Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
45
DV
Hringiða
Aldís og Guörún voru í góðu stuði í Strandgötunni á
föstudaginn enda Samfésböll og aðrar athafnir sem
samband félagsmiöstöðvanna stendur fyrir yfirleitt
mjög vel sóttar.
Feguröardrottningarnar sem munu bít-
ast um titilinn ungfrú ísland.is, nú í lok
mánaöarins, fóru um Nýkaup í Kringl-
unni í fylgd einkaþjálfarans Sólrúnar
Birgisdóttir, eða Sólu í Baöhúsinu. Til-
gangurinn var að fræöast aöeins um
næringargildi fæöunnar. Stúlkurnar
stöldruðu viö hjá bolludagsbollunum og
settu þumalputtana niður.
Húbert Nói og Tumi Magnússon
virtu fyrir sér listaverk Svövu
Björnsdóttur á sýningunni sem
opnuð var á verkum hennar í
Listasafni ísiands á laugardaginn.
Rappararnir Pétur Orn, Siguröur Jón og Jón Héöinn úr félagsmiöstööinni
Miðbergi í Breiöholtinu tékkuöu á gangi mála á ballinu sem samband félags-
miöstöövanna hélt í Hafnarfirðinum á föstudaginn.
Hitinn í íþróttahúsinu viö Strandgötu var kominn
hátt í sumarhitann á Spáni enda þessi ungi maöur
kominn hálfa leiðina úr ballgallanum, viö góðan
fögnuö nærstaddra.
Páil Óskar Hjálmtýsson kann aö gera allt brjálaö þar
sem hann kemur. Hann var mættur í dúndurstuöi
meö nýja klippingu á Samfésballiö í Strandgötunni.
DV-myndir Hari
i V- / ■' 11 1 ’
K i
ÍSLENSKA KVIKMYNDASAMSTEYPAN
ULILdQLBYJ
D I G I T A L
«