Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
* ■ *
'
Margir verktakar á gráu svæði þegar reikningar eru tíndir til upp í kostnað:
Kostnaður verður að
tengjast öflun tekna
- áríðandi að standa skil á staðgreiðslu og lífeyrissjóðsiðgjöldum
Skattskýrslurnar eru á næsta leiti og margir sjá fram á langar setur yfir reikningum, bók-
haldi og skilum til endurskoöanda. Verktakar eöa sjálfstæöir atvinnurekendur tína stundum
til kostnaö á móti tekjum sem er á gráu svæöi eöa í versta falli út í hött. DV-mynd E.ÓI.
„Grunnhugsunin er aö allur
kostnaður sem fer sannanlega til að
afla teknanna er frádráttarbær,“
sagði endurskoðandi sem DV ræddi
við vegna árlegra uppgjöra þeirra
sem fengið hafa laun sem verktakar
á síðasta ári, þ.e. einyrkja eða sjálf-
stæðra atvinnurekenda. Skatt-
skýrslumar eru á næsta leiti og
margir sjá fram á langar setur yfir
reikningiun, bókhaldi og skilum til
endurskoðanda. Sé verktakan með
smærra móti ættu flestir þó að geta
gert rekstrarreikning sjálfir þar
sem útgjöldum er stillt upp á móti
tekjum. Mismunurinn verður ann-
aðhvort hagnaður eða tap.
Yfirleitt liggur beint við hvað
telja má sem kostnað við öflun tekn-
anna en oftar en ekki eru menn i
vafa. Ákafi manna í að lækka hagn-
að getur villt þeim sýn og þá vill
það gerast að tíndur er til kostnað-
ur sem er á gráu svæði eða í versta
falli út í hött. Þá kallar fólk yfir sig
vandræði sem geta endað með því
aö fulltrúar skattstjóra fara yfir
bókhaldið með stækkunargleri.
En misjafnt er hvaða kostnaður
er gildur, jafn misjafnt og aðstæður
eru ólíkar hjá fólki. Maður sem er í
verktöku heima í bilskúrnum getur
t.d. tekið saman kostnað við hita og
rafmagn í skúmum. Hafi dýr tæki
verið keypt má ekki gjaldfæra nema
um 120 þúsund af kaupverðinu á ár-
inu. Síðan koma til afskriftir sem
eru fast hlutfall, t.d. 15% af höfuð-
stólnum á ári.
Risna varasöm
Risna er alltaf til umræðu og þar
hættir mönnum mjög til að fara yfir
á grá svæði. Sé risnukostnaður
sannarlega til kominn vegna öflun-
ar teknanna er hann góður og gild-
ur. í þessu sambandi benda sumir
endurskoðendur á „sænsku aðferð-
ina“. Hún felst í því að láta þann
sem boðið er í mat eða kaffi kvitta á
reikninginn eða þá aö skrifað er aft-
an á reikninginn hverjum var boðið
og af hverju. Þannig getur sölumað-
ur þurft að bjóða í kaffi eða mat til
aö liðka fyrir samningum þegar
slíkt er sjaldgæfara hjá öðrum
starfsstéttum. Með þessu móti verð-
ur kostnaðurinn rekjanlegur og
sýnt er fram á að hann tengist tekj-
um sem verið er að afla.
Muna lífeyrisiðgjöld
En það er ekki bara kostnaður
sem veldur verktökum höfuðverk.
Margir sem eru í
raun launþegar eru í
verktöku. Þeir missa
við það ýmis réttindi
og hafa af því kostn-
að. Þessir verktakar
hafa stundum ekki
sinnt því að standa
skil á staðgreiðslu
skatta og tryggingar-
gjaldi sem þýðir að
þeir þurfa að greiða
álag, 1% á dag, og
innheimtukostnað.
Endurskoðendur
þekkja mýmörg
dæmi um að fólk
hunsi staðgreiðsl-
una. Það getur orðið
dýrt spaug.
Eins verður að muna
eftir lífeyrissjóðsið-
gjöldum. Öllum er
skylt að greiða í líf-
eyrissjóð. Verktakar
eða sjálfstæðir at-
vinnurekendur
greiða 10% (6% fram-
lag atvinnurekanda
+4% framlag laun-
þega) af launum eða
reiknuðu endurgjaldi
í lífeyrissjóð. Geta þeir bætt 2,2%
viðbótarlífeyrisspamaði við. Iðgjöld
í lífeyrissjóð eru frádráttarbær en
lífeyrisgreiðslumar eru skattlagðar
við útborgun. Skattayfirvöld munu
fylgjast með greiðslum í lífeyris-
sjóði, bera saman laun og iðgjöld
eftir að unnið hefur verið úr skatt-
skýrslum og gera athugasemdir ef
misræmi er þar á milli.
-hlh
Rafmagnspróf RARIK
Pottur er víða brotinn í rafmagnsmálum með til-
heyrandi bruna- og lífshættu. Á þetta oftar við
um rafkerfi eldri húsa. Meðfylgjandi spuminga-
listi auðveldar fólki aö átta sig á ástandi raf-
magnsmála heima hjá sér en hann er fenginn frá
RARIK. Svarið spurningunum samviskusamlega
og dragið hring um það svar sem þið teljið eiga
við hjá ykkur.
Rafmagnstaflan
Er rafmagnstaflan gömul trétafla? já / nei
Sést i bera víra eða tengingar í töflunni?
já/nei
Er búnaður töflunnar skemmdur eða brotinn?
já / nei
Springa öryggin oft eða slá þau oft út? já / nei
Eru lélegar eða engar merkingar í töflunni?
já / nei
Er rafmagnstaflan án lekastraumsrofa? já / nei
Lekastraumsrofinn
Slær rofinn stundum út án sýnilegrar ástæðu?
já / nei
Er áfram rafmagn á íbúðinni eftir að þú hefur ýtt
á prófhnappinn á lekastraumsrofanum? já / nei
Hefur orðið bilun i rafkerfi eða raftæki en
lekastraumsrofinn ekki slegið út? já / nei
Innstungur (tenglar)
Eru sumar innstungur á heimilinu ójarðtengdar?
já / nei
Era brotin lok á innstungum? já / nei
Eru mörg raftæki tengd í eina innstungu?
já / nei
Eru klær „lausar" í einhverjum innstungum?
já / nei
Eru innstungur illa festar á vegg eða í veggdósir?
já / nei
Þaö getur endaö meö ósköpum ef ástand rafmagns í hýbýlum fólks er ekki eins og best veröur á kos-
iö. Myndin sýnir hvaö gerst getur.
Ljósarofar
Eru brotin lok eða brotnir takkar á rofum?
já / nei
Ber á sambandsleysi í ljósarofum?
já / nei
Era einhverjir rofar illa festir?
já / nei
Era einhverjir rofar heitir?
já / nei
Leiðslur (lausataugar)
Eru leiðslur í gangvegi eða undir gólfteppum?
já / nei
Liggja leiðslur þar sem þær geta klemmst,
t.d. milli stafs og hurðar? já / nei
Er gat eða sjáanlegt slit á leiðslum? já / nei
Er þannig gengið frá klóm að sést í litaða
einangrun viranna í leiðslunni? já / nei
Eru tæki sem eiga að vera jarðtengd í
ójarðtengdum innstungum? já / nei
Liggja leiðslur í haug eða upprúllaðar
þegar þær eru í notkun? já / nei
Ljós og önnur raftæki
Eru sterkari perur í ljósum en uppgefinn
hámarksstyrkur segir til um? já / nei
Eru sterk ljós (t.d. kastarar) nálægt brennanleg-
um efnum? já / nei
Springa perur oftar í einu ljósastæði en öðru?
já / nei
Eru loftljós illa uppsett og hanga á tengingum?
já/nei
Ónýtir eöa bilaöir tenglar geta
veriö varasamir og full ástæöa til
aö skipta þeim út.
Ofhleðsla
tengla
eða
gamalt
rafkerfi
íbúi í fjölbýlishúsi hafði sam-
band við DV og Húsráð og var að
velta fyrir sér ástandi rafmagns í
íbúðinni hjá sér: Ég lendi oft í því
að ljósin í íbúðinni hjá mér dofha
eða blikka þegar ég set orkufrek
tæki eins og ryksuguna eða mat-
vinnsluvélina í gang. Er þetta
vandamál tengt ibúðinni minni eða
er eitthvað að rafmagninu í húsinu?
Hvað kostar að endumýja rafmagn-
ið í 90 fm íbúð? Er það mjög mikið
umstang?
Haukur S. Bessason rafvirkja-
meistari svarar: „Raftækjaeign
heimOa er mun meiri en áður og
það getur verið mikið álag á rafkerf-
inu þegar mörg rafmagnstæki eru í
gangi, eins og t.d. um jól. Afleiðing-
in er að svona truflanir, að ljós
dofni, verða áberandi. Ástæðan er
oft of mikið álag á einu öryggi og
því er nauðsynlegt að dreifa álaginu
á fleiri innstungur eða tengla. Það
getur auðvitað verið hægara sagt en
gert þegar mjög lítið er um tengla
eins og algengt er í eldri húsum.
Stundum er fólk jafhvel búið að
setja fjöltengi í samband við annað
fjöltengi og hleður þannig allt of
miklu á eina grein. Ef fólk er með
rafkerfi af eldri gerðum getur
einnig verið að öryggin séu orðin
gömul eða illa hert og því einfald-
lega þörf á að skipta um þau eða
-ESENPUM SVARAÐ
RÁDGJAFAÞJÓNUSTA HÚSFÉLAGA
Losundur gotn sent
spttrnlngar tll serfrittöinga
Húsráön meö tolvupósti.
Netfangiö er dvrltst@ff.ls
og merkja skal tölvupóstinn Húsráö.
herða. Þegar öryggin eru gömul
slær rafmagninu jafhvel út þegar
ryksugan er sett í samband. Oftast
er kominn timi á að endumýja búji-
að í svona gömlum töflum.“
Þegar farið er að bera á raf-
magnstruflunum af þvi tagi sem
þessi íbúi er að lýsa segir Haukur
vera fulla ástæðu til að láta fag-
mann fara yfir rafkerfið og gera út-
tekt á því hvaða umbætur eru nauð-
synlegar.
70-250 þúsund
„Það er mjög misjafht hvað það
kostar að endurnýja rafinagnið. Fer
það eftir því hvort nóg er að draga í
nýtt rafinagn eða hvort einnig þarf
að setja nýja rofa, tengla og endur-
nýja töflu. Kosmaður við endumýj-
un i 90 fm íbúð með efhi og vinnu
gæti því verið frá 70 þúsundum upp
í 250 þúsund. Umstang viö slíka end-
umýjun fer alveg eftir umfangi
verksins. Ef aðeins þarf að draga í
er það minni háttar umstang en ef
setja þarf mikið af nýjum tenglum
og rofum er það meiri röskun.“
Haukur vúl annars benda fólki á
að fara ávallt varlega með rafmagn,
ekki síst á álagstímum eins og fyrir
hátíðar.