Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2000, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
33
Myndasögur
Fréttir
^ Ég skal bera þetta vatn fyrír þig,
Mútta!
y
Og svo skal ég .safna víði
og kveikja eld og gefa
.ís. hundinum.
k
Stóraukin umferð um HvaLQarðargöng:
Myndavélar og
hraöaskynjarar
koma í göngin
DV, Akranesi:
í janúar sl. óku 59.189 bílar í
gegnum Hvalfjarðargöng á móti
51.948 í fyrra. Aukningin er því um
14%, að sögn Gísla Gíslasonar,
stjómarformanns Spalar. Aukning
frá mánuðunum ágúst til desember,
miðað við sömu mánuðina 1999, var
þannig að í ágúst var hún 13%, sept-
ember 17%, október 15%, nóvember
6% og desember 2%.
Athyglisvert er að aukning varð
litil í desember og því spuming
hvort fólk hafi ekki sótt mikið, alla-
vega ekki meira en áður, í verslan-
ir til Reykjavíkur fyrir jólin.
Rekstur ganganna hefur gengiö
mjög vel. Þeim sem nýta sér afslátt-
arkjörin hefur fjölgað verulega og
eru 60% af ökumönnum sem fara
um göngin með kort. Meðalgjald af
bíl hefur lækkað úr um 820 kr. í rétt
um 650 kr. Ágæt afkoma byggist því
m.a. á aukinni umferð. Upphaflega,
eða við undirritun samninga fyrir
íjórum árum, var gert ráð fyrir 20
ára endurgreiðslutíma og stjórn
Spalar hefur viljað miða við þann
tíma i endurgreiðslu lána. Áður en
til lækkunar kom á gjaldskránni
stefndi í að þessi tími styttist veru-
lega.
„Ef umferðin eykst áfram með
sama hraða má gera ráð fyrir að
tíminn styttist eitthvað. Um það er
hins vegar erfltt að spá einhverju
fóstu þar sem ýmsar forsendur geta
breyst. Nú eru eftir 16 ár sam-
kvæmt fyrirliggjandi samningum.
Varðandi framkvæmdir í göngun-
um þá er aðallega verið að leita eft-
ir tillögum og tilboðum í mynda-
vélakerfi og hraðamyndavélar,"
sagði Gísli Gíslason, stjórnarfor-
maður Spalar. -DVÓ
Hús Videoleigunnar eftir brunann.
Endurreisn eftir brunann í Ólafsfirði hafin:
Videoleigan fékk
algjöran forgang
DV, Ólafsfiröi:
Hjónin Jakob Agnarsson og Dag-
björt Gísladóttir, sem misstu at-
vinnuhúsnæði sitt í bruna í síðustu
viku, hafa í hyggju að endurreisa
það. Framkvæmdir hófust þegar í
stað en liggja niöri þessa dagana.
Búið er að rífa þakið og mest af
innviðum hússins.
Þau hjón höfðu þokkalegar trygg-
ingar, þar á meðal rekstrartryggingu,
en endurreisn hússins verður mjög
dýr. 1 vikunni gerðu þau leigusamn-
ing við bæjaryfirvöld um að taka á
leigu félagsheimilið Tjarnarborg í
fjóra mánuði til aö byrja með með
hugsanlega framlengingu í huga. Fé-
lagsheimilið hefur ekki verið í form-
legrnn rekstri undanfarna mánuði.
Það fyrsta sem þau hjónin Jakob
og Dagbjört tóku sér fyrir hendur var
að opna myndbandaleiguna í félags-
heimilinu, en leigan er ákaflega vin-
sæl meðal bæjarbúa og hefur forgang
eins og gefur að skilja. -HJ
Vegur yfir Vatnaheiði boðinn út í næsta mánuði:
Hálfs milljarðs vegaframkvæmd
DV, Borgarnesi:
Veriö er aö undirbúa útboð á nýj-
um vegi yflr Vatnaheiði á Snæfells-
nesi að sögn Birgis Guðmundsson-
ar, umdæmisstjóra Vegagerðarinn-
ar í Borgarnesi. Snarpar deilur
stóðu á sínum tíma um vegarstæðið,
hvort leggja skyldi nýjan veg yfir
Vatnaheiði eða lagfæra Kerlingar-
skarðsveg.
„Viö reiknum með að vegurinn
fari í útboð í kringum 20. mars og
erum að vinna á fullu í útboðsgögn-
unum. Vegurinn er 16,4 km langur
og kostnaöaráætlun hljóðar upp á
466 milljónir. Reiknað er með að
verkinu ljúki haustið 2001 og þá
verði vegurinn kominn á það stig að
hægt verði að keyra um hann,“
sagði Birgir i samtali við blaðið.
-DVÓ
Blaðbera vantar
í eftirtaldar götur:
Austurbrún Njálsgötu
Norðurbrún Grettisgötu
Hverfisgata 66-100
Áhugasamir hafi samband
við afgreiðslu blaðsins
í síma 550 5777.