveitt við að velja tindana í is-
lensku menningarlífi árið 1999. Til-
nefningar til Menningarverðlauna
DV fara að birtast í blaðinu fljótlega
upp úr næstu mánaðamótum.
Listhönnun
Torfi Jónsson letur- Eyjólfur Pálsson inn- Baldur J. Baldursson
hönnuður. anhússarkitekt. innanhússarkitekt.
Aldarför Péturs
Ekki þarf að kynna Pétur Gunn-
arsson sérstaklega fyrir lesendum
DV, svo hefur hann dillað þeim í
kjallaragreinum sínum undanfarin
ár. I lok síðasta árs smaug út eftir
hann bókin Aldarför þar sem hann
hefur safnað saman útvarpserind-
um sínum, greinum og ávörpum
við ýmis tækifæri og er mikill feng-
ur að fá þau á prent.
Bókin hefst á erindum Péturs
um daginn og veginn sem hann
flutti á rás 1 í mars 1998, einstak-
lega vekjandi pistlum um lifið og
stjómmálin sem ætti að 'endur-
prenta reglulega í dagblöðum
landsins. Næst koma þrjú erindi
undir samheitinu „Málið“ þar sem
hann fjallar um að orða hlutina og
gefur óvænta sýn á stöðu lítilla
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
málsamfélaga í nútímanum. Undir
yfirskriftinni „Samhengið" er með-
al annars sú kunna grein hans,
„Samhengisleysið í islenskum bók-
menntum" sem upphaflega var er-
indi á Rannsóknaræfingu Félags ís-
lenskra fræða og síðan birt í Tíma-
riti Máls og menningar. Hún hefur
haft býsna mikil áhrif á íslenska
bókaútgáfu eins og kemur í ljós í
stuttri athugasemd höfundar í
greinarlok. Loks er kaflinn „Bók-
menntir" þar sem Pétur skrifar um
bókmenntarisana Þórberg Þórðar-
son, Halldór Laxness og Marcel
Proust - en stórvirki hins síðast-
talda er Pétur að þýða þessi árin.
Pétur er glöggur sjáandi á ís-
lenskt samfélag en það sem gerir
bók hans líka yndislestur er ein-
stök málsnilld hans og stílgáfa.
Bókin er gefin út hjá Neon-
klúbbi Bjarts svo að auðveldara sé
að finna hana í skammdeginu.
★
Leiklist
Auður Eydal, gagnrýn-
andi DV.
Bókmenntir
Ármann Jakobsson,
gagnrýnandi DV.
Byggingarlist
Dr. Maggi Jónsson
arkitekt.
Myndlist
Aðalsteinn ingólfsson
listfræöingur.
Tónlist
Jónas Sen, gagnrýn-
andi DV.
Gerður Kristný, rithöf-
undur og ritstjóri.
Kristín Ómarsdóttir rit-
höfundur.
Guðmundur Jónsson
arkitekt.
Ásiaug Thorlacius,
gagnrýnandi DV.
Bergljót Haraldsdóttir
tónlistarfræðingur.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson,
gagnrýnandi DV.
Baldur Hjaltason for-
stjóri.
ennmg u
Andrés Sigurvinsson
leikstjóri.
Geir Svansson, bók-
menntafræðingur og
gagnrýnandi.
Júlíana Gottskálks-
dóttir listfræöingur.
Georg Guðni Hauks-
son myndlistarmaöur.
Hávarður Tryggvason
tónlistarmaður.
Ásgrímur Sverrisson,
kvikmyndagerðarmað-
ur og gagnrýnandi DV.