Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Page 18
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
18
- borgar sig
Áskrifendum ÞV býöst nú
ítarleg bók um
naringarfraöi
almennings-
1 tilefni átaksins Leiö til betra
lifsi sem nú stendur sem hasti býöur
DV áskrifendum sinum bókina Lifsþrotti
naringarfraöi almenningsi
eftir Olaf Gunnar Símundssoni
naringarfraöing og heilsusálfraöing•
í bókinni er aö finna itarlegar
upplýsingar um flestallt er viökemur
naringarfraöi almennings.
Ertu i stööugri baráttu viö
umframkilóinr
Hér er fjallaö itarlega um
offituvandanni ástaöur hans og
aðferðir sem virka-
Fjöldi megrunaraöferöa er einnig
brotinn til mergjar-
Striöir þú viö lystarstol eöa
lotugraögi eöa ertu einfaldlega of
magurf
Hér segir meöal annars frá ástaöum
átröskunarsjúkdómai afleiðingum þeirra
og meöferö.
Lifsþróttur er bók sem hjálpar þér
aö byggja upp nýtt og betra 1if-
Tilboðsverö til áskrifenda DV er
4.TÖ0 kr•
en almennt verö er
't.TfiD kr •
Tilboöiö gildir til 53-1. nk-
Hægt er aö greiöa meö
Visa/Euro í síma
535-1045.
Fréttir
Fótbrotnaði í fótbolta með Old Boys:
Tekjulaus í marga
mánuði og engar
tryggingar að fá
- VÍS og KSÍ vísa hvert á annað
„Ég hélt ég væri sæmilega tryggð-
ur en ég er með F+ fjölskyldutrygg-
ingu hjá VÍS. Þegar ég leitaði á náð-
ir tryggingafélagsins míns var mér
tjáð að þar sem ég hefði fótbrotnað
á skipulagðri keppni hjá KSÍ ættu
þeir að sjá um tryggingarnar. KSÍ
sagðist aftur á móti ekki tryggja
neinn nema sá hinn sami væri á
samningi hjá Landssímadeildinni,"
segir ísak Öm Sigurðsson sem starf-
að hefur sjálfstætt undanfarin ár.
Hann var rúmliggjandi í marga
mánuði eftir slysið og þ.a.l. tekju-
laus á meðan.
Málavextir voru þeir að ísak
brotnaði illa í fótboltakeppni með
Old Boys þann 18. ágúst síðastliðinn
og er enn draghaltur eftir slysið.
Hann hefur verið í sjúkraþjálfun
síðan en Tryggingastofnun hefur
borgað honum kostnaðinn við
sjúkraþjálfunina.
Hver vísar á annan
„Þetta var mér töluvert áfall.
Heföi ég fótbrotnað úti í garði
heima hjá mér hefðu tryggingam-
ar náð yfir. það en tryggingarnar
ná ekki yflr fótboltann með Old
Boys. Mér láðist greinilega að lesa
smáa letrið í tryggingaskilmálun-
um. Ég hef leitað aftur til VÍS en
þeir geta ekki gert neitt. Þeir segja
að samkvæmt ákvæðum samnings-
ins séu þeir ekki bótaskyldir og
þannig vísar hver á annan í þessu
máli. Ef ég hefði verið á æflngu
hefði ég fengið bætur en þar sem
ég var að spila leik er tryggingafé-
lagið ekki bótaskylt. Starfsmenn
VÍS segja að þeir bæti ekki slys
sem henda á skipulögðum mótum
hjá KSÍ,“ segir ísak Öm og bætti
við að hann væri nýbúinn að lesa
bækling frá VÍS þar sem þeir sögö-
ust tryggja öll slys sem verða I frí-
tíma tryggingaþega.
Mál ísaks er ekki ósvipað máli
handknattleikskonunnar Herdísar
Sigurbergsdóttur en hún slasaðist
illa í leik með íslenska landsliðinu.
Herdís var óvinnufær eftir slysið
og fékk engar bætur þar sem trygg-
ingar handknattleikssambandsins
ná ekki yfir slys af þessu tagi.
ísak Örn Sigurösson. Hann fótbrotnaði illa í knattspyrnuleik. Hvorki trygg-
ingafélag ísaks né Knattspyrnusamband íslands telja sig bótaskyld.
Snýst allt um áhættuna
„Ákvæöi í tryggingasamningun-
um kveður á um að þegar tjónþoli
slasast í keppni falli bótaskyldan
niður. Fjölskyldutryggingu er ætlað
að tryggja fjöldann og er eins konar
meðaltalstrygging,“ segir Birgir
Magnússon, lögfræðingur hjá VÍS.
Birgir segir að íþróttamenn séu
tryggðir í gegnum almannatrygg-
ingalögin og því hafi ísak mögu-
leika á að leita réttar síns hjá Trygg-
ingastofnun rikisins vegna útlagðs
kostnaðar vegna slyssins. Þá getur
ísak keypt almenna sjúkra- og slysa-
trygginu með íþróttaáhættu. Þar
sem meiri hætta er á að menn slas-
ist í keppni eru slíkar tryggingar
dýrari en almennar fjölskyldutrygg-
ingar. „Þetta snýst allt um áhætt-
una,“ segir Birgir.
-hól
Moby Dick siglir með
bein og fiskhausa
DV Grundarfirði:
Moby Dick, sem áður hét Fagranes-
ið og var í ferðum með farþega og vör-
ur á ísafjarðardjúpi, siglir nú með
bein og hausa frá Patreksfirði til
Grundarfjarðar.
Ekki er nein bræðsla lengur á Suð-
urfjörðunum og þar sem heiðar eru
lokaðar mestan hluta vetrar verður
Moby Dick í fórum með þennan hold-
litla farm tvisvar i viku þar til snjóa
leysir á heiðum vestra.
Haraldur Haraldsson, eigandi
Beinaverksmiðju Grundarfjarðar,
sagðist reikna með að flutt yrðu hátt í
2000 tonn af beinum og hausum.
Nokkur mengun hefur verið frá verk-
smiðunni og sagði Haraldur að búið
væri að ganga frá mengunarvamar-
búnaði og yrði hann settur í gang í
vikunni.
-DVÓ/GK
Moby Dick viö bryggju - farþegaskipiö gamla siglir nú meö fiskhausa.
DV-mynd GK