Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Framkvæmdastjóri Isfugls rekinn:
Mannfórnir í
fuglasláturhúsi
- nýbakaður stjórnarformaður kannast ekki við neitt
Guöni Jónsson, framkvæmda-
stjóri kjúklingasláturhússins ís-
fugls ehf. frá því í september siö-
astliðnum, hefur verið rekinn frá
fyrirtækinu. í byrjun þessa mánaö-
ar hótaði helmingur starfsmanna
ísfugls að segja starfl sínu lausu
nema Guðna yrði vikið úr starfi.
Mikil óánægja mun hafa verið
meðal þessa starfsfólks ísfugls með
stjómunarhætti og viðmót Guðna.
Þá mun hafa farið fyrir brjóst
starfsmanna að stjóm ísfugls sagði
Guðmundi Haukssyni, sláturhús-
stjóra hjá fyrirtækinu, upp störf-
um en þeim Guðna og Guðmundi
mun ekki hafa lynt saman.
Annar heimildarmaður DV segir
á hinn bóginn að ástæður brott-
vikningar Guðna sé fyrst
og fremst að finna í sam-
skiptum hans og eigenda
ísfugls sem hafi einkennst
af stöðugum átökum og
ágreiningi um daglegan
rekstur fyrirtækisins.
Eftir nokkurt þóf varð
úr að Guðni var rekinn
eins og áður sagði og hefur
hann þegar yfirgefið ísfugl
og fjármálastjóri fyrirtæk-
isins tekið við starfi hans.
Samhliða þessum atburð-
um urðu breytingar á
stjóm félagsins en Rafn
Hafnfjörð á Bræðrabóli, mágur
Guðna, sagði af sér stjómarfor-
mennsku og við henni tók Þor-
öLcíiiii Sigmundsson í El-
liðahvammi.
Guöni þótti of dýr
Miklar vonir virtust
bundnar við Guðna þegar
hann var ráðinn til starfa
hjá ísfugli f haust. Hann
var kynntur á heimasíðu
fyrirtækisins á Netinu og
þar kom fram að hann hefði
áður starfað hjá íslenskum
sjávarafurðum hf. í Bret-
landi og Þýskalandi. „Við
væntum mikils af honum í
framtíðinni," sagði á
heimasíðu ísfugls.
Þorsteinn Sigmundsson, nýbak-
aður stjómarformaður ísfugls,
kannast hins vegar ekki við neitt af
ofangreindu, að frátöldum eijum
milli Guðna og Guðmundar slátur-
hússtjóra. Hann segir engan ágrein-
ing hafa verið milli Guðna annars
vegar og starfsmanna og eigenda ís-
fugls hins vegar og aftekur að
Guðni hafi verið rekinn. „Þaö er
tóm vitleysa. Guðni var ráðinn hér
í sex mánaða verkefhi og því lauk
einfaldlega um daginn. Við hefðum
fegnir viljað hafa hann áfram en
hann er sérfræðingur í markaðs-
setningu og dýr eftir þvf. Guðmund-
ur Hauksson fór hins vegar bara í
frí til Ameríku og það á eftir að
skoða hvort hann er hættur þegar
hann kemur til baka,“ segir Þor-
steinn. -GAR
Þorsteinn
Sigmundsson.
Tók viö stjómar-
formennskunni.
Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræöuna. DV-mynd Hiimar Þór
Utandagskrárumræða á Alþingi um fátækt:
Erfiðleikum verður
aldrei útrýmt
- segir Davíð Oddsson forsætisráðherra
Lóðaútboð:
Skatt-
heimta sem
fer beint út
í verðlagið
- segir Júlíus Vífill
„Annar áfangi lóðaútboðs Reykja-
víkurborgar í Grafarholti gefur til
kynna að borgin hafi fengið um 280
milijónum króna meira en hefðu
gatnagerðargjöld verið innheimt á
hefðbundinn hátt. Séu umframtekjur
borgarinnar í 1.
og 2. hluta út-
boðsins fram-
reiknaðar og
lagðar saman
verðiu- niður-
staðan að borgín
fáer ríflega 700
milljónum
króna meira I
sinn hlut. Þessi
aukakostnaður
lendir á byggingafyrirtækjum sem
fengu lóðimar og fer beint út i íbúöa-
verðið sem þó hefur hækkað um tæp
20% á skömmum tíma,“ segir Júhus
Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, vegna niðurstaðna
sem liggja fyrir um lóðaútboð Reykja-
víkurborgar í Grafarholti.
Samkvæmt niðurstöðunum heíði
borgin fengið 178 milljónir króna úr
hefðbundinni úthlutun lóða sem voru
í 1. áfanga útboðsins en niðurstaðan
var 427 milljónir króna. í 2. áfanga
varð niðurstaðan 515,8 milljónir
króna í stað 237 miiljóna sem hefðu
innheimst með almennri gjaldtöku.
Samtals gerðir þetta gjaldtöku upp á
1,2 milljarða í stað 485 milljóna ef
venjuleg gjaldheimta hefði farið fram.
„Þessi hækkun fer beint út í verð-
lagið á íbúðamarkaðinum sem var
orðið mjög hátt fyrir vegna lítils
framboðs lóða. Meirihlutinn hefur
ekkert gert í úthlutun nýrra lóða fyrr
en farið var I Grafarholtið og þar fer
þá fram stófeUd skattheimta sem mun
bitna illa á ungu fólki sem borga þarf
hærri fasteignaskatta. Og íbúðaverð
mun enn hækka. Það er hægt að fara
í útboð á lóðum í sérstökum tiifellum
en þá þurfa skýr skilyrði að vera fyr-
ir hendi þar sem einnig er hægt að
velja um aðrar lóðir. En þama var
ekki um annað að ræða, menn höfðu
ekkert val,“ sagði Júlíus VífUl.
-hlh
„Það er ekki til stéttlausara þjóðfé-
lag en ísland þó viö munum aldrei,
ekkert okkar, hversu góð sem við
erum, geta algjörlega útrýmt erflö-
leikum vegna fjárhagsástæðna á
hverjum einasta bæ,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra í umræð-
um á Alþingi i gær um skýrslu Rauða
krossins um fátækt á íslandi. Umræð-
an fór fram utan dagskrár, að beiðni
Guðrúnar Ögmundsdóttur samfylk-
ingarþingmanns. Guðrún sagði nauð-
synlegt að skoða stöðu ómenntaðra
einstæðra mæðra og ungs fólks á
landsbyggðinni og að hagur elli- og
örorkulífeyrisþega og bammargra
láglaunaíjölskyldna yrði bættur.
Guðrún spurði um stefnu ríkis-
stjómarinnar m.a. hvað varðaði kjör
bótaþega og um afnám tekjutengingar
bamabóta. Davíð Oddsson sagði aö
allir hefðu notið góðs af árangri
stjómarstefnunnar. Hann sagði að
kaupmáttur bóta sem ríkið greiddi
hefði hækkað á síðasta kjörtímabili
en hefði hins vegar lækkað á því
tímabili sem þingflokkar Samfyiking-
arinnar vora í ríkisstjóm.
Þingmenn stjómarandstöðunnar
sögðu aftur á móti aö nýlegar kann-
anir sýndu að fátækt væri alvarlegt
vandamál í íslensku samfélagi.
Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðisflokki,
setti fram þá hugmynd að stofhaður
yrði samstarfshópur stjómmála-
flokka og félagasamtaka sem myndi
leggja fram tillögur til úrbóta fyrir þá
sem viö mest vonleysi stríði ög-
mundur Jónasson, Vinstri grænum,
lagði hins vegar til að samið yrði
formlega við hagsmunasamtök þeirra
tekjulægstu vegna málsins og Guðrún
Ögmundsdóttir lagði til aö skipaður
yrði vinnuhópur til að vinna raun-
hæfar tillögur. -GAR
Júlíus Vifill
Ingvarsson.
Stuttar fréttir i>v
Breytingar
Breyta þarf
rekstrarfyrir-
komulagi
Borgarleik-
hússins í ljósi
„þess sér-
kennilega
sjónarspils"
sem hefur átt
sér stað undanfarið, segir Ámi
Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi R-
lista. í gær fór fram umræða í
borgarstjóm um málefni Borgar-
leikhússins. Sjónvarpið greindi
frá.
Hlaut verðlaun
Sofíía Sæmundsdóttir mynd-
listarkona tók í gær við verðlaun-
um fyrir verk í stærstu myndlist-
arkeppni heims. Karl Bretaprins
afhenti verðlaunin. 22.000 Usta-
menn tóku þátt í keppninni. Sam-
einuðu þjóðimar hafa valið verð-
launaverkin á opinbera sýningu
samtakanna á aldamótaárinu.
RÚV greindi frá.
Einungis 1 ár
Samninganefnd VMSÍ og iðn-
verkafólks beinir því til félags-
manna sinna að skoða alvarlega
að gera ekki eða framlengja
kjarasamnÍHga til lengri tíma en
eins árs. Bylgjan greindi frá.
Gegn betri vttund
Valdimar Jóhannesson segir að
heilbrigðisráðuneytið gefl yflrlýs-
ingar gegn betri vitund þegar það
heldur því fram að sala á upplýs-
ingum til ÍE sé ólögleg. Dagur
greindi frá.
Tvöfaft meira
Hæstiréttur
hefur dæmt
bíókónginn
Áma Samúels-
son til að
greiða
firmanu
Höndli 4,5
milljónir
króna vegna kaupa Áma á út-
varpsstöðinni FM. Þetta er ríflega
tvöfalt meira en undirréttur hafði
dæmt Áma til að greiða. Dagur
sagði frá.
Líkamsárásarkæra
Foreldrar tólf ára drengs hafa
kært sundlaugarverði í Breiö-
holtslaug fyrir líkamsárás.
Drengurinn haíði farið í sturtu í
sundskýlunni. Stöð 2 greindi frá.
Gerast hluthafar
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu um aö starfsmönnum
Orkuveitunnar og Línu.Net.
verði boðið að gerast hluthafar í
fyrirtæki Orkuveitunnar
Línu.Net. Mbl. greindi frá.
Halda löggunni
Bæjarráð Grindavlkur og
sýslumaðurinn í Keflavík hafa
komist að samkomulagi um að
Grindvíkingar haldi löggæsl-
unni í bænum.
Lttill hagnaður
íslendingar fjárfestu beint í
atvinnurekstri erlendis fyrir
um 5 milljarða kr. á árinu 1998.
Fjárfestingin hefur skilað litlum
hagnaði. Mbl. gwreindi frá.
Fleiri sjálfsvíg
Sjálfsvígum í
Reykjavík fjölg-
aði úr 12 í 21
milli áranna
1998 og 1999 og
sjáifsvígstil-
raunum fjölg-
aði úr 51 í 101 á
sama tímabili.
Landlæknir segir þessa fjölgun
sjálfsvíga mjög alvarlega. Starfs-
hópur sem settur hefur verið á
stofn á vegum landlæknisemb-
ættisins mun kanna hvemig
megi efla vamir gegn sjálfsvíg-
um. Mbl. greindi frá.
Dýpri höfh
Dýpkunarframkvæmdum við
Faxagarð í Reykjavíkurhöfn er
lokið þar sem búið er aö dýpka
höfnina niður í 7,5 metra.
-hlh/hdm