Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
McCain segir
sigur á morgun
þýðingarmikinn
John McCain sagöi í gær að sig-
ur hans í forkosningunum í Suð-
ur-Karólínu á morgun gæti reynst
vendipunkturinn i baráttunni um
aö verða forsetaefni repúblikana í
haust. Nýjustu skoðanakannanir
benda til að jafnræði sé með
McCain og George W. Bush, ríkis-
stjóra í Texas.
„Við getum tapað hér og haldið
samt áfram. Baráttan heldur
áfram til 7. mars þegar kosið
verður í Kaliforníu og öðrum ríkj-
um en ef við sigrum hér fæ ég
ekki séð hvemig hægt verður að
stöðva okkur,“ sagði McCain á
fundi með stuðningsmönnum sín-
um í bænum Spartanburg.
Sigur McCains yrði mikið áfall
fyrir Bush sem hefur eytt meira
fé í kosningabaráttunni til þessa
en nokkur annar í baráttunni um
forsetaembættið frá upphafi.
IRA hvetur til
að heimastjórn
verði endurreist
Skæraliðar írska lýðveldishers-
ins (IRA) hvöttu Breta í gær til að
endurreisa heimastjórnina á
Norður-írlandi til að blása nýju
lífi í friðarferlið.
í viðtali við vikurit Sinn Fein,
pólitísks arms IRA, sagði talsmað-
ur skæruliða að eina leiðin til aö
kippa ástandinu í liðinn væri að
bresk stjómvöld afturkölluðu
ákvörðun sína.
Heimastjómin var leyst upp
fyrir viku þar sem IRA hafði ekki
gefið skýr svör um hvemig sam-
tökin ætluðu að láta vopn sín af
hendi. IRA svaraöi með því að
draga sig út úr viðræðum við al-
þjóðlega afvopnunarnefnd.
Frá Hvíta húsinu bárust þær
fréttir í gær að fulltrúar allra
deilenda á Norður-írlandi væm
væntanlegir til Washington á
næstu dögum tU að ræða stöðuna.
Milosevic Júgóslavíuforseti í essinu sínu á flokksþingi:
Stjorn SÞ fari
burt frá Kosovo
Slobodan MUosevic Júgóslavíu-
forseti veittist harkalega að stjóm
Sameinuðu þjóðanna í Kosovo-hér-
aði í gær og sagði að henni hefði
mistekist að koma á friði. Því væri
ekki annað fyrir hana að gera en að
hafa sig á brott.
MUosevic notaði tækifærið í
ræðu sem hann hélt á þingi sósí-
alistaflokks síns í Belgrad, þar sem
hann var endurkjörinn formaður,
og vandaði sameinuðum stjórnar-
andstæðingum í Serbíu ekki kveðj-
umar. Hann sakaði þá um að hafa
svikið landið og eyðilagt þá bæi sem
þeir sitja við stjómvölinn.
„Við búum í raun ekki við neina
stjómarandstöðu í Serbíu. Við bú-
um við hóp af mútuþægum vesal-
mennum, fjárkúguðum spákaup-
mönnum og þjófum,“ sagði Slobod-
an Milosevic.
Slobodan Milosevic Júgóslavíufor-
seti veittist bæöi aö andstæöingum
sínum heima fyrir og vesturveldun-
um á flokksþingi í gær.
Forsetinn sneri sér þá að ástand-
inu í Kosovo og sagði að vera er-
lendra fulltrúa þar væri til skamm-
ar. Hann sagði að júgóslavnesk yfir-
völd ættu að taka við stjórninni í
héraðinu.
„Gagnstætt þeim getum við tryggt
frið og öryggi íbúa Kosovo, frelsi og
jafnrétti," sagði Milosevic. Hann lét
þess þó ekki getið hvernig stjóm-
völd í Belgrad myndu endurheimta
stjóm Kosovo.
Weseley Clark, yfirhershöfðingi
NATO, sagði í Washington í gær að
hersveitir bandalagsins yrðu að öll-
um líkindum í Kosovo á meðan
Milosevic væri við völd.
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, lagði áherslu á það í
gær að vel gengi að koma á friði í
Kosovo, þrátt fyrir átök í borgum
eins og Mitrovica.
Iranir kjósa um
umbótastefnu
Þetta furöulega fley mátti sjá í höfninni í Auckland á Nýja-Sjálandi í morgun. Um borö eru stuöningsmenn nýsjá-
lensku siglingakappanna sem taka þátt f úrslitakeppninni um hinn eftirsótta Ameríkubikar. Keppendur sem eiga
svona áhugasama stuöningsmenn geta varla annaö en unniö. Keppinautar Nýsjálendinga eru ítalskir.
Jörg Haider vísað frá
helfararsafni í Kanada
íranir ganga að kjörborðinu í
dag og kjósa sér nýtt þing. Valið
stendur milli umbótastefnu Mo-
hammads Khatamis forseta og
hugmynda hans um íslamskt lýð-
ræöi annars vegar og stefnu
íhaldsmanna hins vegar.
Ríkisfjölmiðlarnir áminntu
kjósendur um
að kjósa sem
allra fyrst og
svo virtist sem
íbúar höfuð-
borgarinnar
Teheran ætluöu
að svara kall-
inu. Annars eru
þeir þekktir fyr-
ir að mæta seint á kjörstað.
„Við ætlum að kjósa umbóta-
sinnana," sagði táningur sem var
með vinum sinum við eina kjör-
deildina. „Við teljum þá geta orð-
iö við kröfum unga fólksins og
þjóðfélagsins."
Tæplega 39 milljónir manna,
frá 16 ára aldri, hafa atkvæöisrétt.
Frambjóðendur eru vel á sjötta
þúsundið, þar af aðeins íjögur
hundruð konur. Fyrstu úrslit eru
væntanleg á morgun.
Jörg Haider, leiðtoga
Frelsisflokksins í Austurríki, var
meinaður aðgangur að helfararsafni
gyðinga í Montreal í Kanada á
miðvikudaginn. David Birnbaum,
leiðtogi gyðinga í Quebec, greindi
frá þessu í gær. í gær söfnuðust
mótmælendur framan við hótelið
sem Haider dvaldi á og hrópuðu
slagorð gegn honum.
Haider hafði fengið boð um að
koma til Kanada og heimsækja
háskóla og taka þátt í brúðkaupi.
Boðið kom frá samtökum
heittrúaðra gyðinga, Tash-
samtökunum, sem eiga rætur í
keisaradæminu Austurríki-
Ungverjaland. Samtökin eru sögð
hafa sent Haider hamingjuóskir
þegar hann hélt upp á
fimmtugsafmæli sitt í janúar
síðastliðnum. Samtökin hafa einnig
Haider fékk boö frá samtökum
gyöinga um aö koma til Kanada.
Samtökin segja bréfiö falsaö.
lýst yfir andúð sinni á viðbrögðum
þeim sem Haider hefur fengið víða
um heim. En þegar Haider kom til
Kanada neituðu samtökin að hitta
hann.
í viðtali við Reuterfréttastofuna í
gær sagði talsmaður samtakanna,
Hesy Weinberger, að bréfið sem
Haider fékk hefði verið falsað.
í viðtali við blaðið The Gazette í
Montreal sagði Haider í gær að
hann sjálfur og flokkur hans væri
óréttilega stimplaðir sem ný-fasistar
af vinstri sinnuðum andstæðingum
sínum.
Haider hélt til Toronto í gær til
fundar við austurrisk-kanadískan
kaupsýslumann. Utanríkisráðherra
Kanada, Lloyd Axworthy, lagði
áherslu á að kanadísk stjórnvöld
tengdust ekki heimsókn Haiders til
landsins.
Vísa gagnrýni á bug
Bandarísk yfirvöld vísa á bug
gagnrýni Rússa vegna móttöku
sendimanns Tsjetsjena í þessari
viku. Hvöttu Bandaríkin Rússa til
að rannsaka meint voðaverk rúss-
neskra hermanna í Tsjetsjeníu.
Sprenging í lest
Að minnsta kosti sextán særð-
ust þegar sprengja sprakk í far-
þegavagni í lest á lestarstöð í Utt-
ar Pradesh á Indlandi í gær.
Skoða læknaskýrslu
Spænski dómarinn Baltasar
Garzon hefur skipað hóp lækna
til að rannsaka
skýrslu breskra
lækna um
heilsufar Augu-
stos Pinochets,
fyrrverandi ein-
ræðisherra
Chile. Tvö
spænsk dagblöð
greindu frá því að bresku lækn-
arnir hefðu úrskurðað að Pin-
ochet væri með heilaskaða.
Barnaníðingar fundnir
Bresk yfirvöld hafa fundið þá
28 starfsmenn fósturheimila sem
leitað var að eftir skýrslu um mis-
notkun á yfir 600 bömum í Wales
á um 20 ára tímabili.
Börn særast í skotárás
Fimm palestínsk skólabörn
særöust i gær þegar vopnaður
maður skaut á skólabil þeirra við
flóttamannabúðir i Líbanon.
Þörf á vaxtahækkun
Alan Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, sagði í gær
að nauðsynlegt kynni að vera að
hækka vexti hóflega til að koma í
veg fyrir ofþenslu.
Má ekki bjóða sig fram
Þjóðernissinninn Vladimir
Zhírínovskí fær ekki að bjóða sig
fram í rúss-
nesku forseta-
kosningunum.
Þetta tilkynnti
kjörnefnd í gær
eftir að hafa
rannsakað fjár-
hag Zhírínov-
skís. Hann ætl-
ar að áfrýja úrskurðinum. Nefnd-
in gerði athugasemd við íbúð í
eigu sonar Zhírínovskís sem ekki
var gerð grein fyrir. Gera þarf
grein fyrir eignum allra fjöl-
skyldumeðlima.
Risasafír á Sri Lanka
Sérfræðingar rannsaka nú eðal-
stein upp á 1,5 kíló sem fannst í
námu á Sri Lanka. Talið er að um
safír sé að ræða.
Foringja leitað
Kristilegir demókratar sögðu í
gær að þeir hefðu frestað tilnefn-
ingu nýs formanns þar til í apríl.
Ekki þykir ástæða til að taka
ákvörðun í skyndi.
Skilaboð frá Clínton
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sendi í gær Yasser Arafat Palest-
ínuleiðtoga boð um að Bandarík-
in væru reiðubúin að blása nýju
lífi í friðarferlið.
Bondevik ógnað
Norska stjórnin er aftur í
hættu. Ástæðan er sú að Stórþing-
ið vill neyða
stjórnina til að
reisa tvö
gasorkuver.
Segi ríkisstjóm-
in nei eru dagar
hennar taldir.
Það eru einkum
Verkamanna-
flokkurinn og Hægriflokkurinn
sem leggja áherslu á gasorkuver-
in verði reist nú. Mikil spenna
ríkir nú innan norsku stjórnar-
innar vegna málsins.
Lögregla beitti táragasi
Lögregla í Beirút beitti í gær
táragasi gegn þúsundum náms-
manna sem mótmæltu stuðningi
Bandaríkjanna við ísrael.