Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000
7
DV
Fréttir
Ný forsíða Vísis.is opnuð:
Nýtt anddyri ís-
lenska Netsins
- aögangur að undirveQum bættur
í dag kynnir netmiðillinn Vis-
ir.is nýtt útlit, en verulegar breyt-
ingar hafa verið gerðar á þessu
vinsælasta vefsvæði landsins.
Helsta breytingin er sú að nú er
forsíðan stærri en einn skjár og
því mun meira pláss fyrir efni af
ýmsu tagi á forsíðunni. Þar verða
nú mun fleiri fréttir, bæði á frétta-
vef Vísis.is og einnig á hinum fjöl-
mörgu undirvefjum hans.
En það verður fleira en fréttir á
forsíðunni, því afþreyingarefni af
ýmsu tagi og netverslun verður
jafnframt gert hátt undir höfði. Þar
verður einnig aðgangur að Fripósti
Vísis.is og íslenska leitarsiðan
Leit.is mun skipa þar veglegan
sess. Með þessum miklu breyting-
um á stærstu netgátt landsins má
því segja að búið sé að koma upp
nýju anddyri að íslenska Netinu.
Stórbætt leiðakerfi
En það er ekki bara útlitið og
fjölbreytnin sem breytast, því allt
leiðakeríi Visis.is hefur verið stór-
!
A V»W<I« sjí |X'»»1 A ■&■**»itw+1*4
Itvirdi Landsbankam Ö»gord>i> t«ikur vjd umbodi TMU
hitö'v.'
Wm
milliardar
Hám&tttc-tanfesgítiaDMmtx. t kttau
>Un
YaLw-takion-Oalacftd
Kauptu miða
Ný forsíða og leiðakerfi Vísis.is gera notendum auðveldara að ferðast um
vinsælasta netmiðil landsins.
Eiríkur Hjálmarsson, ritstjóri Vísis.is:
Tryggjum stöðu okkar
„Fólk er í síauknu mæli að treysta á einstaka
netmiðla til að vísa sér veginn um Intemetið en
gerir jafnframt auknar kröfur til slíkra miðla. Það
er okkar hlutverk á Vísi.is að verða við þessum
kröfum en þær kalla einmitt á breytingar á vefnum
hjá okkur,“ segir Eiríkur Hjálmarsson, ritstjóri
Vísis.is, þegar hann er spurður út i þær breytingar
á netmiðlinum sem eiga sér stað í dag.
„I útlöndum sjáum við stóru netsvæðin verða sí-
fellt stærri. Ekki bara með aukinni netnotkun,
heldur líka á kostnað þeirra sem ekki hafa náð sér
á strik í samkeppninni. Með þeim breytingum sem
við erum að gera á Vísi.is núna, erum við að leit-
ast við að tryggja stöðu okkar sem leiðtogar á is-
lenska hluta Netsins. í raun efast ég ekki um að
notendur Vísis.is kunni vel að meta þessar breyt-
ingar og við höldum þeirri tryggð sem niðurstöður
óháðra kannana bera með sér að notendur Netsins
sýni okkur,“ segir Eiríkur.
-KJA
Eiríkur Hjálmarsson, ritstjóri Vísis.is, segir að breyting-
arnar á netmiölinum eigi sér staö í kjölfar aukinna krafa
almennings til netmiöla í dag.
bætt og aðgangur aukinn að öllum
undirvefjum Vísis.is. Sama leiða-
kerfi og er nú komið á forsíðuna
verður á öllum undirvefjum Vís-
is.is og því verður mun auðveldara
að ferðast um netmiðilinn en áður.
Þar með verður breidd netmiðils-
ins mun sýnilegri og almenningi
gert auðveldara að nýta sér kosti
hans til fullnustu.
Jafnframt hefur verslunarpláss
á Visi.is verið aukið til muna. Net-
verslun hefur vaxið mjög mikið á
síðustu mánuðum og sexfaldaðist
t.d. á Vísi.is á síðasta ári. Það er
því ljóst að sifellt fleiri eru að átta
sig á möguleikum netverslunar og
mikilvægt fyrir netmiðla eins og
Vísi.is að gera hana sem þægileg-
asta og aðgengilegasta.
Vísir í GSM
Jafnframt þessari breytingu hef-
ur Vísir.is síðan í nóvember verið
í fararbroddi hinnar geysihröðu
þróunar sem nú á sér stað hvað
varðar samgang Netsins og GSM-
síma. Þá hóf miðillinn VIT-þjón-
ustu sína í samvinnu við
Landssímann, sem þúsundir ís-
lendinga hafa nýtt sér, og nú hefur
WAP-þjónustu verið bætt við. Þeir
sem eiga til þess tæki og tól geta
því ávallt í framtíðinni treyst á
að vera í sam-
bandi við
vinsælasta
og öflugasta
netmiðil
landsins
hvar sem
þeir
staddir.
-KJA
WAP-sími
frá Nokia.
Nýr leikur á Vísi:
Leitaðu
fanga
í tilefni af nýju og stórbættu
útliti og leiðakerfi á Vísi.is er
nýjum verðlaunaleik hleypt af
stokkunum á netmiðlinum. Leik-
urinn gengur undir nafninu
„Leitaðu fanga“ og er honum
ætlað að kynna breytingarnar
fyrir notendum Vísis.is. Hann
gengur út á að notendur Vísis.is
leita að föngum sem fela sig inni
á hinum fjölmörgu undirvefjum
miðilsins. Einn fangi felur sig á
Vísi.is á hverjum degi, en leikur-
inn stendur yfir í tíu daga.
Þeir sem vilja taka þátt í að
leita fangans - smella á borða á
forsíðu Visis.is þar sem þeir fá
vísbendingar um á hvaða undir-
vef Vísis.is fangann sé að finna
hverju sinni. Síðan er verkefni
þeirra að flnna vefmn og leita
þar að fanganum. Þegar fanginn
er fundinn þarf að smella á hann
og þá er hægt að skrá nafn hins
fundvísa vísisnotanda. Þar með
er hann kominn í pott þeirra
sem eiga möguleika á veglegum
vinningum. Þeir eru hundrað
talsins og er nánari upplýsingar
að fá um þá á Vísi.is.
staðgreiðslu-
og greiðslukorta-
ofsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
a\W mil/i himi!
'ns.
Smáauglýsingar
\í
550 5000
RAUTT LJOS
þýðlr að stöðva skull
ökutækl skilyrðislaust.
MUNUMeFTIB
LÖGGÆSLU-
MYNDAVÉLUNUM
r
Hún hefst á morgun,
okkar árlega flísalagerútsala.
Opið til klukkan tfu fyrsta kvöldið.
Athugið, takmarkað magn.
GOLFEFNABUÐIN
traust undirstaða fjölskyldunnar
Borgartúni 33,108 Reykjavík,
s. 561 7800.
Laufásgötu 9, 600 Akureyri,
s. 461 4910.