Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2000, Qupperneq 32
_ ISUZU Trooper 159 hestöfl Sjálfskiptur FR ÉTTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í sfma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Knattspyrnudómari landsins í dómarastúkuna: . Meðdómandi í sakamáli - markvöröur ÍBV ákærður fyrir líkamsárás í leik Guðmundur Haraldsson, fyrrum milliríkjadómari í knattspymu, hef- ur verið skipaður meðdómandi í sakamáli ákæruvaldsins gegn leik- manni ÍBV sem haldið er fyrir Hér- aðsdómi Reykjaness. Dómsformaður er Finnbogi Alex- anderson héraðsdómari en hinn meðdómandinn er Jónas Jóhanns- son héraðsdómari. Svo viil til að Guðmundur Har- aldsson er ekki allveg ókunnur dómsölum landsins því hann hefur um árabil starfað sem dómvörður við Héraðsdóm Reykjavíkur. Það er hins vegar ekki ástæðan fyrir því að hann er skipaður meðdómandi í knattspyrnusakamálinu því óum- deilt þykir að fáir, ef nokkrir, teljist , .^.heppilegri sérfræðingar á sviði knattspyrnudómgæslu en Guð- mundur. Sakamálið, sem teljast verður með þeim óvenjulegri hér á landi, hefur þegar verið þingfest í Héraðs- dómi Reykjaness. Þar er ma> i.verði í knattspymuliðiði ÍBV, Gutiuari B. •bm. Nýtt spítalanafn: Þúsundir brjóta heilann „Hér eru auglýsingar upp um alla veggi þar sem starfsfólk er beðið um að brjóta heilann um nýtt nafn á stóru sjukrahúsin tvö ef og þegar þau verða sameinuð," sagði ritari framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur í morgun. Að sögn ritarans hafa tilmælin einnig verið send starfsmönnum í tölvupósti. Ljóst er að mörg þús- und heilbrigðisstarfsmenn leggja nú höfuðið í bleyti i leit að nýju nafni því aðeins starfsmenn Sjúkrahúss Reykjavíkur eru 1800 talsins. -EIR Sjö kettir Alls hafa verið veiddir tólf tlæk- ingskettir í miðbæ Reykjavíkur frá því á mánudagskvöld. Samkvæmt skilgreiningu átaks Reykjavikurborg- ar eru flækings-kettir þeir sem eru ut- andyra meðan á átakinu stendur. Meirihluti kattanna beit á agnið á sömu lóðinni í miðbænum. -hól Gummi Haralds dómvörður, eins og hann er gjarnan kallaður, fer á næst- unni upp í dómarastúkuna í Héraðs- dómi Reykjaness í sakamáli sem ákæruvaldið höfðar gegn leikmanni ÍBV sem beinbraut leikmann HK í knattspyrnuleik. Runólfssyni, 19 ára, gefin að sök stórfelld líkamsárás með því að fót- brjóta andstæðing sinn úr HK í Kópavogi í leik á íslandsmótinu innanhúss í íþróttahúsinu Digra- nesi í upphafi árs 1999. Gunnar hélt nýlega fram sakleysi sinu við þing- festingu málsins fyrir dómi - þ.e. að þama hafi verið um slys að ræða - alls ekki ásetningsofbeldi. Þegar aðalmeðferð fer fram í mál- inu munu m.a. liggja fyrir gögn frá KSÍ auk þess sem þolandinn í mál- inu, Villy Þór Ólafsson, 19 ára leik- maður HK, mun mæta, auk fleiri vitna að þessu atviki. Fótleggur hans þverbrotnaði við sköflung þeg- ar Gunnar „tæklaði" hann eins og kemur fram í ákæruskjali. Villy fer fram á 1.099.944 krónur í skaðabæt- ur af hálfu Gunnars. Telja má að um einsdæmi sé að ræða í réttarsölum landsins að íþróttafólk svari til saka og greiði háar fjárbætur fyfir að hafa gert lík- amlega á hlut andstæðinga sinna. -Ótt Skipstjóri á Norðurlandi: Dæmdur fýrir að afskrá ekki háseta DV, Akureyri: Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt skipstjóra á fiskiskipi í fjársekt fyrir að hafa ekki afskráð tvo háseta seint á síðasta ári en menn- irnir voru hvorugur um borð í skip- inu þegar það hélt til veiða í október. Fyrir dómi var þess krafist að skipstjórinn yrði dæmdur til refsing- ar en skipstjórinn hafði neitað boði ákæruvaldsins um að ljúka málinu með sektargreiðslu. Hann kvaðst' hafa tilkynnt útgerðarmanni skips- ins eða fuiltrúa hans að mennirnir tveir færu af skipinu en útgerðinni hefði láðst að tilkynna það til lög- skráningarstjóra. í réttarhaldinu kom fram aö það væri skylda skipstjóra að sjá um að lögskrá og afskrá menn á skip þeirra og skipstjórinn hefði í þessu tilfelli ekki uppfyllt þá skyldu sína. Við upp- kvaðningu dómsins var tekið tillit til þess að skipstjórinn hafði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, og var hann dæmdur í 10 þúsund króna sektargreiðslu til ríkissjóðs og til alls sakarkostnaðar. -gk Hnífakona rændi verslun Ung kona vopnuð hnífi ógnaði afgreiðslustúlku í versluninni Kjalfelli við Gnoðarvog í gær- kvöld og hafði á brott með sér 5-6 þúsund krónur. Konan gerði ekkert til að skýla andliti sínu. Er hennar nú leitað: -gk MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2000 Mannlífið í Reykjavík. íbúar Reykjavíkur hafa eflaust ekki farið varhluta af framkvæmdum sem staðið hafa yfir í Austurstræti. Maðurinn sem gengur í rólegheitum undir vinnupöllunum veit kannski ekkert af mönnunum sem eru aö spjalla saman í rólegheitum fyrir ofan hann. DV-mynd Hilmar Þór Veðrið á morgun: Léttir til á Austurlandi Á morgun verður suðvestanátt, 8-13 m/s og víða él en 10-15 m/s á annesjum norðanlands og léttir smám saman til á Austurlandi. Frost 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. L J Ó S A P E R U R SYLVANIA Hefur þú prófað 115 g alwöru hamborgara? Bæjarlind 18 - 200 Kopavogi sími 564 2100 Netfang: midjan@mmedia.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.