Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2000, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 6. MARS 2000
Afmæli____________________
Haukur Hjaltason
Haukur Hjaltason forstjóri,
Reykjahlíð 12, Reykjavik, er sextug-
ur í dag.
Starfsferill
Haukur fæddist í Reykjavík og
ólst upp á Eiöstöðum við Bræðra-
borgarstíg.
Haukur lærði matreiðslu á Hót-
el Sögu, stundaði nám við Hótel-
og veitingaskóla íslands, útskrif-
aðist sem matreiðslumaður 1964
og öðlaðist meistararéttindi 1967.
Haukur var yfirmatreiðslumað-
ur á Hótel KEA á Akureyri og í
Tjarnarbúð 1964-65, aðstoðaryfir-
matreiðslumeistari á Hótel Loft-
leiðum 1965-66 en stofnaði og rak
síðan eigin veitingarekstur
1966-74, Sælkerann í Hafnarstræti,
Óðal við Austurvöll og Nautið í
Austurstræti 12a.
Haukur hefur starfrækt inn-
flutningsfyrirtæki frá 1969. Hann
var meðeigandi veitingahúsa Asks
1979-82 og stjórnarformaður
þeirra. Þá starfrækti hann til-
raunabú í nautgriparækt 1982-85.
Haukur sat í stjórn Hafskips
1979-83, er stjórnarformaður
Birgðaverzlunar Gripið & greitt
frá 1993, sat í stjórn Junior Cham-
ber i Reykjavík 1974-75 og var út-
nefndur senator Junior
Chamber og forseti
Senatsins 1986-87.
Haukur sat í stjórn
knattspyrnudeildar KR
1978-82, sat í stjórn
Heimdallar 1971-73 og í
stjórn SUS 1973-75.
Haukur hefur skrifað
greinar í blöð og tímarit
um efnahagsmál, stjórn-
mál og fagleg málefni.
Fjölskylda
Haukur kvæntist 6.3.1971 Þórdísi
Jónsdóttur, f. 11.12. 1938, skrifstofu-
stjóra. Hún er dóttir Sigurlaugar
Davíðsdóttur, verslunarkonu og
síldarsöltunarstúlku, og Jóns Þor-
kelssonar, skipstjóra og síldarmats-
manns, en þau bjuggu á Siglufirði
til 1956 er fjölskyldan flutti til
Reykjavíkur.
Dóttir Hauks og Þórdísar er
Charlotta María Hauksdóttir, f. 31.5.
1972, nemi í VÍ.
Sonur Þórdísar er Jón Daði Ólafs-
son, f. 20.4. 1964, stundar masters-
nám í viðskiptafræðum og tölvunar-
fræðum í Kaliforníu.
Börn Hauks eru Guðjón Heiðar
Hauksson, f. 30.7. 1969, kvikmynda-
gerðarmaður; María R. Hauksdóttir,
f. 21.8. 1958, starfsmaður
hjá Landsbanka íslands.
Systkini Hauks: Char-
lotta María Hjaltadóttir,
f. 24.8. 1953,
sendiráðsritari í París;
Hafsteinn Hjaltason, f.
28.1. 1935, en kona hans
var Guðrún Björnsdóttur
og eiga þau þrjú böm;
Jón Hjaltason, f. 2.5.1941,
forstjóri Öskjuhlíðar hf.,
kvæntur Guðnýju Guð-
jónsdóttur en hann á
fimm börn.
Foreldrar Hauks: Hjalti Jónsson,
f. 30.8.1903, d. 18.5.1971, verksmiðju-
stjóri Ó. Johnson & Kaaber, og k.h.,
Jóhanna Baldvinsdóttir, f. 19.11.
1911, húsmóðir.
Ætt
Systir Hjalta var Ásta, móðir
Garðars Þorsteinssonar hjá Sjó-
mannadagsráði og amma Þorsteins
Pálssonar sendiherra. Hjalti var
sonur Jóns, sjómanns á Eiðsstöðum,
Guðmundssonar, b. í Ánanaustum,
Gíslasonar, b. í Ánanaustum, Guð-
mundssonar, b. i Ánanaustum,
Gíslasonar, í Breiðholti við Öskju-
hlíð. Móðir Gísla í Ánanaustum var
Hólmfríður Eyleifsdóttir, b. í Skild-
inganeskoti. Móðir Jóns var Mar-
grét Ásmundsdóttir, b. á Bjargi á
Kjalarnesi, Gissurarsonar. Móðir
Margrétar var Guðrún Þórðardótt-
ir, systir Runólfs, afa Bjöm Þórðar-
sonar forsætisráðherra. Móðir Guð-
rúnar var Sigríður Þórólfsdóttir, b.
í Engey, Þorbjarnarsonar, bróður
Guðlaugar, langömmu Guðrúnar,
langömmu Bjarna Benediktssonar
forsætisráðherra, föður Björns
menntamálaráðherra.
Móðir Hjalta var Þórunn, systir
Guðmundar, kirkjugarðsvarðar í
Skólabæ, afa Ágústs Einarssonar,
fyrrv. forstjóra Stálsmiðjunnar. Þór-
unn var Einarsdóttir, frá Skólabæ á
Hólavöllum í Reykjavík.
Jóhanna er dóttir Baldvins, sjó-
manns í Færeyjum, bróður Margrét-
ar, kaupkonu í Reykjavík og í New
York. Baldvin var sonur Einars,
skipasmiðs á Eyrarbakka.
Móðir Jóhönnu var Lilja, dóttir
Guðmundar, skipstjóra i Stykkis-
hólmi, Halldórssonar, og Charlottu
Maríu Jónsdóttur.
Haukur verður að heiman á af-
mælisdaginn en þau hjónin taka á
móti gestum í samkomusal Ferðafé-
lags íslands, Mörkinni 6, Reykjavík,
þann 31.3. milli kl. 17.00 og 20.00.
Haukur Hjaltason.
Paul Ragnar Smith
Paul Ragnar Smith, yfirkerfis-
fræðingur og innkaupastjóri hjá
Landssíma íslands, Heiðvangi 5,
Hafnarfirði, er sextugur í dag.
Starfsferill
Paul er fæddist á Víðimelnum í
Reykjavík og ólst upp í vesturbæn-
um. Hann lauk landsprófl frá Gagn-
fræðaskólanum við Vonarstræti
1956, atvinnuflugmannsprófi frá
Flugskólanum Þyt 1960 og loftsigl-
ingafræðinámi 1961.
Á unglingsárunum var hann m.a.
við uppskipun hjá Eimskip, af-
greiðslustörf hjá Verslun O. Elling-
sen, háseti á togara og handfærabát
ásamt störfum við byggingu Stein-
grímsstöðvar við Sogið.
Paul var flugmaður hjá Flugfélagi
íslands 1962, loftsiglingafræðingur
hjá Loftleiðum 1964-71, microfllmu-
sérfræðingur og ljósmyndari hjá
verkfræðistofu Varnaliðsins á
KeflavíkurflugveUi 1971-81 og hefur
síðan stundað margs konar tölvu-
störf, m.a. verið deildarstjóri tölvu-
deildar Ríkismats sjávarafurða og
sl. fjórtán ár hjá tölvudeild Lands-
síma íslands.
Fjölskylda
Paul kvæntist 22.4. 1962 írisi
Bryndísi Guðnadóttur, f. 7.11. 1943,
húsmóður. Hún er dóttir Guðna
Guðbjartssonar, f. 29.6. 1916, stöðv-
arstjóra á Ljósafossi, og Ragnheiðar
Guðmundsdóttur, f. 10.6. 1913. Paul
og íris skildu 1971.
Börn Pauls og Irisar eru Guðni
Ragnar, f. 3.2. 1961, dýralæknir í
Noregi, kvæntur Britt Louisu Did-
riksen, f. 25.5. 1965, lækni, í
Drammen í Noregi og eru börn
þeirra tvíburarnir Björn Ragnar, og
Anne Bryndís, f. 10.8. 1987, og Hilde
Bjerk, f. 12.5. 1994; Erling, f. 2.5.
1964, kvæntur Guðrúnu Jónu Braga-
dóttur, f. 10.6. 1965, en dóttir þeirra
er íris Una, f. 21.5.1996.
Sambýliskona Pauls frá 1976 er
Guðný Valtýsdóttir, f. 1.9. 1945,
tækniteiknari hjá Ráðgarði Skipa-
ráðgjöf ehf. Foreldrar hennar eru
Guðmundur Valtýr Guðmundsson,
f. 4.7. 1912, bifreiðarstjóri, og Val-
gerður Jónsdóttir, f. 15.11.1924, hús-
móðir.
Börn Guðnýjar og stjúpbörn
Pauls eru Þór Eiríksson, f. 9.12.
1965, rafmagnsverkfræðingur hjá
Landssímanum, kvæntur Huldu
Guðmundsdóttur, f. 12.5. 1969, og
eru börn þeirra Sunna Maren, f.
11.3. 1994, og Harpa Mjöll, f. 12.4.
1999; Valgerður Eiríksdóttir, f. 2.4.
1971, nemi í innanhússhönnun í
Flórída, gift Tómasi Erlingssyni, f.
11.2.1970, tölvunarfræðingi, en börn
þeirra eru Tara Líf, f. 8.6. 1992, og
Tinna, f. 21.4. 1995.
Bróðir Pauls: Othar Smith, f. 31.3.
1937, búsettur í Seattle i Bandaríkj-
unum.
Hálfsystir Pauls, sammæðra, er
María Jóhanna Lárusdóttir, f. 14.10.
1946, kennari.
Hálfsystir Pauls, samfeðra, er
Elsa Smith, f. 24.11. 1945, húsmóðir
Foreldrar Pauls voru Erling
Smith, f. 22.2. 1910, d. 11.9. 1985,
skrifstofustjóri í Reykjavík, og Mat-
hilde Marie Ellingsen, f. 11.7. 1912,
d. 1.8. 1980, húsmóðir. Þau skildu.
Seinni eiginmaður Mathilde og
stjúpfaðir Pauls var Lárus Pálsson
leikari, f. 12.2. 1914 d. 12.3. 1968.
Marie var dóttir Othars Petters
Jægers Ellingsens, skipasmiðs og
verslunarmanns, og Marie Elling-
sen frá Kristiansund í Noregi.
Erling var bróðir Thorolfs
blaðamanns og sonur Pauls Smiths,
verkfræðings frá Þrándheimi, og
Oktavíu Grönvold.
Andlát
Heiðar Guðbrandsson
Valsteinn Heiðar Guð-
brandsson, Ámesi, Súða-
vík, lést af slysförum
mánudaginn 28.2. sl.
Hann verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju í
dag, mánudaginn 6.3., kl.
15.00.
Starfsferill
Heiðar fæddist 12. apríl
1947 í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann sótti nám-
skeið hjá Hótel- og veit-
ingaskóla íslands, lauk
þaðan prófi með matsveinaréttindi
og stundaði nám við Félagsmála-
skóla alþýðu í Ölfusborgum.
Heiðar stundaði verslunar- og
verkamannastörf á unglingsárum,
fór til sjós um tvítugt og vann að
mestu sem kokkur á togurum og
bátum fram til 1987. Heiðar vann
einnig hjá Frosta hf. í Súðavík, m.a.
sem verkstjóri, var bryti við Hérað-
skólann í Reykjanesi 1987-89 og
stundaði einnig hótelrekstur þar aö
sumarlagi. Að auki starfaði Heiðar
hjá Súðavíkurhreppi og stundaði
byggingavinnu. Þá var
hann fréttaritari DV í
Súðavík.
Heiðar var formaður
Verkalýðs- og sjómanna-
félagsins í Súðavík
1973-78, sat í sambands-
stjóm Sjómannasam-
bands ísland, sat í stjóm
Matsveinafélags íslands,
sat í hreppsnefnd Súða-
vikur 1982-85 og frá 1990
til dauðadags. Heiðar sat
einnig í skólanefnd
Grunnskóla Súðavíkur,
var formaður hennar 1982-86, var
formaður fræðslunefndar Súðavík-
ur, sat í barnaverndarnefnd Súða-
víkur og formaður hennar 1982-86.
Heiðar átti sæti i almannavarnar-
nefnd Súðavíkur, hafnarnefnd Súða-
víkur, byggingarnefnd Súðavíkur
og skipulagsnefnd fyrir nýja Súða-
vík. Hann veitti Björgunarsveit
Súðavíkur formennsku um skeið,
sat í stjórn Kaupfélags ísfirðinga og
stjórn Steiniðjunnar hf. Þá sat
Heiðar í stjóm Sambands ungra
framsókanrmanna, í miðstjórn
Framsóknarflokksinns, í stjórn
kjördæmasambands Framsóknar-
flokksins á Vestfjöröum og var for-
maður Framsóknarfélagsins í Súða-
vík.
Fjölskylda
Heiðar kvæntist 10.8.1968 Maríu
Kristófersdóttir, f. 13.11. 1947, hús-
móður og verkakonu. Hún er dótt-
ir Kristófers Ingimarssonar á Graf-
arbakka og k.h., Kristinar Jóns-
dóttir húsfreyju.
Sonur Heiðars frá því fyrir
hjónaband er Guðmundur Birgir, f.
22.5. 1966, sem nú stundar fram-
haldsnám í Bandaríkjunum,
kvæntur Heiðveigu Jóhannsdótt-
ur, f. 27.10. 1969, og er sonur Guð-
mundar Dagur Freyr, f. 3.4. 1995,
sem nú er látinn.
Synir Heiðars og Maríu eru
Kristófer, f. 31.1. 1969, sjómaður í
Súðavik, í sambúð meö Ragnheiði
Jóhannesdóttur, f. 14.10. 1966, en
dóttir þeirra er Brimrún Irma, f.
11.11. 1998; Albert, f. 6.4. 1970,
verkamaður í Reykjavík, í sambúð
með Guðnýju Hönnu Jónasdóttur
en dóttir þeirra er María Kristín, f.
16.9.1999; Ármann, f. 19.2.1976, sjó-
maöur í Grindavík
Systkini Heiðars eru Vigdís
Alda, f. 14.5. 1949, húsmóðir á
Breiðavaði, gift Magnúsi Jóhanns-
syni verkstjóra; Albert Ómar, f. 6.7.
1951, bátasmiður í Njarðvík, en
sambýliskona hans er Guðríður
Jónasdóttir húsmóðir; Sævar, f.
5.1. 1954, útgerðarmaður á Húsa-
vík, kvæntur Svölu Björgvinsdótt-
ur húsmóður; Steinunn, f. 3.10.
1956, skrifstofumaður, búsett í
Hafnarfirði, gift Hallbergi Svavars-
syni, tannsmið og tónlistarmanni;
Haraldur Halldór, f. 29.9. 1965,
framkvæmdastjóri í Borgamesi, en
sambýliskona hans er Svanhildur
Ólafsdóttir; Rögnvaldur f. 16.12.
1967, matreiðslumeistari í Reykja-
vík.
Foreldrar Heiðars eru Guð-
brandur Rögnvaldsson, f. 29.10.
1926, fyrrv. bílamálarameistari í
Reykjavík og síöar starfsmaður hjá
Securitas, og k.h., Bjarndis Inga
Albertsdóttir, f. 18.8. 1926, húsmóð-
ir.
Valsteinn Heiðar
Guðbrandsson.
DV
Tii hamingju með afmælið 6. mars
90 ára
Jóhann S. Þorsteinsson, Sæviðarsundi 31, Reykjavík.
85 ára
Kristjana Sigurðardóttir, Arahólum 4, Reykjavík.
80 ára
Guðrún Þorkelsdóttir, Leifsgötu 7, Reykjavik. Jón A. Gestsson, Hrafnistu, Hafnarfirði. Jónmundur Jónsson, Hringbraut 50, Reykjavík. Kristín Karlsdóttir, Sléttuvegi 17, Reykjavík.
75 ára
Jóhannes Guxmar Hermimdsson, Gránufélagsgötu 23, Akureyri. Haraldur Ámason, Sjávarborg 2, Sauðárkróki. Herdís Sigurjónsdóttir, Teigagerði 1, Reykjavík.
70 ára
Erna Gunnarsdóttir, Logafold 21, Reykjavík. Hjördís U. Guðlaugsdóttir, Háaleitisbraut 111, Reykjavik. Lillý Erla Guðjónsdóttir, Vesturbergi 10, Reykjavík. Sigfriður Hermannsdóttir, Hjarðarhaga 33, Reykjavík. Valgarður Frímann, Álftamýri 40, Reykjavík.
60 ára
Bjarni Jón O. Ágústsson, Þykkvabæ 19, Reykjavík. Guðbjörg S. Runólfsdóttir, Geitlandi 11, Reykjavík. Sigríður H. Óskarsdóttir, Nónvörðu 12a, Keflavík. Sigríður Jónsdóttir, Grýtubakka 28, Reykjavík. Snæbjöm Árnason, Dalbraut 24, Bíldudal. Valur Guðmundsson, Klapparstig 10, Njarðvík.
50 ára
Ari Einarsson, Hæli II, Gnúpverjahreppi. Hanna Fjóla Eiríksdóttir, Breiðvangi 36, Hafnarfirði. Hulda Guðmundsdóttir, Vatnsholti 9d, Keflavík. Ragnheiður Jónsdóttir, Vallholti 30, Selfossi. Samer Thailuenam, Ægisíðu 121, Reykjavík. Sigríður Herbertsdóttir, Engihjalla 3, Kópavogi. Þóra Bjarnveig Jónsdóttir, Jófríðarstvegi 10, Hafnarfirði.
40 ára
Anna Sigurrós össurardóttir, Bústaðavegi 103, Reykjavik. Ásdís Þórðardóttir, Bárðarási 17, Hellissandi. Benedikt Ó. Benediktsson, Hvanneyrarbraut 48, Siglufirði. Berglind Eiríksdóttir, Bleiksárhlíð 22, Eskiflrði. Eyjólfur Sigurðsson, Suðurmýri 34, Seltjarnarnesi. Guðrún B. Valgeirsdóttir, Hlíðarvegi 28, Njarðvík. Hallgrímur Arthúrsson, Hlíðargötu 30, Sandgerði. Helga Gisladóttir, Guttormshaga, Rangaárvallas. Kristján Arinbjamar, Hvammsgerði 14, Reykjavík. Magnús Gunnar Sigurðsson, Garðsstöðum 14, Reykjavík. María Sigurbjörnsdóttir, Stekkjarholti 7, Akranesi. Páll Rúnar Guðjónsson, Rauðagerði 18, Reykjavík. Rannveig Lilja Helgadóttir, Hólatúni 2, Sauðárkróki.