Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Síða 17
FEVTMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000 Himinháir kortareikningar afgreiddir með greiðsiudreifingu: Létta leiðin dýra Brátt líður að skuldadögum eftir hátíðahöld yfir jól og áramót. Him- inháir kortareikningar munu detta inn um lúgur landsmanna. En ekki er ástæða til að örvænta því dreifa má greiðslunum. Greiðslukortafyr- irtækin bjóða viðskiptavinum upp á greiðsludreiflngu þar sem greitt er inn á reikninginn samkvæmt samkomulagi en eftirstöðvunum dreift á allt að 12 mánuði. Þetta er afar auðveld leið sem þarf ekki að kosta nema eitt símtal. En heildar- kostnaðurinn getur verið töluverð- ur. Yfírdráttarlán koma einnig til greina en vextir þeirra eru lægri, um 15%. Skuldabréf með sjálfskuld- arábyrgð koma ekki til greina vegna lántökukostnaðar og fasta- kostnaðar sem leggst ofan á vaxta- og innheimtukostnað. Greiðsludreifing Hér er tekið dæmi þar sem mið- að er viðl8,35% vexti vegna fjöl- greiðslna hjá Visa. Við gefum okk- ur að eftirstöðvar kortareiknings eftir innágreiðslu séu 60.000 krón- ur, 90.000 krónur og 150.000 krónur. Þessar upphæðir eru síðan greidd- ar upp á þremur, sex eða tólf mán- uðum. Miðað er viðl50 króna færslugjald fyrir hverja greiðslu. Þeir sem skilja eftir 60.000 krónur og dreifa greiðslu þeirra á 3 mánuði greiða 3.635 krónur í kostnað en 5.011 krónur ef þessari upphæð er dreift á 6 mánuöi. Sé upphæðinni dreift á 12 mánuði fer kostnaðurinn hins vegar í 7.764 krónur. Kostnaðurinn er fljótur að rjúka upp þegar eftirstöðvar kortareikn- ingsins eru hærri. Þannig þarf að greiða 4.552 krónur, 6.617 krónur og 10.746 krónur fyrir að dreifa greiðslu 90.000 króna á 3, 6 og 12 mánuði. Ef eftirstöðvarnar eru 150.000 krónur getur kostnaðurinn hins vegar orðið allt að 16.709 krón- ur. Yfirdráttur Yfirdráttarlán eru ekki mikið hagstæðari en samningur um greiðsludreifmgu og er þá miðað við 17,75% vexti. En sé um „vildar- kúnna“ bankans að ræða getur ver- ið að vextir á yfirdráttarlánum séu töluvert lægri og því hærri upphæð- ir sem sparast viö að greiða greiðslukortareikninginn upp með þeim hætti. Það er að segja ef yfir- dráttarheimild er ekki þegar nýtt að fullu. Ef miðað er við 17,75% vexti og að eigandi tékkareiknings sjái sjálfur um að greiða yfirdráttinn, 60.000, 90.000 eða 150.000 krónur, niður eins og um lán væri að ræða má spara allt 500 krónur. Hættan er hins vegar sú að yfirdrátturinn verði fullnýttur lengur en sem nem- ur greiðsludreifingartímanum með tilheyrandi vaxtakostnaði. Fúl skuldasúpa Á marga kortareikni'nga er þegar búið að hlaða kostnaði vegna rað- greiðslna. Auk þess að sjá á eftir staðgreiðsluafslætti við vörukaup og taka á sig raðgreiðslukostnað bætist enn við kostnaður vegna greiðsludreifingarinnar. Varan er því orðin mun dýrari en verðmið- inn í búðinni gaf til kynna. Sá möguleiki hefur verið fyrir hendi að fá aðra greiðsludreifingu áður en sú fyrri er að baki. En þeg- ar svo er komið er ljóst að í óefni stefnir. Undir slíkum kringumstæð- lun biður fulltrúinn í bankanum yf- irleitt um að fá kortið til geymslu. Að öðrum kosti getur korthafi lent í fúlli skuldasúpu sem stefnt getur íjárhag hans í voða. -hlh Skattframtölin nálgast - hægt að telja fram og sækja um frest á Netinu 17 Samkomulag Fjárhæð útborgunar við greiðslu- dreifingu og fjöldi gjalddaga eftir- stöðva er háð samkomulagi kort- hafa viö banka eða sparisjóð. Dreifa má greiðslunni á allt að 12 mánuði. T.d. greiðir korthafi 1/6 hluta mán- aðarreikningsins og eftirstöðvamar dreifast á næstu fimm mánuði. Upp- hæðir sem frestast með greiðslu- dreifingu bera vexti í samræmi við auglýst kjör banka eða sparisjóðs á útgáfúdegi auk færslugjalds. Fyrír eindaga Beiðni um greiðsludreifingu, sem má vera símleiðis, þarf að berast til viðkomandi afgreiðslustaðar banka eða sparisjóðs tímanlega fyrir eindaga greiðslu, þ.e. 3. febrúar. Skerða heimild Áætlaðar afborganir af Fjöl- greiðslum skerða úttektarheimild kortsins á meðan íjölgreiðslusamningur er í gildi. Það þýðir að ef fjöl- greiðsla nær yfir 3 mánuði og er um 20 þúsund krónur í hvert skipti hefur korthafinn þegar farið 20 þús- und krónur inn á heimildina sína þessi þrjú tímabil. Hann verður því að fara að með gát ef reikningurinn á ekki að fara upp úr þakinu. Veltukort Svokölluð veltukort eru frábrugð- in öðrum kreditkortum að því leyti að notandinn ræður hversu mikið hann borgar af kortareikningnum um hver mánaðamót, þó að lág- marki 5.000 krónur eða 5% af úttekt mánaðarins. Úttektartímabil er frá 18. hvers mánaðar til 17. næsta mánaðar. Veltukort henta vel þegar dýrari hlutir eru keyptir og getur komið fólki með óreglulegar tekjur að góðum notum. Eftirstöðvamar hveiju sinni bera svipaða vexti og þegar eftirstöðvum kortareikninga er skipt með fjölgreiðslum. Nú nálgast tími skattframtal- anna. Þó enn sé ríflega mánuður til stefnu er gott að byrja fljótlega að huga að sínum málum, tryggja að allir pappírar séu til taks og svo framvegis. Á heimasíðu ríkisskattstjóra eru upplýsingar um framtalsfrest ein- staklinga og fyrirtækja. Einstak- lingar sem skila framtali sínu á pappír þurfa að skila í síðasta lagi 28. febrÚEU en einstaklingar sem skila í gegnum Netið skila í síðasta lagi 31. mars. Þeir sem skila skrif- lega geta hins vegar sótt um skila- frest. Á heima- síðu ríkisskatt- stjóra er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að sækja um við- bótarfrest á skil- um, bæði i gegn- um Netið og eins skriflega. Eftirfarandi upplýsingar eru af vef ríkisskatt- stjóra. Framtalsfrestur einstaklinga, sem ekki hafa með höndum eigin at- vinnurekstur, er til 28. febrúar. Hægt er að sækja um viðbótar- framtalsfrest til skattstjóra og þarf sú umsökn að hafa borist í síðasta lagi 28. febrúar, hvort sem sótt er um skriflega eða með tölvupósti. Frestur þeirrar sem fá viðbótar- frest er til 10. mars. Framtalsfrestur einstaklinga sem skila á Netinu er til 31. mars. Ekki er hægt að sækja um viðbótarfram- talsfrest vegna framtais á Netinu. Einstaklingar með eigin atvinnurekstur Framtalsfrestur einstaklinga sem hafa með höndum eigin atvinnu- rekstur er til 15. mars. Hægt er að sækja um'viðbótar- framtalsfrest til skattstjóra og þarf sú umsókn að hafa borist í síðasta lagi 15. mars, hvort sem sótt er um skrif- lega eða með tölvupósti. Þeir sem fá viðbótar- frest eiga að skila í síðasta lagi 15. apríl. Löggiltir endur- skoðendur, bók- arar og aðrir sem atvinnu hafa af framtals- gerð og sækja um viðbótar- framtalsfrest fyrir umbjóð- endur sína geta ekki sótt um það á Netinu. Þeir sækja um með sama hætti og verið hefur undanfar- in ár og skila inn frestlistum til skattstjóra. Ekki er veittur sérfrest- ur vegna framtala sem skilað er á Netinu, nema um það hafi verið samið sérstaklega fyrir fram. Framtals- frestur einstak- linga Indriöi H. Þorláksson ríkisskattstjóri. Framtalsfrestur lögaðila Almennur framtalsfrestur lögað- ila er til 31. maí. Upplýsingar um aukinn framtals- frest fyrir þá sem hafa atvinnu af framtalsgerð verða birtar á heima- síðu rikisskattstjóra um leið og þær liggja fyrir. Sótt um frest Hægt er að sækja um viðbótar- framtalsfrest á Netinu með tölvu- pósti. Einstaklingar fylla út form sem kemur upp á skjáinn þegar smellt er á þar til gerðan hnapp (sem aðeins sést á meðan tölvupóst- ur vegna umsókna er opinn) en þeir sem sækja um fyrir lögaðila fylla út Excelskrá sem sótt er á Netið. Tölvupóstur vegna umsókna um viðbótarframtalsfrest er opinn sem hér segir: Einstaklingar Fyrir einstaklinga sem skila á pappír 15. til 28. febrúar en fyrir einstaklinga með eigin atvinnu- rekstur 2. til 15. mars. Fyrir lögaðila auglýst síðar. Umsókn um viðbótarframtals- frest skal senda skattstjóranum í því umdæmi þar sem framteljandi átti lögheimili 1. desember á tekju- ári. Hjón og annað sambúðarfólk Nóg er að annað sæki um frest ef fólk nýtur samsköttunar. Gildir það hvort sem um er að ræða hjón, karl og konu í óvígðri sambúð eða par í staðfestri samvist. Börn Ekki er hægt að sækja um viðbót-. arframtalsfrest fyrir böm sérstak- lega. Ef umsækjandi hefur börn yngri en 16 ára á framfæri sínu gild- ir frestur hans sjálfkrafa um skatt- framtöl barnanna líka. Ljós í myrkrínu Kortareikningunum fylgja ekki einungis yfirlit hreinaog klára eyðslu heldur má þar finna hug- hreystandi línur þar sem korthafi er að eyða í spamað, hvort sem það eru ríkisskuldabréf, áskrifl að verð- bréfúm eða greiðslur í lífeyrissjóði. Einyrkjar sem vilja uppfylla skilyðri lífeyrislaga ættu að hafa samband við lífeyrissjóð hið fyrsta og setja mánaðarlegar greiðslur á kortið. Þá detta greiðslur ekki úr og hali ógreiddra iðgjalda hleðst ekki upp. GÍNUR Mátunarspeglar, sokkastandar. 1 Fataslár, margar gerðir. Pinnar f. panel, einfaldir og tvöfaldir. Rekki ehf. Helluhrauni 10, 220 Hafnarfirði Sími 5650980 , GSM 895-9088

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.