Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Blaðsíða 29
I>'V MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000 37 Halldóra Björnsdóttir og Valdimar Örn Flygenring eru í aöalhlutverk- um í leikritinu Vér moröingjar. Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins: Vér morðingjar Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir á Smíöaverkstæðinu hið þekkta verk Guðmundar Kambans, Vér morðingjar. Þetta er áhrifamik- ið og sterkt verk um hjónabandið, ást og afbrýði. Hvað er tryggð, hvað er sannleikur, hvað er að elska? Sí- gildar spumingar sem stöðugt er leitað svara við. Vér morðingjar er talið eitt besta íslenska leikrit aldar- innar og gerði það Kamban frægan á svipstundu á Norðurlöndum og opnaði honum dyr allra leikhúsa þar eftir að verkið var frumsýnt 1920 í Kaupmannahöfn. Guðmundur Kamban (1888-1945) gerði íslenskri menningu og þjóðar- arfi glæsileg skil í verkum á borð við Höddu Pöddu og Skálholt en " , hann tókst Leikhus ekki síöur á ---------------við alþjóðleg viðfangsefni eins og í verkinu Vér morðingjar. Kamban er eitt af fremstu leikskáldum okkar, einn af „væringjum nýja tíinans", þeim Is- lendingum sem ákváðu að gerast skáld á erlenda tungu og vinna ís- lenskum bókmenntum ný lönd. Leikarar em Halldóra Bjömsdótt- ir, Valdimar Örn Flygenring, Linda Ásgeirsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Magnús Ragnarsson og Þór H. Tul- inius. Þórhallur Sigurðsson leikstýr- ir. Næsta sýning er annað kvöld. Ari Trausti Guömundsson. Á frumbyggja- slóðum í Kanada Ari Trausti Guðmundsson, jarð- eðlisfræðingur og ferðamálafrömuð- ur, mun fjalla um ferðir sínar á frumbyggjaslóðir í norðvesturhér- uðum Kanada í máli og myndum á vegum Vináttufélaags íslands og Kanada í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, í kvöld kl. 20. Allir vel- komnir. Samfylkingin Málefnahópar Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa hver af öðrum ver- ið að taka til starfa á undaníornum vikum. Næst tekur tO starfa mál- efnahópur um umhverfismál. Fólk sem áhuga hefur á þeim málaflokki ________________ætlar að hitt- Samkomur i fS þýðuhúsinu, Hverflsgötu 6-8. Starfið hefst á því að Össur Skarphéðinsson alþingis- maður fer yfir stefnu og áherslur þingflokks Samfylkingarinnar í þessum málaflokki. Félagsvist Félagsvist verður fyrir eldri borg- ara í safnaðarheimfli FeUa- og Hóla- kirkju í dag kl. 14-16. Verðlaun verða veitt þeim sem flest og fæst stig fá. Franskir bílar í AUiance Franpaise annað kvöld kl. 20 verður fyrirlestur um franska bOa. Umsjón hefur Ómar Ragnars- son, Renault og Peugeot-bUar verða tO sýnis á Ingólfstorgi. Salurinn, Tónlistarhúsi Kópavogs: Islenskir einsöngstónleikar I kvöld kl. 20.30 halda þau Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Rannveig Fríða Bragadóttir messosópran, Ólafur Kjartan Sigurðarson bariton og Anna Guðný Gumundsdóttir pí- anó, einsöngstónleika í Salnum. Tónleikarnir eru í tónleikaröð Tón- skáldafélags íslands í samvinnu við Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000 og verða að þessu sinni flutt íslensk einsöngslög frá fyrri hluta aldarinnar. Tónleikar Sigrún Hjálmtýsdóttir hefur hald- ið fiölda tónleika hér heima og er- lendis og sungið með íslenskum og erlendum hljómsveitum. Sigrún var á tímabili á starfslaunum lista- manna og hélt tónleika víða um heim og hér heima. Árið 1995 var Sigrún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Rannveig Fríða Bragadóttir hefur oftsinnis komið fram bæði á páska- og sumarhátíðinni í Salz- burg (Salzburger Festspi- ele). Rannveig hefur tekið virkan þátt í tónleikahaldi á íslandi, tekið þátt í óperu- sýningum Þjóðleikhússins og íslensku óperunnar, sungið með Sinfóníuhljóm- sveit íslands og haldið fiölda einsöngstónleika. Ólafur Kjartan Sigurðar- son hefur að mestu starfað erlendis og eru óperuhlut- verk hans m.a. Escamillo í Carmen, Sulpice í Dóttur herdeildarinnar, Bartolo í Rakaranum frá Sevilla og Figaro í Brúðkaupi Fígarós. Ólafur hélt tónleika í ís- lensku óperunni í desember á siðasta ári ásamt Emmu Bell og Finni Bjamasyni og hlutu þau öll einróma lof gagnrýnenda og áheyrenda. Islensk einsöngslög veröa flutt af þekktum óperusöngvurum í Salnum í kvöld. Stormviðvörun Viðvörun: Búist er við stormi, eða meira en 20 m/s á miðhálend- inu og víða um landið norðanvert fram á morgun. A og SA 18-23 m/s Veðrið í dag norðan til en slydda með köflum sunnan til. SV 13-18 m/s og él sunn- an- og vestan til en hægari og léttir til á Norðausturlandi i kvöld. Hiti 0 til 3 stig í dag en í kvöld kólnar heldur. Höfuðborgarsvæðið: A 8-13 m/s og slydda. Austlæg eða breytileg átt, 5-8 m/s og slydda með köflum síð- degis. Hiti 1 til 3 stig í dag. V 13-18 m/s, él og kólnar í kvöld. SV 8-13 í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 17.40 Sólarupprás á morgun: 09.41 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.06 Árdegisflóð á morgun: 09.23 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö 0 Bergstaðir skýjað 2 Bolungarvík alskýjaö 1 Egilsstaöir 0 Kirkjubœjarkl. skýjaó 2 Keflavíkurflv. alskýjaö 1 Raufarhöfn alskýjað 0 Reykjavík slydda á síð. kls. 1 Stórhöfói slydda 1 Bergen léttskýjaö 0 Helsinki alskýjað 0 Kaupmhöfn skýjað 4 Ósló hálfskýjaö 0 Stokkhólmur þokumóða -3 Þórshöfn skúr 5 Þrándheimur skýjað -1 Algarve heióskírt 10 Amsterdam skýjaö 5 Barcelona heiöskírt 9 Berlín léttskýjaó 5 Chicago þokumóða 1 Dublin léttskýjað 4 Halifax skýjaö -5 Frankfurt skúr 5 Hamborg skúr 4 Jan Mayen skafrenningur -6 London heiöskírt 4 Lúxemborg skýjað 3 Mallorca léttskýjað 8 Montreal heióskírt -10 Narssarssuaq skýjaó -13 New York heiöskirt -3 París léttskýjaö 5 Vín skúr 9 Washington heiðskírt -7 Winnipeg heiðskírt -9 Helstu þjóðvegir landsins færir Helstu þjóðvegir landsins eru færir en hálku- blettir eru víðast hvar. Þæflngsfærð hefur verið á Mosfellsheiði, Bröttubrekku og á Breiðdalsheiði. Á Færð á vegum heiðum á Norðausturlandi og Austurlandi hefur verið skafrenningur sem hefur tafið fyrir umferð. Ástand vega Skafrenningur m Steinkast 0 Hálka 0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir ófært CQ Þungfært © Fært fjallabTlum Símon Freyr Glaölegi drengurinn á myndinni er Tálknfirðing- ur og heitir Simon Freyr Fannarsson. Hann fæddist á fæðingardeild Landspít- Barn dagsins alans 24. ágúst 1999. Við fæðingu var hann 4250 grömm að þyngd og 55 sentímetrar. Foreldrar hans eru Herborg Hulda Símonardóttir og Fannar Freyr Ottósson og er hann þeirra fyrsta bam. Kevin Spacey hefur fengiö mikiö lof fyrir leik sinn í American Beauty. Amerísk fegurð Háskólabíó sýnir hina marglof- uðu American Beauty, sem fiallar um hjónin Lester (Kevin Spacy) og Carolyn Bumham (Anette Ben- ing). Þau lifa óskaplega venjulegu og að því er virðist fullkomlega hamingjuríku lífi í óskaplega venjulegu bandarísku millistéttar- úthverfi. En undir yfirborðinu ólga biturð og þunglyndi. Lester fer algerlega yfir um einn daginn þegar hann fellur fyrir tánings- stúlku, vinkonu dóttur sinnar, Jane. Jafnframt er sögð saga Jane sem kynnist ungum og feimn- um nágranna þeirra. American ///////// Kvikmyndir — Beauty er uppfull af góðum húmor en um leið samúðarfull háðsádeila á bandarískt smáborgarasamfélag. Auk þeirra Kevins Spaceys og Anette Bening leika í American Beauty Thora Birch, Mena Suvari, Wes Bentley, Peter Gallag- her, Scott Bakula, Chris Cooper og Sam Robards. Nýjar myndlr í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Bringing out the Dead Saga-bíó: Englar alheimsins Bíóborgin: Breakfast of Champions Háskólabió: Rogue Trader Háskólabíó: American Beauty Kringlubíó: Stir of Echoes Laugarásbíó: Next Friday Regnboginn: Anywhere But Here Stjörnubíó: Bone Collector Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 e 9 10 rr “ 12 13 14 16 16 it •Ið ^4 io 2t Lárétt: 1 afturganga, 5 reykja, 8 traustan, 9 rusl, 10 varðandi, 12 durgar, 13 kæpa, 15 miskunn, 17 skordýrin, 20 krap, 21 fljótfæmi. Lóðrétt: 1 handlaugum, 2 getur, 3 tré, 4 tamdar, 5 hótar, 6 skítur, 7 utan, 11 fljótið, 14 tölu, 16 fljótið, 18 sting, 19 rykkom. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 1 slóttug, 8 pata, 9 óma, 10 aftur, 11 ós, 12 karmar, 15 una, 17 unað, 19 ró, 20 fróði, 21 lind, 22 tin. Lóðrétt: 1 spakur, 2 lafa, 3 ótt, 4 taumur, 5 tóra, 6 um, 7 gas, 11 óraði, 13 Rafn, 14 iðin, 16 nói, 18 nót. v. < <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.