Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2000, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2000
25
Bóndadagurinn nálgast óðfluga og vafalaust margir
karlmenn farnir að hugsa sér gott til glóðarinnar.
Tilveran spjallaði við þrjár konur sem eiga mislöng
hjónabönd eða sambönd að baki og spurði þær hvort
og hvernig þær stjönuðu helst við karlana sína í
rómantískum tilgangi.
Margrát Ólafsdóttir leikkona:
Höfum aldrei
beitt brögðum
í rómantíkinni
Ásta R. Jóhannesdóttir þingkona:
Reyni að njóta
líðandi stundar
g er ein af þeim sem eru af ‘68
kynslóðinni. Hún er svolítið
uppreisnargjöm og þess vegna
þýðir lítið að ætla mér að hengja
rómantík á einhvern einn dag eða
tvo á ári,“ segir Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir þingkona þegar hún
var innt eftir því hvort hún gerði
eitthvað sérstakt fyrir manninn
sinn á bóndadaginn. „Ég ákveð frek-
ar sjálf hvað ég geri og hvenær. Ég
er ekki hrifin af því að binda róm-
antík við bóndadag eða konudag og
gera svo ekkert þess á milli. Við
hjónin gerum ýmislegt skemmtilegt
saman og höfum gaman af því að
fara t.d. i ferðalög tvö ein með litl-
um fyrirvara og hafa það notalegt,
eða t.d.skreppa á kaffihús í hádeg-
inu.“ Er eitthvað sérstakt sem mað-
urinn þinn gerir þá fyrir þig á
konudaginn? „Hann er á sömu
bylgjulengd og ég í þessum málum.
Við fáum mikla ánægju út úr litlum
hlutum, svo sem að horfa á sólarlag-
ið saman eða bara horfa á fallegt
umhverfi. Oft eldum við góðan mat
og borðum hann svo yfir kertaljós-
um i rómantískri stemningu í
skammdeginu. Lífsspeki mín í þessu
sambandi er kannski sú að njóta sem
flestra stunda í lífinu og gera lífíð
sem skemmtilegast. Allt of margir lifa
fyrir morgundaginn í stað þess að
njóta líðandi stundar," segir Ásta
Ragnheiður að lokum. -HG
Ég færi Steindóri gjama
morgnana og þá les hann
í rólegheitum. Það finnst
honum óskaplega gott,“
segir Margrét Ólafs-
dóttir leikkona þeg-
ar Tilveran
spurði hana
hvernig og
hvort hún stjan-
aði sérstaklega
við eiginmann
sinn í róman-
tískum tilgangi.
Margrét og
Steindór Hjörleifs-
son eiga langt
hjónaband að baki
og aðeins eitt ár þar
til þau munu fagna
gullbrúðkaupi. „Við
höfum aldrei beitt
neinum sérstök-
um brögðum í
rómantík
inni. Höf-
u m
ekki
kaffi á
blöðin
Asdís Sigmundsdóttir bókmenntafræðingur:
Tölum endalaust
um bókmenntir
Mín rómantík gengur ekki út
á kampavín, jarðarber og
að svamla i heitum potti. í
mínum huga er miklu meiri róman-
tík í að skapa sér umhverfi heima við
þar sem fólki líður vel saman,“ segir
Ásdís Sigmundsdóttir bókmennta-
fræðingur sem í vetur hefúr verið
reglulegur gestur ásamt sambýlis-
manni sínum, Stefáni Baldri Árna-
syni, í menningarþættinum Mósaík.
Sambúð Ásdísar og Stefáns hefur
staðið í rúm tvö ár þótt sambandið
nái töluvert lengra aftur. „Við höfúm
komið okkur upp ágætum venjum og
finnst til dæmis óskaplega gott að
sitja undir góðri tónlist og lesa hvort
í sinum enda sófans. Bækur eru okk-
ar sameiginlega áhugamál og við get-
um talað endalaust um bókmenntir.
Stundum lesum við líka hvort fyrir
annað," segir Ásdís.
Ásdís segir að þau
Stefán séu bæði afar
heimakær. „Við höld-
um stundum veislu okk-
ur sjálfum til heiðurs. Þá
eldum við góðan mat og
drekkum gjarna rauðvín með.
Það getur verið miklu
skemmtilegra en að fara á veit-
ingahús. Ég hef reyndar þá trú að
það sé hollt og gott fyrir pör að fara
^stöku sinnum á
■ kojufyllirí og
B skemmta sér tvö
ein i kotinu. Hvað
bóndadaginn^
varðar þá er ég:
fyrst að frétta af
honum núna.
Hann er ekki
sérstakur hátíð-
isdagur hjá
okkur,“ segir
Ásdis Sig-
. mundsdóttir
| bókmennta^
| fræðingur. -aþ
þurft þess enda elsk-
um við og virðum
hvort annað.
Við höfum
alla tíð
verið
mikið saman,
lengst af unnið á
sama vinnustað,
og jafnan haft til siðs
að skemmta okkur
saman en
ekki hvort í sínu lagi. Enn í dag get-
um við talað saman þótt við séum
auðvitað ekki alltaf sammála um alla
skapaða hluti og trúlega vegum við
hvort annað býsna vel upp,“ segir
Margrét.
Margrét segist hafa gaman að því
að gleðja mann sinn en i raun þyki
þeim báðum hversdagleikinn
svo skemmtilegur að ekki
þurfi mikið meira til. „Stein-
dór hefur til að mynda ekki
oft gefið mér blóm enda veit
hann að ég er ekki mikið
fyrir þetta afskoma. En
hann færir mér stund-
um súkkulaði og það
i þykir mér afskaplega
i vænt um.“
I Undanfarið hefur
ft Steindór þó mátt ann-
■ ast konu sína því y
B Margrét varð fyrir
því óláni að fót-
brotna á Þorláks-
\ messu. „Ég nýt
þess að láta hann
snúast í kringum
mig þessa dagana
en ég er líka farin
að hlakka til að
komast aftur á
fætur,“ segir Mar-
grét Ólafsdóttir.
-aþ
r
„Við höldum stund-
um veislu sjálfum
okkur til heiöurs,"
segir Ásdís.
DV-mynd Hiimar Þór
Margrét Ólafsdóttir hefur verið gift Steindóri Hjör-
leifssyni í 49 ár. Hún segir hversdagsleikann svo
skemmtilegan að ekki þurfi meira til.
Ástin
m
blómstrar á hverjum degi