Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Side 7
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
7
Fréttir
Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir aö sér geðjist ekki að söluherferð gegn ÍE:
Ráðherra getur ein-
hliða sett ÍE ný skilyrði
- ef hún semur um greiðslur til einstaklinga, segir lögfræðingur ráðuneytisins
Eiríkur Tómasson lagaprófessor
segir að sér geðjist ekki að þeim vinnu-
brögðum að bjóða almenningi að selja
fyrir hann aðgang ÍE að sjúkraskrám
fVrir miðlægan gagnagrunn. Slíkt geti
hreinlega stefnt visindarannsóknum í
hættu.
Varðandi afdráttarlausa yfirlýsingu
heilbrigðisráðuneytisins um að Is-
lenskri erfðagreiningu sé ekki heimilt
að greiða einstaklingum fyrir þátttöku
í gagnagrunninum og ÍE hafi verið til-
kynnt að komi til samninga um slíkar
greiðslur geti slikt varðað sviptingu
rekstrarleyfis, segir Eiríkur:
„Ég held að málið liggi þaimig fyrir
að ef heilbrigðisráðuneytið sýnir fram
á með rökum að þetta hafi verið skil-
yrði er þvi heimilt að rifta leyfinu ef
þau skilyrði eru ekki lengur uppfyllt.
Ég hef ekki séð leyfið en ef það er
byggt á þessari forsendu þá getur hún
verið brostin ef farið er að greiða fyrir
að koma inn í grunninn," sagði Eirík-
ur.
Þá datt engum slíkt í hug!
Guðríður Þorsteinsdóttir, skrifstofú-
stjóri lögfræðideildar heilbrigðisráðu-
neytisins, sagði við DV að í leyfi heil-
brigðisráðherra til íslenskrar erfða-
greiningar séu
engin sérstök
ákvæði um sölu
einstaklinga á
sjúkraskrám til ÍE:
„Á þeim tíma
sem leyfið var
veitt datt engum
nokkuð slikt í hug.
Hins vegar kemur
skýrt fram í reglu-
gerð um gagna-
grunn að ef upp
komi sú staða að menn telji að setja
eigi ný skilyrði þá er sú leið opin.
Rekstrarleyfið er einhliða ákvörðun
ráðherra. Samkvæmt því er heimild til
að hann setji ný skilyrði hvað þetta
varðar.“
Guðríður sagði jafhframt að ráðu-
neytið telji að með hliðsjón af alþjóða-
reglum sé óheimilt að greiða fyrir upp-
lýsingar úr sjúkraskrám.
Eiríkur Tómasson segir að sumar
vísindarannsóknir séu arðbærar, aðr-
ar ekki. „Mér sem fræðimanni geðjast
ekki að þessari söluhugmynd í
„prinsippinu". Hins vegar finnst mér
þetta mál allt saman vera þess eðlis að
ná verði víðtæku samkomulagi um
það hvemig upplýsingar fari í gagna-
grunninn - læknar
sjúklingar og þeir
sem reka þennan
grunn. Mér finnst
þetta því allt vera
á réttri leið.“
Lyfjafyrirtæki
greiöa fyrir
„óþægindi"
Valdimar Jó-
hannesson bendir
á það í bréfi að
heilbrigðisráðuneytið tali gegn betri
vitund þegar það heldur því fram að
ekki sé heimilt að greiða fyrir sjúkra-
skrár. 1 því sambandi vísar hann
m.a. til fyrirtækjanna Delta hf.,
Lyfjaverslunar íslands hf. og Lyfia-
þrófunar hf. - slík fyrirtæki greiði
iðulega fyrir þátttöku í vísindarann-
sóknum.
Aðspurð um þetta atriði sagði
Guðríður hjá heilbrigðisráðuneytinu
að þar geri hún ráð fyrir að þar sé
einungis verið að greiða einstakling-
um fyrir vinnutap og ferðakostnað.
Ekki þátttöku.
Sturla Geirsson, forstjóri Lyfia-
verslunar íslands, sagöi við DV í
þessu sambandi:
„Það sem er verið að meina þarna
er að þegar virkun einstakra lyfia í
fólki er rannsökuð hjá okkur eru
fengnir sjálfboðaliðar til að prófa lyf-
in. Þá er þeim greitt fyrir þau óþæg-
indi og fyrirhöfn sem fólkið leggur á
sig. Það er frekar litið svo á en að
fólkið sé að þiggja laun. Ég held að
það sé misskilningur að bera þetta
saman," sagði Sturla. -Ótt
Kuummiit:
Eplalaust í
kaupfélaginu
- en nóg af bjór
DV, Kuuminiit:
Nokkur vöraskortur er farinn að
gera vart við sig í kaupfélaginu,
KNI, í Kuummiit á austurströnd
Grænlands. Þegar DV var þar á ferð
kom í ljós að epli og appelsínur era
uppseldar og ekki von á sendingu
fyrr en vorskipið kemur eftir að ísa
leysir. Annar vöruskortur er einnig
orðinn áberandi, svo sem sá að pip-
arinn er uppseldur, sem og rafhlöð-
ur. Það er fátt um fina drætti hvað
varðar mjólkurvörar. Þrátt fyrir að
vöraskortur sé þegar orðinn áber-
andi er viðbúið að enn erfiðara verði
um vik á vormánuðum en fyrsta
skip kemur ekki fyrr en í maí eða
júní þegar ísa leysir. í apríl á sein-
asta ári var mikil óánægja vegna
þess að bjórinn seldist upp. Þetta
telja kaupfélagsmenn að komi ekki
fyrir í ár þar sem síðasta skip flutti
um 70 tonn af bjór til Kuummiit.
Nógur bjór er því til í kaupfélaginu
en engin epli. -rt
Eiríkur
Tómasson.
Valdimar
Jóhannesson.
1 www.evropa.is |
Ford Ranger crew cab. XL.skr. 10/99,
ek. 3 þús. km.
Vel búinn bíll m/plasthúsi
Verð kr. 2.490.000,
áhvílandi hagstætt bilalán.
Toyota Landcruiser VXdísil
turbo.skr. 12/98,
ek. 9 þús. km.rafdr. + leður.
Verð kr. 3.580.000.
Nissan Patrol GRdísil turbo,
skr. ‘98, ek. 41 þús. km.allt rafdr.,
leður o.m.fl.
Verð kr. 3.790.000,
skipti möguleg á ódýrari.
Subaru LegacyGL 2,0 Wagon,
skr. 10/99, ek. 6 þús. km.
Verð kr. 2.250.000,
áhvílandi hagstætt bilalán.
jVJsötuir/i sn|6 og ófæirö
neð sölusýningu
á nýjur/j og notuöu
fjórlijólaclrifsbflum.
EVRÓPA
,TAKN UM TRAUST
Faxafen 8
Sími 581 1560
Fax 581 1566